Þjóðviljinn - 08.01.1980, Síða 11

Þjóðviljinn - 08.01.1980, Síða 11
Þriðjudagurinn 8. janúar 1980. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11 íþróttir íþróttir ( kaflarnir hjá Viggó þvi mjög margar sóknir misfórust vegna mistaka hans. Nokkuö leiöinlegan svip setti á þennan leik hve mikiö misræmi var i dómum þeirra Björns Kristjánssonarog Karls Jóhanns- sonar. Þeir túlkuöu svipuö atvik á ákaflega mismunandi hátt. Markahæstir Pólver ja voru: Klempel 9/2 og Waszikiewich 4. Mörkin fyrir íslands skoruöu: Steindór 4, Siguröur G. 4, Viggó 4/1, Þorbergur 4/1, Ólafur 3, Bjarni 1 og Andrés 1. — IngH Munurinn kom vel í Ijós „Maöur er náttúrlega misánægöur meö þessa 3 leiki sem viö höfum leikiö gegn Pólverjunum, en fullyröa má, aö þessir leikir hafi veriö ákaflega lærdómsrikir, viö fengum góöa og dýrmæta reynslu,” sagöi landsliöseinvaldurinn i handbolta, Jóhann Ingi Gunnarsson aö iokinni landsleikjatörn lslendinga og Pólverja um helgina. — Fyrsti leikurinn var mjög góöur handknattleikslega séö. Þaö á einnig við um annan leikinn og þar var aldrei gefist upp þótt á móti blési, en strákarnir slökuöu á i lokin. Okkur vantaöi þessa veigamiklu reynslu og einnig heföi heppnin mátt vera á okkar bandi. Ég verö aö segja það, aö mér fannst vanta alla stjórn á liöinu innan vallar i þeim leik, hvernig svo sem stendur á þvi. Nú var siöasti leikurinn ákaflega gloppóttur af hálfu okkar manna. Já, þetta var lakasti leikurinn, á þvi er ekki vafi. Það komu slæmir kaflar í þetta hjá okkur, sérstaklega i upphafi seinni hálfleiks og einnig gáfum viö eftir I lokin. Annars voru minir menn og Pólverjarnir farnir aö þekkja svo vel hvorir inn á aðra, aö þaö varö mikiö um stympingar o.þ.h. Þegar svo er kemur munurinn á þjálfuninni vel i ljós. — Hvernig leggst Baltic-keppnin i þig? — Strakarnir eru þreyttir nú og hefðu þurft einn fridag til viöbótar. Maður vonar einungis þaö besta. -IngH Fylkir á toppnum Fjórir leikir voru í 2. deild handboltans um helgina og aö þeim loknum má segja aö Fylkis- menn standi mjög vel aö vigi, en mörg liö koma þó fast á hæla þeim. Fylkisstrákarnir brugði sér til Eyja og léku gegn Þór á föstu- dagskvöldiö. Þórsarar höföu undirtökin framundir miöjan seinni hálfleik, en þá sóttu Árbæ- ingarnir heldur betur i sig veðriö og sigruöu 22-20. A sunnudaginn léku Fylkir og Týr og var þar um jafna og spennandi viöureign að ræöa. Sanngjarnt jafntefli varö niöur- staöan, 18-18, en Týrarar misstu af góöu tækifæri á lokasekúndun- um þegar Jón varöi viti frá Snorra. Ármenningar brugðu undir sig betri fætinum um helgina og skruppu til Akureyrar. Þeir máttu sætta sig við óvæntan ósig- ur gegn Þór á föstudagskvöldiö 23-25, en möröu jafntefli gegn KA á laugardaginn 22-22. Staöan 12. deildinni er nú þessi: Fylkir 751 1 145:128 11 Þróttur 6 4 0 2 131:123 8 Armann 6 2 2 2 142:125 6 Afturelding 4 2 1 1 83:76 5 KA 5 2 1 2 96:109 5 Týr 3 1 1 1 63:56 3 Þór, AK. 5 1 0 4 97:107 2 Þór, Vm. 4 0 0 4 72:104 0 Strákamir voru komnir „á hælana” Pólverjar sigruðu 1 3. Íeiknum með 5 marka mun, 20-15 Landinn lá heldur betur i þvi i þriðja og siðasta leik íslands og Póllands i handbolta hér á landi að sinni. Pólverjarnir sigruðu með 5 marka mun, 20-15, en segja má að sá munur hefði bæði getað orðið stærri og einnig minni. Orslitin gefa þannig nokkuð góða mynd af gangi leiksins. Pólverjarnir hófu leikinn af fitonskrafti og skoruðu 3 fyrstu mörkin. Ólafur, fyrirliöi læddi inn einu marki, en þeir pólsku svör- uöu meö 2 I röö, 5-1 og leikurinn nánast búinn þegar á upphafs- minútúnum. Landinn rétti heldur úr kútnum næstu minúturnar, 6-3, 7-5 og 8-7. Hér sögöu Pólverjarnir hingaö og ekki lengra og skoruöu 3 siöustu mörk hálfleiksins, 11-7. Þess má geta að 5 siöustu sóknir islenska liösens fyrir leikhléið mistökust á einn eöa annan hátt. Ekki stóö steinn yfir steini hjá islensku strákunum i upphafi seinni hálfleiksins, 6 sóknir i röð fdru I vaskinn. Þetta áttu Pólverj- arnir ekki i miklum vandræöum með aö notfæra sér og næstu 4 mörk voru þeirra, 15-7. Nú var einungis spurning hvort strák- arnir yröu rassskelltir rækilega eða ekki. Það var eins og viö manninn mælt, strákarnir tóku nú heldur betur við sér og skoruöu 4 mörk I röö, 15-11. Pólverjarnir skoruöu 2 næstu mörkin 17-11, en landinn tók aftur mikinn sprett og skoraöi 3 mörk I röö 17-14. Islend- ingarnir fengu nú 3 tækifæri til þess aö minnka muninn enn, en þau misfórust öll og Pólverjarnir skoruöu 3 mörk gegn 1 frá okkar mönnum á lokaminútunum. Enn einn sigur pólskra staöreynd, 20- 15. Pólverjarnir léku þennan leik af geysilegri yfirvegun og öryggi lengi framanaf, en gáfu nokkuö eftir þegar forskot þeirra var orö- iö mikiö. Markvarslan hefur batnaö með hverjum leik og mun- ar þá mikiö um þaö. Nóg um það, vist er að Pólverjar hafa ákaflega heilsteyptu liöi á aö skipa, en ekki er undirritaöur tilbúinn aö taka undir það, aö þeir séu meö eitt af þremur bestu liöum heims I dag. Mikið hefur veriö um það rætt aö vörnin væri veiki hlekkur is- lenska liösins. Vissulega er hún ekki mjög burðug, en að þessu sinni varö þaö sóknin sem algjör- lega brást, sóknarnýtingin i leiknum var innan viö 30% og þaö er nánast hörmulegt i landsleik. Þá fóru 3 viti forgörðum, nokkuö sem viö megum öngvan veginn viö I keppni viö sterkan andstæö- ing. Reyndar má segja aö strák- arnir hafi veriö komnir ,,á hæl- ana” i þessum leik, á sama tima og Pólverjarnir virtust i fullu fjöri. Þarna kom I ljós munur á þjálfun og undirbúningi. Hvað um þaö, strákarnir hafa sýnt aö þeir eru stórefnilegir, um það veröur ekki deilt, en þeir þurfa meiri æf- ingu og einnig ögun i leik sinum til þess aö ná góöum árangri. Sem fyrr var þaö Viggó sem átti sökina á flestum sóknarmis- tökunum, en vonandi stafar slikt einungis af skorti á sannfæringu. Hann geröi þó af og til mjög lag- lega hluti. ólafur kom sterkari frá þessum leik en i hinum fyrri. Bestan leik átti, aö öörum ólöst- uðum, Þorbjörn Jensson, klettur i vörninni og skoraöi 2 glæsileg mörk. Þá varöi Brynjar nokkrum sinnum vel. Aörir voru nokkuö frá sinu besta. Framhald á bls. 13 / Nú voru það Irar sem lágu islenska körfuknattieikslands- liðið náði að rétta verulega úr kútnum um helgina. Liðið hafði tapað fyrir Norður-írum á fimmtudaginn, en hélt siðan suður á bóginn og sigraði sunnan- menn I tvigang, fyrst 88-78 og siðan 90-84. A föstudagskvöldið léku þjóöirnar i Dublin. íslendingarnir tóku leikinn i sinar hendur þegar i upphafi og náðu góöu forskoti. trum tókst aö minnka muninn nokkuö lokaminúturnar, en sigur okkar manna var aldrei i veru- legri hættu. Jónas Jóhannesson og Jón Sigurðsson voru atkvæðamestir i islenska liöinu aö þessu sinni. Jón skoraöi 17 stig og Jónas 13. Kristján skoraöi 12 og Birgir og Gunnar 10 hvor. A laugardaginn var leikiö i Cork og var þar svipaö uppi á teningnum, islenskur sigur var aldrei i hættu. Lokatölur urðu siöan 90-84 fyrir ísland. Kristján Agústsson átti stórleik og skoraði 22 stig og einnig var Torfi góður. -IngH. Fyrrum landsliðsþjálfari Islands, Janus Czerwinskys „Rétt að veriá staðið” Flestir h andkna ttleiks- áhangendur islenskir kannast vafalitið við pólska þjálfarann Januz Czerwinsky, sem þjálfaði islenska landsliðið fyrir B-keppnina I Austurriki 1977 og var með svokaliaðan bréfaskóla fyrir HM I Danmörku 1978, sæll- ar minnigar. Januz var á ferð- inni hér á landi með pólska landsliðinu og ku kappinn vera orðinn æðsti maður handknatt- leiksmála þar i landi. Það kem- ur ekki á óvart að svo er þvi maðurinn er vel menntaður og sagður afbragðsþjálfari og skipuleggjandi mikill. A blaöamannafundi eftir leik Islands og Póllands á sunnudag- inn sagöi Januz aö ferö þeirra pólsku hingað til lands væri aö mestu leyti hugsuö sem lokaæf- ing fyrir Baltic-keppnina sem fram fer i þessari viku. Þrátt fyrir þaö heföu þeir leikiö af fullum krafti, en notaö timann til þess aö reyna nýjar leikflétt- ur o.þ.h., Nú hittið þið fyrir nánast allt annað landslið en þú varst að þjálfa hér á landi fyrir 2 árum. Koma breytingarnar þér ekki á óvart? — Liðiö ykkar er mjög ungt að árum og ef þiö hafiö B-keppnina 1981 i huga sem takmark, er að minu mati rétt aö fariö. Þó verö ég aö segja, að þaö kom mér nokkuð á óvart aö ykkur vantar tilfinnanlega langskyttur. En þjálfarinn ykkar hefur vafalítið ákveöna hluti i huga og þeir kunna aö standast. Hverjir heldur þú aö séu möguleikar okkar I Baltic- keppninni sem framundan er? — Ef liöið leikur i þeirri keppni eins og þaö hefur gert á móti okkur þá býst ég viö að þiö muniö leika um 5. til 6. sætiö I keppninni. Bæöi Austur- og Vestur-Þjóöverjar eru of sterkir fyrir ykkur,en þiö eigiö aö sigra Norömenn af öryggi. Hvað heldur þú að isienska liðið þurfi að,leika marga lands- leiki fram að B-keppninni á næsta ári,þ.e.a.s. ef undir- búningurinn á að vera við- unandi? Þiö veröiö aö leika a.m.k. 25-30 leiki og helming þeirra erlendis, helst i erfiöum „turneringum” meö góöum liö- um. Reyndar þekki ég vel aö- stæöur hér á landi og verð aö segja aö þaö er hreinlega for- kastanlegt aö leikmennirnir ykkar þurfi aö vinna 10 tima á dag ásamt þvi aö leika i lands- liöinu. 1 Póllandi eru allir lands- liðsmennirnir við nám og þurfa einungis aö skila árangri þar. Nú er talað um að Pólverjar og Sovétmenn séu I nokkrum sérflokki i handknattleiknum i dag. — Já, þaö er alltaf gaman þegar maöur sér eöa heyrir eitt- hvaö þessu likt, en viö veröum aö horfast i augu viö raun- veruleikann og gera okkur ekki falsvonir. Riöillinn okkar á ólympiuleikunum er mjög sterkur, þ.á.m. 3 lönd sem hafa unnið til ol-verölauna og svo Sviar. Sérð þú fram á einhverjar breytingar á handknattleiknum á næstuárum? Er svokallaður „frjáls handbolti” e.t.v. aö s;ckja á? Ég sé ekki fram á miklar breytingar þvi enn eru mjög miklir möguleikar á aö þróa hinar „taktísku og teknísku” hliöar handknattleiksins. -IngH Januz á landsliösæfingu hér i eina tið.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.