Þjóðviljinn - 25.11.1979, Blaðsíða 20

Þjóðviljinn - 25.11.1979, Blaðsíða 20
20 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 25. nóvember 1979 Félag járniðnaðar- manna FELAGSFUNDUR verður haldinn þriðjudaginn 27. nóvember 1979 kl. 8.30 e.h. i Félagsheimili Kópavogs, uppi. Dagskrá: 1 Félagsmál. 2. Uppsögn kjarasamninga. 3. önnur mál. ^ Mætið vel og stundvislega. Stjórn. Félags járniðnaðarmanna. Frá Steinsteypufélagi íslands Steinsteypufélag íslands mun i samvinnu við Múrarafélag og múrarameistarafélag Reykjavikur, Rannsóknarstofnun bygg- ingariðnaðarins og Byggingaþjónustuna efna til eins dags námskeiðs laugardaginn 8 dcs i NIÐURLÖGN OG MEÐFERÐ STEYPU A BY GGIN GARSTAÐ. Námskeiðið er ætlað öllum er starfa við steypuvinnu. Nánari upplýsingar og skráning þátttakenda hjá Rikharði Kristjánssyni simi 83200, Múrarafélagi Reykjavikur simi 83255 og Múrara- meistarafélagi Reykjavikur simi 36890. Stjórnin. KOSNINGAHANDBÓK FJÖLVISS Bóksalar athugið! Kosningahandbók Fjölviss seldist upp, takmarkað upplag væntanlegt úr bók- bandi á mánudag og verða viðbótarpant- anir að berast strax. I ........ liWII* Þökkum af alhug auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför sonar okkar, bróöur og mágs Guðmundar Kvaran, flugmanns, Kleifarvegi 1, Reykjavfk, Kristin Helgadóttir Kvaran Einar G. Kvaran Karitas Kvaran Baldur Guölaugsson Gunnar E. Kvaran Snæfriöur Egilgon Helgi E. Kvaran \* fingrarím * fíngrarim * Spilverk þjóöanna hefur sent frá sér sína sjöttu plötu, sem ber heitið „Bráöabirgða- búgí". Á þessari plötu fjallar Spilverkið um þrjár persónur, Valda skafara Línu eiginkonu Valda og son þeirra Einbjörn. Þau eru að vestan, en flytja í bæínn og segir Spil- verkið frá basli þeirra hjóna við að koma sér fyrir og daglegu lífi þeirra. Einbjörn sonur þeirra er á gelgjuskeið- inu og ekki er lífið al- gerlega dans á rósum hjá stráknurrr þeim, eftir að f|öiskyldan flytur í bæinn. Bráöabirgöabúgi er beint framhald af fyrri plötum Spil- verksins aö vissu marki. Þó ekki sé beinn framhaldssögu- þráöur milli platna Spilverks- ins, má vel greina bein tengsl, bæöi hvaö varöar efnisval og út- færslu tónlistarinnar. Enn eru þaö þjóöfélagsvandamálin sem hæst rikja I textum þeirra. Ein- björn er dæmigeröur afskiptur Siguröur Bjóla og Valgeir Guöjónsson eru sem fyrr, höfundar efnis á nýju Spilverksplötunni. Ljósm. J.S.J. Bráðabirgðabúgí í tíð bráðabirgða- ríkisst j ómar unglingur sem haldinn er leiöa úti alltog alla. Lina og Valdi eru týpiskir foreldrar i ört vaxandi borg, sem leggja allt sitt kapp á aö auka viö llfsþægindin. Sam- kvæmt formúlunní hafa þau lit- inn tima til aö sinna uppeldi stráksins, þrátt fyrir aö hann sé einbirni, sem leiöir af sér aö hann veröur „vandræöaung- lingur” sem slæpist, drekkur, hangir á sjoppum og hvaö eina. ,,ja hvaö skal gera I henr.i reykjavlk ein 25 vetra gömul unglingstfk sem hefur hvorki áhuga á iþróttum né nýjustu tækni og visindum og finnst hundleiöinlegt I skólanum... sitjandi meö hinum strákunum i sama gamla strætisvagninum gefur hann skit I mannfólkiö skrifar riöa meö tússi á stólbakiö og nafnnúmeriö sitt neöanviö” Þetta skemmtilega textabrot er úr laginu „skelþunnur” og gefur nokkra mynd af Einbirni og unglingum á hans reki einsog Spilverkiö lýsir þeim. Um foreldra Einbjarnar segir Spilverkiö m.a.: „Landsimalina mei simreikningana sina hringir vestur oft á dag hún saknar fjailanna og kallanna viö hjallana sem voru alltaf aö skjall ána fuglana og bátanna vinkvennanna og allra X0 dropanna” „valdi er I heflinum úlpunni og treflinum ekki beint i skýjunum yfir takinu i bakinu krossbölvar i takt viö gibb-bræöurna I gufuradióinu hann hlustar grannt á ellington og ódýrt hafrakex I kron svo kemur egill ólafsson meö sæmund gamla klemenzson slekkur strax á bach þvi valda leiöist klassik nema mendelsohn” Tónlistin á Bráöabirgöabúgi kemur mjög kunnuglega fyrir eyru, þvi Spilverkiö er meö sinn „tón” sem ávallt skin i gegnum lög þeirra. Hinsvegar finnst mér þeir vera nokkuö farnir aö endurtaka sig á köflum, þvi ein- staka sinnum bregöur fyrir köflum sem greinilega hafa hljómaö áöur. Allur hljóöfæra- leikur er mjög vel af hendi leystur en hann er aö mestu I höndum Haraldar Þorsteins- sonar, Þorsteins Magnússonar og David Logeman auk Valgeirs og Siguröar. Aörir hljóöfæra- leikarar eru Magnús Kjartans- son, Halldór Pálsson og Karl Sighvatsson. Efniö er allt eftir Sigurö Bjólu og Valgeir Guöjónsson sem sjá um söng ásamt Sigrúnu Hjálm- týsdóttur, en Ragnar Bjarnason syngur ásamt „Diddú” I einu laganna. Þegar á heildina er litiö er þessi Siplverksplata hvorki betri eöa verri en viö var aö búast. Fyrir aödáendur Spil- verksins er þetta beint framhald, en Bráöabirgöabúgi á vart eftir aö afla Spilverkinu margra nýrra aödáenda. —jg NÝ PLATA MAGNÚSAR ÞÓRS: | Magnús Þór Sigmundsson, . sem þekktastur er liklega sem ■ annar helmingur dúettsins I „Magnús og Jóhann” sendi frá | sér plötuna Alfar nú i vlkunni. ■ Aö sögn Björns Valdimars- I sonar hjá Fálkanum hefur efni I þessarar plötu veriö aö þróast I I um þrjú ár. Hugmyndin aö plöt- ■ unni er fengin frá ljóöum eftir I breskan sérvitring, Colin Stone I aö nafni. Hann gaf út ljóöabók | um álfa er Magnús dvaldi i • Bretlandi fyrir þrem árum. Magnús samdi slöan tónlist viö þessi ljóö og bar þau undir Colin Stone. Stone leist vel á lögin og var þvi gerö reynsluupptaka I Bretlandi. Þareö ekkert varö úr- útgáfunni á breskri grund var- ákveöiö aö þýöa og heimfæra ljóöin yfir á Islensku en einnig samdi Magnús Þór nokkur ljóö til viöbótar ásamt aöila sem kýs aö kalla sig H.V. A plötunni segir frá álfum sem felast neöanjaröar og láta mennina afskiptalausa I eyöi- leggingarhvöt sinni á jöröinni. Nokkur ljóöanna segja frá karaktereinkennum þessara álfa, en þeir bera skringileg nöfn eins og Vinarþel, Hugar- þel, Hljómþel, Gróöurþel, Al- heimsþel o.s.frv. Hljóöfæraleikur upptöku- , stjórn og útsetningar eru aö ■ mestu i höndum Magnúsar I Þórs, en honum til aöstoöar eru I m.a. Asgeir Oskarsson, Sigurö- , ur Karlsson, Þóröur Arnason, ■ Tómas Tómasson, Pétur Hjalte- I sted, Birgir Hrafnsson, Ellen I Kristjánsdóttir og Jóhann , Helgason. Tónlist plötunnar er mjög I áþekk þvi sem Magnús Þór hef- | ur veriö aö gera undanfarin ár. . Vandaöur flutningur er I fyrir- i rúmi, en tónlistin er alls ekki I mjög frumleg, þó ýmsum ágæt- | um köflum bregöi fyrir. Blær- ■ inn yfir plötunni er allur fremur I rólegur og „melódiskur” og I minnir helst a blómatimann I | poppsögunni. — jg ■ -------------------------------1

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.