Þjóðviljinn - 14.12.1979, Blaðsíða 19

Þjóðviljinn - 14.12.1979, Blaðsíða 19
Föstudagur 14. desember 1979. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 19 Sjónvarp kl. 21.25 Þéttbýli, dreifbýli og yinstri stjórn Guöjón Einarsson frétta- maður er umsjónarmaður Kastljóss i kvöld. Að sögn hans verður aðalbíga fjallað um aðstöðumun Ibúa I þéttbýli og dreifbýli. — Þetta mál veröur rætt frá ýmsum hliðum, — sagði Guð- jón, — i fyrsta lagi verður vikið að misvægi atkvæða i alþing- iskosningum eftir búsetu. Þingmaður i þéttbýlinu hér á Suð-vesturhorninu hefur fimmfalt fleiri kjósendur á bak við sig en þingmaður úr fámennustu kjördæmunum, svo dæmi sé tekið. Rætt verður við Gunnar Thoroddsen, formann stjórn- arskrárnefndar, um þetta at- riði, en stjórnarskrárnefnd vinnur nú sem kunnugt er að endurskoðun þessara mála. Einnig verður rætt við einn þingmann úr þéttbýli: Olaf G. Einarsson i Reykjaneskjör- dæmi, og annan úr dreifbýli: Pál Pétursson i Norðurlands- kjördæmi vestra. Auk þessa verður svo f jallað um aðstöðumun á ýmsum fleiri sviðum, t.d. hvað varöar vöruverð, þjónustu, hitunar- kostnað, tekjur, atvinnurekst- ur o.fl. Um þessi mál fer fram umræöa i stúdiói, og taka þátt i henni Eggert Jónsson borg- arhagfræðingur og fulltrúi sambands veitarfélaga i Austurlandskjördæmi. Guðmundur J. og Karl Steinar fá sér eina með öilu og ræða horfurnar á nýrri vinstri stjórn i Kastljósi I kvöld. Þetta veröur semsé aðalmál Kastljóss i kvöld, en auk þess mun Guðmundur Arni Stefánsson ræða við „guöfeður fyrrverandi rikisstjórnar” sem svo eru nefndir, þá Guð- mund J. Guðmundsson og Karl Steinar Guðnason, um horfurnar á endurreisn vinstri stjórnar, séðar frá þeirra bæj- ardyrum. Viðtal þetta var tek- ið á stað sem mjög hefur kom- ið viö sögu að undanförnu: við pylsuvagrjinn i Austurstræti. Auk Guðjóns og Guðmundar Árna tekur Vilhelm G. Krist- insson þátt i umsjón Kastljóss. — ih. Umhwrfis jörðina Sjónvarp kl. 22.40 Pálmi Jóhannesson, yfir- þýðandi hjá Sjónvarpinu, hefur þýtt bandarisku biómyndina „Dúfan” sem verður föstudags- myndin i þessari viku. — Myndin fjallar um hnatt- siglingu ungs Bandarikja- manns, —sagði Pálmi, — þar er sagt frá ferðalaginu sjálfu og einnig ástarævintýri unga mannsins, sem er 17 ára. Svo lendir hann i ýmsum hættum og erfiðleikum. Þetta er hugljúf mynd um ungt og laglegt fólk sem ræður fram úr erfiðleikum sinum af eigin rammleik. Ég get vel trúað aðkrakkar hefðu gaman af þessari mynd. _jh / Þessi sæti strákur heitir Þorgeir Astvaldsson og er öllum lands- ins unglingum að góðu kunnur fyrir skonrokkiö sitt. Það er ekki eins vist að afarnir og ömmurnar séu neitt hrifin af honum. En hvað um það. Konrok(k) er á dagskrá sjónvarpsins Okkar f kvöld og hefst kl. 20.50 ef auglýsingaguðinn leyfir. frá Hringið í síma 8 13 33 kL 9-5 alla virka daga eða skrifið Þjóðviljanum Síðumúla 6, 105 Reykjavík lesendum Sigurður Þór Guðjónsson: Svo bregðast krosstré Þegar ég haföi lokið grein minni, Forddmar og geðheilsa, fór ég að hugsa um hvar best væri að koma henni á prent. Ég veit að sumum finnst málefnið „viðkvæmt” og orðalagið var af ráðnum hug ekki sérlega temprað. En þar eð óbeint til- efni greinarinnar birtist I Þjóð- viljanum fannst mér eðlilegast að senda hana i það blað. Auk þess taldi ég — og tel enn — Þjóðviljann með viðsýnni blöð- um og hafa litla tilhneigingu tii óðagots. En hér fór illa. Þegar greinin birtist var hnýtt aftan við hana slaufu frá ritstjóra. Slíkar slaufur eru skrýtnar. ekki sist þegar ritstjórar hafa daglega heilan dálk til að klippa og skera. Og úr grein minni var “'skorin klausa nokkur — vegna plássleysis var mér sagt. En hitt finnst mér undarlegt að athugasemd ritstjórans er meira mál en það sem burtu var fellt. Og þó það sé hábölvað og liklega út I bláinn að lesa brottfellda klausu án samheng- is, var hún samt svona og á aö standa milli greinaskila neðst i þriðja dálki: ,,En þessi er afleiöing mál- flutnings af þessu tagi: Þær vammir og ódyggðir er á and- stæðinginn vorubornar i spennu leiksins gleymast aö mestu fljótlega eftir leikslok og kosn- ingar — en f almennri vitund kunna þær (samkvæmt lög- málum draugasagnasálfræð- innar) aðloðavonúrviti viðþað huldufólk, sem þær voru miðað- ar út frá þ.e. fólk sem fengið hefur á sig opinberan eða hálf opinberan stimpil um einhvers konar „geðsjúkdóm” eða „and- legan kvilla” frá hvaða lækna- visindakennivaldi sem er”. Þetta atriði er þungt á metun- um fyrir minum sjónum. Þpð má vera að ég ýki hlut Arna Bergmanns og bið ég hann þá afsökunar. Mérer lfka fullkom- lega ljóst að orð úr sálfræðimáli eru notuð i yfirfærðri merkingu i ýmiss konar umræðu. Ég var aðeins að vekja athy gli á að ekki sakar að gera sér ljósar hættur sem af slikri merkingafærslu geta stafað. Ég minni á nokkur alkunn orðtök, sem oft eru notuð spaugi, en hafa mjög neikvæða tilf inningalega merkingu sem bitnar i hugum almennings miskunnarlaust á „huldufólki” þvi sem klausan nefnir: „Ekki eins og fólk er flest”, ,,með lausa skrúfu”, „ekki meðöllum mjalla”, „ætti ekki að ganga laus”, „Klepptækur” o.s.frv. Mig grunar, þvi miður, að tortryggni fólks gagnvart öllu sem „byrjar á g-” eins og einn geðlæknir sagði við mig, sé meiri og dýpri en við kærðum okkur um að viðurkenna. Það er a.m.k. kaldranaleg tilviljun að þessi grein min er hin eina sem stytt hefur verið og skreytt með slaufu. Og eitthvað hvislar að mér að hún hefði hvorki verið klippt né skorin ef hún hefði fjallað um eitthvað annaö. Ég ,vona samt, að ef ég held áfram að skrifa um þessi mál i Þjóð- viljann, verði skærin látin eiga sig. Sigurður Þór Guðjónsson F ullyrðingar um flamenkó „Ekta fiamenkó liöfðar til min, en hann á litið skylt við það sem boðið er upp á á sólarströndum” segir Aðalsteinn Ingólfsson I sjónvarpsspjalli i Dagblaðinu á mánudaginn. Hann er þar að tala um sjón- varpsþátt með gitarleikaranum Paco Pena og frægum flamenkódönsurum, sem sýnd- ur var á sunnudagskvöldið. Það er algengt að menn halda að allt sé plat og eftirlikingar, sem veslings túristunum er boðið að kaupa, sjá og heyra á hinum voðalegu sólarströndum Spán- ar. Svo er þó ekki alltaf og i þessu tilviki hefur listgagn- rýnandinn hætt sér út á hála braut. Flamenkódansinn kemur frá Andalúsiu og einmitt i Andalúsiu eru helstu sólar- strendurnar (t.d. Costa del Sol). Bestu flamenkódansararnir koma oft fram i næturklúbbum og öðrum skemmtistöðum við strendurnar og sýna þar listir sinar. Og það vill svo til, að i sumar sá ég einmitt þennan fræga flamenkódansara, sem mest dansaði i þætti Paco Pena, ásamt dansflokki sinum á tveimur skemmtistöðum á Costa del Sol, sem túristar sækja mjög. Þarna er semsagt á ferð „ekta” flamenkó, sem Aðalsteinn hampar að sjálf- sögðu, og — það er boðið upp á hann á sólarströndum. Einar örn Nú er nýafstaðinn fjörugur kosningabardagi en fyrr á öldinni var ekki siður heitt I kolunum. Þetta kort var gefið út I tilefni af kosningabar- daganum 1922. Til hægri er eftirfarandi útlistun á sögunni: „Auðvalds- sinnar og Byltingamenn há orustuna um framtiðarlandið — yfirráðin —, og heitaá múginn til fylgdar sér: Framsóknarmenn, thaldsmenn og Ráðleysingja —. Framsóknarmenn klofnuðu og fylgdu báðum, með thaldsmönnum upp til Auðvalds og með Ráðleysingjum niður til Byltingar.” Frá dögum afa og ömmu ^osnmijuburbutjtuui laa\U‘\uo'i\vZS.\aniiav Sucma ú>v hanv\. ^ --------- - T • «•••••«« 1 • • —* . *■ /.TIHALÐ Herojnn * /V. Frcim.jmin!'iml qti’/m, 3 ■ Frum, frm yfir acj ut-ccri. FRAMSOKX! fc k t • • •_ • • • • • • • « • • • rútw mi • • • c\t\an: » (SVu'tvMbiivmicvv vo, ^V)\.Vovv)ufl Jjí mnn i\ú ovusluuvx Utt\ Svcnwúbcu M I Lvn'öit)-v^wvabin-.^o^Vv\a amuc\- 0 J tmvU (v\\cjöav svv • immiokuivtmttm\ £ Jl\al6btnvut» ocj 1Wla\b\uc\\u — N ^ l^vcuu'»ó\\ncum«.uu hlojtvvvbu 03 / Itúbum.. incbáhutös— Jgl -y nu'umun unp ívl c5\vvboalb.s j met) ^CvbW^ttu\\uw\ úvbuv UV ™ ^)v\Un\i\t\v.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.