Þjóðviljinn - 10.04.1980, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 10.04.1980, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 10. april 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Samþykkt aðalfundar Sambands fiskvinnslustöðva Lán úr Fiskveiðisjóði verði miðuð við gengi „Nú eru geröar réttmætar kröf- ur til fiskvinnslunnar um fram- leiöniaukningu. Ljóst er aö slikt gerist ekki nema greinin geti nýtt sér þá tækniþekkingu sem völ er á hverju sinni. Þvi hlýtur aö vera ein grundvallarforsenda aukinn- ar framleiöni aö fiskvinnslan í landinu sé rekin meö nokkrum hagnaöi.” Svo segir m.a. I álykt- un aöalfundar Sambands fisk- vinnsiustöövanna, sem haldinn var i lok siöasta mánaöar. 1 ályktuninni segir einnig, aö á siöasta áratug hefur vaxta- kostnaöur fiskvinnslu sem hlut- fall af tekjum vaxiö úr þvi aö vera 2% 110%. Vextir séu þvi nú oröinn þriöji stærsti útgjaldaliöur fisk- vinnslunnar. Þá telur aöalfundurinn rökrétt, aö lánskjör hjá fjárfestingalána- sjóöum veröi meö sama hætti hjá veiöum og vinnslu, jafnframt þvl sem fundurinn hafnar þvi alfar- iö, aö lán úr Fiskveiöisjóöi séu bundin byggingarvisitölu, en tel- ur aö fremur eigi aö miöa viö gengi, enda er tekjumyndun fisk- vinnslunnar aö mestu þvl háö. Aöalfundurinn varar einnig viö samþykkt frumvarps um tekju- og eignaskatt, þar sem þaö boöi auknar álögur á fiskvinnsluna, auk þess sem hætta er á aö veru- lega dragi úr atvinnuþátttöku kvenna I fiskvinnslu vegna boö- aöra breytinga um skattlagningu hjóna. — ig Bygging hjúkrunarheimilis i Kópavogi Yfir hundraö ungmenní lialda stvrktartöníeika Hornaflokkur Kópavogs og Hamrahliðarkór- inn í Háskólabiói A sunnudag 13. april, kl. 10.00 veröa haldnir tónleikar I Há- skólabiói til styrktar byggingu Hjúkrunarheimiiis aldraöra i Kópavogi. Eru þaö yfir 100 ung- menni i Hornafiokki Kópavogs og Hamrahliöarkórnum sem efna til þessaratónleika og ganga þannig til liös viö hina umfangsmiklu söfnun i Kópavogi. Hornaflokkur Kópavogs er skipaöur fyrrverandi nemendum Skólahljómsveitar Kópavogs og eru hljóöfæraleikarar um 40 tals- ins. A efnisskránni n.k. sunnudag er komiö vlöa viö og veröur tekist á viö lúörasveitarmarsa, beat- tónlist og allt þar á milli. Stjórn- andi Hornaflokks Kópavogs er Björn Guöjónsson, sem einnig hefur stjórnaö Skólahljómsveit Kópavogs frá upphafi. Hamrahliöarkórinn er einnig meö fjölbreytta efnisskrá. A henni er m.a. islensk tónlist, madrigalar, negrasálmar og þjóölög frá ýmsum löndum. A þessu skólaári er kórinn skipaöur 57 nemendum á aldrinum 16-21 árs. Stjórnandi er Þorgeröur Ingólfsdóttir, en hún hefur stjórn- aö Hamrahlíöarkórnum frá upp- hafi. Allur ágóöi af tónleikunum rennur til byggingar Hjúkrunar- heimilis aldraöra I Kópavogi. Hornaflokkur Kópavogs leikur undir stjórn Björns Guöjónssonar. Hamrahliöarkórinn syngur undir stjórn Þorgeröar Ingólfsdóttur. Miöar eru seldir á skrifstofu Hjúkrunarheimilisins aö Hamra- borg 1, simi 45550. Miöaverö er kr. 3.500. Alþýðubandalagid í Reykjavfk: Viðtalstímar þingmanna og borgarfulltrúa Laugardaginn 13. apríl kl. 10-12 verða Guðmundur J. Guðmundsson alþingismaður og Sigurður G. Tómas- son borgarfulltrúi til viðtals fyrir borgarbúa á skrif- stofu flokksins að Grettisgötu 3. Borgarbúar eru hvattir til að nota sér þessa viðtals- tima með því að koma á skrifstofuna á umræddum tíma. Canon Verðlækkun Vegna verðlækkunar erlendis bjóðum við núna Canon NP-50 ljósritunarvélina á aðeins 1690 þúsund krónur, sem er 260 þús- und króna LÆKKUN! Ljósritar á venjulegan pappir og glærur. BJÓÐA AÐRIR BETUR 1 VERÐBÓLG- UNNI? TIL ATHUGUNAR: Það er á allra vitorði að Canon fyrirtækið framleiðir aðeins FYRSTA FLOKKS vörut en ef til vill er ekki öllum ljóst að framleiðsla þeirraeri mörgum tilfelium á lægra verði en sam- bærileg framleiðsla hjá öðrum óreyndari framleiðendum skrifstofutækja. ÞAÐ BESTA ER ÆTtÐ ÓDÝRAST t REKSTRI Slrtrifuélin hf Suðurlandsbraut 12 Simi 8 52 77 Staða aðstoðarlæknis til eins árs við Lyflæknisdeild Landakots- spitala er laus til umsóknar. Veitist frá 1. júli ’80. Umsóknir er greina einkunn og fyrri störf sendist til yfirlæknis Lyflæknis- deildar fyrir 5. mai n.k. St. Jósefsspitali Reykjavík. MYNDUSTA- OG HANDÍÐASKÓLI ÍSLANDS Námskeið í veggmyndatœkni fyrir starfandi myndlistamenn verður haldið 11. april til 5. mai mánudaga og föstudaga kl. 18-22. Kennari verður Jörgen Bruun-Hansen frá konunglegu akademiunni i Kaupmanna- höfn. Tilkynnið þátttöku á skrifstofu skólans, Skipholti 1. Skólastjóri. Ll81333 DIÓÐVIUINN Síðumúla 6 s. 81313 Blaðberar athugið! Rukkunarheftin eru tilbúin á afgreiðslu blaðsins. Vinsamlega sækið þau strax,svo skil geti farið fram sem fyrst. DIOÐVIUINN Siðumúla 6, simi 81333.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.