Þjóðviljinn - 30.03.1980, Blaðsíða 5
Sunnudagur 30. mars 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Dýrustu hótelherbera
heims eru í Norðursjó
ibúðarpallurinn „Alexander
Kielland” sem hvolfdi á Ekofisk-
svæðinu i NorOursjónum með
hörmulegum afleiðingum, er
siður en svo stærsti fbúðarpallur
Norðmanna.
Innan tiðar verður Ibúðar-
pallurinn „Henrik Ibsen,” sem
bráðlega verður tekinn i notkun,
dýrasta hótel i heimi ef svo má að
orði komast, þvi þar búa starfs-
menn olfuvinnslunnar I Norður-
mikill hrollur sé i mönnum eftir
hið voveifilega slys, er Alexander
Kiellandhvolfdi, og starfsmenn
Ekofisksvæðisins hugsi meira um
lif sitt og öryggi en ómæld lífs-
þægindi.
Ekki höfum við neinar
skýringar á reiðum höndum
hvers vegna Norðmenn kalla
ibúðarpalla sina eftir frægum
norskum þjóðskáldum. Ibsen þarf
varla að kynna, en Alexander
Kielland var mikill og góður
skáldsagnahöf undur er uppi var á
19. öld og skrifaði ekki sist gegn
trúarofstæki á V-Noregi og gagn-
rýndi ákaft hið mikla peningaflóð
er streymdi inn i Noreg er iðn-
væðingin hófst að marki. Eflaust
hefði honum ekki verið að skapi
að láta skira Ibúðarpall eftir sér
sem notaður yrði I tengslum viö
hið nýja gullæði, oliuævintýrið.
<-im tók saman)
sjónum.
„Henrik Ibsen” getur hýst 600
verkamenn á Ekofisksvæðinu, en
með tilkomu þessa nýja ibúðar-
palls eru nú alls herbergi fyrir
2500 starfsmenn Ekofisksvæöis-
ins. Þegar sagt er að þetta séu
dýrustu hótel I heimi er tekið
viðmiðun af þvi, að hvert her-
bergi slikra ibúðapalla hefur
kostað um 5 miljónir norskra
króna eða rúmlega 400 miljónir
islenskar.
Alls kyns þægindi
Það er fyrirtækið Stavanger
Drilling sem á Ibúðapallinn
„Henrik Ibsen.” Pallurinn veröur
tekinn I notkun innan tiðar og
verður i þjónustu Phillips
Petroleum. Talsmenn Phillips
hafa lýst þvi yfir að pallur þessi
búi yfir fullkomnustu hótelher-
bergjum i heimi. Flest herbergin
eru tveggja manna, og þar er að
finna öll nýtiskuþægindi og að
sjálfsögðu bað og salerni.
„Henrik Ibsen” býr einnig yfir
fjölda annarra herbergja og sala
sem starfsmennirnir hafa sam-
eiginleg not af. Þar er að finna
kvikmyndasal, sem rýmir 200
manns, og sérstök sjónvarpsher-
bergi eru einnig til staðar. Þá er
leikfimissalur á pallinum og
lestrarsalur og spilaherbergi.
Helmingur „gestanna” getur
snætt samtimis I hinum geysi-
stóra matsal pallsins.
4,4 miljarða í
endurbyggingu
Tveir sjúkraliðar eru um borð,
og hafa eigin læknisstofu og rann-
sóknarstofu til sinna afnota.
Sjúkrastofan er i beinum
tengslum við þyrludekkið, þannig
að flytja má slasaða eða veika
menn viðstöðulaust i land, ef þörf
er á.
Endurbygging „Henrik Ibsens”
kostaði 55 miljónir norskar eða
um 4.4 miljarða isl. króna.
Pallurinn var byggður upphaf-
lega i Frakklandi 1976 og kostaði
þá 235 miljónir norskar eða um 19
miljarða isl. króna.
Þrátt fyrir hinn mikla lúxus,
sem virðist rikja um borð i slikum
ibúöarpöllum, er ekki laust við að
Skálhyltingur
— blað Nemenda-
sambands
Skálholtsskóla
„Skálhyltingur” 1. tbl. 1. árg.
blað Nemendasambands Skál-
holtsskóla er komið út.
Ritstjórn skipa: Steinarr Þór
Þórðarson og óskar Bjartmarz. A
forslðu blaðsins er merki sam-
bandsins, gert af Þorleifi
Magnússyni.
1 blaðinu er að finna ýmsan
fróöleik um Skálholtsskóla og
nemendasamband hans. M.a.
grein um 10 ára afmæli Skálholts-
skólafélagsins, sem var á siðast-
liðnu ári, eftir Þórarin Þórarins-
son, fyrrv. skólastjóra, annál um
yfirstandandi vetrarstarfsemi,
eftir Kristinu B. Sigurjónsdóttur,
þar sem m.a. kemur fram að
þessahelgi (29.-30. mars) safnast
fyrrverandi nemendur saman
heima i Skálholti og halda árlegt
nemendamót.
Ennfremur má nefna greinar
eftir Heimi Steinsson rektor:*
„Nokkur orð um lýðháskóla”,
Óskar Bjartmarz: „Nemenda-
samband Skálholtsskóla” og
Steinarr Þórðarson, sem skrifar
um ráðstefnu norrænna lýðhá-
skólanema, sem haldin var I Sva-
löv I Svíþjóö siöastliðiö vor.
Lokar
þú augunum fyrir
staóreyndum?
„Kaupmaður kaupir 10 egg á 100 krónur.
Hann selur þau aftur á 120 krónur. Hve mikill
er gróði kaupmannsins?“
Þetta gamla skólabókardæmi er aðeins örlítið
brot af þeim misskilningi, sem ríkt hefur
hérlendis um viðskipti og verslun. Það er
nefnilega ómögulegt að reikna út gróða, án
upplýsinga um kostnað verslunarinnar.
Álíka misskilningur hefur einnig ríkt um inn-
lenda heildverslun. Akaflega margir loka
beinlínis augunum fyrir staðreyndum varð-
andi hlutverk heildverslunar í nútíma þjóð-
félagi.
Það er staðreynd að samkeppni í heildverslun
er grundvöllur vöruúrvals og vörugæða. Það
er líka staðreynd, að ranglát löggjöf um
heildsöluálagningu hefur staðið innlendri
heildverslun fyrir þrifum.
Það er ekki hægt að loka augunum fyrir því,
að heildverslunin einfaldar vörudreifingu og
gerir hana ódýrari; um leið og samkeppnisfær
heildverslun stuðlar að hagkvæmu vöruverði,
skapar hún atvinnu í atvinnugreinum, sem
flest okkar líta á sem sjálfsagða þjónustu.
Frjáls atvinnurekstur í lýðræðisríkjum er trygging þín fyrir daglegri
þjónustu, sem öllum finnst sjálfsögð.
Betri þjónusta og fjölbreyttara vöruúrval, með öflugri heildverslun,
er stór hluti þeirrar tryggingar.
Stundum gleymist bara hve heildverslun er nauðsynleg.
viöskipti
&veizlun
OSA