Þjóðviljinn - 08.01.1980, Page 16
DJOÐVIUINN
Þriðjudagurinn 8. janúar 1980.
Aöalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9 — 20 mdnudaga til föst-
udaga, kl 9 — I2f.h. og 17 — 19 e.h. á laugardögum. Utan
þess tima er hægt að ná i blaðamenn og aðra starfsmenn
blaösins I þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og
81285, afgreiösla 81482 og Blaðaprent 81348.
^ 81333
Kvöldsimi
er 81348
Þetta getur
allt verid
eölilegt
sagði Hjálmar Vilhjálmsson um árang
urslausa loðnuleit Gígju RE
Sem kunnugt er af
fréttum hefur nótaskipið
Gigja RE verið við
loðnuleit á hinum hefð-
bundnu loðnumiðum út-
af Norður- og N-Austur-
landi undanfarið án þess
að verða vör við veiðan-
lega loðnu.
— Þetta getur allt saman verið
eðlilegt og hefur raunar komið
fyrir áður að loðnan hafi ekki
fundist um þetta leyti, sagði
Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræð-
ingur er við ræddum viö hann i
gær, skömmu áður en hann lagði
af stað í loðnuleitarleiðangur á
rannsóknarskipinu Bjarna
Sæmundssyni.
Hjálmar benti á, að aðalloðnu-
gangan hefði ekki fundist fyrr en
12. janúar i fyrra og sagöist hann
-oft hafa verið einskipa viö loðnu-
leit áþeim tíma sem Gigjan hefur
veriö einskipa að leita og ekki
fundiö neitt.
Bjarni Sæmundsson lagði úr
höfn um kl. 20.00 i gærkvöld og
sagöist Hjálmar, sem verður
leiðangursstjóri, mundu fyrst
fara Ut af Vestfjörðum og halda
siðan austur með landinu. I fyrra
fannst loönugangan N-A af Kol-
beinsey þann 12. jan. eins og fyrr
segir.
Loks sagði Hjálmar, aðmiöað
við það svæði, semGigjan hefði
leitað á, benti margt til þess að
loðnan gæti nú verið mjög vestar-
lega kaldsjávarmegin við skilin i
sjónum, og þvi gæti henni skotiö
upp vestanmegin við Kolbeinsey.
—S.dór
Þeir voru að gera klárt á Svani RE fyrir loðnuvertfðina I gær, en þá
voru á milli 40 og 50 skip komin á loðnumiðin. (Ljósm. -gel-).
Loðnuvertíðin hefst í dag:
Á milli 40 og 50 skip komin á miðin
Fiskverðsákvörðun:
Enn
gefínn
frestur
í 10
daga
Við urðum ásáttir um það I
yfirnefnd verðlagsráðs
sjávarútvegsins fyrir helgi
að fara fram á enn frekari
frest til ákvörðunar á fisk-
verði I 10 daga og hefur sá
frestur verið veittur, sagði
Jón Sigurðsson formaður
nefndarinnar í samtali við
Þjóðviljann i gær.
Samkvæmt lögum á að
ákveða fiskveröið fyrir
áramóten áður hafði nefndin
fengið frest til þessarar
ákvörðunar til 8. janúar. Jón
sagði að vissir þættir gerðu
þessa ákvörðun erfiða núna
en þó væri mdlið ekki tor-
leystaraen oft áður. Lög um
verðuppbætur á karfa og
ufsa og um oliugjald féllu lír
gildi um áramótin og þarf
nýja lagasetningu um hvort
tveggja. Þá eru breytingar á
útflutningsgjaldi á döfinni og
óvissa í launamálum. Þessi
atriði gera fiskverðákvörðun
erfiðari en ella og einnig þarf
að meta hvernig aflaaukning
siðasta árs hefur bætt hag út-
gerðar og sjómanna. -GFr
Loðnuvertíðin hefst I dag,
nánar tiltekið á hádegi. Þá mega
Þrettándinn í
Hafnarfirði:
Rúðubrot i
miöbænum
Tvær stórar rúöur i Spari-
sjóði Hafnarfjarðar ásamt
nokkrum öörum smærri rúö-
um voru brotnar á
þrettándanum og nemur
tjónið a.m.k. 2 miljónum
króna.
Aö sögn lögreglunnar i
Hafnarfirði, sem venjulega
hefur haft nóg að gera á
þrettándadagskvöldum, var
ástandið i'miðbænum þó með
skikkanlegra móti, ef litið er
til áranna á undan.
-AI
skipin kasta hafi þau fundið
einhverja loðnu.
Að sögn Andrésar Finnboga-
sonar hjá Loðnunefnd eru nú á
milli 40 og 50 skip komin á loðnu-
miðin, en ekki hafði hann haft
neinar spurnir af þvi að skip
hefðu fundið ioðnu. Enda sagðist
hann ekki búast við að
skipstjórarnir væru neitt að fllka
þvi þótt þeir fyndu torfu svona
áður en vertiðin hefst.
Andréssagðistgeraráö fyrir að
rúmlega 50 skip myndu stunda
loðnuveiðarnar i vetur, það er
hinn eiginlegi loönuskipafloti sem
veiðarnar hefur stundaö undan-
farin misseri.
Sem kunnugt er verður leyft að
veiða lOOþúsund lestir til að byrja
með, ensiðan 180 þúsund lestir
þegar hrognatakan hefst, ef
ekkert nýtt kemur fram I þeim
rannsóknar-og leitarleiðangri
sem Hjálmar Vilhjálmsson fiski-
fræðingur hóf i gærkvöld .
—S.dór.
Tugmiljóna tjón á Riji:
Ekkert liós var
á Töskubaujunni
þegar Hamar SH strandaði þar í ofsaveðri
í gærkvöld hafði enn ekki tek-
ist að stöðva leikann á Hamri
SH-224 vegna veðurofsa og meng-
unar f höfninni á Rifi, en bátur-
inn, sem er 280 tonn, skemmdist
mjög illa þegar hann strandaði á
skeri við innsiglinguna.
Að sögn Kristjáns Jóns Frið-
þjófssonar, skipstjóra og eiganda
Hamars, var hann ásamt
skipsfélögum sinum að koma Ur
Rekstrareifiðleikar Flugleiða kfi
a
sagði Helgi Bergs bankastjóri Landsbankans,
sem er aðal viðskiptabanki fyrirtœkisins
— Nei, þessir erfiöleikar
Flugleiða h .f. á siðasta ári koma
okkur hér i Landsbankanum
ekki á óvart. Við fylgjumst náið
meðgangimála hjá fyrirtækinu
og vissum þvi um þetta allt
saman, sagöi Helgi Bergs
bankastjórí Landsbankans, er
við ræddum við hann í gær, en
Landsbankinn er aðalviðskipta-
banki Flugleiða h.f. hér á landi.
Helgi sagöi þaö mat forráða-
manna Landsbankans, að staða
Flugleiða h.f. nU væri meðþeim
hætti, að hagsmunir bankans
væru ekki i neinni hættu.
Aðspurður hvort erlendir
viöskiptabankar Flugleiða h.f.
hefðu haft samband viö Lands-
..bankann vegna erfiðleika'Flug-
leiða h.f. sagði Helgi svo ekki
vera, en hann taldi vist að þeir
fylgdust náið með gangi mála
hjá fyrirtækinu.
Helgi Bergs.
Sigurgeir Jónsson, aöstoðar-
bankastjóri Seðlabankans, sem
á sæti i stjórn Flugleiða h.f.,
sagöist ekki vita til þess að
viðskiptabankar Fhigleiða h.f.
erlendis hefðu neitt kippt viö sér
vegna þeirra rekstrarerfiðleika
sem fyrirtækið á i um þessar
mundir. —S.dór.
róðri um tólfleytið á sunnudags-
kvöld. Var þá komiö S-A ofsaveð-
ur og dautt á svcnefndri Tösku-
bauju, sem er neyðarbauja við
innsiglinguna að Rifi. Sagðist Jón
hafa ætlað aö freista þess aö sjá
baujuna og komast inn, en svo
mikið var særokið að ekki sást Ut
fyrir borðstokkinn. Ætluðu þeir
að fara að snUa við, þegar þeir
strönduðu á rifinu. Jón sagði þaö
ekki óalgengt að slokknaði á
baujunni, sérstaklega I vondum
veörum, og hefðu fleiri skip lent I
tjóni vegna þess.
Velktist skipið um alla fjöruna
og lamdist þar til og f rá uns varð-
skipið Ægir náði þviut um hálf sjö
leytið i gærmorguneftir itrekaðar
tilraunir. Sagði Jón aö tréskip
hefði aldrei staöið þetta af sér við
þessar aðstæður en siðan skipið
komst að bryggju hafa kröftugar
dælurhaldið þviá floti. Sagði Jón
að skipið væri mikið skemmt og
m.a. fór sjór i vélarhUsið. Þetta
væri þvi tugmiljóna tjón og
ómetanlegt f upphafi vertiðarinn-
ar.
-AI
Góð innsigling ef leiðamerki eru í lagi:
Engar úrbætur þrátt
fyrir margra ára baráttu
segir hafnarstjórinn á Rifi
,,Það er ekki óalgengt að það
drepist á Töskubaujunni vegna
veöurs og þá sérstaklega I
sunnanroki, sagði Leifur Jónsson
hafnarstjóri á Rifi i samtali við
Þjóöviljanni gær. Við erum búnir
að óska eftir úrbótum á þessu I
mörg ár og síðast i fyrra var okk-
ur lofað aukabauju. Hins vegar
hefur ekkert orðiö af fram-
kvæmdum þrátt fyrir að hér hafa
áður strandað skip við slikar að-
stæður, t.d. Brimnesið og Skarðs-
víkin f fyrra. Hér á Rifi er ágætis
innsigling ef leiðamerki eru I
lagi”, sagði hafnarstjórinn enn-
fremur, ,,en það virðist enginn
áhugi á þvi hjá hafnarmála-
stjórn.”
Leifur sagði einnig að tjónið
vegna strands Hamars SH myndi
skipta hundruðum miljóna króna
ef báturinn yrði frá alla vertiðina,
sem Utlit væri nú fyrir. Hamar
fiskaði fyrir á annað hundrað
miljóir á siðustu vetrarvertið og
þvi væri það varlega áætlað að
tjónið yrði 150-200 miljónir. Hins
vegarhefði áætlun um nýja bauju
á Tösku numið 25-30 miljónum
króna fyrir 2 árum.
-AI