Þjóðviljinn - 10.04.1980, Page 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 10. april 1980
MOWIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalyðs-
hreyfingar og þjóðfrelsis
útgefandi: Ctgáfufélag ÞjóBviijans
Framkvœmdastjóri: EiBur Bergmann
Ritstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson.
Fréttastjóri: Vilborg HarBardóttir
UmsjónarmaOur SunnudagsblaBs: Ingólfur Margeirsson.
Rekstrarstjóri: Olfar ÞormóBsson
AfgreiBslustjóri: Valþór HiöBversson
BlaBamenn: AlfheiBur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, GuBjón FriBriks-
son, Ingibjörg Haraldsdóttir, Magnús H. Gislason, Sigurdór Sigurdórsson.
Þingfréttir: Þorsteinn Magnússon.
tþróttafréttamaöur: Ingólfur Hannesson.
l.jósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Elísson
útlit hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Sævar GuBbjörnsson
Handrits- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar.
Safnvöröur: Eyjólfur Arnason
Auglýsingar: SigriBur Hanna Sigurbjörnsdóttir, Þorgeir Olafsson.
Skrifstofa: GuBrún GuBvarBardóttir.
Afgreiösla: Kristin Pétursdóttir, Bára Halldórsdóttir, Bára SigurBar-
dóttir.
Simavarsla: ölöf Halldórsdóttir, SigriBur Kristjánsdóttir.
Bfistjóri: Sigrún BárBardóttir
HúsmóBir: Jóna SigurBardóttir
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir.
Útkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn GuBmundsson.
Ritstjórn, afgreiOsla og auglýsingar: SIBumúIa 6, Reykjavfk.simi 8 13 33.
Prentun: Blaöaprent hf.
Sveltur sitjandi kráka...
• Helgi Seljan alþingismaður hefur lagt fram tillögu
til þingsályktunar um nýtingu kolmunna og vinnslustöð á
Austurlandi. Með frystingu og þurrkun í huga. ( ýtar-
legri greinargerð með tillögunni hefur flutningsmaður
aðallega stuðst við skrif Magna Kristjánssonar skip-
stjóra og athuganir Sigurjóns Arasonar hjá Rannsóknar-
stofnun fiskiðnaðarins. Þrátt fyrir að íslendingar hafi
tekið þátt í norrænu verkefni um þróun kolmunnaveiða,
tilraunir hafi verið gerðar með veiðar og verkun kol-
munna til manneldis, athuganir á markaðsmöguleikum
gefi ástæðu til bjartsýni, þá dróst kolmunnaafli Islend-
inga saman um helming á sl. ári, úr 40 þúsund tonnum
1978 í 20 þúsund tonn 1979. Á sama tíma jukust kolmunna-
veiðar í heiminum úr 560 þúsund tonnum í 1.2 miljónir
tonna.
• Það er kominn tími til þess að við hættum að messa
og hef jumst handa, segir Magni Kristjánsson í grein í
Þjóðviljanum. Sjálf ur hverfur hann nú til starfa erlendis
vegna aðgerðarleysis eftir að hafa talað fyrir daufum
eyrum um árabil. í greinum Magna hefur m.a. komið
fram að stofnstærð kolmunnans sé áætluð 10 til 12
miljónir tonna og árlegt veiðiþol a.m.k. 1.5 miljónir
tonna. Ætla má að hlutur fslendinga gæti orðið um 200
þúsund tonn í þessu veiðimagni, en margar þjóðir kepp-
ast nú við ýmis konar vinnslutilraunir á kolmunna, og
Ijóst er að nýting til manneldis mun vaxa mjög hratt á
næstu árum, en nú fer mestallur kolmunnaafli til
bræðslu.
klippt
j Svanasöngur
j Vilmundar
Vilmundur Gylfason alþingis-
I maður var dagskrárstjóri I eina
■ klukkustund sl. sunnudag. 1
rauninni var þetta svanasöngur
■ Vilmundar sem menntamála-
ráðherra. Þvi háttar þannig til,
að fyrir þvi er orðin hefð aö
■ útvarpið byður ráöherrum
I menntamála að gerast
■ dagskrárstjórar i eina klukku-
stund. Þannig hafa MagnUs
■ Torfi Ólafsson, Vilhjálmur
■ Hjálmarsson og Ragnar
" Amalds allir brugðiö sér i gervi
dagskrárstjóra og gefið hlust-
endum sýnishorn af smekk sin-
! um og áhugamálum meö efnis-
I vali. Vilmundi var aö sjálfsögöu
■ boðiö að setja saman stundar-
| langa dagskrá, en af útsendingu
m varð ekki fyrr en setustjórn
| krata hafði verið velt úr stólum.
j Endurreisn
j dr. Gylfa
I Ekki brást Vilmundi smekk-
x visin fremur venju, og notaöi
■ tækifærið i svanasöng sinum til
■ þess aö sveigja til hins itrasta ef
í ekki brjóta þriöju grein
I útvarpslagnna um óhlutdrægni i
í MINNINGU
Langt seilst til þess að endur-
reisa dr.Gylfa.
dómum um menn og málefni. 1
sem stystu máli varöi
Vilmundur klukkutima i sina
eigin túlkun á nokkrum áföng-
um I sjálfstæöisbaráttu þjóöar-
innar og miðaði allur sá barn-
ingur að þvi að varpa mildari
ljósi en gert hefur veriö á hlut
Stefáns Jóhanns Stefánssonar
og Gylfa Þ. Gislasonar i
Islandssögunni á fimmta tug
aldarinnar og siöar. 1 leiðinni
þurftisvoað verja nokkru máli I
aö endurreisa Pál Briem úr
miðlunarfeni og Valtý
-------------.99
Guömundsson úr uppkasts- J
flækju. En megnið af dagskrár- I
tima Vilmundar fór I það að ata J
auri ýmsa þá menn sem hvað |
einarðastir hafa verið i sjálf- ■
stæðisbaráttu íslendinga. Miklu I
er kostað til I þeim tilgangi að „
fegra fööurmyndina.
Sérstaklega kveinkaði I
Vilmundur sér undan landráða- ?
tali þeirra sem heitir hafa veriö |
I sjálfstæðismálum, en gætti ■
þess vandlega að nefna það ekki |
einu orði að þeir kynnu sjálfir að "
hafa orðið fyrir ýmsum svivirð- ■
ingum og brigslum i samtlma ■
umræöu.
Loksins fundinn
Miklar umræður hafa orðið aö ■
tilstilli nokkurra frjálshyggju- |
manna og Morgunblaðsins um ■
pólitiska innrætingu I skólum. I
Illa hefur þó gengið að finna m
þann kennara sem gæti veriö ■
dæmi um þessa skelfilegu inn- I
rætingu.
Þvi var það aö einn af |
menntaskólakennurum i höfuð- ■
borginni, sem hlýtt hafði á |
boðskap Vilmundar, lét sér m
eftirfarandibrð um munn fara á |
kennarastofu: „Ef Vilmundur j
Gylfason heldur fram þessari ,
söguskoöun i M.R. þá er loksins I
fundinn menntaskólakennarinn ■
sem heldur uppi pólitiskri |
innrætingu i timum simun.” ■
— ekh |
shoríð
• Rökin fyrir því að haf ist sé handa af alvöru við kol-
munnaveiðarnar hérlendis eru þau að innan tveggja ára
má ætla að af li verði kvótaskiptur milli veiðiþjóða, og í
slíkum samningum hlýtur að verða tekið tillit til afla
hverrar þjóðar á síðustu árum. óverjandi er að nýta ekki
vannýtta fiskistofna við landið, afkoma þjóðarbúsins
leyf ir ekki aðtækifæri til aukinnar gjaldeyrisöf lunar séu
látin ónotuð og nokkur hluti f iskiskipaf lotans er verk-
efnalaus einmitt á þeim árstima sem hentar til kol-
munnaveiða frá (slandi. Magni telur að nýta megi nú-
verandi fiskiskipaflota til þess að setja markið hátt og
veiða 100 þúsund lestir af kolmunna á þessu ári og 200
þúsund lestir á því næsta.
• 'f fróðlegu erindi á aðalfundi Rannsóknaráðs rfkis-
ins rakti Sigurjón Arason kolmunnarannsóknir, vinnslu-
tilraunir, markaðsverð og markaðsmöguleika. ( dæmi
sem sett var upp kemur fram að verðmætasköpun við
kolmunnaveiðar sem næmu 200 þúsund lestum og af linn
verkaður í skreið og mjöl gæti orðið 7.6 miljarðar ís-
lenskra króna. Hér er því um miljarða að ræða sem hægt
er að sækja ísjávardjúp ef rétt er að staðið.
• Helgi Seljan leggur áherslu á að vinnslustöð með
fullkomnum búnaði sé brýn nauðsyn og með afstöðu til
miða sé rétt að hún rísi á Austurlandi. Miðað við þau
verðmæti sem í húfi eru og nauðsyn til þess að tryggja
fslendingum aflakvóta til frambúðar sýnist augljóst að
hagkvæmt geti verið að opinberir aðilar geri út á til-
raunaveiðar og verðuppbót verði greidd á kolmunna
meðan verið er að þróa veiði- og vinnsluaðferðir, þannig
að útgerðar- og vinnsluaðilar fáist til þess að f itja upp á
nýjungum.
• A síðasta ári veiddu Sovétmenn um 760 þúsund lestir
af kolmunna í Norðausturdjúpi rétt utan við íslensku 200
mílna mörkin. A sama tíma minnkuðu kolmunnaveiðar
Islendinga um helming og afturkippur kom í allt þróun-
arstarf á þessu sviði í ráðherratíð Kjartans Jóhannsson-
ar sem sjávarútvegsráðherra. I vetur hafa tvö full-
komnustu fiskiskip Færeyinga verið að kolmunnaveið-
um með „nýju tæknina" á vegum opinberra aðila. A (s-
landi eru menn að missa af tækifæri til þess að beina
sókn úr of nýttum stofnum í vannýttan. „Sveltur sitjandi
kráka en f Ijúgandi fær", er málsháttur sem á við um út-
haldsleysi fslendinga við þróun kolmunnaveiða.
— ekh.
Ásgeirs
verkfræöings
Fœddur 13. jan. 1927
Dáinn 2. april 1980
Asgeir Hjálmar Karlsson er
fæddur I Bakkageröi á Borgar-
firöi eystra. Foreldrar hans voru
þau Karl Hjálmarsson, kaup-
félagsstjóri á Þórshöfn og siöar á
Hvammstanga og Halldóra
Asgrimsdóttir.
Ásgeir lauk stúdentsprófi frá
Akureyri 1947, og prófi I
byggingarverkfræði frá
Kaupmannahöfn 1954. Ariö 1965
stundaði hann framhaldsnám 1
heilnæmisvörnum á vatni I
Gautaborg. Hann var verkfr. hjá
Landnámi rikisins 1954—60 og hjá
Glostrup kommune i Danmörku
frá 1960.
1954 kvæntist Asgeir Ingi-
björgu, sem fædd er aö Skála á
Færeyjum, dóttir Johans
Johannesens kennara og Inge-
borgar Johannesen, f. Djuurhus.
Börn þeirra eru Jón Ásgrlmur
Halldóra og Ingibjörg.
Þaö er annar I páskum. Hugan-
um rennt yfir allt það sem ætlað
var að afreka um þessar hátiðir.
Meðal annars að fara í nokkrar
spitalaheimsóknir. Enn er stund
til að efna það heit. Ég tek upp
slmtólið aö fregna af einum
sjúklingnum. Konan hanskemur I
simann. Vissirðu ekki að Asgeir
dó á miðvikudaginn! Ég reyndi
að ná i þig, segir hún mildri
röddu. Of seint, of seint. Ég hrökk
ögn viö. Við erum svo önnum kaf-
in við að njóta lifsins og gefa eins
litið af sjálfum okkur til annars
og viö framast komumst af með.
Viö ætlumsttil mikils af öörum en
gleymum of oft að gera kröfur til
sjálfra okkar þegar aðrir þurfa á
að halda. Eitthvaö á þessa leiö
varð mér hugsað þegar ég ætlaöi
aö láta veröa af þvi aftur að llta
til vinar mlns Asgeirs H. Karls-
H. Karlssonar
sonar, sem lést miðvikudaginn 2.
aprilslðastliöinn.
Bjartar minningar um glaðar
stundir æskuáranna hrannast að
mér. Det var pS Frederiksberg,
det var i maj. Já, það var vor I
Kaupinhafn eins og fegurst getur
oröið, þegar viö Asgeir fundumst
fyrst. Hávaxinn, grannur og
bjartur. Bláu augun hans og bros-
ið vöktu fyrst athygli mína. Þá
hæglátt fasið i öllum gáska okkar
og þvi betur sem við kynntumst
hlýjan hans, glettnin án græsku
og kannski ekki slst gáfurnar þar
sem sanngirnin réö rlkjum.
Hann var hlédrægur, um of
fannst galgopa eins og mér.
Viö urðum ferðafélagar um
Evrópu endilanga og betri vinir á
eftir.
Fundum okkar bar of sjaldan
saman eftir að hann kom heim frá
námi með indæla konu með sér,
Ingibjörgu af færeysku bergi. Þar
var mikiö jafnræði með valmenn-
um.
Þá sjaldan við fundumst réði
gleðin ein ofar hverri kröfu. Þaö
voru ánægjustundir sem best er
lýst I ljóöum og söngvum.
Mitt I þeim söngleik dynur
ólánið yfir. Asgeir missir heils-
una og er vart hugaö Hf eftir
áfallið.
Þá sýndi Ingibjörg, að hún
kunni margt fleira en dansa
færeyskan dans betur en flestir.
Með hennar hjálp og barnanna
náöi Asgeir furðu góöum bata.
Það var eitt af kraftaverkum
mannkærleikans, þar réöu úrslit-
um umönnun og ástúð hans
nánustu.
Það sem engum hafði komiö til
hugar kom á daginn. Asgeir var
oröinn vinnufær.
Hann starfaði slöan um árabil á
tæknideild Kópavogsbæjar.
Þá vann stærsta sigur sú sem
hefði mátt eiga meiri stuöning
okkar hinna á stundum.
Um slðustu áramót dró nokkuð
snöggt til tlðinda um heilsu
Asgeirs og lauk þvl strlði nú rétt
fyrir páskahátlöina. Enn sem
fyrr stóð Ingibjörg sem klettur og
börnin þeirra.
Um léiö og ég votta þeim samúð
mina og aðdáun og minnist
Asgeirs með trega, þessa glaða
ljúflings sem átti betri, margfallt
betri örlög skiliö — langar mig að
minna okkur sem eftir stöndum á,
að við mættum ef til vill hugleiða
betur til hvers við lifum.
Hjálmar Ólafsson.
Húsbruni
á Akureyri
1 fyrrakvöld varö húsbruni á
Akureyri þegar kviknaði I húsinu
Lundargötu 3, sem er gamalt
timburhús.
Verulegt tjón varð ekki i bruna
þessum, en þó nokkurt.
Veriö var að flytja húsmuni
burt úr húsinu þegar eldurinn
varö laus. Eldsupptök eru ókunn.
-úþ