Þjóðviljinn - 06.02.1980, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 06.02.1980, Qupperneq 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 6. febrúar 1980 Kvikmyndahátrðin 1980:0 0 STÚLKURNAR í WILKO Jafnvægislistamaöurinn Lubomir Argirov gerir alveg ótrúlegustu kúnstir. Menn sátu agndofa á blaöamannafundinum I fyrradag, þegar hann ásamt Irinu Nikolovu aðstoöarstúlku sinni raöaöi öllum þessum kristal upp og hélt honum góða stund á hnifsegginni. (Myndir: Tryggvi Þormóöss.) Búlgaríukynning á Hótel Loftleiðum Góð skemmtun og velsluborð Pólland - Frakkland 1979 Stjórn: Andrzej Wajda Handrit: Zbigniew Kaminski, eftir sögu Jaroslaw Iwaszki- ewicz. Kvikmynd: Edward Klosinski. Leikendur: Daniel Olbrychski, Christine Pascale. Þessinýjasta mynd Wajda er um margt mjög ólik hinum tveimur myndunum sem sýndar eru eftir hann á hátiöinni: Marmaramanninum og An deyfingar. Hér er komin róman- tisk mynd um „veröld sem var”. Viktor Ruben er hálffertugur bústjórii klaustri. Hann barðist I fýrri heimsstyrjöldinni og lifir enn i hálfgerðri martröð eftir þá reynslu. Þegar eini vinur hans deyr ráðleggur læknirinn honum að fara eitthvað burt og reyna að gleyma ogjafnasig. Viktor fer þá til ættingja sinna upp i sveit. A næsta óðalssetri búa fimm systur, sem Viktor hefur ekki séð i 15 ár. I gamla daga átti hann margar unaös- stundir i félagsskap þessara systra, og nú hefur hann hug á aö endurlifa þá tima. En timarnir breytast og mennimir með. Ein systranna er dáin, og þaö var einmitt hún, sem Viktor var hrifnastur af. DÆKJA Frakkland 1978 Handrit og stjórn: Jacques Doillon Kv ikmyndun: Philippe Rousselot Leikendur: Madeleine Desde- vise, Claude Herbert. Jacques Doillon er ungur franskur kvikmyndastjóri sem sagður er vera skærasta vonar- stjarna Frakka á sinu sviði um þessar mundir. Hann hlaut verðlaun fyrir þessa mynd, sem á frummálinu heitir La Drolesse.á kvikmyndahátiðinni i Cannes i fyrra. Dækja er byggð á sannsögu- legum atburðum, sem gerðust i Frakklandi fyrir nokkrum ár- um. Ungur maður rændi 11 ára stelpu og lokaði hana inni i her- bergi sinu uppi á háalofti um nokkurt skeið. Fyrir það var hann dæmdur i fangelsi þar sem hann framdi sjálfsmorð. Um þá hlið málsins er þó ekki fjallað i myndinni, heldur einbeitir leik- stjórinn sér að sérkennilegu sambandi ungmennanna, sem bæði eru vanrækt af fjölskyld- um sinum og mega raunar kall- ast utangarðsmenn i þjóöfélag- inu. Dregnar eru upp myndir af heimilum þeirra beggja, og eru það vægast sagt uggvænlegar myndir. Á heimilunum rikir ástleysi og samskipti manna einkennastaf ofbeldi og fáfræði. Strákurinn hefur ofan af fyrir sér með þvi að safna gömlu drasli og selja það. Stelpan er i skóla, þar sem hún er utangátta og liður illa. Sýnd er kennslu- stund, þar sem börnin eiga að yrkja ljóö til móður sinnar. Madeleine situr aðgerðarlaus, og þegar kennarinn spyr hana um ástæðuna svarar hún: mér þykir ekkert vænt um mömmu mina. Hin börnin yrkja háfleyg og tilfinningasöm ljóð um sinar mömmur. Fangelsiö sem strákurinn útbýr er I raun ekki traustara en svo, að Madeleine gæti auðveld- lega flúiö, en hún gerir þaö ekki. Smám saman verður samband þeirra aö einhverju sem vel gæti kallast vinátta. Þetta er flókiö samband. Bæði eiga þau erfitt meö aö tjá tilfinningar sinar. En þau hafa bæöi rika þörf fyrir ást og hlýju, og fyrir einhvern sem lætur sér ekki á sama standa um þau. Þetta er mynd, sem varla læt- ur nokkurn áhorfanda ósnort- inn. -ih Hinar hafa elst, gifst og eignast börn og ýmislegt hefur gerst i lifi þeirra. Yngsta systirin, sem var á barnsaldri fyrir 15 árum, er nú gjafvaxta, og minnir Viktor mjög á hina látnu. En hún getur heldur ekki vakið upp þá veröld sem er horfin. Að lokum fer Viktor burt og hefur orðið fyrir vonbrigöum, en um leið hefur hann kannski uppgötvað að fortiðin verður ekki endurvakin. Systurnar verða eftir I Wilko. Viktor hefur komið inn I lif þeirra og valdiö töluverðu róti i tilfinningum þeirra allra, en þegar hann er farinn segir sú elsta: nú verðurallt gott aftur. Það sem lifir i huga áhorfand- anseftirað hafaséö þessa mynd Sjáðu sæta nafiann minngengur enn fyrir fullu húsi og veröur sýnd kl. 15.00, 17.00, 19.00 og 21.00. Stúlkurnar i Wilko, nýjasta mynd Andrzej Wajda, með Christine Pascale og Daniel Olbrychsky I aðalhlutverkum. Sjá umsögn hér á siðunni. Sýnd kl. 15.00, 17.10 og 19.15. India Song, frönsk mynd frá 1974. Handrit og stjórn: Marguerite Duras. Duras hefur um langt árabil veriö i hópi fremstu framúrstefnurithöf- unda Frakka, og skrifaö marg- ar skáldsögur og kvikmynda- handrit (m.a. handritið aö Hiroshima, mon amour). Efnið I India Song er sótt I þrjár skáld- sögur hennar. Myndin gerist I Indlandi á fjórða áratugnum og fjallar um ástarlif fólks af nýlenduaölinum Um India Song hefur verið sagt, að hún likist mest ljóði, sé einskonar kvik- myndaljóð. Sýnd kl. 21.15. Krakkarnir i Copacabana, sænsk barnamynd um lifsbar- áttu krakkahóps i fátækra- hverfum Rio de Janeiro. Sýnd kl. 15.05 og 17.05. Ófullgert tónverk fyrir sjálfspil- er tilfinning sem kannski veröur best lýst með lýsingarorðinu ljúfsár. Þetta er nostalgisk mynd, I henni horfir Wajda til baka, ai á allt annan hátt en i Marmaramanninum. Hér er engin þjóðfélagsgagnrýni við- höfð, höfundurinn einbeitir sér aö sálarllfi persónanna. Inni- lokaður kvennaheimur systranna er dularfull veröld, full af bældum tilfinningum og endurminningum. Daniel Olbrychski er mjög sannfærandi i hlutverki Viktors, lifsþreyttur og óttasleginn maður, sem finnur sér ekki stað i þægilegri borgaratilveru. Yfirleitt erleikurinn I myndinni afbragðs góður, og ber snilld leikstjórans glöggt vitni. -ih. andi planó. Sovésk mynd frá 1977, gerð eftir fyrsta leikriti Antons Tsékhofs, „Platonof”. Leikstjórinn Nikita Mikhalkof þykir einn efnilegasti ungi kvik- myndastjórinn þar eystra og hefur þegar gert nokkrar myndir sem vakið hafa athygli á alþjóðavettvangi. I þessari mynd tekst honum einkar vel aö skapa andrúmsloft aldamótaár- anna siðustu, og jafnframt að ná fram þvi dapurlega og kátbros- lega i persónum Tsékhofs. Leik- ararnir eru hver öðrum betri. Sýnd kl. 19.05, 21.05 og 23.05. Hrafninn, hin undurfagra og áhrifamikla mynd Spánverjans Carlos Saura. Sýnd kl. 15.10, 17.10 og 19.10. Dækja, frönsk mynd frá 1978. Sjá umsögn hér á siðunni. Sýnd kl. 21.10 og 23.10. Stuttar myndirverða sýndar kl. 17.00, 19.00, 21.00 og 23.00. Þær eru: Uglan sem giftist gæsinni, Bréfberinn og Sandkastalinn, stuttar og skemmtilegar teikni- myndir frá Kanada; Aðeins fyrir karlmenn, leikin 28 min. mynd frá Kanada; og hollenska heimildamyndin Karel Willink — hugmyndarikur realisti, um listmálara og vinnubrögö hans. Búlgarlukynning hefst i Vik- ingasal Hótels Loftleiða i kvöld, miövikudaginn 6. febrúar. Búl- gariukynningin hefst með stofn un vináttufélags íslands og Búl- gariu Þeir sem að Búlgariukynn- ingunni standa að þessu sinni eru Hótel Loftleiðir, Ferðaskrifstofa Kjartans Helgasonar og Kynn- ingar-og feröamálaráð Búlgariu. Þetta er í fjórða sinn sem slik kynning fer fram. Vel verður til Búlgariukynning- arinnar vandað svo sem jafnan áður. Aö loknum stofnfundi vináttufélagsins I kvöld hefst dagskrá þar sem búlgarskir lista- menn koma fram. Jafnvægis- listamenn og sjónhverfingamað- ur sýna listir sinar, búlgörsk söngkona syngur einsöng og hljómsveit leikur búlgörsk lög og þjóðlega danstónlist. Einnig verða sýndir þjóðdansar. Búlgariukynningin heldur siðan áfram og hefst á hverju kvöldi kl. 19. Kynningunni lýkur sunnu- dagskvöldið 10. febrúar. A kynningunni verður fram- reiddur búlgarskur matur og búl- garskt vln. Tekið verður á móti öllum gestum aö þarlendum síð með hvitvini og brauði og á mat- seðlinum er mikið úrval búlgarskra rétta. Tveir búlgarsk- ir matsveinar sjá um matseld ásamt starfsmönnum Hótels Loftleiöa. Meðal rétta á hinum fjölbreytta matseðli má nefna Shopska salad, búlgarska bauna- súpu og lambakjöt Gergjovski. Fararstjóri hópsins frá Búlgaríu er Noel Dochev frá Hot- el Vithosha I Sofia. 1 hópnum sem annast kynninguna eru tólf manns. Ferðum Islendinga til Búlgarlu hefur fjölgaö mjög áundanförnum árum. A blaöamannafundi sem haldinn var á mánudaginn sagði Nikolai Arshinkov forstjóri Upp- lýsingaskrifstofu Ferðamálaráðs Búlgariu, að árið 1979 hefðu 5 miljónir erlendra ferðamanna heimsótt Búlgariu, en 1950, þegar skipulagt ferðamálastarf hófst þar, hafi feröamenn aðeins verið 5 þúsund talsins. .eös Búlgarski maturinn er ekki af verri endanum. Hér sjást búlgörsku matsveinarnir tveir ásamt yfirmatsveini Loftleiðahótelsins og henni Sofflu, sem býður gesti velkomna með brauði og vini, og á boröinu er sýnishorn þeirra kræsinga sem á boðstólum veröa. Daniel Olbrychski og Christine Pascale I hlutverkum sinum i mynd Wajda, „Stúlkurnar i Wilko”. Úr sovésku myndinni „ófullgert tónverk fyrir sjálfspilandi pianó”1 eftir Nikita Mikhalkof. Sýningar í dag

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.