Þjóðviljinn - 02.09.1979, Blaðsíða 16
16 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 2. september 1979
Horft til Rjúpnagils og Höfðabrekkujökuls
gengur
með gömlum
og nyjum
feröafélaga
um
fagrar
en fáfarnar
slóðir
brekku
afrétti
Á IÐRUNARSTANDI
Við setjumst uppí gömlu
bláu kortínuna mína tveir
gamlir ferðafélagar. Hinn
malbikaði vegur hefur
hægt og hægt teygt sig
lengra austur og er nú
næstum því kominn að
Rauðalæk. Guðjón er með
kortin, enda hans sérgrein
og brátt byrjar hann að
þylja yfir mér bæjar-
nöfnin, svo vonlítið sem
það er að mér takist að
læra nema svo sem tvö til
þrjú ný í hverri ferð.
*
A austurleið komum viö að
Skógum undir Eyjafjöllum og
drekkum kaffi með kökum á
Eddu-hótelinu i vistlegum sal
með sérlega gengilbeinu við
höndina og það kostar bara 1200
krónu'r á mann.
Það grúfa ský yfir Sólheima-
jökli og næstu grösum en þegar
viö komum á móts við Pétursey
fer að létta til og I Reynishverfi er
glampandi sólskin svo viö freist-
umst að skoða Reynisdrangana
og stuðlabergiö vestanundir fjall-
inu þótt klukkan sé langt gengin
sjö. A klettabrik sitja fjórir
greindarlegir lundar en neöan-
undir á flötum steini hefur mjó-
slegin súla lagst til hinstu hvfldar
með skotsár á hvítu brjóstinu.
Viö förum afleggjarann að
Heiðarvatni, sem skyndilega
blasir við kviaðfjöllum. Við Litlu-
Heiði stönsum viö, ætlum aö biðja
leyfis að skilja bilinn eftir á
Gro1” jfundur viö rönd Kötlujökuls.