Þjóðviljinn - 19.12.1979, Blaðsíða 1
UOWIUINN
Miðvikudagur 19. desember 1979 278. tbl. 44. árg.
Landgönguliðar á slysstað
Mik Magnússon blaðafulltrúi
bandariska hersihs á Kefla-
víkurflugvelli hringdi til Þjóö-
viljans seint I gærkvöldi og lýsti
þvi yfir aft nokkrir iandgöngu-
liöar yröu sendir á slysstaö til
aöstoöar isiensku lögreglunni og
til þess aö halda til haga gögn-
um um slysiö eins og herstjórn
mæiir fyrir um. Mik Magnússon
sagöi aö þetta væri gert meö vit-
und og samþykki islenska utan-
rikisráöuneytisins.
— GFr
11 manns
slösuðust
þar af 2 íslenskir læknar.
Björgunarþyrla hrapaði við
björgunarstörf eftir að 4ra
manna Cessna-flugvél
hrapaði á Mosfellsheiði
í gær urðu tvö alvarleg flugslys á Mosfellsheiði.
Alls slösuðust 11 manns i þessum tveimur flug-
slysum, þar af 2 islenskir læknar, allir hinir eru út-
lendingar. Erfitt var að fá nákvæmar upplýsingar
um hve mikið fólkið var slasað, en enginn mun vera
lifshættulega slasaður. Aftur á móti var talið að
margir hefðu skaddast i baki og margir hlutu opin
beinbrot og auðvitað mar, skurði og aðra áverka.
Annars var sem fyrr segir erfitt að fá nákvæmar
upplýsingar um hina slösuðu.
Um kl. 15.00 I gærdag rofnaöi
sambandiö viö 4ra manna
Cessna-flugvél sem 4 útlendingar,
einn Frakki, tvær finnskar stúlk-
ur og einn Ný-Sjálendingur, höföu
tekiö á leigu til útsýnisflugs.
Stuttu síöar heyröi flugvél i neyö-
arsendi frá Cessna-vélinni og
fann hana innan tiöar á Mosfells-
heiöi, skammt frá þjóöveginum
yfir heiöina. 1 ljós kom, aö allir
sem I vélinni voru höföu komist
lifs af, en slasast nokkuö.
Björgunarmenn komu fljótlega
á vettvang, og þar á meöal var
þyrla frá Keflavikurflugvelli.
Hún tók þegar einn hinna slösuöu
og flutti hann á Borgarsjúkrahús-
iö, en á meöan var unniö aö þvi aö
losa hina úr flakinu, þar sem þeir
höföu fest. Siöan kom þyrlan
aftur kl. 19.08 i gærkveldi og tók
hina þrjá.
Sjónarvottur sagöi svo frá I
gærkveldi, aö þyrlan heföi veriö
komin 50 til 100 fet frá jöröu þegar
hún allt I einu missti flugiö og
hrapaöi I skrúfu niöur og kastaö-
ist eftir hjarninu. Skemmdist
þyrlan mjög mikiö aö sögn, m.a.
brotnaöi stjórnklefinn alveg.
Þegar þyrlan brotlenti á Mos-
fellsheiöi kviknaöi eldur i henni
en einn Iæknanna um borö varö
þá ekki höndum seinni og setti i
gang sjálfvirkt slökkvikerfi sem
slökkti eldinn á svipstundu.
Allir sem I þyrlunni voru slös-
uöust, þar á meöal tveir Islenskir
læknar af Borgarsjúkrahúsinu
sem höföu fariö uppeftir meö
þyrlunni til aö hlynna aö hinum
slösuöu.
Þegar I staö var hafist handa
um björgun fólksins og fóru menn
frá Flugbjörgunarsveitinni,
Slysavarnafélaginu og Hjálpar-
sveit skáta á slysstaöinn meö
fjallabifreiöar og snjósleöa.
Undir miönætti I gær voru allir
hinir slösuöu komnir á sjúkrahús
I Reykjavik, en Almannavarnir
rikisins stjórnuöu aögeröum og
var fólkiö flutt á þrjú sjúkrahús,
Borgarsjúkrahúsiö, Landspital-
ann og Landakot.
Aöstæöur allar til björgunar
voru afar erfiöar, vegur yfir Mos-
fellsheiöi þungfær og erfitt aö
komast af honum á slysstaö. En
mjög vel búnar og skipulagöar Is-
lenskar björgunarsveitir unnu
þarna frábært starf á stuttum
tlma. Einnig fóru Islenskir
læknar á slysstaöinn og hlúöu aö
þeim slösuöu, sáu um blóögjafir
og annaö sem gera þurfti.
Vakt var höfö á slysstaönum I
alla nótt, og voru þar bæöi Is-
lenskir menn og menn frá Kefla-
víkurflugvelli.
—S.dór
Finnsk stúlka, sjúkraliöi af Reykjalundi, sem lenti I báöum flugslysunum er hér á vélsieöa, tilbúin aö
veröa flutt inn I bil Flugbjörgunarsveitarinnar. Hún var þaö hress aö hún baö menn I guöanna bænum aö
aka ekki of hratt I bæinn. (Ljósm.: eik).
Alþýðuflokkurinn hejur tryggt Sjálfstœðisflokknum úrslitaáhrif l utanrikis- ogjjármálum:
Slíkur flokkur stefnír
ekki í vinstri stjórn
sagði Ragnar Arnalds á fundi Sameinaðs þings i gær
„Kjarni þeirrar stjórnar-
kreppu sem nú ríkir á Is-
landi er augljóslega sá aö
Alþýöuf lokkurinn hefur átt
erf itt með að ákveða hvort
hann stefndi í vinstri eða
hægri stjórn ", sagði
Ragnar Arnalds formaður
þingflokks Alþýðubanda-
lagsins í gær í umræðum
um skýrslu forsætisráð-
herra sem hann f lutti í stað
stefnuræðu.
„Alþýöuflokkurinn hikaöi viö
aö ganga til vinstri samstarfs ’78,
og sprengdi þaö síöan sl. haust
meö bandalagi viö Sjálfstæöis-
flokkinn um þingrof og nýjar
kosningar og stuöning viö minpi-
hlutastjórn krata. Nú þegar
haldnir hafa veriö sjö fundir I
stjórnarmyndunarviöræöum á 13
dögum hafa Alþýöuflokksmenn
Framhald á bls. 13
Ragnar Arnalds á Alþingi I gær:
Alþýöuflokkurinn og Sjálfstæöis-
flokkurinn bera sameiginlega á-
byrgö á þvl stjórnleysisástandi
sem hér rlkir.