Þjóðviljinn - 03.01.1980, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 03.01.1980, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 3. janúar 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15 Útvarp kl. 20.10 Mesópótamíu 1 kvöld kl. 20.10 verður flutt leikritið „Morð I Mesópótamiu” en leikstjóri er Valur Gislason. Með helstu hlutverkin fara Helga Valtýsdóttir, Róbert Arnfinns- son, Guðbjörg Þorbjarnar- dóttir og Valur Gislason. Leikritið, sem er rösklega einn og hálfur timi, var áður flutt árið 1960. 1 eyðimörk Iraks, ekki langt frá Bagdad, er starfað að upp- greftri fornleifa. Vfirmaöur rannsóknanna, dr. Leidner, Leikrit vikunnar: Mord í Agatha Christie, höfundur leikritsins „Morð I Mesópótamiu”, er einn kunnasti sakamálarithöf- undur sem uppi hefur verið. hefurmiklar áhyggjur af konu sinni. HUn þjáist af stööugum ótta, og hjúkrtmarkona er fengin af spitla dr. Reillys þar i nágrenninu til að annast hana. Ymislegt grunsamlegt fer að gerast og það kemur i ljós, aö ótti frú Leidner er ekki með öllu ástæöulaus. Agatha Christie fæddist i enska bænum Torquay áriö 1891. Hún stundaði tónlistar- nám i Parls og var hjúkrunar- kona i heimsstyr jöldinni fyrri. Frægasta persónan i sögum hennar er Hercule Poirot, belgiski spæjarinn meö yfir- vararskeggið, sem leysir morögáturnar á hóglátan en áhrifamikinn hátt. Agatha ferðaðist viða um heim með seinni manni sinum, fornleifa- fræöingnum Max Mallowan og er þvi næsta kunnug þvi efni sem „Morð i Mesópótamíu” fjallar um. Frægasta leikrit hennar, „Músagildran” hefur veriðsýnt hátti 30 ári London. Útvarpið flutti þaö árið 1975. Agatha Christie lést áriö 1976, hálfniræð að aldri. Gunnar M. Magnúss. Ný útvarpssaga barnanna: r Oli prammi Eftir Gunnar M. Magnúss. í dag kl. 16.40 byrjar Arni Blandon aö lesa nýja útvarps- sögu barnanna, en það er sag- an „Óli pramtni” eftir Gunnar M. Magnúss. Þessa sögu skrif- aði Gunnar árið 1944 og eru nú liðin 35 ár siöan hún kom fyrst út I bók. Sagan fékk góöa dóma og varð vinsæl. Hún var svo endurútgefin og birtist sið- an i smásagnasafni Gunnars: Myndir af konunginum, sem kom út 1976. Sagan segir frá sérvitringi, sem kallaður er Óli prammi og ýmsum uppátækjum hans. Sem fyrr segir er það Arni Blandon, sem mun lesa sög- una. Til umhugsunar Þátturinn „Til umhugsunar” er á dagskrá hljóðvarpsins I dag og hefst kl. 14.45. Þáttur þessi i umsjón þeirra Gylfa Asmunds- sonar og Þurlðar J. Jónsdóttur hefur vakið verðskuldaöa at- hygli, enda hafa þar verið tekin fyrir mál sem flesta varða. Hringið í sima 8 13 33 kl. 9-5 alla virka daga eða skrifið Þjóðviljanum Siðumúla 6, 105 Reykjavik tfrá lesendum Popp eöa sinfóníur Lítum okkur nær Þjóðviljanum hefur borist eftirfarandi bréf frá þjóðernis- , sinna: Ég hef ekki haft þaö fyrir sið að skrifa bréf i blööin, en nú undanfarið hefur gengið svo fram af mér að ég gat ekki á mér setið. Tilefnið eru þær safn- anir á vegum misjafnlega póli- - tiskra „hjálparstofnana” (sjá kvikmyndina „Ariö núll”) hér á landi. 1 sjálfu sér væri ekkert við það að athuga að íslendingar gæfui slika söfnun, ef þeir væru rikir og hefðu efni á þvi. En getur þjóð sem ekki hefurefni áað byggja sundlaug fyrir hreyfihamlaða eða að út- búa björgunarsveitir landsins svo vel sé, efni á þvi að leggja fram fé handa öörum? Ég efast um að svo sé og hygg aögamlamáltækið,,Maöur littu þér nær” eigi hér vel við. Byrjum á þvi aö lagfæra þaö sem að er hér heima áður en við förum að skipta okkur af annarsstaðar. „Miðjumaður” skrifar: Um langt árabil má segja að hljóðvarpið hafi veriö eini fasti punkturinn I tilverunni hér á landi, það hefur ekkert breyst, á meðan allt annað er breytingum háð. Menn gátu alltaf gengið að sinum sinfónium vissum i hljóð- varpinu og svo er nú reyndar enn. Þó hafa þau undur gerst, vegna gegndarlauss áróðurs þeirra sem popp-tónlist dýrka að útvarpið hefur undan látiö og nú eru tvær tegundir tónlistar leiknar i hljóövarpinu, klassisk tónlist og popptónlist. Of mikiö má af öllu gera og of mikið er af þessum tveim teg- undum I hljóðvarpinu. Hvað meö allar aörar tegundir tónlistar? Hvers eiga aðdá- endur þeirra að gjalda? Eigum við engan rétt? Máöur heyrir vart leikna þjóölagatónlist, sönglög, gamla dægurtónlist, svo nefnda sving-tónlist, jazz (einn þáttur á viku) og svona mætti lengi upp telja. Og vel á minnst: Voru ekki geröar tvær hlustendakannanir á vegum Rikisútvarpsins á siðasta ári og kom þar ekki fram að fólk virðist vilja breyt- ingará dagskrá bæði hljóövarps og sjónvarps? Voru þessar kannanir að engu haföar eða hvenær megum viö eiga von á einhverjum breytingum til batnaðar? Mikil er breytingin, þótt ekki séu nema um það bil 20 ár milli þessara mynda. Er engin önnur tegund af tónlist til en popp eða sinfóniur? spyr bréf- ritari. V.,, ■ l / JL m Myndin var af Silju Aöalsteinsdóttur, bókmenntafrœöingi. Hver er madurinn?

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.