Þjóðviljinn - 18.01.1980, Síða 3
Föstudagur 18. janúar 1980. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Fyrsti við-
ræðufundur
í dag
Fyrsti fundur viðræðunefnda
Alþýðusambands tslands og
Vinnuveitendasambands Islands
um væntanlega samningsgerð
verður haldinn i dag kl. 4 i
fundarsal ASl. Hafa samböndin
tvö að undanförnu skipst á
samþykktum og veröa þau
sjónarmið er þar koma fram
skýrð nánar á fundinum.
-vh.
Stöðu-
mæla-
sektir
hækkaðar
Þann 15. þ.m. hækkaði auka-
leigugjald vegna brota á reglum
nr. 185 frá 1966 um notkun stöðu-
mæla i Keykjavík úr kr. 500 I kr.
1000. Stöðumælaverðir hafa frá
sama tfma fengið fyrirmæli um
að skrifa miða á þá bfla, sem eru
við stöðumæla, þar sem gula
skifan er uppi.
Að undanförnu hafa
stöðumæ1averðir snúið
snerlinum, þegar gula skifan
hefur sést uppi, en sivaxandi
misnotkun eða „gleymska” öku-
manna verður ekki varin lengur,
enda er um augljóst brot á reglu-
gerð að ræða, segir i fréttatii-
kynningu frá gatnamálastjora.
Tilgangurinn með uppsetningu
stöðumæla er fyrst og fremst sá
að miðla eftirsóttum bifreiða-
stæöum til sem flestra borgara,
minnir hann á.
Rauð-
hetta
Leikfélag Ólafsvikur
frumsýnir i kvöld 18. jan. kl.
21.00, leikritið Rauðhettu eft-
ir Jevgeni Schwartz. Sýning-
in verður i félagsheimilinu i
Ólafsvik.
Leikstjóri er Ingólfur
Björn Sigurðsson. 18 leikend-
ur eru i sýningunni og eru
þeir á aldrinum 11-17 ára.
Næstu sýningar verða á
sunnudaginn kl. 15 og 21 i
félagsheimilinu. Einnig er á-
formað aö sýna leikritið við-
ar i nágrenninu.
Skrifstofustjóri borgarverk-
fræðings gaf i liðinni viku þau
fyrirmæli að húsið við Laugaveg
163 skyldi rifið án þess að tilskilin
leyfi bygginganefndar lægju
fyrir. Hús þetta var I eigu borgar-
sjóðs og skemmdist mikið i elds-
voða 13. október s.l. sem varð
tveimur að bana.
Um áramótin 1978/79 gengu
sem kunnugt er i gildi ný bygg-
ingalög og er i þeim kveöið á um
að ekki megi fjarlægja eða rifa
hús nema með samþykki bygg-
inganefndar. Nú skeði það hins
vegar aö bygginganefnd frestaði
endanlegri ákvöröun um niðurrif
hússins fimmtudaginn 10. janúar
s.l. og óskaði eftir uppdráttum af
lóðinni vegna fyrirhugaðrar notk-
unar þegar húsið væri farið. An
þess að lögboðiö leyfi bygginga-
nefndar lægi fyrir hófst hreinsun-
ardeild borgarinnar handa um
niðurrif hússins að morgni til
tveimur dögum siöar skv. fyrir-
mælum Jóns G. Kristjánssonar
skrifstofustjóra borgarverkfræð-
ings. Húsið var i eigu borgarsjóðs
og hafði verið i útleigu á vegum
Félagsmálastofnunar. Aætlaður
endurbyggingarkostnaður eftur
brunann nam um 40 miljónum
króna og óskaði borgarráð eftir
heimild bygginganefndar til að
fjarlægja húsið i byrjun nóvem-
ber. Umhverfismálaráð borgar-
innar mælti ekki með endurbygg-
ingu hússins en þess var óskað að
Arbæjarsafn fengi að nýta hluta
úr húsinu ef þaö yrði rifið. Var
óskað eftir þvi aö gerð yröi grein
fyrir fyrirhugaðri notkun lóöar-
innar og ákvað borgarráð á fundi
sinum 18. desember að lóðinni
yröi úthlutað undir atvinnustarf-
semi þegar brunarústin hefði ver-
iö fjarlægö. Fór nú máliö aftur til
bygginganefndar sem frestaði
endanlegri ákvörðun og óskaði
eftir uppdráttum af lóðinni 10.
janúar s.l.
Mál þetta kom til umræöu á
borgarstjórnarfundi i gærkveldi
þegar Guðrún Helgadóttir óskaði
skj'ringa á niðurrifi hússins. Borg-
arstjóri sagði að hér hefði veriö
um mistök að ræöa, — gengiö
hefði verið út frá þvi að bygginga-
nefnd afgreiddi málið á fundi sin-
um 10. janúar og ákvöröun nefnd-
arinnar um frestun þess heföi
ekki farið rétta boðleið i kerfinu.
Guðrún Helgadóttir, sem benti á
að hér væri ekki fariö aö lögum,
þakkaði borgarstjóra skýrslu
hans um málið og sagðist ekki
hafa vakið máls á þessu vegna
umhyggju fyrir þessu tiltekna
húsi, helöur vegna þess að hér
væri um hættulegt fordæmi að
ræða og mistök af þessu tagi
mættu ekki endurtaka sig.
Nokkrir borgarfulltrúar tóku til
máls og var það mál Ihaldsmann-
anna að borgarkerfið væri flókið
og seinvirkt i þessum efnum og
full ástæða væri til að einfalda
umfjöllun mála sem þessara.
-.AI
Ný tæki við fiskiðnað:
Valda þau gjörbyttíngu?
Framleiðsla og sala er
nú hafin á nýjum og
fullkomnum rafvogum og
gagnasöf nunarkerf um
fyrir f iskvinnslustöðvar.
Er talið að hér sé á ferð
tækjabúnaður, sem geti
valdið gerbyltingu innan
fiskiðnaðarins og einnig
hjá ýmsum öðrum fram-
leiðsluiðnaði. Það er
fyrirtækið Framleiðni s.f.
sem stendur að fram-
leiðslu þessara tækja og
eru þau hönnuð af Raun-
vísindadeild Háskólans í
samráði við Framleiðni,
Sjávarafurðadeild SíS og
nokkur frystihús, sem
prófað hafa tækin.
Meginuppistaðan i þessum nýju
tækjum eru margskonar vogir,
sem byggjast á nýjustu tækni i
rafeindabúnaði. Eru vogirnar
bæði til nota við hráefnismóttöku,
(verðlagningar- og innvigtunar-
vogir) og vinnslustigið,
(flökunar-, pökkunar- og blokka-
vogir). Eru öll þessi tæki marg-
falt fullkomnari en eldri búnaður
og mun nákvæmari. Og þar sem
þau eru samsett úr mörgum
einingum er hægt að taka þau
smátt og smátt i notkun eftir
þörfum og aðstæðum á hverjum
stað. Talið er og að notkun þeirra
geti leitt til verulegs sparnaðar
hjá frystihúsunum.
Samsetning tækjanna fer fram
hjá rafeindavinnustofu öryrkja-
bandalags Islands og ýtarlegar
upplýsingar um þau er að fá i
skrifstofu Framleiðni s.f. að
Suðurlandsbraut 32, Reykjavik.
mhg.
Alþýðubandalagið i Reykjavik:
Viðtalstímar
•J.ma
naimaog
borgarfulltrúa
Laugardaginn 19. janúar kl. 10—12
verða Guðrún Helgadóttir alþingis-
maður og borgarfulltrúi og Guð-
mundur Þ. Jónsson borgarfulltrúi til
viðtals fyrir borgarbúa á skrifstofu
flokksins að Grettisgötu 3.
Eru borgarbúar hvattir til að nota sér
þessa viðtalstima með þvl að koma á
skrifstofuna á umræddum tlma eða
hringja I slma 17500.
Vinnuveitendasambandið:
Höfum ekki reynt aö
tefja fyrir viðræöum
i viðtali við Þjóðviljann í
gær benti Ásmundur
Stefánsson framkvæmda-
stjðri ASI á dæmi um
viðbrögð atvinnurekenda
sem bentu til þess að þeir
vildu draga samningagerð
á langinn, en fyrsti fundur
viðræðunef nda ASi og
Vinnuveitendasambands-
ins er i dag. Vegna þeirra
ummæla hefur Vinnuveit-
endasambandið sent fjöl-
miðlum eftirfarandi yfir-
lýsingu:
„Framkvæmdastjóri ASt full-
yrðir að VSl hafi reynt að tefja
fyrir viðræðum um endurnýjun
kjarasamninga. Það rétta i þvi
máli er sú staðreynd, að VSÍ
mótaði kröfur sinar um miðjan
október 1979 og hefur verið reiðu-
búið til viðræðna siðan. ASt
félögin hafa á hinn bóginn ekki
komið sér saman um kröfugerð
og hafa i nokkra mánuði staðið i
innbyrðis átökum þar um,og enn
er kröfugerð þeirra ekki lokið.
Fullyrðingar um tafir af hálfu
VSl er þvi algjörlega út I hött.
Þaö er Alþýðusambandið, sem
ekki hefur verið i stakk búið til að
hefja viðræður og skyldi þvi
varastað kasta grjóti úr glerhúsi.
VSt hefur lýst sig reiöubúið til
viðræðna á grundvelli þeirrar
stefnumörkunar er fyrir liggur af
þess hálfu. öllum má hins vegar
vera ’.jóst að vonlaust er að hef ja
viðræður á grundvelli kröfugerð-
ar ASl-félaganna þar sem hún er
ekki nema aö hluta til komin fram
i dagsljósið.
öllum dylgjum um
mótsagnakennda afstöðu VSt 1
þessum efnum er þvl vlsað á
bug.”
Tekjutap borgarinnar:
TUGIR EÐA HUNDRUÐ
ÍBÚÐA EKKI Á SKRÁ
,,Tugir eöa hundruð
íbúða í Reykjavík eru
ekki inni í fasteigna-
mati," sagði Sævar
Geirsson hjá Fasteigna-
mati ríkisins á fundi með
blaðamönnum i gær.
,,Fyrir bragðið tapar
borgin tug- eða hundruða
miljón króna tekjum."
„Framkoma sveitar-
félaganna sýnir að ekki
er formandi að þau fái
sjálfdæmi i þessum málum,”
sagði Sævar ennfremur. Hann
deildi hart á sveitarfélögin á
fundinum, en Guttormur Sigur-
björnsson forstjóri stofnunar-
innar sagði að þessi ummæli
ættu frekast við um Reykjavik.
Fleiri starfsmenn tóku undir
það og var á mönnum aö heyra
að samstarf milli borgarinnar
og Fasteignamats rikisins hefði
gengið nokkuð stirðlega.