Þjóðviljinn - 24.02.1980, Síða 19

Þjóðviljinn - 24.02.1980, Síða 19
Sunnudagur 24. febrdar 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 19< visna- mál 4t Umsjón: Adolf J. Petersen Hún var fyrrum falleg bj örk Marga álitsgerð er aB finna i vel geröum vlsum um dægur- mál og stundarfyrirbæri, þar sem lýst er viðhorfum til þess sem fyrir eyru og augu ber hversdagslega. Menn hafa til- hneigingu til að kalla þær vis- ur dægurflugur, tækifærisvis- ur um skammtima fyrirbæri, þeim er sjaldan spáð löngum lifdögum I minningunni, en að þær muni hverfa af vettvangi sinum sinum næstum eins fljótt og þær urðu til. Gott dæmi um slikt eru þær vlsur sem nii um þessar mundir verða til vegna stjórn- málaumstangsins, þeim er mörgum spáð gleymsku þegar frá liöur, en þá kemur bara annað stjórnmálaástand, önn- ur en þó svipuð viöhorf til vandamálanna og þeirra manna sem með þau mál fara. Um menn og málefni verður ort þá eigi siður en nú, svo óhætt mun vera að spá dægur- flugunum i visnagerð langlifi. Tækisfærisvisurnar, eða dægurflugurnar eins og sumir vilja kalla þær, eru oft mjög snjallar og vel kveðnar, bera það með sér að höfundar þeirra kunna vel að koma orð- um aö þvi sem þeir eru að kveöa um. Nú, hvað sem um þetta má segja skal taka hér visur"bæði frá fyrri og siðari timum, velja þær af handahófi sem einskonar þverskurð af tæki- færisvísum, og láta svo lesendur dæma um hvað þeim finnist, hvað muni verða sigilt og lifa lengi, og hvaö þeim þyki miður gert og verði þvi skammlift. 1 tilefni af auglýsingu eftir vlsum um siglingar, sendir einn sem, kallar sig Á., eftir- farandi: Landsfeður á lekum knör lenda ei. að slnni, negla sig i Natós vör njóðs á siglingunni. Annar höfundur sem nefnir sig L.L. segir um stjórnar- amstriö: Falsar mengi flaustri skráð frestar hengingunum, — togast lengi um lög og ráð með leiðu flengingunum Ennþá berast botnar við vis- una, „Fellur gengi” osfrv. Það kann að vera að þessi ofanritaöa vísa hafi átt að vera tveir botnar við þá vísu, en síðari hlutinn var skrifaður með þvi rúnaletri sem ritari Vísnamála átti erfitt meö aö lesa. Fellur gengi, felast ráð Fróns I þrengingunum. Einar Eyjólfsson Mjóuhliö 10 botnar þannig: Kalla drengir kaupin skráð krata i sprengingunum» Mörgum finnst ólafur Jóhannesson vera mjög virðu- legur stjórnmálamaður, eins og fram kemur I þessari vlsu: Allir virði ólaf Jó, afa rikisstjórnar, fyrir lýðinn, land og sjó, lifi sinu fórnar. zx, Viöhorfum sinum til stjórn- málaþrefsins lýsir Jóhannes Benjaminsson i þessum tveimur visum: Hcyrir spár um frama fár. feyra dárann bitur. Meira en sár, I geði grár, Geir I tárum flýtur. Fölnar foringinn tæpi, fegurstu vonirnar brunnar. Ef að augnaráð dræpi, örendur lægi Gunnar. Þá fá kratarnir sendingu frá G.E. sem segir: Falskir krata forkólfar fjöðrum Ihalds, stélið skreyta. Möppudýra múlálfar mjög nú þjóðarsómann reyta. í Kanada var kosninga- barátta nú fyrir skemmstu. í bréfi sem hingaö kom nú á meðan á þeim slag stóð, segir: ,,Nú er kosningaundirbúning- ur I algleymingi hér, og aldrei hefur veriö logið af meiri list”. Litið lagast liöiö hér, þeir rússa raga rauða. Sama sagan sögð nú er kanar klaga kauða. Jói jagast, japlar Pierre, þeir nöldra, naga.nauða, enginn aga af þeim ber sem drauga draga dauða. Þetta er næsta óþekktur bragarhátturhér á landi, það eru þrír stuðlar I hverri hend- ingu, þó ekki samstuðla við hver annan en rimi er haldið. Sinn er siður i landi hvoru, getum viö sagt. Það er Brand- ur Finnsson I Arborg Mani- toba sem svona kveöur og bætir svo viö: „Það er skiljan- legt aö margur þingmaðurinn leggi niður rófuna og hlaupi i felur til að foröast ástandiö, þessvegna botna ég vísuhelm- ing þinn: Fellur gengi, felast ráö Fróns I þrengingunum, Velludreng er varla láö aö verjast flengingunum.” Vestur-Islendingar hafa ort um fleira en pólitik, t.d. yrkir Einar Páll Jónsson fyrrum ritstjóri Lögbergs i Winnepeg um prest: t blindni hann gekk sinn vigsluveg sem vixlaður, þvældur hestur. Er nokkur andstyggð eins ömurleg og Islenskur þokuprestur. Einar Páll orti ekki ætið eins eöa með liku hugarfari. A leiði góðs drengs kvað hann: Yfir þér er enginn krans og illa hlabið leibi, þvi fyrir heill þins föðurlands féllstu á besta skeibi. Um gamla konu kvað Einar Páll: Hún var fyrrum fjalleg björk, frjáls sem æskutrúin, Nú er hún eins og eyðimörk öllum gróðri rúin. Um efnabóndann sem kom i kaupstaö kvaö Jón Þorsteinss. frá Arnarvatni: Hér er öll min ull I poka og ögn I belg. Svo er ögn I öðrum poka og ögn I litlum belg. Skrifað stendur: Dæmið ekki svo þér veröiö ekki dæmdir. Gott væri nú að visir menn hefðu þetta i huga áður en þeir láta dóma falla yfir ungu og óhamingjusömu fólki. Þér munuö lifa, en ég fer til aö deyja, sagði einn sakborning- urinn. Sá sem dæmir lætur dóminn einnig óbeinlinis falla yfir saklausa ættingja hinna seku. Ef til vill er það i þessu tilfelli, sem G.E. i Reykjavlk kvað: Vonin bjarta veröur tál varla skarta dómar, klökkt er hjarta, kalin sál, klukkan svarta hljómar. Eygöi móðir ungan hlyn upp er spratt á vori. Þó vermi sálar vonar skin, varla brosa þori. G.E. Nú eru komnir svo margir botnar við, Fellur gengi osfrv. að sjálfsagt er kominn timi til að biöja lesendur um fyrrhlut- ann aö þessum botni: Alvarlegum augum leit afrek verka sinna. Komi nú allir kvæöamenn og kveði fyrrihlutann!

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.