Þjóðviljinn - 23.03.1980, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 23.03.1980, Blaðsíða 9
Sunnudagur 23. mars 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 Vilhjálmur Finsen, stofnandi Morgunblaösins og fyrsti ritstjóri þess (ásamt ólafi Björnssyni): „Llklega hefir Alexandra Kollontay veriö mesti kvenskörungur sem uppi hefir veriö á þesssari öld. Aiveg ógleymanleg öllum sem kynntust henni til nokkurrar hlitar.” þessum oröum: „This is my Ice- landic friend” eöa „C’est mon ami islandais”. Þannig geröi hún og f þetta sinn. Einhvern veginn greip þaö mig, aö hún fyndi þaö á sér, aö þetta yröi siöasta móttak- an i sendiráöinu, sem hún stóö fyrir. Tveim mánuöum áöur en heims styrjöldinni lauk, fór frú Kollon- tay heim til Rússlands og lagðist á heilsuhæli. Hún var þá 73 ára að aldri og farin aö kröfum, enda kom hún aldrei aftur til Stokk- hólms. Hún leigöi sér siöar þriggja herbergja ibúö f Bolshaja Kalinshkaia utarlega I Moskvu, og þangað komu til hennar marg- ir þekktustu stjórnmálamenn So- vétrikjanna þeirra e?inda aö fá hjá henni góð ráö i vandasömum málum. Hún gat ævinlega gefiö holl ráö. Alexandra Kollontay dó 11. mars 1952 og var þá 80 ára aö aldri. Hún var grafin á kostnaö rikisins meö mikilli viöhöfn. — 0 — Frú Kollontay var dýravinur mikill, og einkum þótti henni vænt um ketti. Þannig gat hún ekki hugsað sér aö yfirgefa uppá- haldsköttinn, sem hún átti i Stokkhólmi, heldur tók hún kisu meö sér til Moskvu. Fressköttur- inn hét „Alexander” og aðsetur hans var i hægindastólnum viö skrifborö frúarinnar i sendiráö- inu. Þar lá kisi ævinlega mestan hluta dagsins. Stundum var kött- urinn lika kallaöur „Attaché”- inn, og frú Kollontay hélt þvi fast fram, að fressiö skildi sænsku. Hún sagöi sjálf frá þvi, þegar hún ávarpaði köttinn á sænsku: „Þarftu aö fara út, greyiö”? Þá hafi kötturinn svarað „mjá” og labbað út. Liklega hefir Alexandra Koll- ontay verið mesti kvenskörungur sem uppi hefir veriö á þessari öld. Alveg ógleymanleg öllum sem kynntust henni til nokkurrar hlitar. — 0 — Frú Kollontay hafði nokkur árin i Stokkhólmi einkaritara, sem Vetrov hét. Vetrovhjónin uröu góökunningjar okkar hjóna, og viö vorum oft i boöi hjá þeim, og þau hjá okkur. Vetrov þessi, sem seinna var gerður að ambassador Sovétrikj- anna i Kaupmannahöfn, var fróöur maöur og besti náungi. Hann átti konu, sem var honum ákaflega samhent um það aö vilja gleöja aðra. Veislurnar hjá Vetrov-hjónunum voru rikmann- legar og veitt af höföingskap „kaviar”, humar og kampavin. „Kaviar”-inn fengu þau sendan loftleiðis beint frá Moskvu. Ég man sérstaklega eftir einni veisluhjá VetrouVið sátumi dag- stofunni og drukkum kaffi og koniak eftir matinn. Þá hringir simi Vetrovs ákaft. Hann fer inn i einkaskrifstofu sina, tekur sim- ann og talar mikiö og lengi, allt á rússnesku, og kemur svo aftur inn i dagstofuna og skálar. Litlu seinna er aftur hringt. Þaö fór á sömu leiö, Vetrov talar rússnesku lengi. Þegar siminn hringdi i þriöja sinnið og Vetrov haföi lokiö samtalinu, spurði ég: Hver er þaö, sem hringir til yðar svona seint aö kvöldi? Klukkan er langt gengin eitt og komin nótt? Vetrov yppir öxlum og segir: „Kollontay, Kollontay, Kollon- tay”! Og svo sagöi hann frá þvl, aö frú Kollontay hefði þaö fyrir venju aö vinna aö skýrslugeröum sinum á nóttunni. Hún kallar til sin tvær hraöritunarstúlkur og les þeim fyrir I margar klukkustund- ir. En til þess aö þurfa ekki aö sækja málsskjölin i skjalasafnið til þess aö vita, hvað gerst hefir i málunum, hringir hún I okkur, sem höfum haft málin til með- feröar, og spyr, hvernig þau standi. Hann sagöi ennfremur, aö frú Kollontay hefði aldrei tima til að vinna viö skriftir á daginn. Þá tæki hún á móti heimsóknum eöa væri sjálf úti I bæ aö tala viö ýmsa menn. Vinnudagurinn hennar er oft upp undir 18 tima á dag, sagöi hann. Ekki vantaði þrekiö.” Kristín Bjarnadóttir: Velheppnuö mistök Hvers vegna mistekst allt fyrir þeim sem neita að leika leikinn með kænsku og undirhyggju Hvers vegna er einmitt það fólk sem er fremst í að gagnrýna valdatafl almennt og leiðtoga alltaf það fólk sem vill vera fremst Er það vantrú á aðra eða vantrú á eigin veiku hlið sem þvingar það þar til hin sterka nýtur sin til fulls og verður vald sem hefur tök á öllum veikleikum gleymir að vera undirgefið nokkrum eða nokkru nema því sem það ræður ekki við ennþá einmitt þeir sömu þeir sterku dást gjarna að þeim sem virkilega vilja eitthvað en aðeins ef það tekst mistök eru þeim ósýnileg ef ekki niðurlægjandi hlægileg eða aumkunnarverð og ef rétta skal hjálparhönd hinum misheppnuðu gleymist sjaldan að segja: Við gerum það eingöngu vegna þess að við álitum það þér fyrir bestu ekki af því við trúum á þinn eigin vil ja sá vilji er núna okkar oft virðist auðvelt að bera traust til þess valds sem mælir á þá leið er við sjálf vildum gjarna sagt hafa þannig veljum við ætíð hið sterka og segjum okkar vilji er þinn núna

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.