Þjóðviljinn - 30.03.1980, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 30.03.1980, Blaðsíða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 30. mars 1980 Mínus 24 eftir Örstedkerfinu Veitingahús spretta nú upp eins og gorkúlur i Reykjavik og eru hvert ööru skemmtilegra. Jónas Kristjánsson ritstjóri gengur á milli og lætur stjana viö sig og gefur þeim siöan einkunn i Vik- unni. Aö sjálfsögöu er ekkert aö marka svona próf, þvi aö allir þekkja Jónas, og þegar hann kemur er spariandlitiö sett upp. Ég er hinsvegar nær óþekktur meö þjóöinni og þykir mér þaö miöur sem vonlegt er. Um daginn prófaöi ég t.d. eitt veitingahús sem aö visu er gamalgróiö og úti á landi. Viö Gunni ljósmyndari vorum staddir i Hverageröi og þurftum á máltiö aö halda. Ég stakk upp á heilsuhæli Náttúrulækninga- félagsins, en ljósmyndarinn mót- mælti þvi eindregiö aö þangaö væri fariö. „Maöur þembir sig bara út á einhverju káljukki og grasi og veröur svo glorsoltinn eftir klukkutima”, sagöi hann. „Auk þess rekur maöur ótæpilega viö af svoleiöis fæöu” bætti hann viö. Nú voru góö ráö dýr. Viö ókum inn aöalgötuna. A hægri hönd sá- um viö matsölustaöinn Hver Inn Grill.Viö litum hvor á annan meö undirfuröulegum glampa i svipn- um. Sennilega er lifshættulegt aö fara inn á staö meö svona nafni. Þá minntist Gunni þess aö ekkja Höskuldar Björnssonar væri meö matsölu og eftir langa leit fundum viö húsiö hennar. En þvl miöur. Þar var aöeins kaffi- sala. „Er ekki Hótel Hverageröi enn rekiö?” spuröi ég. Jú, liklega. Og viö þangaö. Viö fórum inn um ein- hverjar dyr,og leit svo út sem viö værum komnir inn í kexverk- smiöju sem hætt væri störfum fyrir áratug. Veggimir vom ein- hvem veginn skitagulir og gólfin óhrein. Viö vorum aö þvl komnir aö hlaupa út þegar fulloröin og hressileg kona kom aö okkur. Viö kunnum ekki viö annaö en aö spyrja hvort þarna væri rekin matsala til þess aö gefa einhverj- ar skýringar á tilveru okkar. HUn hélt þaö nú og dreif okkur inn i blósal meö brotnum stólum, gekk um hann þveran og visaöi okkur inn I matsalinn. „Viö erum meö saltkjöt og snitzel og þiö vilj- iö auövitaö kjötiö. Ég þarf nú ekki aö spyrja aö þvl” sagöi hún. Nú var eiginlega oröiö of seint aö snúa viö,enda var hún komin inn i eldhúsiö og búin aö panta snitzel fyrir tvo. Viö settumst viö borö meö afar óhreinum borödúki og litum I kringum okkar. I þriggja metra hæö þöktu málverk veggi meö myndum af Islenskum fossum, fjöllum og vötnum. Þarna voru nokkrar stelpur aö háma i sig skyr á næsta boröi, örugglega skólastelpur. Skyndilega kom 11- 12 ára gamall patti inn og skellti . ausunni ofan i skyrskálina svo aö slettist uppá stelpurnar allar og næstum þvl á okkur. Stelpurnar ruku upp á nef sér, en strákurinn hélt sínu striki. Svo fengum viö matinn. Ég fékk tvær sneiöar af snitzeli nokk- uö seigu, en ljósmyndarinn fékk aöeins eina sneiö, en hitt stykkiö var buff. Viö hömuöumstviö aö boröa þó aö hægt gengi, borguöum.þökkuö- um kurteislega fyrir okkur og flýttum okkur svo Ut undir bert loft. Sennilega yröu dúkarir þvegnir ef Jónas boöaöi komu sina og kannski fengju þeir þá 5 I einkunn Ég ætla hins vegar aö leyfa mér aö gefa þeim minus 24 I einkunn eftir örstedkerfinu — en þaö er annaö mál. Guöjón u ári rennur garnla króhán skeið með mattri áferð mýnda og Ieturs í sitt á enda. Um næstu áraínöt leysir ný mynt fægðum grunni óg innsigluð í glæran ramma í hana af hólmi. sérstökum gjafaöskjum. Ótal minningar hljóta að tengjast lýð- veldispeningunum og öllu því amstri sem snúist hefur um öflun þeirra og ráðstöfun á mesta uppgangstíma þjóðarinnar. Síðasta sláttan af gömlu lýðveldismynt- inni er einkum ætluð þeim sem vilja eiga sýnishorn af þessum gömlu kunningjum til minja. Aðeins 15000 sett eru slegin. Þetta litla upplag veldur því að salan verður takmörkuð við 5 öskjur til hvers kaupanda til 15. apríl n.k. Síðasta sláttan er frá upphafi verð- mætari en venjuleg gjaldgeng mynt. Vönduð s'látta og lítið upplag tryggir að hún muni hækká i verði þegar fram líða stundir. Verð- mæt gjöf til vina. Síðasta sláttan er sérunnin hjá Royal Mint í London. Hún er í viðhafnarbúningi Sölustaðir: Seðlabanki íslands, Hafnarstræti 10, Reykjavík. Viðskiptabankarnir og útibú þeirra. Helstu myntsalar. Dagur í L Stundum dettur mér I hug aö halda dagbók og gefa hana út. Þá slyppi ég viö þaulhugsaöa skáldsagnagerö og yfirvegaöa flló- sóflu, gæti bara dritað á pappirinn daglegri baráttu minni viö náttúruöfl eins og börn og stofnanir. Verst, aö þaö yröi svo fjári lygilegt. Ég vakna viö aö einhver hefur kveikt á dagsljósinu og beint því I andlitið á mér. Eitthvert barn er að hrista mig bllðlega og segja „hann Óli er niöri og vill tala viö þig”. Sama barn hefur löngu fyrr um morguninn ómakaö sig upp meö Þjóöviljann og komiö honum fyrir I örmum mér. Ég vef mig út úr siöunum og slaga niöur á nærbrókinni meö andlit og arma útmakaða I prentsvertu og háriö eins og eftir lokaæfingu á armageddon. Enginn af ólunum þrem sem ég þekki er á stigapallinum. Afturá mótier þar lokunarmaöur frá rafmagninu, sem af tilvilj- unheitir ólafur og hefur lent I hálftlma snakki við börnin áöur en þau fengust til aö viöurkenna aö móöir þeirra byggi í sama húsi. „Ég er hérna meö miöa....” segir hann lamaöri röddu. Þá er ég búin aö líta á klukkuna og sé aö ég hef ekki fengið nægan svefn. „Svona gulan meö stjörnu, ha? fannstu engan hurðarhún til aö stinga honum á, þetta stjörnugat er fyrir huröarhúna. Og svo get ég bara sagt þér, þetta er annað áriö sem ég segi þetta einu sinni I mánuöi, ég borga tvo reikninga þegar ég fæ þá og þriöja reikn- inginnnæsta mánaöamót. Ég veit ekki hvaö fær þessa stofnun til aö halda aö ég geti borgað sextlu þúsund á einu bretti fyrir orku. ólafur segist vera sendur af tölvu, þeir ráöi ekkert viö þetta, en hann geti svo sem fariö meö miöann aftur. Sem hann gerir. Einhver hefur ekki tekiö til I eldhúsinu, svo ég verö aö gera þaö. Morgunmat, hádegismat, börn I skóla. Barn heim úr skóla. Hvaö skyldi kosta fyrir þrjú á breskan heimavistarskóla? „Mamma, ertu aö fara að vinna?” „Já.” „Langar þig ekki I eitthvaö hressandí?” „Þú átt viö hvort þú getir fengið 140 hitaeiningar af svona tannskemmandi freyöidrykk”? „Já. A ég aö kaupa Spur fyrir þig?” „Þú átt aö kaupa tvær Spur.” „Get ég ekki fengiö verkamannablóö?” „ENGINN I MINNI FJÖLSKYLDU DREKKUR VERKA- MANNABLOÐ.” „OOOOHHHHH, ég er oröinn svo leiöur á svona BLÓÐ- PLASMA!” „Þá geturöu flutt.” Hann ákveöur að búa áfram og kaupir tvær Spur. Ég sest og horfi stjörfum augum á ritvélina. Píni andagiftina á papplrinn og er aö hitna, þegar afkvæmið rekur nefiö I gættina. „Er þetta önnur haröærisbók? ” „Er þetta hvaö?” „Nú, þetta er bókamarkaöurinn — þú og Siguröur — eintómar haröærisbækur. Af hverju skrifið þiö ekki eitthvaö spennandi?” „Ég get svo sem skrifaö „Agent 03”, dagbók símastúlku”. „Fífl,” segir hann og skellir huröinni. Vinnufriöur. Þangaö til hann lemur I vegginn sín megin og gargar: „Hættu þessu flissi.” Ég sé hundrað ára ártiö mlna fyrir mér. Þá veröur hann spuröur af einhverjum menningarfrömuöi hvernig rithöfundur- inn hafi veriö I sambúö og sem móöir. „Ferleg, alveg.... (snýr þumlinum niöur eins og rómverskur keisari). Misheppnuö hugsjónamanneskja, drakk t.d. ekki kók lengi og þjáöist alveg svakalega. Sitt á hvaö heyröi ekki þegar maöur talaöiviöhana.eöa stökk á mann og hrópaöi: „Þaö er ég, þaö er ég, ég er mamma þln, má ég kynna mig...” algjört neyöarúrræöi sem móöir Gott aö ég verö ekki þar. Svo koma hin börnin heim og neyða mig I eldhúsiö. Ég finn allt sem þarf I kvöldmatinn og siminn hringir. Millibarniö svarar og segir: „Hún mamma min datt I stiganum og fótbrotnaði og kemst ekki I simann. Þaö er bannaö aö'láta hana fara á fætur.” Síðan gengur hann gegnum eldhúsiö og segir rólega: „Þetta var þessi fulla, leiöinlega. Ég vildi ekki trufla þig frá matnum, ég er svangur.” Nágranninn hringir mitt I kjötbollunum og vill vita hvort ég geti ekki bariö út eitt verslunarbréf fyrir hann. Hann er svo heppinn aö eiga ekki ritvél. Ég lofa því og hann skilar sér eftir sjónvarp. Mitt I heitum umræöum um auövaldshyggju hans og gróðasjónarmiö, hringir slminn aftur. Og nágranninn situr á hveitipoka á rúminu mlnu meöan bóndi fer meö ljóö fyrir mig á annan tíma I slmanum. A milli kvæöa reyni ég aö koma aö nágrannanum sem situr meö höfuöiö milli hnjánna vegna plássleysis og blöur. Nágranninn fær aö bíöa gegnum öll höfuöskáld Islendinga og nokkur minni háttar. Ég og bóndinn ræöum siöan rófnarækt og hvort rófur séu góöar eöa vondar. Mér þykja þær vondar, þaö er komiö fram yfir miö- nættiog ef nágranninn sofnar i rúminu mlnu þá gæti oröið erfitt aö vekja hann og skila honum. Verslunarbréfaskriftum lýkur um eittleytiö og maöurinn fer heim til konunnar sinnar sem hefur ekki orö á þvl aö viö hljótum aö hafa skrifaö þingsályktun á þessum tfma. Þegar ég sest viö ritvélina til aö berja áfram á hugverkinu, er bariö á dyrnar. Kona hrópar á hjálp fyrir utan. Þegar ég opna, veltur inn eldri kona meö blóöið streymandi úr andlitinu. Nauög- un, hugsa ég og hugsa svo, nei, sennilega ekki. Ég vef eldhúsrúll- unni um höfuö konunnar, styö hana I stól og klukkan hálffjögur um nóttina get ég gert FBI stórgreiða, þvl ég kann ævisögu kon- unnar utanbókar. Hún hefur dottiö niöur stiga, fengiö höfuöhögg týnt töskunni sinni og gleraugunum, og ráfaö um bæinn þangaö til hún sá ljós I húsi. Og ég gefst upp á sálusorginni og fæ aöstoö lögreglunnar. Stofugólfiö er eins og eftir maflubardaga Skrlö i rúmiö, en áöur en ég dett út af lft ég á þessa hálfu setn- ingu f ritvélinni: „Viöburðasnauöir og tunreytingarlausir dagar lífs mfns....”

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.