Þjóðviljinn - 30.03.1980, Blaðsíða 11
Sunnudagur 30. mars 1980 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
Jean Babtiste
GODIN
Ofnasmiðurinn sem bjó til
fyrirmyndarþjóðfélag
Elstu ofnar eða kamínur
sem enn eru í framleiðslu
draga nafn af hönnuðinum
Jea n-Babtiste André
Godin. I daglegu tali nefn-
ast ofnarnir Godin-
kamínur og sá fyrsti ofn-
inn dagsins Ijós árið 1889/
aðeins stuttu áður en upp-
hafsmaðurinn gaf upp
andann. En Godin gamli
var ekki aðeins ofnsmiður,
hann varð víðfrægur, rétt-
ata sagt alræmdur fyrir
þjóðfélagshugmyndir sin-
ar og kenningar um fyrir-
myndarsamfélagið.
Jean Babtiste byrjaöi að fást
viö ofnsmiöi um 1840. Þá fékk
hann einkaleyfi á kaminu sem
hönnuö var meö þaö i huga aö
Hinn frægi ofn Godins. Hann
teiknaöi kaminuna 1888 og hún er
enn framleidd i óbreyttri
mynd.
nýta til fullnustu kolaorkuna.
Aöur hafði hann veriö sendifull-
trúi. Faöir Goains var hins vegar
lásasmiöur og hann kenndi syni
sinum smiöaiönina.
Verkamenn
meðeigendur
En Godin vakti fyrst og fremst
athygli á sér sem hugmynda-
smiöur aö nýrri þjóðfélagsgerö.
Hugmyndir hans voru I stuttu
máli þær, aö sameign væri heppi-
legasta lausnin. Almenningur
ætti aö búa I stórum sambygging-
um, reka sameiginlegar verslanir
og allar stöövar er snertu félags-
lif, menntun og heilbrigði skyldu
vera sameign.
Godin lét sér ekki nægja oröin
ein. Hann veitti öllum hagnaöin-
um af ofnasölu sinni i aö byggja
upp draumasamfélagið. Smám
saman byggöi hann svonefnt
„fjölskyldufélag”, sem hann
hannaöi af sömu nostursemi og
visindahug og hann byggöi
hina vönduöu ofna sina.
Fjölskyldufélagiö var dæmi um
hiö komandi fyrirmyndarþjóð-
félag. Þaö samanstóö af stórum
sambyggingum og áriö 1877
bjuggu 1145 manneskjur I félag-
inu og deildu kjörum. Hugmyndin
var sú aö hver einstök fjölskylda
var eining I einni stórfjölskyldu.
Hin risastóra sambygging
myndaði stóra garöa, þar af voru
nokkrir meö gleryfirbyggingu.
Bakviö húsin var sameiginlegur
skemmtigaröur og þar var einnig
barnaheimiliö og ungbarnavistin
sem meðlimir stórfjölskyldunnar
ráku sameiginlega.
Godin geröi verkamennina aö
meöeigendum I ofnaverksmiöj-
unni sem hélt þessari þjóöfélags-
tilraun fjárhagslega uppi. Fyrsta
kynslóö meöeigenda var hins
vegar svo skelkuö yfir þessu
uppátæki Godins aö hún kastaði
hlutabréfunum I fljótiö. Hvaö gat
ekki gerst ef verksmiöjan færi á
hausinn? Þegar Godin lést,
ánafnaöi hann verkamönnunum
verksmiöjuna.
Stúlkur og drengir
Enn sjást merki um þessi fjöl-
skyldufélög Godins I Frakklandi.
Byggingarnar standa ennþá, t.d. I
Guise i N-Frakklandi. Þar lifði
fjölskyldufélagiö allt fram til
1967, en varð aö leggja upp laup-
ana er stjórn de Gaulle bannaöi
sameignarfélög. I Laekenf Belgiu
ekki langt frá Brilssel kom Godin
einnig upp samskonar félagi og
fluttu siðustu meölimirnir ekki
þaöan fyrr en 1971!
A nitjándu öld bar mikiö á
draumum um hiö fullkomna þjóö-
félag. Godin var þó meðal fárra
sem hrinti hugmyndum sinum i
framkvæmd. A árunum 1859-77
voru hinar ýmsu sambyggingar
reistar i Guise. I þeim var aö
finna loftræstingu, vatn, ljós.hita
og salerni. Þetta þótti hreinasti
lúxus í verkamannabústööum á
þeim tima. Þar aö auki kostaöi
Ibúöin i fjölskyldufélaginu 9.60
franka miöaö viö 12 franka hreysi
I Guise.
Þaö var ekki nema von aö rikj-
andi þjóðfélagsöfl i Frakklandi
reyndu aö gera Godin tortryggi-
legan. Fésýslumennirnir og pen-
ingaaöallinn fyrtist út i sam-
vinnuhugmyndir hans og ekki
bætti þaö úr skák aö meölimir
fjölskyldufélaganna gátu keypt
mat og aörar llfsnauösynjar á
framleiösluverði.
Godin lét ekki staöar numiö.
Hann kom efnalaug á laggirnar
og stofnaöi skóla sem byggöi á
Rafmagnsveitur ríkisins
óska að ráða nokkra rafvirkja til eftirlits-
starfa, með búsetu á Suður- og Vestur-
landi.
Nánari upplýsingar veitir starfsmanna- |
stjóri. Umsóknir með upplýsingum um j
menntun, aldur og fyrri störf sendist Raf- !
magnsveitum rikisins, Laugavegi 118.
Rafmagnsveitur rikisins
Laugavegi 118
Reykjavik
Þjóöfélag Godins var langt á undan sinum tima. tbúöirnar voru betur
hannaöar og búnar meiri þægindum en þá tiökaöist, stúlkur og drengir
voru saman i bekkjum og verkamennirnir voru meöeigendur f verk-
smiöju fjölskyldufélagsins.
skólaskyldu barna, yngri en 14
ára. Stúlkur og drengir voru
saman I bekkjum, og vakti sú
ráöstöfun mikla hneykslun sam-
tiðarinnar. Nemendur áttu einnig
tækifæri á styrkjum aö skóla-
göngu lokinni og gátu bæöi sótt
lista- og handiöaskólann I Chalons
eöa kennaraskólann I Laon.
Grímuball í stað
messu
Fjölskyldufélag Godins vakti
einnig mikla heift og hneykslun
góðborgara Guises þar sem með-
limirnir sóttu ekki kirkju á
sunnudögum, heldur héldu þá
grimuball i göröum sinum. Sér-
stök grimuböll voru einnig haldin
fyrir börnin og leikhúsiö sem
Godin haföi látiö reisa viö hliö
sambygginganna bauð upp á
góöar leiksýningar meö úrvals
leikurum sem sérstaklega var
boöiö frá Paris og öörum leikhús-
miðstöövum.
1 sambyggingunum var einnig
aö finna góö bókasöfn, tónlistar-
sali , matsali og stórt sameigin-
legt eldhús ef menn vildu þaö viö
hafa. Godin vildi aö fólk kæmi
nær hvert ööru. Menn sem konur
tóku þátt I sameiginlegum
skemmtunum og fundum og al-
gert jafnrétti réöi i þessu litla
samfélagi.
En kannski hneykslaöi þaö
samtimann mest aö margar
konur i fjölskyldufélaginu klipptu
hár sitt...
(-im endursagði úr DN)
BARATTL8AMKOMA
nERSTÖDVMNDSTÆDINOA
VERÐL R LtALDIN I
LÉIAGSSTOLNUN STÚDENTA
Sunnudaginn 30. mars kl. 14.00
jœeo
Dagskrá:
1. Avarp miönefndar Samtaka herstöövaandstæbinga: Guömundur Georgsson, formaöur SHA
2. Ræöa: Kjartan Ólafsson, ritstjóri.
3. Söngur: Kjarabót.
4. Ljóöa- og smásagnalestur: Nina Björk Arnadóttir, ólafur Haukur Sfmonarson og Baldur
Óskarsson. Brlet Héöinsdóttir les smásögu eftir Svövu Jakobsdóttur
5. Félagar úr Alþýöuleikhúsinu flytja leikþátt eftir Gunnar Karlsson.
6. Guömundur Ingólfsson leikur á pianó.
7. Dagskrárhlé I salnum. Stúdentakjallarinn opinn.
8. Eyþör Gunnarsson, Gunnlaugur Briem, Jóhann Asmundsson og Elien Kristjánsdóttir úr
Messoforte ásamt Karli Sighvatssyni ieika.
9. Sönghópur Rauösokka.
10. Ljóöa- og smásagnalestur: Elisabet Jökulsdóttir, Guöbergur Bergsson, Kristinn Reyr, Svein-
10. björn Þorkeisson.
11. Bubbi Morthens ásamt hljómsveit.
12. Ljóða-og smásagnalestur: Anton Helgi Jónsson, Dagur Sigurösson, Valdis óskarsdóttir, Þór-
arinn Eldjárn.
Kynnir á samkomunni: Kristján Guölaugsson. Föndur og barnagæsla á meöan samkoman stendur
TWIi'ininirii nii iuimii----------