Þjóðviljinn - 23.03.1980, Page 6

Þjóðviljinn - 23.03.1980, Page 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 23. mars 1980 Fræösla og fjölskyldulíf Sigrún Júlíusdóttir félagsrádgjafi skrifar Einstaklingur sem leggst inn á almennt sjúkrahús breytist í hlut, líkt og bíll, sem fer á verkstæði. Félagslegar aðstæður skipta þar ekki máli og til- finningar og sálarástand eru oftast utan dagskrár — jafnvel þegar um erfiða sjúkdóma er að ræða eða dauðinn knýr dyra. Fjöldi rannsókna hefur þegar sannað, að sjúkra- húsdvöl án eftirmeðferðar gefur takmarkaðan árangur. • Raunveruleg fyrirbyggj- andi starfsemi er að ná til fólks ÁÐURen þaðer orðið meðferðar þurfi... • Sérfræðingar í heilbrigðis- og félagsmálum eiga ekki að liggja á þekkingu sinni og e.t.v. láta hana hrökkva af vörum sér í formi gull- korna á hátíðlegum stund- um, þegar þeir eru í sviðs- Ijósi og slikt getur orðið þeim til persónulegs framdráttar. • Það er skylda sérfræðing- anna að miðla þekkingu sinni þannig að hún nýtist þar sem hún á raunveru- lega heima. • I fjölskyldulífsfræðslu er skírskotað til hins eðlilega og heilbrigða, en sjúk- dómshugtakið látið lönd og leið. Fræðsla um eðli atvika og mannleg viðbrögð gegn þeim hefur mikilvægu fyrirbyggjandi hlutverki að gegna í heilbrigöisþjón- ustu. • Þekking og skilningur á umhverfi, á eigin við- brögðum jafnt sem ann- arrd/ eru einu vopnin sem einstaklingarnir i bióð*’ félagsgerðokkar geta beitt til að verjast ofurálagi, hraða og firringu sem annars gerir alla menn að viljalausum þolendum ríkjandi ástands. Erindi það sem hér er birt var flutt á ráðstefnu um heilsuvernd fjölskyld- unnar sem haldin var á vegum Félags háskóla- menntaðra hjúkrunar- fræðinga í haust. Mér hefur veriö faliö aö fjalla hér um fræöslu sem fyrirbyggj- andi þátt i heilbrigöisþjónustu, hvers vegna hún er nauösynleg og á hvern hátt hún kemur eölilega inn i heilbrigöisþjónustu. Lykilhugtökin sem ég ætla aö tala út frá eru þessi fimm: Heilbrigði Geöheilsa Geövernd Fræösla Fjölskyldullfsfræösla Heilbrigöi ákvarðast út frá þessum fjórum hugtökum hér aö ofan. Fræösla sem tekur miö af fjölskyldunni er einn sérþáttur fræöslu sem stuölar aö bættri geöheilsu og um hann ætla ég aö fjalla hér á eftir. Heilbrigöi eöa heilsa er vitt hugtak, en okkur hættir til aö nota þaö i heldur þröngri merkingu og takmörkum þaö oftast viö lfkam- legt heilbrigöi/heilsu — enda mestur gaumur veriö gefinn aö þeim þætti frá upphafi. En eftir þvi sem þjóðfélögin hafa þróast og oröiö flóknari og aöstæöur og tengsl manna oft firrtari, hefur athygli okkar beinst meira aö öörum þáttum, þ.e.a.s. þeim and- legu og félagslegu. Þá köllum viö reyndar oft einu nafni, geöheilsu, en þar er þá átt viö bæöi liöan og andlegt ástand (status) einstak- lingsins og hvernig hann sam- spilar viö umhverfi sitt, inn á viö i fjölskyldunni og út á viö I þjóöfé- laginu. Heilbrigöi er þvl þriþætt: Likamlegt Andlegt Félagslegt Þessi skipting er reyndar sam- kvæmt skilgreiningu Alþjóöaheil- brigöisstofnúnarinnar. Þættirnir eru órjúfanlega samofnir hjá hverjum einstaklingi og á þvl ætti skipan heilbrigösþjónustu aö byggja. En slik er þvl miöur ekki raunin. Viö skiptum þessu öllu niöur. Einstaklingur sem leggst inn á almennt sjúkrahús breytist I hlut, likt og blll, sem fer á verk- stæöi. Félagslegar aöstæöur skipta þar ekki máli og tilfinn- ingar og sálarástand eru oftast utan dagskrár — jafnvel þegar um erfiöa sjúkdóma er aö ræöa eöa dauðinn knýr dyra. Hlutverk geðheil- brigðisþjónustu Geöheilbrigöisþjónusta, sem til skamms tlma hefur verið lögö áhersla á aö væri jafnvel land- fræöilega afmörkuö frá annarri heilbrigöisþjónustu, hefur aö mestu takmarkast viö aö meö- höndla svokallaö geösjúkt fólk, en lltill gaumur veriö gefinn aö geö- vernd og áhrifum félagslegra þátta, hvort eö heldur sem orsök eöa afleiöingu. Þessi sjúkdóms- miöaöa geöheilbrigöisþjónusta byggir oftast á sjúkrahús- eöa stofnunardvöl. Einstaklingurinn fær þjónustuna eftir aö hann er oröinn óstarfhæfur og ófær um aö hafast viö I umhverfi slnu. Þaö veröur því aö fjarlægja hann þaöan. Þaö er I sjálfu sér áfaii fyrir hann, auk þess mikla kostn- aöar, sem þaö felur i sér fyrir sjúkrahúsiö og svo maöur tali nú ekki um aðlögunartimann á eftir. Hér gæti virk göngudeildarþjón- usta bætt mikiö úr, en hún hefur þvi miður fram undir þetta tak- markast viö eftirmeöferö þeirra, sem dvaliö hafa á stofnun. Ég held mér sé óhætt aö segja, aö viö höfum sinnt þeim takmarkaöa þætti allvel hér i Reykjavik og ég vil ekki gera lítiö úr mikilvægi hans. Fjöldi rannsókna hefur þegar sannaö, aö sjúkrahúsdvöl án eftirmeöferðar gefur tak- markaöan árangur. En þetta er bara ekki nóg. Starfsviö göngu- deildarþjónustu er a.m.k. þri- þætt: — Eftirmeöferöarþjónusta — Meöferöarþjónusta — Geöverndarþjónusta Hér er um aö ræöa I fyrsta lagi eftirmeöferöarþjónustu viö þá, sem dvaliö hafa á sjúkrahúsi og I ööru lagi meöferöarþjónustu viö þá, sem ekki hafa dvalið á sjúkra- húsi og I þriöja lagi geöverndar- þjónustu viö ákveöna áhættu- hópa, þ.e.a.s. fyrirbyggjandi þjónusta. En þaö er sá þáttur þjónustunnar sem ég vil gera aö umræöuefni hér. Göngudeildar- þjónusta er I eðli slnu fyrirbyggj- andi. En þessi skipting tengist skilgreiningunni I fyrsta, annars og þriöja stigs fyrirbyggjandi starf, sem aörir hafa rætt um hér. Þannig er eftirmeðferöin, sem miöast viö að viðhalda árangri stofnunarmeöferöarinnar, þriöja stigs fyrirbygging. Meöferðin sjálf fyrirbyggir stofnunardvöl, meö því aö meðhöndla erfiöleik- aná og aöstoöa sjúkllnginn áöur en hann er oröinn óstarfhæfur og innlagnar þurfi. En, raunveruleg fyrirbyggjandi starfsemi er aö ná til fólks áðuren þaö er oröið meö- feröarþurfi, meöan þaö sjálft getur nýtt sér fljótvirkari og ódýrari aöferöir, sem um leiö sklrskota til sjálfshjálpar og stuöla aö þvi, aö einstaklingurinn nái tökum á aöstæöum sinum og efli um leið sjálfsviröingu sína. Ahrifamest og fullkomnast væri, aö sjalfsögöu, aö ná aö fyrir- byggja alveg aö vissir erfiöleikar komi yfirleitt upp og slikt er e.t.v. hægt á ákveðnum sviöum. Þaö er til dæmis hægt aö skipuleggja hverfi og haga umferöarreglum þannig, aö þaö komi alls ekki til óhappa. En þaö eru ákveönir þættir I lifi fólks, sem eru óhjá- kvæmilegir, og sem þaö er mis- jafnlega I stakk búiö aö mæta og takast á viö. Þessir þættir eru oft afleiöingar ýmissa þjóöfélagsaö- stæöna, og félagslegs raunveru- leika einstaklinganna, sem þeir geta ekki umflúiö, en geta hins vegar komist Igegnum, eins og ég sagöi, meö misjafnlega miklum skemmdum og sársauka, allt eftir forsendum þeirra sjálfra og þeirri aöstoö sem er aö fá. Þaö sem ég hef hér I huga, eru hin svokölluöu eölilegu áföll (normal crisis), sem við öll veröum fyrir einhvern timann á llfsleiöinni I einhverri mynd. Meö þvi aö ná til fólks nógu snemma, undirbúa þaö eöa hjálpa þvl i gegnum krlsuna, getum viö fyrir- byggt þyngri afleiöingar. En þaö er einmitt hér, sem upplýsing, þjálfun og fræösla i ýmsu formi kemur til sögunnar og hún á e.t.v. best heima I geöverndarþjón- ustunni. Sérfræöingar I heilbrigö is- og félagsmálum eiga ekki aö liggja á þekkingu sinni og e.t.v. láta hana hrökkva af vörum sér i formi gullkorna á hátlölegum stundum, þegar þeir eru i sviös- ljósi og slikt getur oröiö þeim til persónulegs framdráttar. Sú menntun og þekking á félags- legum aöstæöum-, mannlegu aí- ferli og viöbrögöum, sem sér- fræðingar hafa aflaö sér I löngu námi, er ekki þeirra persónulega einkaeign. Sérfræðiþekking er eign fólksins, sem þarfnast hennar og hefur átt sinn þátt I aö skapa hana. Það er þvi skylda sérfræöinganna að miöla þessari þekkingu, þannig aö hún nýtist þar sem hún á raunverulega heima. Nú kann einhver aö spyrja: „Hvers vegna er þetta allt svona mikilvægt allt I einu? Aöur fyrr kláraöi fólk sig ágætlega án allra sérfræöinga, geöverndar, vanda- málaþvaöurs og fræösluþrugls! ” Þaö gleymist, aö áöur liföum viö llka viö aörar aöstæöur. Umfram allt var þjóöfélagsgeröin ein- faldari og fjölskyldustofnunin sterkari. Einstaklingarnir nærö- ust tilfinningalega og studdu hver annan innan fjölskyld- unnar, þjóöfélagsáhrifin uröu hlutfallslega minni. Hlutirnir geröust innan fjölskyldunnar, fólk var I tengslum viö uppruna sinn og eölilegar mannlegar at- hafnir, ferli og viöburöi, hvort sem þaö nú voru fæöingar, veik- indi, slys, öldrun eöa dauöi. Til þess aö mæta þessum breytingum hafa oröiö aö þróast nýjar lausnir, hinar vel þekktu félags- legu lausnir (vistheimili, dag- heimili, skólar, sjúkrahús og almenn þjónusta af ýmsu tagi) og líka nýjar aöferöir. Ein þessara nýju aöferöa er einmitt fjöl- skyldulífsfræösla (stiröleg þýöing á enska hugtakinu „family life education”) en hún er einmitt dæmi um nýja aöferö til aö kenna fólki aö takast á viö eölilega erfiö- leika. Þjóöfélagsgerö okkar magnar þessa erfiöleika en felur ekki i sér úrlausnarleiöir. Þess vegna veröur nú sérfræðings- aöstoö aö koma til þar sem áöur voru persónulegar lausnir, m.a. I fjölskyldugeröinni. Fjölskyldulífs- fræðsla Fjölskyldulífsfræðsla sem aöferö er á vissan hátt tengd hópm eöferöartækni og námskeiöum I ákveöni og félags- þjálfun, sem viö notum svo mjög I meöferö á göngudeild. 1 fjölskyldullfsfræöslu er sklrskot- aÖ til hins eölilega og heilbrigöa, en sjúkdómshugtakiö látiö lönd og leiö. Markmiöið er aö fyrir- byggja erfiöleika meö þvl aö auka skilning og þekkingu á hinum svokölluðu eölilegu þroskakris- um, sem einstaklingurinn og/eöa fjölskyldan fer i -gegnum á þróunarferlj sinu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.