Þjóðviljinn - 23.05.1980, Blaðsíða 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 23. mal 1980
Aðalfundur
Sjómannafélags
Reykjavíkur
verður haldinn i Lindarbæ, Lindargötu 9
miðvikudaginn 28. mai kl. 20.30.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál.
Félagar eru hvattir til að mæta og sýna
félagsskirteini við innganginn.
Stjórnin.
Lausar stöður
i*i
*N «*N
'V
Stöður HJÚKRUNARFRÆÐINGA:
aðstoðardeildarstjóri við heimahjúkrun,
hjúkrunarfræðingar við heilsugæslu i
skólum, berklapróf i skólum og barna-
deild. Heilsuverndarnám æskilegt.
Staða FÉLAGSRÁÐGJAFA.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri i
sima 22400.
HEILSUVERNDARSTÖÐ
REYKJAVÍKUR,
22. mai 1980.
F orstöðumannastöður
Staða forstöðumanns dagheimilisins
Hamraborgar og staða forstöðumanns
dagheimilisins Suðurborgar eru lausar til
umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 12. júni.
Fóstrumenntun áskilin.
Laun samkvæmt kjarasamningi borgar-
starfsmanna.
Umsóknir sendist til skrifstofu dagvist-
unar, Fornhaga 8, en þar eru veittar
nánari upplýsingar.
■ ■* Félagsmálastofnun Reykjavikurborgar
I j ^ 1)AGV1STLN BAKNA' FORNHAGA 8 StMI 27277
LAUSAR STÖÐUR
Við menntaskólann á ísafirði eru kennarastöður lausar til
umsóknar. Kennslugreinar sem um er að ræða eru: Við-
skiptagreinar (hagfræði, bókfærsla, viðskiptaréttur),
enska, stærðfræði, og eðlisfræði, saga og félagsfræði og
danska. Einnig er laust við skólann starf húsmóöur og
húsbónda í heimavist (samtals heil staða), svo og staöa
fulltrúa.
Upplýsingar veitir skólameistari i símum (94)-3599,
(94)-3767 eöa (94)-4119.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknir ásamt ýtarlegum upplýsingum um námsferil
og störf skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavik, fyrir 17. júni n.k.
Umsóknareyðublöð fást i ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið
20. mai 1980.
Heilsuverndarstöð
^7 Kópavogs
Meinatæknir óskast frá miðjum júli.
Upplýsingar hjá hjúkrunarforstjóra simi
40400.
Verðtrygging skyldusparnaðar ungs fólks:
„Margra ára ranglæti
úr sögunni
— sagði Helgi Seljan
Eins og fram kemur á baksiðu
blaðsins hafa stjórnarþingmenn
fengið samþykkt I efri deild Ai-
bineis að skvIdusDarnaður unes_
fólks skuli verðtryggður. Helgi
Seljan alþingismaður hefur beitt
sér mjög i þessu máiiog m.a. fluit
fyrr I vetur breytingartiilögu við
hiisnæðismálafrumvarpið til að
tryggja ungu fólki fullar verö-
bætur og vexti er þaö fær skyldu-
sparnað sinn endurgreiddan.
Þjóðviljinn ræddi við Helga um
mál þetta og bað hann fyrst að
gera grein fyrir breytingartillögu
sinni:
„Breytingartillögu minni var
ætlaö að tryggja skólafólki, sem
þarf að fá skyldusparnað sinn
endurgreiddan á miðjum vetri,
sem besta vexti og verðbætur”
sagði Helgi. „Breytingartillaga
min var svohljóöandi: Við endur-
greiðslu þá sem hér um ræðir, fær
umsækjandi fulla vexti og verð-
bætur sbr. 70 gr., til viöbótar við
inneign slna á hverjum tíma.
Sannleikurinn hefur verið sá aö
þó nemendur þessir hafi ekki tek-
ið út spariféð fyrr en eftir l.
febrúar (en 1. februar hafa vextir
og verðbætur verið reiknaðir út
hjá Veödeild Landsbankans) þá
hafa þeir nær enga vexti og engar
veröbætur fengið, þó féð hafi þá
staðið inni I 6-8 mánuöi. Þetta
stafar af þeim vinnureglum sem
munu upprunnar frá Seðlabanka
Islands og siðar komist á ein-
hvern veginn I reglugerð, að féð
verði að hafa verið inni á reikn-
ingi I eitt ár um hver áramót til
þess að 1. febrúar yrðu vextir og
verðbætur greiddar.
Nú er hins vegar um gerbreyt-
ingu að ræða samkvæmt þeirri
breytingu sem stjórnarþingmenn
geröu I efri deild á húsnæðismála-
frumvarpinu. I frumvarpinu
segir nú orörétt: „Innlagður
skyldusparnaður á hverjum tlma
fái grunngildi lánskjaravlsitölu
þess mánaðar. Þegar skyldu-
sparnaðurinn er tekinn út sé
sömuleiðis miðað við gildandi
lánskjaravisitölu I þeim mánuði.
Vextir af innistæðu skulu leggjast
við höfuöstól um hver áramót og
verðtryggjast á sama hátt og
höfuöstóllinn”.
Þetta þýðir stórkostlega réttar-
bót fyrir það unga fólk sem
skyldusparnaðurinn nær til.
Margra ára ranglæti er með
þessu úr sögunni. Um má deiia
hvort nægilega langt hafi verio
Þjngsjá
gengið, en stökkið er stórkostlegt
og leiðréttingin I fullu samræmi
við anda þeirrar breytingartil-
Iögu sem ég flutti. Þeir sem á
endurgreiðslu þurfa að halda
munu áreiðanlega fagna þessu og
mikill verður sá munur, er þeir
munu sjá að veröur á miðað við
það sem áður hefur gilt.”
Aukinn réttur sjómanna í veikinda- og slysatilfellum:
Halda kaupi í allt að
in ■—;í r K •
IqI 7 manuoi
Eins og skýrt er frá á
forsíðu blaðsins hefur Al-
þingi samþykkt breytingu
á sjómannalögum er felur í
sér aukinn rétt sjómanna
til launa í veikinda- og
slysatilefllum. Hér á eftir
fara þessi ákvæði í heild:
„Skipverji tekur kaup frá og
meö þeim degi, sem hann kemur
til vinnu á skipinu. Þurfi hann að
ferðast frá ráðningarstaö til skips
tekur hann kaup frá og með þeim
degi, er sú ferö hefst.
Skipverji tekur kaup til þess
dags og að honum meðtöldum er
ráðningu hans lýkur samkvæmt
ráðningar- eða kjarasamningi og
skiptir þá ekki máli þótt hann hafi
áður verið afskráður.
Ef skipverji verður óvinnufær
vegna sjúkdóms eða meiösla,
sem hann verður fyrir meðan á
ráðningartlma stendur skal hann
eigi missa neins I af launum sin-
um I hverju sem þau eru greidd,
svo lengi sem hann er óvinnufær
af framangreindum ástæðum, þó
ekki lengur en tvo mánuöi. Sé
skipverji I launalausu frii, er
hann veikist eöa slasast, tekur
hann laun frá þeim tíma er hann
skyldi hefja störf aö nýju. Skip-
verji, sem forfallast vegna veik-
inda, á þó ekki rétt til launa I fleiri
daga en hann hefur veriö I þjón-
ustu útgeröarmanns.
Hafi skipverji veriö ráðinn á
sama skip eða hjá sama út-
geröarmanni I tvö ár samfellt
skal hann, auk þess sem I 3. mgr.
segir, halda föstu kaupi, kaup-
tryggingu eöa sérlega umsömdu
veikindakaupi I allt að einn
mánuö, en I allt að tvo mánuði
eftir fjögurra ára samfelda ráðn-
ingu hjá sama útgeröarmanni.
Skipverji, sem forfallast frá
vinnu vegna slysa viö vinnu, á
leið til eöa frá vinnu, eða vegna
atvinnusjúkdóma sem orsakast
af vinnunni, skal fá greitt fast
kaup, kauptryggingu eöa sérlega
umsamið veikindakaup i allt aö
þrjá mánuði til viðbótar greiðsl-
um samkvæmt 3. mgr. og 4. mgr.
Skipverji á ekki rétt á kaupi
þann tima, sem hann hliörar sér
ólöglega hjá að inna störf sin af
hendi, né fyrir þann tima, sem
hann er óstarfhæfur vegna sjúk-
dóms eða meiösla, sem hann
hefur leynt visvltandi við ráðn-
ingu sina. Sama gildir ef skipverji
er ekki starfhæfur vegna sjúk-
dóms eða meiösla, sem hann
hefur sjálfur bakað sér af ásetn-
ingi eða stórfelldu gáleysi.
Nú vill skipverji neyta réttar
sins samkvæmt 3., 4. og 5. mgr.,
og skal hann þá, ef atvinnurek-
andi óskar þess, afhenda honum
vottorð læknis um veikindin eða
slysiö, er sýni, að hann hafi veriö
óvinnufær vegna veikindanna eða
slyssins”. — þm
Kjarnorkuvopn rædd á Alþingi:
KEFLAVÍK
SKOTMARK
samkvæmt upplýsingum NATÓ
Samkvæmt nýlegri skýrslu her-
málanefndar þingmannasam-
bands Atlantshafsbandalagsins
þá munu Sovétrikin leggja
áherslu á að eyðileggja
bandarisku herstöðina I Keflavik
i hugsanlegum átökum sem yröu I
þessum heimshluta. Það var
Stefán Jónsson alþingismaður
sem las þessar upplýsingar upp
úr skýrslunni við umræður utan
dagskrár á Alþingi I g®r.
Umræður hófust utan dagskrár
i efri deild með þvi að Eiður
Guðnason geröi að umtalsefni
frétt rikisútvarpsins um geymslu
kjarnorkuvopna hér á landi. Eið-
ur gagnrýndi fréttaflutning út-
varpsins og sagði að hann hefði
ekki samræmst reglum stofn-
unarinnar um fréttaflutning. Þá
óskaöi Eiður eftir þvi við utanrik-
isráðherra að hann aflaöi upplýs-
inga um þá bandarisku stofnun
sem útvarpið hafði frétt sina eft-
ir. Var auðheyrt á Eiði að hann
taldi þessa stofnun I meira lagi
vafasama þar eð starfsmenn
hennar hefðu leyft sér að gagn-
rýna bandariska utanrikisstefnu.
Ólafur Ragnar Grimsson lagði
einnig á það áherslu að upplýs-
inga yrði aflað um þessa stofnun,
en gagnrýndi Eiö Guðnason fyrir
að taka fyrirfram neikvæða af-
stöðu til hennar. Hér væri um al-
varlegt mál að ræða sem menn
yrðu að ræða af yfirvegaðri al-
vöru.
ólafur Jóhannesson utanrikis-
ráðherra sagöist myndu láta afla
upplýsinga um áðurgreinda
stofnun I Bandarlkjunum. Sagði
utanríkisráðherra að mikilvægt
væri að gengið yrði úr skugga um
það, hvort hér væru geymd
kjarnorkuvopn.
— þm