Þjóðviljinn - 25.11.1979, Síða 17

Þjóðviljinn - 25.11.1979, Síða 17
Sunnudagur 25. nóvember 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 17 Umsjón: Gudrun Olga Árnadóttir Dansað úr sér allt vit örnólfur og Eyjólfur. Frikki festist ekki á filmu. r Utrýmum minni- máttarkenndinni Blm.: — Enn um tilgáng únglingasiöunnar? örnólfur: — Reyna aö fá úng- lingana til aö hugsa dáldiö og streitast á móti ihaldssömum skoöunum sem foreldrarnir eru ’ sifellt aö troöa upp á þá. Frikki: — Og helst aö fá for- eldrana til aö hugsa lfka. Eyvi: — Reyna aö koma ||| únglingunum til umhugsunar \ um eigin mál. Ekki neina ■ mötun, bara aö finna einhver efni til að fjalla um, sem viö getum svohaldiö áfram aö pæla / I sjálf. örnólfur: — Einn megintil- gángurinn meö þessari siöu ætti aö vera sá aö útrýma þeirri minnimáttarkennd sem úng- lingar eru haldnir. Þeir eru orönir svo vanir þvf aö ekkert . mark sé á þeim tekiö, aö þeir eru farnir aö trúa þvi sjálfir aö þeir skilji ekki neitt og viti ekki neitt og eigi bara aö láta þá full- orönu um aö hugsa. Þaö er ekki ætlast til neins af þeim, þess vegna kemur ekkert frá þeim. Frikki: — I raun og veru, þótt : foreldrar myndu aldrei fást til aö viöurkenna þaö, þá ætlast þeir til þess af krökkunum aö ' þeir bara drekki sitt brennivin og skeriimti sér um helgar... örnólfur: .... og læri þaö I sinum skóla sem þeir eiga aö læra, —þaö sem búiö er aö pró grammera fyrir þá af þeim full- Eldhúsborðsumrœöur um foreldravandamálið og fleira Fyrri hluti Eitt kolsvart kvöld fyrir stuttu lagöi umsjónarmaöur þessarar siöu leiö sina f Kópa- voginn til aö hitta þar mann og eiga viö hann spjall. Maöurinn heitir örnólfur Kristjánsson, er 17 ára gamall, stundar nám viö Menntaskólann viö Hamrahliö og spilar heilmikiö á selló. Hann hefur aö undanförnu lagt dágóöan skammt i púkk i baráttunni gegn hernum, þvi hann er ólatur aö dröslast meö sellóið i strætó til aö spila á kvöldvökum og öörum mennfngaruppákomum sem herstöövaandstæöingar standa aö. M.a. lék hann meö Heima- varnarliöinu i Háskólabiói foröum og annaöist allan sellóleik á plötunni „Eitt verö ég aö segja þér”, sem her- stöövaandstæðingar gáfu út i haust. Þegar blm. loksins dróst innúr dyrunum hjá örnólfi, eftir lángt og örvæntingarfullt hring- sól um gjörvallt gatnakerfi Kópavogs, vildi svo heppilega til aö þar voru staddir fleiri málfúsir menn: Eyjólfur bróöir örnólfs, 15 ára menntskælingur ogfiöluleikari, og Frikki,17 ára, skólabróöir og heimilisköttur. (Þvi miöur láöist blm. aö kanna hljóöfærakunnáttu Friöriks, en sýndist hann liklegur til aö vera I þaö minnsta vel liötækur á greiöu. Or þessu uröu mjög fjörugar umræöur krfngum eldhús- boröiö, og hér virtist fyrri hluti þeirra, styttur og klipptur, en kjarni málsins er þó vonandi enn á sinum staö : Ættu ekki að vera til nein „sérmál” únglínga Blm.: — Finnst ykkur úng- lingasiöa eiga rétt á sér? Allir: — Já. Frikki: —Fereftir þvf hvern- ig hún veröur. Eyvi: — Ja... þaö ætti náttúr- lega I raun og veru ekki aö þurfa. örnólfur: — Nei, einmitt. Þaö ættu auövitað engin mál aö vera sérmál únglinga. En þaö eru hins vegar viss mál sem eru sérvandamál únglinga. Þaö er bara tilfellið aö það eru alls ekki úngllngarnir sem hafa skapað þau, og þau þyrftu ekki aö vera neitt vandamál... Eyvi: — Þau eru gerö aö vandamáli. örnólfur: — Af fulloröna fólkinu fyrst og fremst. Full- oröna fólkiö hefur taliö úng- lingunum trú um aö þetta séu bara eðlislögmál — viss mál hljóti alltaf aö vera vandamál. Blm: — En hvaö liggur aö baki þessari ástriöu fulloröinna aö búa til vandamál fyrir úng- lingana? Eyvi: — Sambandsleysiö. Skilningsskortur. Þessi árátta foreldranna aö þykjast alltaf vita betur, og þvermóöskan i únglingunum aö viöurkenna ekki aö foreldrarnir geti stundum hugsanlega vitaö betur. örnólfur: — Okkar foreldrar hafa lært af sinum foreldrum og þannig koll af kolli lángt aftur i aldir, og þess vegna viöhaldast ákveönar venjur, hugarfar manna verður náttúrlega alltaf litaöaf hugarfariþeirrasem ala þá upp. Þó aö fólk bæti viö sig reynslu utan fjölskyldunnar og breytist smátt og smátt. Breyt- fngarnar eru hægfara. Annars finnst mér heimurinn hafa skánað örlitiö uppá siökastiö. Frikki: — Versnaö! örnolfur: — Nei, hugsunar- hátturinn er aöeins aö skána. Fólk er til dæmis fariö aö spekúlera I misrétti kynjanna, þaö þykir ekki sjálfsagt lengur aö konur séu alls staöar lægra settar en karlmenn. Frikki: — Þaö er alveg rétt, en samt hefur ýmislegt versnaö bara núna siöustu árin. Blm. — Einsog? Frikki: — Margar góöar hug- myndir hafa alveg dottiö upp- fyrir meö diskótimanum. Eyjólfur: — Sammála. Einsog einhverjir oröuöu þaö: Fólk er að dansa úr sér allt vit. örnólfur: —Þaö er staöreynd aö úngllngar i dag hugsa ógur- lega lítiö um þaö sem er aö gerast I kringum þá. Blm.: — Hefurðu skýrmgu? örnólfur: — Ég held aö þetta sé bara rökrétt afleiðíng af þvi sem ég var aö tala um áöan. Foreldrarnir segja krökkunum hvaö er rétt og hvaö er rángt, krakkarnir trúa þvi sem þeim er sagt og þurfa aldrei aö hugsa neitt. Þar af leiöandi læra þeir aldrei aö mynda sér eigin skoöanir á málunum. Blm.: — En hvaö meö þá krakka sem alast upp hjá frjáislyndum, hugsandi for- eldrum? örnólfur: — Þeir fá vissulega miklu betratækifæri til aö veröa sjálfstæöir. En jafnvel þó aö foreldrarnir séu svo og svo rót- tækir þá eimir alltaf eftir af þessu gamla. Meira aö segja rekur maöur sig á þetta hjá mömmu viö og viö. En viö erum nú alltaf aö reyna aö ala hana upp. Eyvi: — Og hún okkur. Blm.: — Er það ekki frekar ákjósanlegt, þetta gagnkvæma uppeldi? Eyvi: — Þaö getur oröiö ■ dáldiö erfitt þegar hvorugt vill láta hitt ala sig upp. örnólfur: — Þaö má finna diplómatiskar leiöir. (Almennur hlátur) orðnu. Maöur finnur sosum |s fyrir þessu sjálfur. Ef þaö á j yfirleitt aö vera hægt aö þola þennan tima sem þaö tekur aö ;; þrælast gegnum menntaskóla þá þýöir ekkert annaö en aö ; setja móöu fyrir augun og læra ■; sina þýsku stlla og hugsa ekki neitt. Gleypa allt hrátt. Blm.: — Fleiri athugasemdir um skólann? Frikki: —Skólinn er andlega ; niöurdrepandi. (Einróma samþykki viö- ; stakkra. Eyvi: — Maöur reynir aö láta | hann hafa sem minnst áhrif á | sig. Berjast á móti. Hér hrfngdi dyrabjallan og | fjóröi maðurinn, Sigtryggur, | bættist I hóp viömælenda. Siggi | tekur þátt i ; siöari hluta þessara eldhúsborösumræöna, sem birtur veröur n.k. sunnu- dag, er meöai annars rætt um | kynlif, fristundir, skemmtanir og skóla. Sem sagt: framhald | næsta sunnudag. Einræði þeirra fullorðnu Þetta ljóö er þýtt uppiír danskri bók sem ber nafnið ,,De voksnes diktatur” eöa Einræöi þeirra fullorðnu. Hún inniheldur visur og ljóö eftir krakka á aldrinum 4—17 ára og viö lestur bókarinnar sést glöggt aö þessir dönsku krakk- ar eru ekkert yfir sig ánægöir meö stööu sina i þessu samfélagi sem fullorðnir hafa búiö til. Viötaliö viö Guörúnu Helgu gaf tilefni til þýöing- ar einmitt þessa ljóös. Hegðunarreglur Litli vinur þú ert svo úngur og óþroskaður. Til þess að fá að bera ábyrgð verðurðu að vera þroskaður ábyrgð gerir kröfur til þín frelsi er ábyrgðarhluti Þú ert ekki nógu þroskaður til að vera frjáls, þess vegna verðurðu að láta þér lynda að þér sé stjórnað af þeim sem vita hvað þér er fyrir bestu. Og þess vegna þroskaðistu aldrei því þú lést stjórna þér af þeim sem töldu sig vita hvað þér væri fyrir bestu. Þú hafðir ekki þroska til að fá frelsi þess vegna fékkstu það aldrei þess vegna þroskaðistu aldrei því þú fékkst aldrei að bera ábyrgð þess vegna eru þú og heimurinn óþroskaðir þú þroskast ekki fyrr en þú þarft þess með: ALDREI í LfFINU! Henrik. ■ ■

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.