Þjóðviljinn - 20.10.1979, Síða 7

Þjóðviljinn - 20.10.1979, Síða 7
Sigurjón Pétursson: Laugardagur 20. október 1979 WÓÐVILJINN — StÐA 7 Alþýðuflokkurinn á • Alþýðubandalagið mun ekki rjúfa þetta samstarf en gangi aðrir til liðs við íhaldið getum við ekkert að gert „Ég tel þessi málalok mjög óheppileg þar sem um var aö ræða mjög góöan samning fyrir Reykjavikurborg og mjög góöa stefnumörkun um aö sameina orkuöflunar og -dríifikerfiö i landinu og tryggja meö þvi aö ákvaröanir um nýjar virkjanir veröi teknar út frá sjónarmiöi heildarinnar en ekki út frá þröngu kjördæmasjónarmiði eöa hreppa- rig,” sagöi Sigurjón Pétursson i samtali viö Þjóöviljann i gær. „Bæjarstjórn Akureyrar virðist hafa gert ráð fyrir þeim mögu- leika að samningurinn næði ekki fram að ganga og þvi hafa þeir þegar itrekað samþykkt sina um að Laxárvirkjun sameinist Landsvirkjun. Það er þvi langlik- legast aö sú verði þróunin og þá verður að semja upp á nýtt um eignaraðild aðþvi fyrirtæki. Eftir stendur þá eitt fyrirtæki, I tveim- ur hlutum og i tveimur landshlut- um, tengt saman með flutnings- linum sem fyrirtækið hefur hvorki umráð yfir né eignarhald á. Það er ljóst að flytja þarf raf- orku á milli þessara landssvæða og ef fyrirtækið þarf að leigja flutningslinurnar á kostnaöar- verði af rikinu mun það þýða stórfelldar hækkanir á raforku- verði bæði til notenda á orku- veitusvæði Landsvirkjunar hér fyrir sunnan og á svæði Laxár- virkjunar, — þvi eins og menn muna var i samningsuppkastinu gertráö fyrir að rikið tæki á sig þá 8 miljarða króna sem hér um ræðir en fyrirtækið eignaðist lin- urnar sér aö kostnaðarlausu. Auk þess stendur það eftir sem áður að virkjunarréttur Lands- virkjunar verður sá samiog hann er i dag þ.e.a.s. virkjunarkostir sem almennt eru taldir mun óhagstæðari en t.d. virkjun Blöndu eða Fljótsdalsvirkjun. Einnig stendur þaö óbreytt að ákvarðanir um nýjar virkjanir verða teknar með sama hætti og áður hefur verið með pólitfskum ákvörðunum oft byggöum á þröngum hreppasjónarmiðum. Þessi niðurstaða er þvi mjög óhagkvæm fyrir Reykvfkinga og raunar landsmenn alla.” — Kom þessi afstaöa Sjafnar á óvart? „Þegar ákveðið var I borgar- stjórn að ganga til samningavið- ræðna um þetta mál 15. mars s.l. var málið rætt í borgarmálaráð- um flokkanna þriggja og þau settufram sinar kröfur um breyt- ingar á tillögum nefndar orku- málaráðherra. Um þetta var siö- an samið og allar þær breytingar sem máli skiptu höföu náöst fram i samningnum það snemma að áformað hafði veriö aö afgreiöa málið fyrir sumarfrí borgar- stjórnar. Það tókst þó ekki, þar sem Sjöfn Sigurbjörnsdóttir neit- aði að taka afstöðu til málsins og baöum frest til hausts. Samning- Sigurjón urinn lá siðan undirskrifaður hjá borgarfulltrúum i allt sumar til yfirlestrar og kynningar. Fyrri umræðu i borgarstjórn varö að fresta um hálfan mánuð af óvænt- um ástæðum og gaf þaö borgar- fulltrúum enn frekari tfma til að kynna sér máliö. Viö fyrri um- ræöuna talaði Sjöfn og þar kom fram tvennt. Annars vegar að samningurinn værif samræmi við meginstefnu Alþýðuf lokksins varðandi Orkumál og hins vegar að hún áskildi sér rétt til að f lytja breytingartillögu varöandi ákvæði samningsins um Kröflu- virkjun. Þegar til siðari umræöu kom flutti hún hinsvegar enga slfka til- lögu, heldur breytingartillögu um fjölgun I stjórn fyrirtækisins. Sú staðreynd aö aðeins þessi eina til- laga kom frá borgarfulltrúanum bendir til þess að hún hefði veriö fullkomlega ánægð með samning- inn ef þessi tillaga hefði verið samþykkt, enda komu engar aör- ar athugasemdir fram. Tillagan var hins vegar ekki samþykkt og þá kaus hún að fella samninginn. Það er auðvitaö fáránlegt að fella með þessum hætti meginstefnu flokks sins i raforkumálum lt af algjöru aukaatriði, sem naut einskis stuðnings nema hennar og Björgvins Guðmundssonar, sem örugglega fylgdi nauöugur með” — Nú fullyröir Sjöfn að hér sé ekki um neitt „meirihlutamál” aö ræöa. ,,AÖ þvi leyti er þessi fullyröing rétt aö Landsvirkjun er ekki nefnd á nafn i þeim málefna- samningi sem flokkarnir gerðu með sér eftir kosningarnar, — fremur en fjöldamargt annað. Samningurinn er rýr I roðinu, enda gerður i mjög mikilli tlma- pressu. Hann er i raun aöeins yfirlýsing um aö þessir flokkar ætli sér að starfa saman að borg- armálum. Samstarf er i s jálfu sér fólgið i þvi að samráð sé haft, þannig að menn geri hver öðrum grein fyrir sinum skoðunum sem siðan er reynt aö samræma. Auð- vitað getur alltaf komið upp [~Sigurður E. Guðmundsson um ákvörðun Sjafnar: Mikil vonbrigði fyrir mig | rá li „Min afstaða er klár og skýr, — ég er eindregið fylgjandi meirihlutasamstarfi þessara þriggja fiokka I borgarstjórn Reykjavikur og þaö eru mér mjög mikil vonbrigöi sem gerst hefur, sagöi Siguröur E. Guö- mundsson formaöur Fulltrúa- ráös Alþýöuflokksféiaganna i Reykjavik. Ég get ekki slegiö neinu föstu um það hvenær þessi fundur fulltrúaráösins verður haldinn, en á mánudag er stjórnarfundur þess og þar mun ég leggja til að hann veröi haldinn þegar i næstu viku, sagði Sigurður enn- fremur. Hann sagðist þegar hafa pantaö hús i þessu skyni, ef tillagan yrði samþykkt, en I full- trúaráöinu eiga sæti 80 manns þeirra á meöal Sjöfn Sigur- björnsdóttir. Fulltrúaráðiö er eina stofnun flokksins hér I Reykjavik, sem tekið getur ákvörðun um samaöild eöa slit meirihlutasamstarfs viö aðra flokka og sú stofnun sem sam- þykkti samstarf við Alþýðu- bandalagið og Framsóknar- flokkinn i fyrravor aö afloknum kosningum. J Björgvin Guðmundsson: Legg nú málið fyrir fulltrúaráð flokksins Treysti mér ekki til að halda þessu áfram við óbreyttar aðstæður „Ég mun tjá fulltrúaráöinu aö ég treysti mér ekki til aö halda þessu meirihlutasamstarfi áfram viö óbreyttar aöstæður”, sagöi Björgvin Guðmundsson borgar- ráösfulltrúi Alþýöuflokksins i gær, en hann óskaöi eftir fulltrúa- ráösfundi þegar aö loknum borg- arstjórnarfundinum I fyrradag. „Fulltrúaráö Alþýðuflokks- félaganna i Reykjavlk er æðsta stofnun flokksins hér og sú stofn- un sem upphaflega ákvað aöild flokksins að meirihlutasamstarf- inu”, sagði Björgvin ennfremur. „Ég tel eftir þessa atburöi I borg- arstjórn og reyndar einnig vegna þess aö það hefur áður komiö fyrir að Sjöfn hefur staöið með Sjálfstæðisflokknum I mjög mikilvægum málum og klofið sig frá meirihlutanum nauösynlegt aö fulltrúaráðið taki þessi mál fyrir og ákveði hvort Alþýðu- flokkurinn vill starfa heill og óskiptur i meirihlutasamstarfi við Framsóknarflokkinn og Alþýðubandalagið i borgarstjórn Reykjavikur eða hvort Alþýöu- flokkurinn vilji slita þvi „Ég taldi okkur vera með góö- an samning i höndunum og hann til mikilla hagsbóta fyrir Reyk- vikinga. Þessi samningur er al- gjörlega i samræmi við stefnu Alþýðuflokksins i raforkumálum þ.e. aö hafa virkjunarrétt og dreifingu raforku I landinu sem mest á einni hendi. Samninga- menn Reykjavikur höfðu tryggt að engar raforkuverðshækkanir yröu af völdum þessa samnings og þeir höfðu einnig sett inn mjög trygg ákvæði varðandi hugsan- lega yfirtöku Kröfluvirkjunar sið- ar meir. Samningurinn er mjög hagstæðurReykvikingum ogmun betri kostur en þaö sem nú blasir viö, þ.e. að Laxárvirkjun samein- ist nú Landsvirkjun án afskipta Reykjavikurborgar. Þetta er langstærsta málið sem j Bragi iðnaðarráðherra: Hef ekki hugsað um framhaldið en í var fylgjandi Landsvirkjun „Ég hef nú ekki mikiö um þaö hugsaö I dag eftir aö ég fékk fréttir af þessu,” sagöi Bragi Sigurjónsson, iönaöarráöherra Alþýöuflokksins eftir aö flokks- systir hans felldi Landsvirkjun- arsamninginn i borgarstjórn Reykjavikur i fyrrakvöld. „Ég var I hjarta minu fylgj- andi Landsvirkjunarhugmynd- inni og afstaða Alþýöuflokksins var sú að hann er meöfylgjandi þvi aö I Landsvirkjun yrði geng- ið, þ.e. að einn aöili sæi um raf- orkuvirkjanir og stofnlinur I landinu. Hins vegar sem Akur- eyringur er ég ekki viss um að þetta skaði mikið þeirra stööu, þvi Laxárvirkjun hefur lög- heimild til þess að ganga beint inn i Landsvirkjunina og trúleg- ast er að af þvi veröi nú.” Bragi sagðist ekki enn hafa gert sér grein fyrir þvi hver við- brögð ráöuneytis hans yrðu og þvi gæti hann engu svarað um framhaldið. -AI valið ágreiningur sem er óbrúanlegur þegar um ólika flokka er að ræða, en þaö geröist ekkif þessu tilfelli. Borgarmálaráð Alþýðuflokksins var búiö að samþykkja þennan samning og Björgvin Guðmunds- son skrifaði undir hann I umboöi þess. Samstarfsaðilunum hafði ekki borist neitt frá Sjöfn um það að hún væri þessu andvig. Sem dæmi um samstarfiö má geta þess að bæði borgarfulltrúar Alþýöubandalags og Framsókn- arflokks heyröu I fyrsta skipti þá breytingartillögu sem flutt var, þegar hún var lesin I borgar- stjórn. Ef Sjöfn Sigurbjörnsdóttir telur aö slikt hafi engin áhrif á samstarfið, er hún glámskyggn- ari en ég haföi reiknað með.” — Hver er afstaða Alþýöu- bandalagsins til áframhaldandi samstarfs I borgarstjórninni? „A þessu stigi vil ég engu spá um framtið þessa samstarfs. Þetta er fyrst og fremst vanda- mál Alþýðuflokksins og Alþýðu- flokkurinn veröur að gera það upp við sig hvort hann ætlar að halda áfram samstarfium meiri- hluta i borgarstjórn og þá dugir ekki aðeins að annar borgarfuil- trúinn sé heill i þvi samstarfi. Ef ekki, hefur þetta samstarf verið rofið af Alþýðuflokknum. Ég tek undir orð Björgvins Guðmunds- sonar I Dagblaðinu i gær að það er mjög erfitt að starfa i meirihluta og geta átt von á þvi að Sjöfn standi meðihaldinu íhverju mál- inu á fætúr öðru, en þaö hefur þegar gerst i nokkrum mikilvæg- um málum. Égtelmikiö skemmdarverk aö hafa eyðilagt þennan samning en Alþýöubandalagið telur mikil- vægt að samstarfið haldist áfram út kjörtimabilið þannig að hægt sé að koma á þeim breytingum i borginni sem þessir flokkar hafa áhuga á. Til þess þurfa allir flokkarnir aö standa heilir aö þessu samstarfi, en á það hefur skort. Alþýöubandalagið mun ekki rjúfa þetta samstarf þótt hægt gangi aö ná fram stefnumál- um flokksins, en ef aörirganga til liös viö ihaldið getum við ekkert Bjðrgvin núverandi borgarstjórn hefur fengiö til meðferðar, og þessar málalyktir urðu mér mjög mikil vonbrigði. Samningurinn var samþykktur I borgarmálaráöum allra meirihlutaflokkanna og i einu hljóði i borgarmálaráði Alþýðuflokksins. Ég hafði ástæöu til aö ætla að Sjöfn myndi fylgja þeirri samþykkt, enda þótt hún hefði vissar athugasemdir fram aö færa við ýmis ákvæði samn- ingsins. Borgarmálaráð Alþýöuflokks- ins hefur áður gert um það sam- þykkt að ef ágreiningur kemur upp milli borgarfulltrua Alþýðu- flokksins eigi borgarmálaráöiö að skera úr um þann ágreining. Undir þessa samþykkt skrifaði Sjöfn Sigurbjörnsdóttir á sinum tima en hana hefur hún nú brotiö. Vegna þeirra ummæla Sjafnar að hér sé ekki um meirihlutámál aðræða vil ég benda á að til þess að skapa meirihluta i' borgar- stjórn þurfa báöir borgarfulltrúar Alþýöuflokksins að standa með hinum fbkkunum og það er langt i frá að það sé allt i lagi að rjúfa þann meirihluta þegar henni hentar”. -AI

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.