Þjóðviljinn - 19.02.1980, Side 15

Þjóðviljinn - 19.02.1980, Side 15
Þriðjudagur 19. febrúar 1980 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 15 Risinn Hrokkin- skeggi Hallveig Thorlacius byrjar I dag að lesa sögur af Hrokkin- skeggja i morgunstund barn- anna. Þessar sögur voru gefn- ar út f fslenskri þýðingu Sig- urðar Thorlaciusar árið 1945. — Þetta eru þjóösögur frá Bæheimi, — sagði Hallveig, — og fjalla um bergrisann Hrokkinskeggja. 1 hverjum lestri verður yfirleitt stök, sjálfstæð saga, en sumar skiptast þó á tvo lestra. Það má kannski segja að þessum sögum svipi svolitið til okkar þjóösagna. Þær gerast i fjallalandi, enda held ég að risar séu vanalega upprunnir i fjallalöndum. Hrokkinskeggi Hallveig Thorlacius byrjar að lesa Sögur af Hrokkinskeggja i morgunstund barnanna f dag. Útvarp kl. 9.05 er dálltiö kenjóttur risi. Hann er ekkert bliður við illmenni, en á það til að gerast hjálpar- hella góðra manna, — sagði Hallveig. -ih Afrískar þjóðsögur Þorp i Afrfku. Cr þessu umhverfi eru sögurnar sprottnar sem Eartha Kitt les I kvöld. Þátturinn ,,A hljóðbergi” er á dagskrá útvarps I kvöld, og Björn Th. Björnsson list- fræðingur er umsjónarmaður hans að venju. — I kvöld les Eartha Kitt, bandariska söngkonan og leik- arinn, nokkrar þjóösögur ætt- flokka i Afrlku, — sagði Björn. — Þetta eru munnmælasögur og hafa ekki verið skráðar fyrren nú nýlega, að Princeton University Press gaf út bók, þar sem ýmsir bandarlskir þjóðfræðingar hafa safnaö saman þjóðsögum frá ýmsum stööum i Afriku. Sögurnar eru mjög ólikar, enda er Afrika ekki eitt land heldur mörg, og þjóðimar jafnóskyldar innbyrðis og við erum t.d. Grikkjum eða Tyrkjum. Þegar bókin kom út urðu ýmsir til að benda á að ekki hefði mátt seinna standa að ná þessum sögum, ve^na þess aö þegar þjóðir Afriku smitastaf evrópskum áhrifum fyllast þær oft vanmetakennd og sjálfsgagnrýni, og finnst sin menning standa hinni evrópsku að baki. Útvarp kl. 22.05 Þjóðsögurnar sem Eartha Kitt flytur eru komnar frá Hottintottum, sem eru miklir sagnamenn, Efik-Ibibió- mönnum, Masaiönum og ætt- bálki Ashantla. -ih Þessi mynd var tekin við þingsetningu í október s.l. Sfðan hefur margt gerst.... Þingsjá Eins og mönnum er áreiðan- lega kunnugt hefur ýmislegt verið aö gerast á Alþingi islendinga undanfarnar vikur og mánuöi. Nú f vikunni hefst væntanlega 20 daga þinghlé, en áður skal afgreiða skatta- málin frægu. Þessi þingmál eru áreiðan- lega mál málanna um þessar mundir, og hafa þvi yfirmenn Sjónvarpsins ákveöiö aö gera breytingu á dagskránni hjá sér. Ný, bresk fréttamynd um Afghanistan, sem sýna átti i kvöld, veröur að biða til morg- uns, en i kvöld verður sjón- varpað þingsjá i beinni útsendingu Sjónvarp kl. 21.30 Það er Ingvi Hrafn Jónsson, sem annast þingsjána. -ih. Hringið í síma 8 13 33 kl. 9-5 alla virka daga eða skrifið Þjóðviljanum Síðumúla 6, 105 Reykjavík Niöur á risið oguppí kjallarann! Ætli það sé ekki einsdæmi, að hús sé þannig staösett I lands- laginu að ganga þurfi niður tröppur til að komast i risiö, en upp tröppur til að fara i kjallar- ann? En þannig er háttaö með hús eitt gamalt, sem stendur utani bakkanum fyrirofan höfn- ina á Húsavfk. Húsið heitir Hal- landi og sést á meðfylgjandi mynd, sem tekin er neðanúr fjörunni. —Ljósm. vh. Fyrirspurn j azzunnanda utan af landi Margir góðir gestir heimsóttu okkur islendinga á sfðustu Listahátíð. Meðal þeirra voru tveir alskemmtilegustu núspil- andi jazzleikarar, þeir Oscar Peterson og Niels Henning örsted Pedersen. Sjónvarpað var sveiflu þeirra beint. Var það vissulega frábær þjónusta þeirra sjónvarpsmanna. Með tilliti til þess, að þetta var á laugardagskveldi, kveldi sem margir tónlistarmenn og annað fólk tengt tónlist er að vinna og missti þarafleiöandi af þessum tónlistarviðbúröi, langar mig til að spyrja (og veit ég, aö þar tala ég fyrir munn margra jazzunnenda) hvort ekki væri hægt að endursýna þessa dagskrá. Mánudags-, þriöjudags- eða miövikudagskvöld væru þau bestu. Veit ég að þetta myndi gleöja margt hjartað I skamm- deginu, ekki sist úti á landi, þar sem fólk á ekki eins auövelt með að sækja svona tónleika og fólk á Stór-Reykjavikursvæðinu. Með fyrirfram sveifluþökk! Jazzunnandi. Við grennsluðumst fyrir um það hjá Sjónvarpinu, hvort hægt væri að veröa við beiðni „Jazzunnanda” um að endur- sýna sveiflu þeirra Peterson og Pedersen. Björn Baldursson varð fyrir svörum, og sagði hann að það væri þvi miður ekki hægt. Tónleikunum var sjón- varpað beint, og þeir eru ekki til á myndsegulbandi eða filmu. Hins vegar sagði Björn það e.t.v. getaoröiö Jazzunnanda og fleirum nokkur huggun harmi gegn, að alveg á næstunni er væntanlegur þáttur frá breska sjónvarpinu þar sem sveiflu- meistarinn Dizzy Gillespie lætur til sin taka svo um munar. -ih ffra lesendum Hvar er veskið hennar ömmu? HUsmóðir I Austurbænum hringdi: — t siðasta Sunnudagsblaði Þjóðviljans voru birtar „Sex myndir úr veskinu hans afa”. Mig langar til að biöja ritst jóra nefnds blaðs, um að róta svolitiö I veskinu hennar ömmu sinnar og vita hvað hann finnur þar, og birta það. Svo langar mig til að biðja um skýringu á fyrirbærinu „hnelln- ar ljósmyndir”, sem kemur fyrir i texta með þessum sex myndum afa. Hvað þýðir það? Dizzy Gillespie: væntanlegur á skjáinn. Pennavinir Okkur hefur borist bréf frá Bandarikjamanni, sem vill fyrir hvern mun komast i vinsamlegt bréfasamband viö íslendinga, á ensku. Aldurs er ekki getiö, en eitt af áhugamálum hans er að skrifast á við fólk I öðrum lönd- um. Hann heitir: Milton Finkelstein 15 Vincent Street Newark, New Jersey 07105 USA. At ján ára frönsk stúlka hefur skrifað okkur og beöið um að út- vega sér pennavin á Islandi. Hún hefur i hyggju aö koma hingað til lands i september og vera I tvær vikur og vill gjarnan vera búin að kynnast einhverju fólki áður. Hún heitir Nathalie Tison, og heimilisfangið er: 38 Rue R. Schuman, 95400 — Arnouville, France. Pjódsagan Prestur tók eftir þvi að kerl- ing ein i sókn hans kom fremur öðrum oft til altarisgöngu. Eitt sinn spyr hann hana hvað þvl valdi, hvort það sé af trúrækni hennareða öðrum hvötum. „Og það er af þvi,” mælti kerling, „að mér þykir viniö svo gott.” Prestur innir hana eftir hvort það sé einungis af þvi. Kerling segir að þaö sé ekki af öðru, hún segi það satt. Prestur spyr hana hvort henni geti þá ekki veriö sama að koma rétt inn til sin og hann gefi henni þar að súpa á vininu. „Ójú,” segir kerling, „ég vil það miklu heldur þvi ég kann að fá drýgri sopann þegar aörir drekka ekki i blóra við mig.”

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.