Þjóðviljinn - 02.03.1980, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 02.03.1980, Blaðsíða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 2. mars 1980 helgarvíttalíð Þrjár Ijósmyndir hanga á vegg ólafs Stephensens auglýsingastofueiganda. Sú fyrsta er af Pierre Sal- inger blaðafulltrúa John F. Kennedys, önnur af Saddridin Aga Kahn fyrrum forstöðumanni Flótta- mannahjálpar Sameinuðu þjóðanna og sú þriðja af Jósef Göbbels. Teikning og texti: Ingólfur Margeirsson Nú mætti ætla aö þarna væru fyrirmyndir auglýsingastjórans komnar, en Ólafur ver sig meö þýöu brosi og lætur hvergi ná á sér höggstaö. — Salinger, segir hann, kenndi mér litillega þegar ég var i skóla i Bandarikjunum (Columbia University). A þessum tima var ég afskaplega hrifinn af Kennedy, hver var reyndar ekki þaö? En ég dáöist einnig aö þvi hvernig Salinger skipulagði starf Kennedys og bjó til imynd hans. Kahn kynntist ég aftur á móti i Genf, eftir aö ég lauk námi og starfaöi dálitiö fyrir hann. Hann Almenningstengslin koma á fót ákveönu upplýsingastreymi milli stjórnar og almennra félaga. Streymi i báðar áttir. Viö reynum aö koma félögum og samtökum i kynni viö heppileg tengsl viö fundi, höldum nám- skeiö, sjáum um blaöaútgáfu og fréttatilkynningar. Ólafur fær sér kaffisopa úr bjórglasinu. — Við getum tekiö dæmigert félag sem gefur út eitthvert glansrit fyrir miljónir, oft i sambandi viö afmæli, þá berja menn sér einkum á brjóst. Heiöarlegar undantekningar eru þó til, eins og Asgaröur. Já, Markaðs- leikstj óri og hugverkssmiður útfæröi skemmtilega fjárhagsá- ætlanir og fjáröflunaraöferðir og geröi kynningarefni býsna vel úr garði. Ég man eftir kynn- ingarefni sem hann lét okkur gera fyrir þriöja heiminn. — Formúlan var sú aö fólkiö kunni ekki aö lesa eöa skrifa og út- koman var skólabókardæmi hvernig átti aö vinna, erfiöur texti framreiddur i einföldum myndum. Kahn var annars meistari i aö snobba niöur á viö. Þegar hann var forstööumaöur Flóttamannahjálparinnar og Arabarnir og aörir sem vildu fá peninga úr sjóönum komu til Bandarikjanna til aö ræöa viö hann, kom hann iðulega keyr- andi á Morris Mini til aö taka á móti þeim úti á flugvelli. — Og Göbbels? — Göbbels? Hann var ein- hver umdeildasti áróöus- meistari sem uppi hefur veriö. Kom náttúrulega upp á ideal tima og stjórnaöi öllum fjöl- miölum, og þaðverður ekkilitiö framhjá, aö tæknileg meöferö áróöursefnisins var meistara- leg. Hann fékk frábært fólk aö vinna fyrir sig eins og t.d. Leni Riefnstal, sem geröi kvikmynd- ina um Olympiuleikana 1936 i Berlin. Maöur getur horft á þá mynd aftur og aftur og alltaf uppgötvaö eitthvaö nýtt i henni. — 0 — — A skiltinu fyrir utan stend- ur auglýsingastofa og almenn- ingstengsi, hvaö þýöir þaö? — Auglýsingatengsl, segir Ólafur og sveiflar Edward Kennedy-gleraugunum I hring, má kalla skipulagt starf á kynn- ingu frétta- og fræðsluefnis. Astandiö I islenskum stofnunum og félagssamtökum, aö ekki sé minnst á stéttafélög, er oröiö þannig aö flestar stjórnir þeirra eru dottnar ofan I pytt, trún- aöarmennirnir og forystumenn- irnir eru búnir aö byggja yfir sig kassa, og ná hvergi til félags- manna. Þeir mæla aöeins orö viö þá sem eru virðingu þeirra samboönir, en hafa slitið tengsl- in viö hinn raunverulega félags- mann sem olli þvi aö þeir kom- ust f þessa stööu. Þá komum viö til sögunnar. glansútgáfur sem eru þeim of- viöa, sem þeir fylla af alls konar þýddu rusli. Þá getum viö kom- iö til skjalanna, þvl þaö er hægt aö gera æöi margt annaö en aö koma glanstimariti á markaö- inn. — Koma „þeir” til ykkar? — Já, þeir skríöa stundum út úr kössunum og koma til okkar og þá setjum viö upp áætlun hvernig skipuleggja mætti starfiö, eins og dreifingu á fréttatilkynningum og svo framvegis. — Eruö þiö höfundarnir bak viö obbann af þessum bölvuöu fréttatilkynningum sem stór- skemma biööin? Ólafur styöur hönd undir kinn. — Maður heyrir nú yfirleitt keöjuna skrölta i járntjaldinu fyrir öllum gluggum þegar maöur paufast upp stigana aö ritstjórnarskrifstofunum meö fréttatilkynningar. En eins og ég hef margsinnis bent gömlum kollegum í blaöamannastétt á, þá eru fréttatilkynningar ekki hugsaöar sem friar auglýsingar sem þarf aö birta, heldur kynn- ing fyrir blaðamanninn ef hann vill kynna sér máliö frekar. Fréttatilkynningin sem viö út- bjuggum fyrir Skipaútgerö rík- isins á 50 ára afmæli þess var t.d. stútfull af skýrslum ef blaö- iöheföi áhuga á frekari athugun á kostum rikisrekinna fyrir- tækja. Rætt við Ólaf Stepfiensen auglýsinga- stjóra (Var bros ólafs i ætt viö glott?) — Finnst þér gaman aö lesa fréttatilkynningar I blööum? — Nei, þær eru óinteressant. Sko, i gamla daga þá höfðu blaöamenn leyfi til aö hafa skoöanir. Þessi nýja kynsíóö blaöamanna hefur alls enga skoöun. Þaö var oröiö svo slæmt á timabili aö fréttatilkynn- ingarnar sem viö sendum frá okkur voru birtar oröréttar, nema helst ef klippt var neöan af þeim vegna þess aö þær pöss- uöu ekki i dálkinn. Tilkynningar á aö nota til aö kynna sér efniö, ekki birta gagnrýnislaust. Og Óafur strýkur sér um snöggklippt háriö. — Liggur einhver hugmynda- fræöi aö baki auglýsingum ykkar? Er hægt aö tala um aug- lýsingafilósófiu ólafs Stephens- ens? Nú koma vöflur á ólaf. Hann hlær, snarsnýr gleraugunum og veröur svo alvarlegur aftur. — Ég llt á auglýsinguna alveg ákveönum augum. Hún er hluti af sölustarfi, þjónustu og þar fram eftir götunum. Arangur auglýsingar er sala eöa út- breiösla. Annar mælikvaröi er ekki til. Auglýsing veröur aö vera tvennt: I fyrsta lagi veröur hún aö vera vel úr garöi gerö og aögengileg fyrir augaö. í ööru lagi þarf auglýsing aö koma heilsteyptum upplýsingum til lesandans eöa móttökuaöilans. Þaö er liöin tiö aö auglýsingar segöi: FARÐU OG KAUPTU ! ! ! Auglýsingin veröur aö skapa samanburö, skapa löngun til aö kynnast vör- unni. Ég held aö auglýsingar i dag eigi aö fara frá þvi aö vera upphrópun, heldur svara spurn- ingum sem upp i hugann koma þegar þær koma fyrir augu neytenda. Fyrirsagnir eiga ekki aö vera i einsatkvæöisoröum, textinn á aö vera greinargóöur og laus viö hæpnar fullyröingar, sem ekki er hægt aö standa viö. — Eru slikar auglýsingar al- gengar á Isienskum markaöi? — Já, blessaöur vertu. Blla- auglýsingar til dæmis: „Sá besti frá Japan”, „Sterkasti billinn á markaönum”. Og ótal fleiri. Viö höfum aö visu siöa- reglur sem Samband islenskra auglýsingastofa — SÍA — hefur tamiö sér eftir uppskrift Alþjóö- lega verslunarráösins. — En veröa ekki auglýsingar leiöinlegar meö öllum þessum boöum og bönnum? — Jú. En viö erum reyndar aö komast upp úr fimm ára lág- kúru. Astæöan fyrir lágkúrunni er einkum sú, aö fé til auglýs- inga hefur veriö hraöminnkandi á siöastliönum árum og þaö hef- ur siðan olliö minna rými fyrir hugmyndaflug*. Auglýsing er hugverk. Og ef timi eöa peningar leyfa okkur ekki aö framkvæma eitthvaö gott og frumlegt, þá dettum viö sjálfir ofan i kassann, sem ég minntist á áöan,og skilum frá okkur auglýsingu eftir standard formúlu: Mynd, fyrirsögn, brauötexti, undirskrift. — 0 — — A hvaöa manniega þætti spiliö þiö einkum viö gerö aug- lýsinga? Ólafur horfir á mig og viö vit- um báöir aö þetta er leiöinleg spurning. — Þaö er ákaflega oft sem viö skjótum i myrkri og vitum ekki hvar kúlan lendir. Einu sinni auglýsti ég buxur og peysur I sjónvarpi og þaö eina sem seld- ist voru skórnir sem módeliö var i. Aö nota húmor getur lika ver- iö tvleggjaö. Þaö er nú einu sinni þannig aö kimingáfu Is- lendinga sem annarra þjóöa viröist vera misskipt. Viö getum til dæmis tekiö auglýsingarnar sem viö geröum fyrir happ- drætti Háskóla Islands meö þeim Bessa og Arna. Aö lokum var svo komiö aö enginn tók eft- ir þvi aö um happdrættismiða var aö ræöa, þjóöin beiö bara eftir næsta brandara. — En hvernig vinniö þiö, er þetta mikili heilastormur eöa lciöinleg rútina? — Viö reynum aö kynnast fyrirtækinu og vörunni sem viö eigum aö auglýsa. Yfirleitt höf- um viö samráö viö sölustjóra eöa framkvæmdastjóra viö- komandi fyrirtækis og þeir hafðir meö i ráöum hve miklu fé þeir vilja veita I auglýsinguna og hvaöa þætti þeir vilja fá fram. Siöan gerum viö okkar til- lögur og leggjum fyrir fyrirtæk- ið og auglýsingin siöan gerö ef þær eru samþykktar, annars breytt að ósk fyrirtækisins. — Og hvernig geriö þiö ykkar tillögur? — Viö byrjum alla morgna á þvi aö setjast kringum rauða boröiö. Sástu þaö þarna inni? Þar látum viö gamminn geisa, þú getur kallaö þaö eins konar heilastorm. Siöan er einhverj- um teiknara fengin ábyrgðin á grafisku hliöinni, og annar sér um aö hugmyndin sé fullkláruö. En auövitaö lenda auglýsinga- stofur I þvi aö búa til færibanda- auglýsingar. Þær eru oft nútlmaverksmiöjur, sauma- stofur. — Auglýsingar eru oft gagn- rýndar? — Já, og kritik á fullan rétt á sér. Auglýsingar eru oft hálf- geröar glansmyndir, þær búa oft til Imynd sem ekki er til. En tiska, smekkur er nú einu sinni endurspeglun á þvi sem er aö gerast hverju sinni, og viö I bransanum erum áhrifagjarnir 1 eins og allir aörir. En viö þurf- um krítik sem aöhald. Neyt- endasamtök og gagnrýnin félagasamtök eiga aö hafa auga meö okkur svo viö leiöumst ekki i freistni. En mannskepnan er nú einu sinni þannig aö hún hefur mikla löngun i aö skoöa þaö sem ég kalla Mikka Mús-myndir, þess- ar glansmyndir sem kannski er sami gamli draumurinn um nýtt og betra lif, þráin aö komast burt frá streöinu. En hvort þessi draumur er hvöt aö auglýsinga- getu eöa sölumöguleika veit ég aftur á móti ekki. — Hefur þú búiö til stjórn- málamenn?. — Já, ég hef bókstaflega kennt einum stjórnmálamanni aö ganga og tala. Og tveimur krötum hef ég kennt aö koma fram. — Hverjir eru þaö? ólafur veifar i átt aö blokk- inni. — Ertu vitlaus, þaö get ég ekki sagt! — Þú ert þá eins konar leik- stjóri? Ólafur horfir á mig lifsreynd- um augum. — Er þetta ekki allt saman leikhús? _ im

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.