Þjóðviljinn - 02.09.1979, Qupperneq 23
Sunnudagur 2. september 1979. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 23
Umsjón:
Vilborg
Dagbjartsdóttir
Blönduós.
Akureyri höfuðstaOur Norðurlands.
Vinningar voru ekki sólarlandaferðir
heldur Hvammstangaostur og Sigló-
síld
Laugardaginn 28. júlí
vaknaði ég við að það var
glaða sólskín." Hv'a'ð
skyldi verða gert í dag?
hugsaði ég með mér. Allt
í einu komu mamma og
pabbi og sögðu mér að
fara á fætur. Þá mundi
ég eftir að AB-ferðin var \
dag. Það var hið besta
ferðaveður, sól og blæja-
logn. Við gengum frá
dótinu og sjálfum okkur
og fengum okkur svo að
borða. Er við vorum til-
búin kom rútan og þá var
ferðin í Leyningshóla í
Eyjafirði hafin.
Fyrst var keyrt til
Blönduóss. Þar tókum við
einn mann. Svo var keyrt
i Varmahlíð í Skagafirði,'
enn áttum við að taka
fólk þar. Á leiðinni var
margt að sjá, allt frá
stórum og fallegum
bændabýlum, niður í
kofarústir. Er komið var
framhjá samkomuhúsinu
Húnaveri var keyrt á
Vatnsskarð. Það er 441
metra yfir sjávarmáli. í
norðanverðu Vatnsskarði
er minnisvarði um Steph-
an G. Stephanson skáld.
Þarna á skarðinu var bær 1
er Brekka hét, þar bjó
Bólu-Hjálmar.
Þegar við komum að
Varmahlíð var keyrt að
bústað Ragnars Arnalds
og þar kom fólk í rútuna.
Fóru Húnvetningarnir í
veitingaskálann á meðan.
Var svo keyrt af stað til
Akureyrar.
[ Skagafirði er bærinn
Bóla. Þar bjó Bólu-
Hjálmar um langt skeið.
Skammt frá Bólu eru
Silfrastaðir. Á Silfrastöð-
um er stór steinn með
tveim götum á. Sagt er að
smali á Silfrastöðum hafi
Bólu-Hjálmar dó á Brekku.
Þaö er fallegt I Lystigaröinum
á Akureyri.
bundið draug við steininn
og síðan séu þessi göt.
Kirkjan sem nú er í Ár-
bæjarsafni í Reykjavik
var eitt sinn á Silfrastöð-
um.
Er keyrt hafði verið yf-
ir öxnadalsheiði og niður
i öxnadal, þá sáum við
heim að Hrauni,
Jónas Hallgrimsson fæddist á
Hrauni I öxnadal.
fæðingarstað Jónasar
Hallgrímssonar. Þar er
svonefndur Staðartungu-
háls og liggur hann á milli
öxnadals og Hörgárdals.
Ekki var keyrt lengi áður
en Akureyri sást og innan
stundar vorum við á
Akureyri. Var keyrt að
Hótel K.E.A. og drukku
flestir þar, en sumir fóru
á Bautann sem er þar
rétt hjá.
Þegar allir voru orðnir
mettir var keyrt í
Leyningshóla. í Eyjafirði
er mikil skógrækt, en
þarna í Leyningshólum
eru einu skógarleifarnar
frá fyrri tímum í Eyja-
f irði.
Þegar við komum í
Leyningshóla voru þar
komnir Siglfirðingar og
Sauðkræklingar, en þeir
voru á einkabílum, því
það er svo stutt fyrir þá
að fara, og tíndist fólk úr
kjördæminu fram eftir
kvöldinu á einkabílum, en
það var bara ein rúta.
Meðal þeirra síðustu sem
komu voru Ragnar Arn-
alds og Stefán Jónsson,
en þeir höfðu verið á
fundi á Raufarhöfn. Að
lokum komu svo Skag-
strendingarnir. Þegar
allir voru búnir að koma
sér fyrir fór fólk að
hugsa til kvöldvöku.
Sprek voru týnd þarna í
kring og sett í stafla á
grjóthól þarna. Svo yar
bálið kveikt. Ragnar og
Stefán sáu um skemmt-
un til að byrja með. Svo
var spilað og sungið
dálitla stund. Las nú
Hallveig kona Ragnars
formála að bók um f jall-
göngur og var formálinn
eftir Halldór Laxness.
Eftir það var farið í leiki.
Það var hlaupið i skarðið,
farið í kíló, þrífótar-
keppni, kött og mús og
einhverja fleiri leiki. Á
meðan á leikjunum stóð
voru seldir happdrættis-
miðar. Þegar kvöldvök-
unni lauk fór fólkið að
tínast í svefn, en samt
vöktu sumir bó yfir bál-
inu svo ekki kviknaði í
skóginum.
Sunnudagurinn 29. júlí
var líkur fyrri deginum,
nema hvað niðabrælu-
þoka var um morguninn.
Þótti mörgum það slæmt
því áætlað hafði verið að
fara í fjallgöngu. Þegar
fólkið hafði klæðst, mat-
ast og tekið dótið saman,
var dregið í happdrætt-
inu. Vinningarnir voru nú
ekki sólarlandaferðir eða
svoleiðis, heldur
Hvammstangaostur,
peysur, húfur, vettlingar,
treflar og siglósíld. Er
allir vinningarnir voru
gengnir út var lagt af
stað heim.
Við stoppuðum á Laug-
um og í Saurbæjarkirkju
á leiðinni frá Leynings-
hólum til Akureyrar.
Ætluðu sumir í sund á
Laugum, en það átti að
f ara að loka svo það var
ekki hægt. Urðu sumir
fyrir vonbrigðum. Á
Akureyri fórum við í
Lystigarðinn að skoða.
Það er ofsalega fallegt
þar,tré af öllum stærðum
og gerðum, falleg blóm,
gosbrunnur og margt
fleira fallegt. Svo var
farið á Hótel K. E.A. og í
Bautann og drukkið, en er
því var lokið var haldið
heim á leið. Var ekkert
stoppað fyrr en í Varma-
hlíð, því þar þurfti að
skila fólkinu sem við tók-
um daginn áður. Þegar
allt þeirra dót og það
sjálft var komið af var
ekið á Blönduós og svo á
Hvammstanga, en okkur
var skilað heim í leiðinni.
Mér fannst þessi ferð
prýðisgóð og hugsa að öll-
um sem i henni voru hafi
fundist það líka.
Þórhildur Jónsdóttir,
13ára,
Bjarghúsum, Vesturhópi.
í hjartanu stóð Laufey og Karl
Stelpurnar eru dugleg-
ar að ráða myndagátur.
Allar lausnirnar í þessari
viku eru f rá stelpum. Þær
senda lika með gott efni í
blaðið. Kompan þakkar
þeim kærlega fyrir. Þess-
ar stelpur skrifuðu í vik-
unni:
Þórhildur Jónsdóttir
(13 ára) Bjarghúsum
Vesturhópi, Bára D. Guð
mundsdóttir (10 ára)
Vallargerði 31, Kópavog
og Sigríður Kristín
Kleppsvegi 26, Reykja
vík.
Þær fá allar kort frá
Kompunni.