Þjóðviljinn - 25.11.1979, Side 23
UM HELGINA
Liza Minelli I dæmigeröri Hollywood-tröppu I myndinni NEW VORK
NEW YORK.
Tónabíó:
New York, New York
Bandarisk 1977
Leikstjórn: Martin Scorsese
Þá eru þeir kumpánar Scorsese og leikarinn
Robert DeNiro búnir að leiða hesta sina saman á
nýjan leik, en hver man ekki eftir samvinnu þeirra i
Taxi Driver? NeNiro leikur ungan saxóvónleikara,
enLiza Minelli djasssöngkonu i New York. Myndin
gerist á fimmta áratugnum og fjallar um ástir og
frama skötuhjúanna. Skemmtileg mynd, mikið af
djass og söng.
Nýja btó:
Magic
Bandarisk 1977
Leikstjóri: Richard Attenborough
Það er leikarinn gamli Richard Attenborough,
sem hefur vakið gamla mynd frá byrjun sjötta ára-
tugsins til lifs á ný. Gamla myndin er bresk og það
er Attenborough lika, en hann snýr sér nú æ meira
að leikstjórastarfinu. Mynd þessi fjallar um
búktalarann Corky, sem Anthony Hopkins leikur.
tslenskir sjónvarpsáhorfendur muna kannski eftir
honum úr þáttunum um ránið á syni Lindbergs flug-
kappa, en Hopkins lék einmitt þýska innflytjend-
ann, sem sakaður var um barnsránið.
Magic lýsir lifi búktalara sem lifir á mörkum
veruleiks og draums, lýsing á stigvaxandi geðveiki,
sem spunnin er kringum ástarsögu. I fáum orðum:
Þetta er vönduð og góð hrollvekja.
Laugarásbíó:
Ævintýri Picassos
Sænsk 1978
Þessi mynd var kosin besta mynd ársins af
sænskum gagnrýnendum, og er fyllilega skiljan-
legt. Þetta er sprenghlægileg mynd með djúpum
undirtón sem sænska leikaraparinu Haase
(Alfredsson) og Tage (Danielsson) er einum lagið.
Að visu tekur Laugarásbió upp á þeirri dirfsku eöa
heimsku aö likja þeim saman við Halla og Ladda, en
það er álika gáfulegt og likja Ómari Ragnarssyni
við Charlie Chaplin. Þessir sænsku grínistar, sem
unnið hafa saman allt frá stúdentsárunum, eru án
efa einir vandvirkustu skemmtikraftar Norður-
landa i dag, og þaö sem meira er: Ekkert kemur frá
þeim, nema aöþað vekji mann til umhugsunar.
íslenskir kvikmyndahúsgestir muna eftir Epla-
striðinu sem sýnt var I Háskólabiói foröum, en auk
hennar hafa þeir Haase og Tage gert fjölda annarra
mynda svo sem „Att angöra en brygga”, „Slapp
fangarna loss, det ar vár!”, „’Ágget ár löst’” og
margar fleiri.
Háskólabíó (mánudagsmynd):
Ovenjulegt ástarsamband
Leikstjóri: Ciaude Berri — Frönsk.
Næsta mánudagsmynd Háskólabiós er franska
kvikmyndin óvenjulegt ástasamband eftir Claude
Berri. Berri er m.a. þekktur fyrir myndina Gamli
maðurinn og barnið sem hann gerði árið 1966.
Myndin segir frá tveimur rosknum herramönnum
Jacques (leikinnafVictorLanoux) ogPierre (Jean-
pierreMarielle). Þeir fara ásamt dætrum sinum, 16
til 17 ára,i sumarleyfi til St. Tropez. Pierre er skil-
inn við konu sina og hefur takmarkaöan skilning á
málefnundóttursinnarMartine (Christine Dejoux).
Kona Jacques eyðir sumarleyfinu á öörum stað til
að komastað niðurstöðu um sambúð þeirra I næði. 1
upphafi viröist friið ætla að veröa tilbreytingalitið
að hefðbundnum hætti, en Francoise (Agnes Sor-
al) dóttir Jacques breytir þvi útliti öllum að óvör-
um. Hún verður ástfangin af Pierre og veldur hon-
um miklu sálarstriði þvi að aldursmun þeirra
slepptum telur hann sig vera að gera vini sinum
Jacques slæman grikk með þvi að halda við dóttur
hans. Jafnframt fer hann að sýna dóttur sinni auk-
inn skilning, henni til nokkurrar undrunar. Berri
lýsir ekki þessum afbrigðilega ástarþrihyrningi á
melódramatiskan hátt. Hann beinir háði sinu og
gamansemi að tvöföldu siðgæði kynslóðar Pierre
sem þykist veita Jacques hjálp við leitina að ill-
menni þvi sem hann telur að afvegaleiði dóttur sina.
Háskólabíó:
Pretty Baby
Frönsk-amerisk 1978.
Vel gerð mynd eftir franska leikstjórann Louise
Malle, sem er ef til vill islenskum kvikmyndagest-
um velkunnur eftir snilldarverkið Le SouffleDe Co-
eur, þar sem lýst er gelgjuskeiði drengs á sjötta
áratugnum og ástarsambandi hans við móður sina
eina nótt. 1 Pretty Baby er þemað likt að þvi leyti aö
einnig er fjallað um viðkvæma hlið kynlifsins. En i
þetta skipti ekki sifjaspell heldur barnavændi.
Myndin segir frá ljósmyndara sem heillast af korn-
ungri stúlku i hóruhúsi I New Orleans og taka þau
upp sambýli. Sven Nykvist, filmarinn hans Berg-
mans hefur skapað mjúka og áferðarfallega um-
gjörð um þessa hugljúfu og einkennilegu mynd, sem
skilur eftir tregabundinn tón hjá áhorfandanum.
KIARVALS-MÁLVERK
til sölu. Lysthafendur hafi samband viö auglýsingadeild
Þjóðviljans fyrir 10. des.
Sunnudagur 25. nóvember 1979 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 23
visna-
mál 4t
) /i
Umsjón:
Adolf J.
Petersen
Ósköp dynja í eyrum mér
Menn kveða jafnan sér til
hugarhægðar þegar haustar,
lýsa með þvi viöhorfum slnum
til þeirrar árstlðar, sem oftast
veldur mönnum kviða fyrir
komandi árstiö, sem er veturinn
meö öllum sinum harðviðrum
og hættum fyrir menn og dýr,
hvort sem er á sjó eða landi.
Einn af núverandi snjöllu
hagyröingum er H.S. á Selfossi,
hann sendi Visnamálum þessa
sönnu ferskeytlu:
Sumri hallar, hærast fjöli,
héluð falla biómin.
Fjólum valla flytur mjöll
feigðar kali og dóminn.
Þrátt fyrir uppskerubrest á
hinu liðna sumri, eru menn á
Suðurlandi upplitsdjarfir og
gáskafullir eins og H. S. kveður
um:
Upplitsdjarfir allir verum
ögn þó gangi á heyjaforðann.
1 næturvinnu Sólnes sér um
simavændið fyrir norðan.
Nú þegar framboðum til al-
þingiskosninga er lokiö með
prófkjörum, forvali og fleiru
þess háttar, þá kemur l ljós aö
sitthvað eina hefur gerst I þeim
málum sem menn áttu varla
von á, eins og t.d. að menn
skiptu um sæti á framboðslista.
Um það hafa menn rætt og sagt
sitt álit. Ó.Þ. I Reykjavik hefur
um það þetta að segja:
Ósköp dynja I eyrum mér,
Ellert niður setur
fyrst hann er að fórna sér
fyrir þennan Pétur.
Ó.Þ. hefur alltaf samúö með
öllum sem eiga bágt,einnig með
Guðmundi sem varö heldur
neðarlega á listanum. ó.Þ. seg-
Guðmundur með sorg og siit,
synd og skömm var rekinn.
Kastað loks með öllu út
og aldrei framar tckinn.
1 framboði á Noröurlandi
eystra var frjálshyggjan I full-
um gangi, sem kom fram I dá-
litlum bolabrögöum gegn Jóni
Sólnes, sem lét þá ekki deigan
siga, en svaraði fyrir sig. Ó.Þ.
álitur aö Sólnes muni velgja
andstæöingum sinum i flokkn-
um undir uggum og segir:
Sólnes skýtur ref fyrir rass
og rænir frjálshyggjumenn
vonum,
og dregur sjálfsagt heljar-
hiass
úr haugi Geirs I kosningonum.
Dálitið var framboðsástandiö
öndvert flokksforustunni á Suð-
urlandi, þar varð frjálshyggjan
flokknum talsvert fótakefli svo
að klofningur varð algjör i
framboðinu. Geir leit þaö alvar-
legum augum, renndi sér á
Bensanum austur, en mætti þar
öndverðum augum. Um þaö
kvað Ó.Þ.
Kom að sunnan kappinn Geir
kúska vildi Rangæinga.
Fannst það hart ef fólár
þeir
færu um eigin mál að þinga.
Undir sig tók ógnar stökk
eins og Héðinn foröum daga,
öfugur siðan undan hrökk,
Ingólf sá hann skjöldinn
naga.
Flótti brast I formannsliö
— Fljótiö rann við skör og
boöa —
Bensinn hratt með hrjúfum
nið
hreif þá burt frá þessum
voöa.
Þannig lýsir Ó.Þ. ferö Geirs,
en næsta visa barst með austan-
vindinum, hún sýnir að fátt hafi
verið um kveðjur þegar Geir
fór:
Augu Geirs þar engan beit
á þó lengi góndi,
en illilega á hann leit
Ingólfur Hellu bóndi.
Fyrir um þaö bil þrem vikum
siðan, birtist grein i Þjóöviljan-
um er skrifuð var af konu einni,
mátti skilja af greininni aö
konan hefði glataö getnaöarlim
sinum ogþóttiillt við það að una
sem skiljanlegt er. I tilefni af
greininni sendi hagyröingur
fyrir vestan tvær visur til Þjóð-
viljans.
Allt er burt sem áður kaus
er frá girndum snúið.
Pikan tóm og titulaus
tilfinningum rúin.
Von er aö hjálpin veröi hér
veitt með góðviljanum.
TittUng hefur týnt úr sér
telpa á Þjóðviljanum.
Þarna hefur maður hina rök-
réttu niðurstöðu. Blaðamenn
Þjóðviijanseru einsog allir vita
góðviljaöir og hjálpsamir I
besta máta, þeir fóru aö hugsa
um hvaða ráð mundi best henta
oghvaðslýlditilbragðs taka þvi
mikið lá við, þeir ræddu máliö
frá ýmsum hliöum og það á
mjög heimspekilegann háttsem
siikum sæmir. Hin visindalega
niðurstaða þeirra varö þannig:
Illt er þegar auðargná
unaðs tappa glatar,
eflaust reyna ætti hún þá
annann titt sem ratar.
Hjartað vonar, holdsins þrá
harmar sáran klofið
týndan gaur, svo tárast má,
tómt er nárahofið.
Finnist limur fyrnist raun,
fagnar auðarlina.
Greiðir fegin i fundarlaun
faðm og bliðu sina.
Órar risa um unaðsstund
ólga blóðsins straumar.
Fagnar raufin reðursfúnd
rætast frygöardraumar.
Eöliö vaknar léttist lund,
lifna blóösins órar.
Ur Umsins gnótt á frygða-
fund
fljóta elfur stórar.
A.
I siðasta þætti Visnamála var
visuhelmingur og þess óskað að
lesendur sendu viðbótsvo visan
yrði öll, það hefur H.S. á Selfossi
gert, visan verður þá þannig
þegar botn H.S. er bætt við:
Dúkkustjórnin dáðasmá,
daprast Bensa tökin.
Viöbót
Drenginn vantar viðreisn á
visitöluþökin.
eða
Þegar hann er faliinn frá
frýs og lokast vökin.
Ulfur Þorsteinsson
Reykjavik vill hafa visuna
svona, og er ekki i vafa um hver
ber ábyrgð á dúkkustjórninni
Dúkkustjórnin dáðasmá,
daprast Bensa tökin.
Viðbót.
Þeim sem bera ábyrgð á
illa reiknast sökin.
Of t kemur það fyrir að maður
lærir visu sem mælt er af
munni, án þess að maöur viti
um hinn rétta höfund. Svo er
með visuna hér á eftir, hún var
sögð gerö þegar einn af þing
mönnum Sjálfstæöisflokksins
var að hæla sér af þvi aö hann
oghans flokkur ynnu sleitulaust
fyrir alþýðuna:
Varla efast þarf um það
þeir fyrir okkur vinni,
en fyrst þó skara eldinn að
eigin köku sinni.