Þjóðviljinn - 10.04.1980, Page 12
12 SIÐA — ÞJÓDVILJINN Fimmtudagur 10. april 1980
Laus staða
Staöa styrkþega viö Stofnun Arna Magmlssonar á Islandi
er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsökn sinni rækilega
skýrslu um visindastörf þau er þeir hafa unniö, ritsmíöar
og rannsóknir svo og námsferil sinn og störf.
Umsóknir skulu sendar menntamálaráöuneytinu,
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavik, fyrir 1. mai n.k..
Menntamálaráöuneytiö, 28. mars 1980.
Aðalfundur
Sfýrimannafélags tslands verður haldinn
að Borgartúni 18 laugardaginn 12. april kl.
14.00.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf skv. félagslögum.
2. Stjórnarkjöri lýst.
3. önnur mál.
Stjórnin.
UPPBOÐ
verður haldið i félagsheimilinu Stapa i
Njarðvik, laugardaginn 12. april n.k. kl.
13.30.
Seldur verður upptækur vamingur, þar á
meðal Land Rover bifreið, hljómburðar-
tæki, útvörp, hljómplötur, fatnaður,
skrautmunir og ýmislegt fleira.
Greiðala fari fram i reiðufé við hamars-
högg.
Lögreglustjórinn á Keflavikurflugvelli.
31. mars 1980.
i Starfsfólk vantar
nú þegar á skóladagheimilið Auðarstræti 3
i heilt og hálft starf. Upplýsingar hjá for-
stöðumanni i sima 27395.
■ ■■ Felagsmalastofnun Reykjavikurborgar
DAGVISTUN BARNA, FORNHAGA 8 SIMI 27277
Ritari
Óskum eftir aö ráöa ritara, nú þegar, til starfa I Fjár-
máladeild vorri.
Starfið krefst reynslu og færni i skrifstofustörfum.
Frekari upplýsingar veitir Starfsmannahald.
SAMVINNUTRYGGINGAR g.t.,
Armúla 3.
Simi 38500.
Herstöðvaandstæðingar Kópavogi
halda baráttusamkomu
laugardaginn 12. apríl
í Þinghól Hamraborg 11
Þar verður minnst 30. mars og hernáms Breta
áislandi en 10. mai næstkomandi eru 40 ár liðin
síðan breskir hermenn stigu hér á land.
A samkomunni mun
m.a. Asgeir Svan-
bergsson, kennari,
flytja ávarp. Auk þess
verður ljóðaupplestur
og tónlistarflutningur.
Fjölmennum.
S.H.A. Kópavogi.
Umsjón: Magnús H. Gislason
Björg
Þórðardóttir
sendir
(Jr Vatnsfiröi á Baröaströnd.
Fréttabréf af
Barðaströnd
Eftirfarandi bréf hefur Land-
pósti borist frá Björgu Þóröar-
dóttur, Tungumúla á Baröa-
strönd:
— Þaö er aö lföa á þennan vet-
ur sem hefur veriö meö ein-
dæmum góöur. Heilsufar á
mönnum og skepnum meö besta
móti. Fé hefur veriö beitt
óvanalega mikiö og kýr komu
ekki á algera innistööu fyrr en
um mánaöamótin okt.-nóv. s.l.
1 febrúar heimtust hér 6 kindur,
sem reyndar var búiö aö veröa
vart viö á milli jóla og nýárs, en
náöust ekki, enda þrjár af þeim
útigengnar frá i fyrra. Þessar
kindur átti Einar bóndi I
Ytri-Múla.
Smalamennskan sitt á
hvað
Sú hliö, sem aö smala-
mennskunni snýr hér I hreppi.er
ekki fögur. Þaö horfir til vand-
ræöa á hverju hausti aö ná hér
saman fé og veröa margir fyrir
stór tjóni af þeim sökum. Reglu-
legar göngur eru engar, ekki
samkomulag um sllka hluti.
Segja má aö Jón smali á mánu-
dag, en séra Jón á þriðjudag.
Þetta ástand hefur þaö I för meö
sér, aö fólk, sem komiö er á efri
ár, veröur aö hrökklast frá bú-
um slnum vegna þess, aö sú
samhjálp, sem tíðkast hefur viö
aö ná sauökindinni af fjalli, er
ekki lengur fyrir hendi. Ekki
virðist vera neinn vilji hjá ráöa-
mönnum sveitarinnar aö laga
þetta.
Búskapur lagöist aö mestu
niöur á fimm jöröum I Baröa-
standarhreppi á sl. hausti og er
þar skarö fyrir skildi, þar sem
fólk af þessum jöröum hefur séö
um smalamennsku á mjög
erfiöu landi til smölunar. Þaö er
vonandi aö þeir, sem notiö hafa
verka þessa fólks, komist I
skilning um þörfina á samstilltu
átaki varðandi fjallskil.
Tryggingafélög á
villigötum
Þegar veriö var aö meta þaö
tjón, sem varö hér I ofsaveðrinu
25. febrúar, datt mér I hug, aö
tryggingakerfiö þyrfti nú lag-
færinga viö. Hér á Baröaströnd
mun tjóniö hafa oröið einna til-
finnanlegast á Grænhóli, en þar
var ekki veöurtryggt. Aö sjálf-
sögöu er hverjum og einum I
sjálfsvald sett hvort hann
tryggir eöa tryggir ekki. Þaö er
jafnvel taliö, aö drasl frá hús-
um, sem voru aö fjúka á öörum
jöröum, hafi valdiö þessu tjóni á
Grænhóli, en þegar þannig
stendur á er enginn bótaskyld-
ur. Ber tryggingafélagi ekki aö
bæta þaö tjón sem veöurtryggö
hús valda á eignum annarra?
Þá fannst mér nú keyra um
þverbak þegar fariö var aö
meta tjóniö á fjárhúsagörmun-
um og hlöðunni hér I Tungu-
múla'. Þessi hús hafa staöiö I
mestu óhirðu, vægast sagt, I
fleiri ár, eöa slöan Landnámi
rikisins þóknaöist aö leggja
jöröina Tungumúla undir höfuö-
ból sveitarinnar. Er hægt meö
sanngirni aö fá pening út á hús,
sem eru algerlega óvarin fyrir
veörum? Hlaöan opin I annan
endann og veggirnir gengnir
undan húsunum. Eg hélt, aö þaö
sem tryggt væri yröi aö vera I
sæmilegu ástandi.
Astæöan til þess aö ég er aö
minnast á þetta er, aö I haust
ætlaöi ég aö veöurtryggja
gróöurhús, sem ég byggöi hér I
Tungumúla s.l. sumar, og þess-
vegna hringdi ég I Samvinnu-
tryggingar, en þaö umboö fer
meö mikinn hluta trygginga hér
á Barðaströnd. Eg fékk svar,
seint og um siðir, eöa nánar til-
tekiö tveim dögum áöur en hús-
iö fauk, aö gróöurhús væru ekki
tryggingarhæf, vegna
skemmdarverka, sem 1 þeim
væru unnin. Ég trúöi þessu og
fékk þar af leiöandi ekkert fyrir
húsiö þegar þaö fauk. Þetta er
ekki I fyrsta skiptiö, sem sá, er
minna má sln og kann ekki á
kerfiö, veröur undir I lifsbarátt-
unni.
Tungumúla 8/3 1980
Björg Þórðardóttir
Héraðsbókasafn Árnessýslu
Bókasafn Arnesinga er til
húsa aö Tryggvagötu á Selfossi,
á annarri hæö safnhúss sýslunn-
ar. A efri hæö er Byggöasafn
Arnessýslu staösett. Bókasafniö
er ágætlega staösett en húsa-
kynni of Iltil. Einkum er þörf á
rými fyrir skjalasafn.
Bókagjafir
Arlega berast safninu bóka-
gjafir, sem auka mjög gildi
þess. Er ánægjulegt til þess aö
vita aö til séu Arnesingar, sem
sýna safninu slíka ræktarsemi. I
júnl barst mjög höfðingleg gjöf
frá erfingjum séra Kjartans
Helgasonar og frú Sigriöar
Jóhannesdóttur frá Hruna. Var
það einkabókasafn þeirra
hjóna, 540 bindi. Er þaö mjög
fjölbreytilegt aö efni og margt
dýrmætra bóka og innbundinna
timarita, aðallega frá árunum
1850-1920. Stór hluti safnsins er á
erlendum tungumálum. —
Bókasafniö færir gefendum
innilegustu þakkir.
Kvenfélag Hraungeröis-
hrepps gaf safninu 10 hljóöbæk-
ur fyrir sjóndapra. Agúst Þor-
valdsson á Brúnastööum las inn
á 6 þeirra, m.a. minningabrot
Ketils Arnoddssonar og ýmis-
legt fleira.
Bókaeign: 1 árslok var bóka-
eign safnsins 15201 bindi. Keypt-
ar bækur á árinu voru 897. Gefn-
ar bækur á árinu voru 555.
Timarit: Timaritasafnið er
mjög gott. Safniö kaupir flest Is-
lensk timarit sem út koma og
einnig á þaö safn eldri tfmarita.
Timaritasafniö kemur safngest-
um ekki aö notum þar sem þaö
er óinnbundið. Eldri tlmaritin
eru þó innbundin.
Handbókasafn: A lesstofu er
gott safn Islenskra handbóka.
Afnot lesstofu eru of litil. Gera
þarfþar breytingu á starfsaö-
stööu fyrir nemendur og fræöi-
menn.
Hljóöbókaþjónusta: Safniö
hefur annast hljóöbókaþjónustu
fyrir sjóndapra, mest sem milli-
safnalán frá hljóðbókaþjónustu
Borgarbókasafns. Þó á safniö
talsvert af hljóöbókum (kasett-
um), sem velunnarar safnsins
hafa gefiö. Lánaöar voru 536
kasettur á árinu eöa um 240
færrien s.l. ár. Sjöndöprum lán-
þegum fækkaöi á árinu.
útlán: Lánuö voru út úr safn-
inu 50.283 bindi á árinu eöa 9
þús. fleiri bindi en á s.l. ári.
Miöaö viö aörar sýslur landsins
eru þetta mikil útlán.
Lánþegar: Skráöir lánþegar
voru 1009. Bókakassar til
sveitaheimila voru 227. útlán
voru einnig til Litla-Hrauns,
virkjana og ellillfeyrisþega.
Fjárframlög: Framlag Sýslu-
sjóös Arnessýslu kr. 3.200.000.
Framlag Bæjarsjóös Selfoss kr.
17.500.000. Afnotagjöld og
dráttareyrir kr. 1.336.780.
Spjaldskrá: Spjaldskrá er
lykill bókasafns. A árinu var
áhersla lögö á kaup á spjald-
skrárskáp og spjöld yfir bækur,
útgefnar eftir 1944. Spjaldskrár-
gerö er mjög timafrek og er
óhætt aö fullyröa aö þaö taki
sérhæft fólk nokkur ár aö koma
upp spjaldskrá fyrir svo stórt
safn sem Héraösbókasafn
Arnessýslu er.
Opnunartimi: Mánudaga —
föstudaga frá kl. 15 — 19.
Fimmtudaga kl. 15 — 20.
Lokað var I ágúst vegna
sumarleyfa.