Þjóðviljinn - 24.02.1980, Síða 18
I »
,1
% b ’ * > »1 b '* r
f§ U h • 1 i *»H \
l.í •» •«*/»» í»ti
18 SIÐA — ÞJÓDVILJINN Sunnudagur 24. febrúar 1980
Hjördfs
Bergsdóttir
Sæl nú!
1 dag tökum viö fyrir lag sem fyrir langa langa iöngu fékk
nafniö „Striössöngur jafnaöarmanna”. Lagiö sem er frá þvi um
aidamótin síöustu geröi Chr. Joseph Rasmussen en Ijööiö er eftir
U.P. Overby. tslensku þýöinguna geröi Þorsteinn Gislason.
Lagiö er hér skrifiö út í B-dúr en þaö mun vera þægilegra aö
syngja þaö i G-dúr.
Stríðssöngur jafnaðarmanna
G D G
Sjá roðann í austri! — Hann brýtur sér braut!
D A7 d
Fram bræður! — Það dagar nú senn!
G D7 G
Þeir hæða vorn rétttil að rísa f rá þraut,
D A7 - D
vorn rétt til að lifa eins og menn.
D G
:/: Þeir skammta okkur frelsi, þeir skammta
e
-----------okkur brauð
c a G D~-^ G DG
— Hvað skóp þeirra drottnandi auð? :/:
A heröar oss ok fyrir öldum var lagt,
— þaö ok hefur iamaö vort fjör.
En vér erum fjöldinn; þvisé þaö nú sagt:
Vér sverjum aö rétta vor kjör.
Og vakniö nú bræöur til varnar I nauö!
— Vor vinna — hún skóp þeirra auö.
A heimilum vorum er hungur og sorg,
fóik horaö og nakiö og kalt.
t auömannsins gluggum, sem glitra viö torg,
er glóbjart og skinandi allt.
En hatriö skal vaxa meö vaxandi nauö!
— Vor vinna — hún skóp þeirra auö.
Vér lifum í ánauö og eigum ei völ á ööru en þrældómi hér.
Og prestarnir hóta meö hegnandi kvöl
i heivitis brennisteins-hver.
En bugum þá haröstjórn, sem hneppti oss I nauö,
og heimtum vort daglega brauö!
Til grunna skal bráölega hrynja sú höll,
sem hróflaði upp gullkálfsins þý!
Nú hönd þina, bróöir! — því heimssagan öil
skal héöan af byrja sen ný!
Vér vöknum I eining til varnar gegn nauö, og vinnan skal gefa
okkur brauö.
t y Lm 13?
LJ r
G-hljómur
ir
t
D-hljómur
A7-hljómur
Háskólabió:
Humprey Bogart
á mánudögum
Háskólabió tekur upp á þeirri skemmtilegu ný-
breytni næstu mánudaga, aö sýna þrjár gamlar og
góöar Humphrey-Bogart-myndir. Sýndar veröa
myndirnar The Big Shot (1942), The Enforcer (1951)
og The Big Sleep (1946). Þessi syrpa byrjar nú á
mánudaginn, meö sýningu á The Big Sleep, sem er
frægust þessara þriggja mynda. Leikstjóri er How-
ard Hawks, sem var á sinum tima einn af fremstu
leikstjórum Hollywood og geröi margar þekktar
myndir: gamanmyndir, vestra og glæpamyndir, en
af þeim siöasttöldu er The Big Sleep ein sú fræg-
asta. 1 henni leikur Humphrey Bogart einkaspæja-
ra, og kona hans Laureen Bacall leikur aöalkven-
hlutverkiö. Er ekki aö efa aö margir munu fagna
þessu tækifæri til aö endurnýja kunningsskapinn viö
þau ágætu hjón.
Háskólabió:
Vígamenn
(The Warriors)
Bandarlsk, árgerö 1979.
Aö sögn framkvæmdastjóra Háskólabiós er þessi
mynd frægust fyrir aö hafa veriö bönnuö I Sviþjóð.
Astæöan fyrir þvf banni er eflast sú, aö myndin er
frá upphafi til enda dýrðaróður um ofbeldi og sem
slik ágætlega til þess fallin aö gefa ungu fólki nei-
kvæöar hugmyndir. 1 Bandarikjunum var myndin
bönnuö innan 17 ára, en yngra fólk má þó sjá hana
þar I fylgd meö fullorönum. En þar vestra er þaö
ekki ofbeldiö sjálft sem menn setja fyrir sig, heldur
málfariö! Þaö er nefnilega talaö götustrákamál i
myndinni.
1 stuttu máli sagt fjallar myndin um slagsmál og
uppgjör milli óaldarflokka i New York. Einn
flokkurinn heitir Vigamenn og eru þaö aöalhetjur
myndarinnar. Þeir eru raunverulegar hetjur: fáir
en knáir, kýla alla I klessu og eru svo sætir og
rómantiskir inn á milli. Allt er stflað upp á samúö
áhorfenda meö þessum strákum, en engin tilraun
gerö til að útskýra þá nánar, t.d. segja frá heimilis-
aðstæöum þeirra, þjóðfélagsstööu eða ástæöunum
fyrir þvi aö þeir lentu úti á þessari braut. 1 staöinn
eru þeir rómantiseraöir upp úr öllu valdi. Myndin
^erist aö mestu leyti á neðanjárnbrautarstöövum
aö nóttu til. Frá listrænu sjónarmiöi býður myndin
ekki upp á neitt nýtt, hún er þokkalega gerö á mæli-
kvaröa fjöldaframleiðslunnar. Spurningin er bara
sú, hvaöa erindi þessi framleiösla á i Háskólabió, og
hvort ekki heföi veriö nær að fara aö dæmi Svia.
Austurbæjarbió:
Land og synir
tslensk. Argerö 1980.
Leikstjóri Agúst Guðmundsson.
Þessi þekkta saga er nú komin á ræmu Agústar
eins og alþjóö veit. Loksins er hægt að horfa á Is-
lenska kvikmynd án þess aö skammast sin. Þetta er
ein besta umsögn um Kvikmyndasjóð sem hægt er
að fá. Myndin lýsir á hlutlausan hátt flutningi úr
sveit I borg, en myndrænar lausnir segja sögu þar
sem handritið hættir. Leikendur skila hlutverkum
sinum vel, en án þess aö á annan sé hallað, veröur
aö segja aö Jón Sigurbjörnsson sker sig úr hvaö leik
varöar. I heild er þetta besta kvikmynd sem Islend-
ingar hafa gert. Til hamingju Agúst!
Og skemmtið ykkur vel!
Stjörnubíó:
The China
Syndrome
Bandarisk. Argerö 1979.
Handrit og ieikstjórn: James Bridges.
Jane Fonda leikur sjónvarpsfréttamann sem
smám saman kemst aö raun um aö yfirstjórn
kjarnorkuvers vill halda sannleikanum frá
almenningi varöandi starfsemi versins. Stórslys er
i uppsiglingu og fréttamaöurinn kemst I sálar-
kreppu: A hún að segja sannleikann i málinu eöa
ekki?
Myndin var gerö áöur en kjarnorkuslysiö fræga
geröist I Harrisburg, en þaö slys ýtti mjög undir
sannleiksgildi myndarinnar og gerði skyndilega þá
ógn sem mannkyninu stafar af kjarnorkuverum
ljósa fyrir almenningi.
Þetta er mynd sem fyllilega má mæla meö.
i rosa
Æfingin skapar
meistarann
Jón Sólnes gerist uppboös-
haldari á Akureyri.
Fyrirsögn I VIsi
Hrun skynsemistrúarinnar
Leiftursóknin, sem Sjálfstæöis-
flokkurinn boöaöi gegn verö-
bólgu, var skynsemisrödd, sem
engan varöaöi um og gekk þvert á
lifsstíl Islendinga. Orslit kosning-
anna uröu samkvæmt þvl. Og
þegar flokkar eru farnir aö tapa
kosningum á skynsemi, þá þarf
varla aö búast viö aö þeir haldi
henni til streitu.
Indriöi G. Þorsteinsson
IVIsi
Hættur
framabrautarinnar
Geir viröist vera fyrir löngu
búinn aö tapa vinsældum slnum,
enda kannski ekki undarlegt.
Hann heföi aldrei átt aö hætta i
sinni tryggu borgarstjórastööu.
Þar var'hann alveg ágætur, enda
lék líka allt i lyndi i þá daga,
veröbólgan ekki komin upp úr
öllu valdi, — flokkur hans átti
meirihluta I borgarstjórninni. En
siöan hann fór I landsmálapólitik-
ina hefur frekar sigið á ógæfu-
hliöina, bæöi fyrir honum og þjóð-
inni allri.
Lesandabréf
I Dagblaöinu
Húsráð við kvefi
Nakin kona með skuröarhníf
minnkar hættuna á sýkingu.
Fyrirsögn i Morgunblaöinu.
Hæfileikar arkitektanna
Háteigsvegur, 160 fermetra
ibúö ásamt risi meö bilskúr.
Auglýsing i Morgunblaöinu.
Framfarir í
fréttaf lutningi
Stjórnvöldin treysta einhliöa á
upplýsingar Bandarlkjamanna
Fyrirsögn I Helgarpósti.
Tilgangurinn
helgar meðalið
Um þaö hvort hann teldi sig
vera aö þjóna tveim herrum,
svaraði séra Frank þvi neitandi,
þar sem tilgangurinn væri fyrst
og fremst aö koma fólki á slóðir
Bibliunnar á viöunandi veröi.
Heigarpósturinn
Barnið flogið
úr hreiðrinu?
Tveir páfagaukar
og búr til sölu. Einnig barnarúm
meö dýnu (koja).
Auglýsing I
Dagblaöinu
Spyr sá sem
ekki veit
Telst klám menning?
Fyrirsögn I
Velvakanda
Ekki er ráð nema
í tíma sé tekið
Sveigjanlegri reglur um
aldurshámark rikisstarfsmanna.
Fyrirsögn á grein eftir
Birgir Isl. Gunnarsson
Járnsæng?
Skipafyrirtæki i eina sæng.
Fyrirsögn I
Morgunblaöinu
Varð hún dimmrödduð?
Faðir haföi dóttur slna á
brjósti.
Fyrirsögn I
Morgunblaöinu
Uppástunga
Óska eftir aö komast I kynni
viö lækni eöa Kinverja sem fram-
kvæmir akupunktur.
Auglýsingi
Dagblaöinu