Þjóðviljinn - 20.10.1979, Side 9
Laugardagur 20. oktöber 1979 ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 9
Stelndór Steindórsson er manna
fróóastur um Jan Mayen.
Jan Mayen á
haustvöku
í Kópavogi
Norræna félagið I Kópavogi
hefur vetrarstarf sitt með haust-
vöku, sem haldin veröur að
Hamraborg 11, annað kvöld kl.
20.30.
Þar mun Steindór Steindórsson,
fyrrv. skólameistari á Akureyri,
sýna kvikmynd frá Jan Mayen og
flytja erindi um dvöl sina á eyj-
unni fyrir nokkrum árum.
Þá munu tónlistarmennirnir
Gisli Helgason, Guömundur
Arnason og Helgi Kristjánsson,
sem nefna hópinn Musica Nostra,
flytja frumsamda tónlist á
blokkflautu, bassa og gitar.
Loks mun Ragnheiður
Tryggvadóttir.fulltriii félagsins á
vinabæjamóti i Cöinsvéum I
Danmörku á siöasta vori, flytja
frásögn frá mótinu, en höfuö-
umræöuefniö þar var umönnum
aldraöra í vinabæjunum.
Allir eru velkomnir á kvöld-
vökuna meðan húsrúm leyfir.
Sýningar
Kjarvalsstaðir
Með opin augu, ljósmyndasýning Rafns Hafnfjörö. Opin kl. 14-22.
Lýkur annaö kvöld.
Bækur handa börnum heims. Alþjóöleg barnabókasýning. Opnuö i dag.
Suðurgata 7
Danski listamaöurinn Niels Reumert sýnir grafik. Opiö kl. 14-22 i dag
og á morgun.
Norræna húsið
Carl-Henning Pedersen. Málverk, graflk, skúlptúr. Opið 14-22 um
helgina. Lýkur annað kvöld.
Anddyri: Myndskreytingar viö sögur H.C. Andersens.
Listmunahúsið Lækjargötu 2
„1 hjartans einlægni” — sýning á verkum 9 listamanna frá Færeyjum
og Islandi. Opin á venjulegum verslunartima til nóvemberloka.
Kirkjumunir
Vatnslitamyndir eftir Osmo Isaksson frá Finnlandi. Lýkur á morgun.
Stúdentakjallarinn
Friörik Þór Friðriksson, Margrét Jónsdóttir, Bjarni Þórarinsson og
Steingrimur Eyfjörö Kristmundsson. Opiö virka daga kl. 10-23.30 og
um helgar kl. 14-23.30.
Loftið
Vatnslitamyndir eftir Magnús H. Kristinsson. Opiö kl. 14-18 um
helgina. Lýkur 27. okt. .
Leikhús
Þjóðleikhúsið
Leiguhjallur i kvöld. Onnur sýning á Gamaldags kómediu eftir Alexei
Arbuzov annað kvöld.
Lifa smáar
tungur af?
Dr. Ommo Wilts, forstööu-
maöur frisnesku oröabókar
háskólans i Kiel, flytur opinberan
fyrirlestur i boði heimspeki-
deildar Háskóla lslands mánu-
daginn 22. október 1979 kl. 17.15 i
stofú 201 I Arnagaröi.
Fyrirlesturinn nefnist „Das
Nordfriesische — Proideme der
Erhaltung einer kleinen
Sprache” og veröur fluttur á
þýsku. öllum er heimill
aögangur.
Myntsýning
Kl. 4 i dag verður opnuð I Boga-
salnum myntsýning itilefni af tiu
ára afmæli Myntsafnarafélags-
ins. Sýningin er haldin i samráði
við Seðlabankann og Þjóðminja-
safn, og veröur hán opin tii 28.
okt, kl. 2-10 daglega.
Fimmtugasti hver gestur
sýningarinnar fær aö gjöf 50
krónu pening frá 1973, sem nú er
metinn á kr. 1600. Auk þess
verður getraun I gangi sýningar-
dagana.
éskríft..
V"\
' _p*-**
..og bladid
i hendurnar!
OIÓBVIUINN
simi 81333
Iðnó
Öfvitinn frumsýndur I kvöld, önnur sýning annaö kvöld. Uppselt á báö-
ar sýningarnar.
Alþýðuleikhúsið
Blómarósir sunnudagskvöld kl. 20.30.
Leikbrúðuland
Gauksklukkan. Sýningar aö Frikirkjuvegi 11 I dag kl. 17 og á morgun
kl. 15. Miðasala á staönum Idagfrá kl. 16og á morgun frá kl. 13.
Leikfélag Akureyrar
Galdrakarlinn i Oz, sýningar i dag kl. 17 og sunnudag kl. 15.
Bíó
Fjalakötturinn
Hiö langa sumarfri áriö 1936. Spönsk mynd frá 1976. Leikstjóri Jaime
Camino.
MíR-salurinn
Hin unga sveit (Molodaja Gvardia) frá 1948. Leikstjóri Sergei Gerasi-
mof. Fyrri hluti sýndur I dag kl. 15, seinni hluti næsta laugardag á
sama tima.
Howard Riley
heldur tónleika
1 dag og á morgun leikur breski
pian istinn Howard Riley á
tvennum tónleikum i Reykjavfk.
Það er Galleri Suðurgata 7 sem
gengst fyrir þessum tónleikum I
samvinnu við tónlistarfélag
Menntaskólans viö Hamrahlið og
Funda- og menningarmálanefnd
Stúdentaráðs.
Fyrri tónleikarnir veröa kl. 16 I
dag I Menntaskólanum viö
Hamrahliö, en þeir seinni kl. 21
annaö kvöld I Félagsstofaun stúd-
enta.
Howard Riley er meö virtustu
jazzleikurum Bretlands. Hann fer
ekki heföbundnar leiðir I tón-
listarsköpun sinni, heldur leitast
viö aö notfæra sér möguleika
hljóöfærisins^út I æsar, og er ekki
óliklegt aö ýmsir kunni aö lita
slaghörpuna I nokkuö ööru ljósi
enáöureftiraö hafaheyrt I Riley.
Verö aögöngumiba er kr. 2500-.
Rafljós í 100 ár
Nú um helgina opnar Ljós-
tæknifélag Islands sýningu I As-
mundarsal viö Freyjugötu i til-
efni þess, aö 100 ár eru nú liöin
siðan glóöþráöarperan, (ljósa-
peran) varö aö veruleika I hönd-
unum á Edison gamla. En þaö
var einmitthinn 21. okt. 1879, sem
Thomas A. Edison heppnaöist aö
láta kolþráöarperuna bera ljós I
45 klst. samfleytt.
I rauninni er þarna um aö ræöa
tvöfalda afmælissýningu þvi
Ljóstæknifélagiö er 25 ára um
þessar mundir. — Sýningin verö-
ur opnuð almenningi kl. 2 á
sunnudag og veröur opin til
sunnudagsins 28. þ.m.
Nánar um sýninguna I næstu
viku. -mhg
K Á
bækur
Ljóðasafn I-IV eftir
Einar Benediktsson
Þetta er stærsta verkefni
Skuggsjár i ár, heildarútgáfa I
handhægu broti, ekki óáþekktu
þvi, er frumútgáfan var I. 1 1.
bindi. er inngangsorö eftir
Kristján Karlsson, sem annast
hefur um útgáfuna, Kvæði, úr
Kvæöum ogsögum, og Hafblik. I
2. bindi er Hrannir og Vogar, I 3.
bindi Hvammar, ritgerö Siguröar
Nordal um Einar Benediktsson og
ritgerð Guömundar Finnboga-
sonar um skáldskap hans. I 4.
bindinu er Pétur Gautur og auk
þess ýmis kvæöi, sem ekki voru I
frumútgáfunni, og athugasemdir.
Tryggva saga ófeigs-
.sonar eftir
Ásgeir Jakobsson
Þetta er mikil bók að vöxtum,
hátt á fjóröa hundrað þéttsettar
siður og rikulega myndskreytt.
Jafnframt þvi aö vera ævisaga
Tryggva er bókin óhjákvæmilega
saga Islenskrar togaraútgeröar
frá upphafi og er fjallaö á hressi-
legan hátt um útgeröarstúss hins
opinbera. Mikill fjöldi manna
kemur viö sögu og ber þar hæst
hina traustu skipsfélaga hans,
sem margir hverjir voru i skips-
rúmi hjá honum um áratugi, en
einnig fá sinn skammt útgerðar-
menn og skipstjdrar, bankastjór-
ar, alþingismenn og ráöherrar.
Syrpa úr handritum
Gisla Konráðssonar
Bókin hefur aö geyma safn
þjóösagna hvaöanæva af landinu,
sem hinn mikli fræöaþulur
safnaöi og skráöi af sinni alkunnu
elju. Honum nægöi ekki aö vera
þiggjandi I heimi fornra sagna og
kveðskapar, hann gerðist svo
mikilvirkur i viöfangsefnum
þessa sagnaheims aö fjaðrapenni
hans, skorinn af honum sjálfum,
fór lengri vegu en gersthafði áöur
meöal söguþióöarinnar.
Frá Hliðarhúsum til
Bjarmalands eftir
Hendrik Ottósson.
Þetta er endurprentun minn-
ingabókar Hendriks, sem ófáan-
leg hefur veriö i áratugi. Hann
segir hér frá æskuárum sinum i
Vesturbænum i Reykjavik I upp-
hafi þessarar aldar, frásagnir eru
af fjölskyldu hans og nágrönnum,
æskufélögum ognámsárum i MR;
sagt er frá nafntoguöum mönnum
i kennaraliöi skólans, stjórn-
málaafskiptum og stofnun
Alþýöusambands Islands á heim-
ili foreldra hans, og sögulegri för
þeirra Brynjólfs Bjarnasonar,
siöar menntamálaráöherra, á 2.
þing Alþjóðasambands kommún-
ista i Leningrad 1922. Auk þess aö
vera bráöskemmtileg.hefur þessi
bók mikiö menningarsögulegt
gildi.
Móðir min —
Húsfreyjan III
Þetta er þriöja og sföasta bindi
þessi vinsæla safnrits sem GIsli
Kristjánsson ristjóri hefur haft
allan veg og vanda af og ritstýrt.
Iþessubindieru eftirtaldar 16 rit-
geröir: Guörún Jónsdóttir eftir
Eyþór Stefánsson, Sigrlöur
Halldórsdóttir eftir Einar
Magnússon, Jóhanna Guöriður
Björnsdóttir eftir Sigurö Pálsson,
Hallfriöur Þórðardóttir eftir
Þóru Jónsdóttur, Halldóra
Gunnarsdóttir eftir Einar H.
Einarsson, SigurbjörgGfsladóttir
eftir Sigurð Sigurösson, Guörún
Björnsdóttir eftir Huldu Páls-
dóttur, Steinunn Oddsdóttir eftir
Odd Ólafsson, Guörún Hannes-
dóttir eftir Pál A. Pálsson, Guð-
rún Pálsdóttir eftir Arndisi Þor-
bjarnardóttur, Sigrún Blöndal
eftir Sigurö Blöndal, Guöriöur
Guttormsdóttir eftir Halldór Þor-
steinsson, Stefia Erlendsdóttir
Snævarr eftir Stefán V. Snævarr,
Pálfna EHasdóttir eftir Helga
Elíasson, Guörún Jóhannesdóttir
eftir Onnu Snorradóttur og Ingi-
björg Pétursdóttir eftir Halldór
E. Sigurösson.
Völva Suðurnesja
eftir
Gunnar M. Magnúss
Una Guömundsdóttir i Sjólyst i
Garði var fágæt kona, sem búin
var flestum þeim kostum, sem
mönnum eru bestir gefnir. Hún
var mörgum kunn, einkum fyrir
lifsviöhorf sitt og dulargáfur og
ekki hvað sist þaö mikla hjálpar-
starf sem hún vann og af þessum
eiginleikum leiddi. 1 þessum
samtalsþáttum, sem hér eru
endurprentaöir, segir hún frá
draumum og dulsýnum, svipum
og vitrunum, dulheyrn og ýmiss
konar öörum fyrirbærum.