Þjóðviljinn - 23.03.1980, Qupperneq 11

Þjóðviljinn - 23.03.1980, Qupperneq 11
Sunnudagur 23. mars 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11 Blár rnánu- dagur Graham Smith Það gerðist hér á dögunum að ég álpaðist niðrí Þjóðleikhúskjallara í leit að jasstónleikum. Þar stóð til að halda svonefnd- an „Bláan mánudag" og var ýmislegt forvitnilegt á dagskrá. Var þar enda þröngt á þingi. Eftir all- nokkrartilraunir tókst mér lokst að króa yfir þjóninn af og, með því að skírskota til stöðu minnar sem blaðamanns, að fá hann til að útvega okkur Ketilbirni sæti á hentugum stað. Var þó greinilegt að sá áæti maður átti frekar von á sendisveit frá „Fólki" eða „Lífi". Hvað með það, við fengum mjög góð sæti í annars þaul- setnum salnum, og fór ég því næst að huga að tónlist- inni sem hljómaði þar í hálfrökkrinu STOR- STJÖRNU- KVÖLD Fyrir tónlistinni stóð Jasstrló/kvartett Guðmundar Ingólfssonar, þeir Gvendur Ingólfs (planó), Gvendur Stein- grims (trommur). Gunnar Hrafnsson (bassi)og Arni Schev- 'ing (víbrafónn). Ég hef vist áður lýst áliti minu á þeim félögum og er þar litlu við að bæta nema þá helst að þeir voru i toppformi að venju. Reyndar var þetta (furðulegt nokk) ifyrsta skipti sem ég heyri Gunna Hrafns jassa, og var ég mjög ánægður með frammistöðu hans. Annars var jassinn yfirleitt af rólegra taginu hjá þeim félögum þetta kvöld, enda féll slikt vist best inn i mjög svo „kúltiverað” andrómsloftið á staðnum. Eftir að „Trióið” hafði leikiö drjúga stund kviknuðu skyndi- lega ljós í salnum og fram þeystu þrir félagar Ur Islenska Dans- flokknum, þau Asdís MagnUs- dóttir, örn Guðmundsson og Helga Bemharð. Fluttu þau jass- dans við hið alkunna lag Paul heitins Desmonds (fyrrum saxófónleikara Dave Brubeck kvartettsins) „Take 5”. Þessi þrjú mynda mjög samrýnda einingu innan Dansflokksins að sögn viömælanda mins, Þórdlsar Bachmann, aðstandanda „Blás mánudags”. Jafnframt tjáði hún mér að þessi þrjú hefðu áður flutt jassdans fyrir um ári, og þá við lag eftir Billy Joel. Vegna tak- markaðs tima þeirra gátu þau ekki flutt nema þennan eina dans þetta kvöld og þótti mér það leitt, en vonandi fær maður að sjá meira I þessum dúr sfðar. Aö danssýningunni lokinni stigu Texti: Þorvarður s Arnason Myndir: Ketiibjörn R. Tryggvason Arni Scheving þeir Graham Smith (fiöla), Richard Corn (bassi), Gestur Guðnason (gitar) og Jónas Björnsson (trommur) á svið og fór þá heldur að hitna i kolunum. Reyndar var mesta vitleysa að kalla tónlist þeirra jassy þvi hér var um nær ómegnaö rokk að ræða, en það rýrði siður en svo gildi hennar. Fluttu þeir efni sitt af mikilli kostgæfni og ferskleika og get ég aöeins fundið að þvi hve Iitið heyrðist i bassanum—fiðlan og gitarinn einokuðu alveg „só- ló” spottin. Finnst mér.Richard eiga stærri hlut skiliö. Annars voru þeir allir góðir, en sérstak- lega fannst mér þó fiðluleikur Grahams áhugaverður — ekki sist fyrir það hve sjaldan maður heyrir i „rokkaðri” eða „jass- aðri” fiölu á Islandi. Siðast er ég vissi til voru þeir Richard og Graham báðir starfandi með Sinfóníuhljómsveit Islands og hijóta þeir að teljast mjög verð- mætur og eftirsóknarverður „innflutningur” — a.m.k. er þetta einn virkilega ljós punktur á Guömundur Ingólfsson og Gunnar Hrafnsson. Frá vinstri: Gestur Guðnason, Eyjólfur Björnsson, Graham Smith og Richard Corn. Sinfóniuhljómsveitinni. Voru þeir félagarnir enn að spila er ég kvaddi staðinn um tólfleytið. Ég get þó ekki látið þessari umfjöllun lokið án þess að minnast litillega á andrúmsloftið á tónleikunum. Eins og fram kom hér að framan stóö einkaaðili Þórdís nokkur Bachmann, að tónieikunum og sagðist hún mjög ánægð með aðsóknina og „públikúmiö”. En hvort sem það var með ráðum gert eða ekki, þá úöi hreinlega og grúði af allskyns stórstjörnuum, smástirnum og minni postulum á tónleikunum og sýndistmér fólkið yfirleitt vera af „frumsýningartaginu”, „sam- kvæmisfólk” sem yfirleitt sækir menningaratburði meir uppá eigin imynd en menninguna. Var og einnig sem margt af þessu liði væri aðeins að „millilenda” ,,en route” til Hollivúdd, enda sjálfsagt ægilega fint að renna smáskammti af „kúltúr” niöur með rauðvi'ninu og ostapinnunum (sem var innifalið i miðaverðinu) áður en mar skellir sér i búggiið á dansgólfinu. Og undir gáfuhjalsyfirborði seldust slúöur- sögurnar svo grimmt að enginn virtist mega vera að þvi að taka eftir tónlistinni. Aðeins örfáir einstaklingar virtust hafa villst þangað inn eingöngu vegna tónlistar- innar. og voru þeir auðþekkjan- legir þó ekki væri nema á klæða- burðinum (en á aðgöngu- miðanum stóö að koma ætti I betri buxunum, þótt ekki væri það á neinni auglýsingunni, og fengu gallabuxurnar mínar frekar óhýrt augnaráð frá dyraverð- inum). Slikt þykir mér óvirðing við góöa tónlist og tónlistarmenn, auk þess sem það gerði stemn- inguna afar þvingaða og leiðin- lega. Nú er vist komið heillangt mál út af hálfgerðum smámunum en þannig var nú umhorfs á þessum tónleikum frá minum bæjar- dyrum séð. Að þvi slepptu átti ég þar mjög ánægjulega kvöldstund og vil ég hiklaust þakka Þórdisi Bachmann þetta framlag hennar til menningarlífs borgarinnar. Vona ég að „Bláir mánudagar” veröi fleiri á almanakinu, sérstaklega ef dagskráin verður jafn vönduð og síðast. Vona ég þó jafnframt að næsti blái mánu- dagurinn verði tónleikar en ekki kokkteilparti. TIL í FERMINGARGJAFA 5 MANNA TJÖLD 3 MANNA TJÖLD Tjaldhimnar á flestar gerðir tjalda. Tjalddýnur, bakpokar og allt annað í útileguna. Þýskir svefnpokar, rojög góðir og vandaðir. PÓSTSENDUM SEGLAGERÐIN ÆGIR Eyjagötu 7 — Örfirisey — Reykjavik Simar: 14093 og 13320

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.