Þjóðviljinn - 02.09.1979, Qupperneq 11

Þjóðviljinn - 02.09.1979, Qupperneq 11
Sunnudagur 2. september 1979. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11 Átján ára heims- meistari kvenna Ég spyr um meöalaldur safn- aöarmeölima. Sveinbjörn stingur pípunni i skeggiö. — Ætli þaö sé ekki einhvers staöar yfir tvltugu. Þetta er nú mest ungt fólk af báöum kynj- um. Kannski eru nú fleiri karl- kyns I sjálfum söfnuöinum, en á blótin koma jafnt konur sem karlar. Þaö er oröiö skuggsýnt I eldhúsinu. — 0 — Sveinbjörn rls á fætur og kveikir á steinollulömpunum. Undarleg og forn stemmning myndast I herberginu. — Hvernig fara svo bíótin fram? Sveinbjörn sest. — I upphafi helgum viö blót- ið, viö friölýsum blótiö, lýsum þvi yfir að þetta sé heilög stund og staöur og hér riki friður og helgi. — Og svo? — Þá drekkum við minni guöanna. Viö drekkum mjöö, sem er vanalega hvitöl styrkt meö brennivíni. Þetta er nú svona heldur frumstæö aöferö. En þetta veröur aðeins sterkari en löglegur mjöður. Þá minnast menn guöanna meö ýmsum hætti. — Eins og? — Meö söng, Hávamál eru sungin og Völuspá kyrjuö. Viö látum horniö ganga á milli manna. Sveinbjörn stendur á fætur og hverfur inn I stofuna bakvið eld- húsiö og kemur til baka meö hrútshorn mikiö meö áfastri keöju. — Þetta er eins og þaö kemur af skepnunni, segir hann og klmir. Þegar allir hafa drukkiö af horninu, hellum viö afgangn- um yfir steininn eöa styttuna sem er tákn blótsins. — Þiö færiö ekki fórnir? — Nei. Viö nennum ekki aö slátra dýrum. Viö höfum enga þræla til þess eins og fornmenn hér áöur fyrr. Hann þegir og horfir út um gluggann. Mér hefur enn ekki tekist aö horfast I augu viö hann. — Haltu áfram aö lýsa blótunum. — Ja, svo er étiö og drukkiö frjálst. Stundum er sklrn eöa hátlðleg inntaka nýrra meö- lima. — Hvernig fer þaö fram? — Viö fundum eitthvert form yfir þetta. Ég lýsi yfir vigslu þessa fólks I félagið. Og vana- lega leggja þessir nýju meölim- ir eitthvaö af mörkum sjálfir. Þeir lesa gjarnan úr Eddu eöa öörum fornum fræöum. Skirnin fer l{ka þannig fram. Ég fer meö forn kvæöi yfir barninu og óska þvi heilla I framtlöinni. Foreldrarnir fara einnig meö tölu úr fornum fræöum. Fyrsta barniö sem ég skiröi átti reyndar norska foreldra, og var gefið nafniö Bragi. Bragi Viöarsson. — Hvernig er svo blótinu slit- iö? — Yfirleitt opna ég blótiö, en einhver annar slitur þvi. Þaö er svo sem ósköp venjulegt, sá sem slitur tekur aö sér aö syngja, svo stendur ejnhver safnaöar- meðlima upp og flytur þakkir til guöanna og þeirra sem hafa veriö á blótstaö. Svo syngja all- ir. Gjarnan Sigurdrifumál. Þaö var valkyrja, en kvæöiö er frá svipuöum tima og Völuspá. Yfirleitt er um fjóröungur Asatrúarmanna á þessum blót- um, en afgangurinn gestir þeirra eöa aörir forvitnir. Þessi blót eru opin öllum. Þegar ég kveð, er oröið nær aldimmt. Sveinbjörn fylgir til dyra og ég vlk þvl aö honum á myrku hlaöinu aö nútlmamanneskjan leiöi hugann æ minna aö trúmálum. — Þaö má vel vera, segir hann og starir yfir dalinn eins og hann bjóöi álfum, huldufólki, dvergum, disum, tröllum, nykr- um og öðrum vættum góörar nætur. — Þaö má vel vera, endur- tekur hann. En ég hef aldrei reynt að lifa án guða. I Sovétríkjunum er skák eins og kunnugt er í háveg- um höfð/ ekki aðeins hjá körlum heldur einnig hjá konum. Strax á unga aldri fá stúlkur sem þykja sýna sérstaklega mikla hæfi- leika á skáksviðinu, þjálf- ara, jafnvel fleiri en einn, sem reyna allt hvað þeir geta til að laða það besta fram úr viðkomandi. Skákmótum kvenna eru gerð mjög góð skil í fjölmiðlum og áhorfendur láta sig sjaldnast vanta þegar fram fara sterk kvennaskákmót. Um margra ára skeiö, eöa allt frá árinu 1962 bar ein kona ægis- hjálm yfir allar aörar stöllur sin- ar. Hana þekkja flestir, Nonu Gaprindhasvili. Gaprindhasvili hefur hvaö eftir annaö náö mjög góöum árangri á karlaskákmót- um en hennar allra besti árangur á þeim vettvangi kom án efa á alþjóölega mótinu 1 Lone Pine 1977, en þar varö hún i 1—4. sæti ásamt 3 stórmeisturum. Ári siöar var hún útnefnd stórmeistari, ekki stórmeistari kvenna, heldur hlauthún titil karla, fyrst kvenna. Utnefning hennar orkaöi aö ýmsra mati tvlmælis, þvi hún haföi ekki teflt nægilega margar skákir til aö uppfylla öll skilyröi. FIDE hefur þó þann háttinn á aö veita titla I sérstökum tilvikum til þess aö efla skákáhuga, I þessu tilviki hjá konum, þvi fyrir nokkr- um árum var lítt þekktur Filippseyingur, Balinas aö nafni, sæmdur stórmeistaragráöu svona rétt til aö gefa Asiubúum til kynna aö þetta væri hægt. Útnefning var harölega fordæmd enda hefur þaö sýnt sig aö Balinas var engan veginn aö titlinum kominn. Elo-stigatafla hans sýnir þaö mjög vel, hún er langt undir 2400 stig. Stór- meistarastyrkur er talinn vera um og yfir 2500 stig og styrkur Fundið eðluegg Nokkrir amerfskir risaeölu- fræðingar fundu nýlega vel varö- veitt dinósaurusegg I Noröur- Montana. Þetta er fyrsta heiilega risaeölueggiö sem oröið hefur á vegi þeirra I Noröur-Ameriku. Fundinn bar aö I þann mund sem illvigur hópur oliuleitar- manna ætlaöi aö sprengja allt svæöiö I von um jarögas eöa ollu. Hjá egginu fundu mennirnir bein sem bentu til þess aö þessi dlndsaurus hafi veriö kjötæta. Þetta er þá I fyrsta skipti sem egg sllks dinósaurusar kemur i leitirnar. Aöur höföu menn fundiö egg jurtaætu-dínðsaurusa i Mongóliu og Suöur-Frakklandi. alþjóölegs meistara 2400 stig og þar yfir. Til samanburöar má lita á alþjóöastig islensku titilhaf - anna. Friðrik Olafsson hefur 2560 stig, Guömundur Sigurjónsson 2490 stig. Helgi Olafsson og Ingi R. Jóhannsson 2440 stig. Margeir Umsjón: Helgi Ólafsson Pétursson 2420 stig og Jón L. Arnason 2410 stig. En nóg um þaö. í fyrra var háö einvigi um heimsmeistaratitil kvenna. Andstæöingur Nonu var 17 ára gömul skólatelpa frá Grúsiu, Maja Chiburdanidse. Ekki var búist viö aö hún veitti hinum margreynda andstæöingi sinum mikla mótspyrnu, mikla keppni, en annaö kom á daginn. Eftir nokkur jafntefli i upphafi tók hún forystuna meö þvi aö vinna tvær skákir 1 röð. Hún gaf forskot sitt aldrei eftir og uröu lokatölur 8 1/2:6 1/2. Nýr heims- meistari var tekinn viö. Þaö er athyglisvert aö á meöan Nona hefur hvaö eftir annaö náö góöum árangri I karlaskákmótum, hefur hún átt mjög erfitt uppdráttar I skákmótum kynsystra sinna I Sovétrikjunum. Skemmst er aö minnast Skákþings Sovétrikjanna i kvennaflokki fyrir nokkrum ár- um en þar rétt maröi hún aö komast yfir 50% mörkin og i þvi móti tapaði hún I fyrsta sinn fyrir Chiburdanidse. Hinn nýi heimsmeistari hefur ákaflega hvassan skákstil og tefl- ir óhikaö upp á sókn. Ýmsir hafa boriö stll hennar saman viö stil Bobby ‘Fischers og kannski ekki aö ósekju. Bandariskur blaöa- maöur haföi eitt sinn viötal viö hana og I lok þess spuröi hann hvort hann gæti ekki gert eitthvaö fyrir hana, svona sem greiöslu fyrir viötaliö: „Sendu mér bókina með öllum skákum Fischers” var svariö. Aörar skákkonur en þær sem hér hafa veriö nefndar hafa einn- ig getiö sér gott orö. Einn skæö- asti keppinautur Gaprindhasvili var Alla Kushnir, fyrrum Sovétþegn en býr nú I Israel. Hún var langt komin I heimsmeistara- keppni kvenna en tapaöi naum- lega i einvigi fyrir Chiburdanidse. Þá mætti nefna Irinu Levetinu og Nönu Leventinu sem báöar eru skákkonur I fremstu röö. Allar þessar munu sjálfsagt berjast hatrammlega um réttinn til aö Nona Gabrindasvili skora á hinn unga heimsmeist- ara. Keppnin um áskorendarétt- inn fer meö nákvæmlega sama hætti fram og hjá körlunum, nema hvaö skákirnar eru færri. Eins og á fleiri sviöum hafa hleypidómar karlmanna veriö miklir I sambandi viö skákiökun kvenna. Bobby Fischer var þar framarlega I flokki. Sagöist hann geta gefiö hvaöa konu sem væri riddara i forgjöf og unniö hana eins og hann lysti. Fyrir þá sem til þekktu var fullyröing Fischers ekki alveg út I hött, þvl hann átti þaö til aö gefa þekktum stórmeisturum riddara I forgjöf I hraðskákum og vinna samt næsta auöveldlega. I venjulegri kapp- skák er óhætt aö fullyröa aö eng- inn núlifandi stórmeistari gæti gefiö skákkonum á borö viö Gap- rindhasvili og Chiburdanidse slika forgjöf, svo mikið er vlst. Læt ég þá þessu spjalli um kvenna-skák lokiö og bendi um leið á aö þetta er ekki APN-grein! Samcæmdxtr afgtcaðshitími Frá 1. september 1979 verður almennur afgreiðslutími innlánsstofhana sem hér segir: Mánudaga til fostudaga kL 9:15 - 16KX) Auk þess verða afgreiðslur flestra innlánsstofhana opnar alla fímmtudaga Id. 17:00 - 18KX) ViÓskiptabankar og sparisjóðir — im.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.