Þjóðviljinn - 10.04.1980, Page 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 10. aprll 1980
Rimini-
ferðirnar
vinsœlar
Eins og áöur hefur veriö skýrt
frá hér i biaöinu bjóöa nú Sam-
vinnuferöir-Landsýn upp á feröir
til nýs sólarstaöar, Rimini á
Italiu.
Siöan uppskátt var gert um
þennan nýja sólarstað hefur
ekkert lát orðið á pöntunum
þangað og i marsbyrjun var upp-
selt i nokkrar ferðirnar. Vegna
hins mikla áhuga á Riminiferð-
unum hefur skrifstofan aukið
sætaframboð þangað verulega.
Vonir standa til að takast megi að
mæta óskum sem flestra, sem
fara vilja. Einhverjir munu þó
þurfa frá að hverfa.
Vegna aukinna umsvifa hefur
starfsfólki Samvinnuferða-Land-
sýnar verið fjölgað. Þá hefur og
verið lagt i verulega stækkun og
breytingar á húsakynnum skrif-
stofunnar i Austurstræti 12.
Auk þess að skipuleggja
hópferðir leggur ferðaskrifstofan
áherslu á fyrirgreiðslu við þá,
sem ferðast sem einstaklingar i
áætlunarflugi. (Jtvegar hún
ódýrustu möguleg fargjöld hjá
öllum flugfélögum heims og
annast auk þess án þóknunar frá
viðskiptavinum hótelpantanir,
útvegun leigubila og annars sliks.
________________ -mhg.
Norrœn
einstak-
lings-
keppni
í skóla-
skák
Helgina 15.-16. mars sl., var
haldin i Osló norræn æskulýðs-
málaráðstefna um skák og jafn-
framt stjórnarfundur i Skáksam-
bandi Norðurlanda.
Til að efla enn norrænt skák-
samstarf var samþykkt aö gera
eftirfarandi m .a.:
Norræn einstakiingskeppni I
skólaskák.
Til viðbótar árlegri sveita-
keppni i grunn- og framhaldsskól-
um, verður á næsta ári hleypt af
stokkunum einstaklingskeppni
(Norðurlandamóti) i fimm
aldursflokkum fyrir skóla-
nemendur. Eða 1) fyrir skák-
menn 10 ára og yngri, 2) fyrir
skákmenn 11 til 12 ára, 3) fyrir
skákmenn 13-14 ára, 4) fyrir 15
ára skákmenn og 5) fyrir
framhaldsskólanema.
Rétt til þátttöku eiga 2 nemend-
ur (skákmenn) 1 hverjum aldurs-
flokkifrá hverju landi, eða alls 10.
Verður hér því um að ræða 50-60
manna mót hverju sinni.
Mótið veröur haldiö i fyrsta
sinn i Sviþjóð i lok janúar 1981, en
hér á landi 1984.
Dagana 21.-24. ágúst i haust fer
fram hér I Reykjavik grunn-
skólakeppni Norðurlanda, en þar
er skáksveit Alftamýrarskóla nú
N oröurlanda meista ri.
Rof abarð að blása upp.
Takið eftir manninum,
sem stendur við barðið,
jaá sjáið þið þykkt
jarðvegsins, sem þarna
er að fara forgörðum.
_____________________► .
Meðal þeirra, sem erindi fluttu
á ársfundi Rannsóknarráðs rikis-
ins,var dr. Björn Sigurbjörnsson,
forstjóri RALA. Fjallaði erindi
hans um rannsóknir vegna land-
græðsluáætlunar 1975—1979, og
skiptist I þrjá megin þætti:
Búfjárbeit, grös til uppgræðslu-
fræræktar og loks vistfræði. Viö
höfum birt hér i blaðinu útdrátt
úr tveim fyrri köflum erindisins.
Verður nú vikið að vistfræöinni.
Þriðji liðurinn, sem veitt var til
fé af þjóöargjöfinni, var vist-
fræðirannsóknir. Markmiö með
þeim rannsóknum var að meta
áhrif búsetu mannsins og búskap-
ar á náttúruna og aö sumu leyti
áhrif náttúrunnar, einkum veður-
fars, á skilyröi til búskapar. Þessi
verkefnaliður skiptist i rannsókn-
ir á áhrifum af:
— Framræslu mýra.
— Áburði til uppgræðslu.
— Gæsa- og álftabeit.
— Þróun rofabarða.
Rofabörð eru það, sem oftast
vekur menn til umhugsunar um
að meira þurfi að gera 1 land-
græðslumálum. Halda rofabörðin
áfram að blása upp og hve hratt.
Stundum er gripiö til þeirra ráða
að græöa sárin og forða frá frek-
ari uppblæstri, oft með góöum
árangri.
Stundum er deilt um það hver
langtimaárangurinn veröur af
sáningum og áburði á illa farið
eða örfoka land. Þvi hefur verið
slegiö fram án nokkurra raka, að
það sé llkast þvi að mála uröina
með grænum vatnslit. Staðreynd-
ir tala best i þessu máli sem
öðrum.
Hvaö sýnir Ketlusandur?
Rétt eftir 1950 var hafinn
búskapur á svokölluðum
Ketlusandi, suövestur af
Gunnarsholti. Þar var þá svartur
sandur, sem rauk i moldarbál i
norðan belgingum. Þarna var sáð
túngrösum, borið á og landið nýtt
til heyskapar 13—4 ár en eftir það
stóð landið áburöarlaust og ófrið-
að þar til 1976, — 20 árum siðar, —
að gerð var úttekt á gróðri og
dýralffi þessa svæðis, ásamt
samhliða úttekt á svörtum sandi I
nágrenninu, sem aldrei haföi
fengið fræ né áburð. Þessi
timabundna ræktun og áburðar-
gjöf hefur leitt til þess að landið
breytti um svip til langframa, þvi
þarna er nú hinn viökunnanleg-
asti mosa-, gras-, runna- og lyng-
gróöur, fullur af smádýrum og
varpfuglum.
Stór-
hættu-
legt
segir Heilsu-
hringurinn um
fluor i neysluvatni
Heilsuhringurinn er mjög and-
vigur hugmyndum um að blanda
fluor i neysluvatn og teiur þaö til-
tæki mannréttindabrot. Var eftir-
farandi áiyktun samþykkt á fundi
hjá Heilsuhringnum þann 29.
mars s.l.:
„Heilsuhringurinn mótmælir
harðlega hugmyndum, sem nú
eru uppi, um að blanda fluor i
neysluvatn landsmanna, og telur
slikt alvarlegt brot á almennum
mannréttindum.
Samkvæmt gögnum, sem liggja
fyrir, frá ýmsum löndum,
byggöum á visindalegum rann-
sóknum, gæti slik framkvæmd
orðið stórhættuleg lifi og heilsu
manna, að menga þannig neyslu-
vatnið. Heilsuhringurinn skorar á
landsmenn að kynna sér vel allar
röksemdir, sem það félag hefur
komið á framfæri, fyrr og nú,
varöandi flúorblöndum i neyslu-
vatn.”
-mhg.
Rannsóknir á mýrum
Stærsti liðurinn I stækkun túna
á tslandi siðustu áratugina hefur
verið framræsla mýra, en taliö er
að búið sé að ræsa fram um 10%
af mýrum landsins. Þurrkun
mýranna breytir gróðurfarinu og
hefur áhrif á fuglalif og annað
dýralif þeirra.
Til þess að rannsaka þessar
breytingar var valin óframræst
mýri I landi Tilraunastöðvar-
innar á Hesti. Var öll náttúra
hennar rannsökuð vendilega áöur
en settir voru I hana framræslu-
skurðir. Er nú fylgst með þeim
breytingum, sem verða fyrir
áhrif framræslunnar, og hefur
auk þess verið tekin til saman-
burðar fjallamýri (á Mosfells-
heiöi, i landi Heiðarbæjar).
Nokkuð hefur verið fylgst með
áhrifum gæsa- og álftabeitar i
túnum og bithögum. Sömuleiðis
hafa verið aldar upp villigæsir og
svanir á tilraunastöðinni að
Þormóðsdal og mælt hversu
mikið fóðurmagn þær láta i sig.
Gróðurkort
Af rannsóknarliö landgræöslu-
áætlunar var varið um 1/4 til að
hraða gróðurkortagerð og er frá
mörgu að segja um framgang
mála þessi fimm ár, en þar sem
gróðurkortagerð og ákvörðun
beitarþols var gerð nákvæm skil
af mag. Ingva Þorsteinssyni á
siðasta ársfundi Rannsóknarráös
1978 verður ekki fjölyrt um þann
liö nú.
Lokaorð
Aö lokum sagöi dr. Björn Sigur-
björnsson: Ég hef nú greint frá
framkvæmd einnar stærstu og
margbrotnustu rannsóknar-
áætlunar, sem gerð hefur verið
hér á landi, og timans vegna
aöeins getað nefnt nokkur helstu
atriðin. Þvi meir sem leið á
áætlunartimann þvi ljósari hefur
orðið stærð og vandi verkefnisins,
sem leysa þarf. Við höfum stigiö
nokkur skref I sókninni gegn
landeyðingu og höfum um leið
vakið miklu fleiri spurningar en
þau svör, sem fengist hafa við
lok þessa 5 ára timabils. Slik
leiftursókn getur komið áhlaup-
inu af stað en við eigum enn eftir
að vinna striðið. Við búum i þessu
landi og höfum nytjar af þvi; en
framtiðarbúseta I landinu verður
ekki tryggö nema við hindrum
frekari eyðingu jarðar og gróðurs
og finnum leiðir til að lifa i sátt
við náttúruna.
Landgræðsluáætlunin verður
að halda áfram — það er litið
gjald fyrir 1105 ára búsetu I
landinu. Nú er verið aö undirbúa
landgræðsluáætlun II — 1981-1986
þar sem gert er ráö fyrir aö halda
áfram á þeirri braut, sem mörkuð
var 1974. Ég vil skora á alla
áheyrendur að styöja áframhald
nýrrar landgræðsluáætlunar,
sem ljúki ekki fyrr en við getum
sagt með stolti: „A tslandi er ekki
lengur gróður- og landeyðing af
völdum búsetu landsmanna, sem
mannlegur máttur getur komið I
veg fyrir.”
-bs/mhg.
Uppgrætt rofabarð. Svona er unntaðsigrastá eyðingaröf lunum.
rannsóknir
Gengissvig og genglsbrun
Jafnframt þvf sem gengisfell-
ingar hafa orðið meira og meira
feimnismál i kerfinu, hefur
orðaforðinn sem lýsir þessu
fyrirbæri aukist. Nú kemur aö
jafnaði fram eitt nýyrði I hvert
sinn sem þessi myrkraverk eru
framin, en nýyrðunum er ætlað
aö milda þau og mýkja i hugum
almúgans.
í gamla daga var talaö opin-
skátt um gengisfellingu eða
gengisfall, gengislækkun,
gengishrap og gengishrun. Svo
og gengisstökk
af 100 króna palli
fóru nýyrðin á stjá eitt af öðru,
örvæntingarfullar tilraunir til
að hilma yfir svikin kosninga-
loforð, — gengisbreyting (sem
þýddi þó aldrei gengishækkun),
gengissig og gengisflot (eða
fljótandi gengi) og fleira i þeim
dúr.
Nú siöast harðneitaöi Tómas
á teppinu þvi að gengisfelling
væri á döfinni, en þegar hún var
samþykkt þann sama dag sagði
ráðherrann að þetta hefði alls'
ekki verið gengisfelling, sei sei.
nei, heldur gengissig i einu
stökki! Já sigandi gengislukka
er best.sagði skáldiö.
Þetta leiðir hugann að þvi
hvort ekki beri sem fyrst aö
taka upp skiðamál i gengismál-
um og bjarga ráðherrum þannig
fyrir horn næst þegar dlukkans
gengið tekur upp á þvi að siga I
einu stökki.
Þá yrði talað um gengis-
göngu, gengissvig, gengisstökk
(af 50 eöa 100 krónu palli) og
gengisbrun. Gengismunarsjóö-
ur fengi þá nafnið gengisbruna-
sjóður.
Annars hefur heyrst að ný-
yrðanefnd hafi þegar á taktein-
um feluorðið, sem á að nota
opinberlega næst þegar gengið
tekur undir sig stökk, — nefni-
lega gengis khan.