Þjóðviljinn - 24.02.1980, Blaðsíða 9
Sunnudagur 24. febrúar 1980 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
Skíðakennsla
Sunnudagsblaðsins
Halldór
Matthíasson og
Ingólfur
Hannesson
tóku saman
3,
HLUTI
UPPHAFSSTAÐA í RENNSLI
ABur en viö höldum áfram þar
sem horfið var frá í skiða-
kennslunni i siðasta Sunnudags-
blaði er rétt að endurtaka það
sem sagt var um byrjunarstöðu
i rennsli vegna þess fið myndir
sem tilheyrðu textanum birtust
ekki. Kaflinn um upphafs-
stöðuna fer hér á eftir.
Líkamsþyngdin verður að
dreifast jafnt á báða fætur og
jafnt á alla ilina. Reyndar er
óhætt aö standa örlitið meira i
hælana. Athugið að 20-30 sm.
eiga að vera á milli skiðanna. 1
rennsli á ská niður brekku eigið
þið að hafa meiri þyngd á þvi
skiðinu sem neðar er.
Upphafsstaðan er stöðug og
notaleg, en loftmótstaðan mikil.
Þessi staða er stundum notuð
þegar feröin er ' mjög mikil
ásamt ójöfnum og beygjum i
slóðinni og einnig af byrjendum
i litlu undanhaldi.
Varist að vera stif i öxlum,
slakið á og hafið mjúka fjöðrun i
hnjám og mjöðmum.
Ef færið er breytilegt getur
borgað sig að hafa annað skíðið
öriitiö framar (sjá myndir).
HVILDARSTAÐA
PLÓGUR
Þeir sem ganga á skiðum vilja
helst hvila sig sem mest þegai
þeir skiða niður brekkur. Jafn-
framt vilja þeir vera i likams-
stöðu sem gefur minnsta loftmót-
stöðu og þ.a.l. meiri ferð.
Setjið ykkur i þá stöðu sem
myndin sýnir, styðjið olnbogum á
hnén' og reynið að ná góðri
hvildarstöðu. Munið að horfa
nokkra metra fram i sporið en
ekki beint niður. Algeng skekkja
hjá byrjendum er að beygja hnén
of mikið nánast setjast á hælana.
Varist slikt. Hvildarstaðan er góð
i vel troðinni braut niður brekku.
PLÓGBEYGJA
Rennið niður brekku i upphafs-
stöðunni. Pressið afturenda skið-
anna út um leið og beygt er I hnjám.
Athugið að vera upprétt. Hafið ekki
mjög langt á milli framhluta skið-
anna. Þyngdin verður að dreifast
jafnt á bæði skiðin. Það fer siðan eft-
ir þvi hvernig köntunum er beitt hve
kröftug bremsunin verður. Með þvi
að setjast dýpra niður, þrýsta hnján-
um meira saman og halda þyngdinni
vel aftur á hælum þá finnið þið aö
kantar skiöanna bremsa kröftugar
þ.e. feröin minnkar.
Plógurinn er einkum notaður þeg-
ar draga þarf úr ferð niður brekku,
jafnt af byrjendum sem þaulvönum
skföamönnum.
Plógbeygja er oft notuö þegar skiðaö er niður bratta brekku þar sem hætta er á aö hraöinn veröi oi
mikill. Beygjuna má byrja meöplóg. Ef þiö viljiö beygja tilhægri á aö setja þyngdina á vinstra skiðið og
þyngd á hægra skiði orsakar beygju til vinstri.
Góða ferð I