Þjóðviljinn - 23.05.1980, Síða 15
Föstudagur 23. mal 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
Hringið í síma 8-13-33 kl. 9-5 alla virka
daga eða skrifið Þjóðviljanum
lescndum
Að gefnu
tilefni
Tveir dagar hafa að minu áliti
oröið afdrifarlkastir og eftir-
minnilegastir á þessari öld: af-
greiðsla Alþingis á Keflavikur-
samningnum 1946 og inngangan
i Nató 1949. Blekkingar og hroki
ýmissa þingmanna meirihluta
Alþingis og virðingarleysið fyrir
kröfum almennings um þjóðar-
atkvæði, sem rigndi yfir þá
hvarvetna að af landinu I bæði
skiptin gleymast okkur aldrei,
er að þeim stóðu.
Ekki vantaði að ýmsir mætir
menn vöruðu viö hættunni af
langvarandi hersetu og vil ég
þar nefna Sigurbjörn Einars-
son, núv. biskup, Jóhannes úr
Kötlum og Halldór Laxness,
núv. Nóbelsskáld. En öll þau
Þarfaþing
Helgi Seljan alþingismaður
sendi okkur eftirfarandi visu
„með kærri kveöju til Þor-
steins Sæmundssonar stjarn-
fræðings fyrir hið ágæta fram-
lag hans til stuðnings Vigdisi
Finnbogadóttur”:
Ærumeiddan „orðsnilling
enginn skyldi flekka.
Frábært reyndist þarfaþing
Þorsteinn mannvitsbrekka.
varnaöarorð voru að vettugi
virt, einsog vilji almennings.
Hinir hörmulegu atburðir 30.
mars 1949 eiga sér enga hlið-
stæðu i þjóðarsögunni.
Seint mun ég gleyma hve löm-
uð við urðum, hinir fjölmörgu
andstæðingar hersetu og þátt-
töku 1 hernaöarbandalögum úti
á landsbyggöinni, þegar viö
fréttum af atburðum þessa
dags. Siöan allt sem i kjölfarið
fylgdi: hernaðaraögerðirnar:
réttarhöld, málssóknir, fangels-
anir. Náðu þó ekki til okkar,
frekar en gasmekkirnir eða
kylfubarsmíðarnar á Austur-
velli. Til hvaða samanburðar
hlaut hugurinn aö leita? Ekki
létti það hug manns, svarið við
þvi.
31 ár eru liðin. Ný kynslóð er
komin á sjónarsviðið. Þessi
nýja kynslóö eru börnin, sem ó-
gæfumennirnir 1949 leiddu yfir
hersetu stórveldis um ófyrir-
sjáanlega framtið með allri
þeirri spillingu sem reynslan
sýnir i dag að henni hefur fylgt.
Þetta blessað unga fólk þekkir
ekki annaö en her,,vernd”
þessa, og er þá ekki hættan sú
að það fari bara að telja hana
sjálfsagðan hlut, jafnvel ómiss-
andi? Og þá sem eru á önd-
verðri skoðun óþjóðholla, jafn-
vel landráðafólk? Sem betur fer
Stresstaskan
Ljósmynd — Gel
Hákon á Narfastöðum.
litur út fyrir i dag að fjöldi ungs
fólks fyrirliti allt hermangiö og
viljilosa landið sitt viö hermenn
og tortimingartæki þau sem fal-
in eru á Miðnesheiði. En, þvi
miður, hinir sem það ekki vilja
gerast æ háværari og skeyta
engu velsæmi.
Ljósasta og nýjasta dæmið er
hin fræga Morgunblaðsgrein frá
12. april s.l. Að visu hafa sem
betur fer ýmsir svarað henni á
verðugan hátt, en tilefni þess aö
ég læt hana ekki sem vind um
eyru þjóta er það glórulausa of-
stæki i garð okkar allra and-
stæðinga hersetu á Islandi, sem
er undirrót svona skrifa.
Málflutningurinn er i stuttu
máli sá, að hernámsand-
stæðingur má ekki gefa kost á
sér til framboðs til forsetakjörs
á Islandi, svo stór er glæpur
hans að hafa öndveröa skoðun á
„varnarmálunum” en háttvirt-
ur greinarhöfundur og hans
skoðanabræður.
Ef frambjóðandinn hefur t.d.
tekið þátt I Keflavikurgöngu,
undirritaö með 60 öðrum
íslendingum áskorun um brott-
för hersins, gefið fé i Málfrelsis-
sjóð o.þ.h. ber hann ábyrgð á
þvi sem aðrir segja á þessum
vettvangi; þeirra orð eru hans
orö, hann skal vera meö flekk-
aða fortið alla ævi. Svona hugs-
unarháttur getur varla verið til
kominn af ööru en þvi aö hafa
lifað undir hersetu i 40 ár — aö-
dáun á herraþjóðinni frá blautu
barnsbeini, þ.e. hernámi sálar-
innar I sinni nöktustu. mynd.
Gegn þvi dugir engin doktors-
gráða. Gegn svona viðbjóðsleg-
um hugsunarhætti verður að
snúast til varnar á þann eina
hátt-sem samboðinn er i siðuöu
þjóðfélagi.
Vinsæl og vammlaus kona og
allra hugljúfi, sem hana
þekkja, hefur gert okkur þann
heiður aö bjóða sig fram til for-
setakjörs, fyrst kvenna á
tslandi. Ofstækisfullur aödáandi
hersetu á tslandi finnur hvöt hjá
sér að reyna að ná sér niðri á
henni, fyrir þá óhæfu aö vilja
land sitt „engum þjóðum háö”.
Hann gerir það á þann hátt sem
hæfir hans hugsanagangi.
Við hernámsandstæðingar
hljótum þá að svara fyrir okkur
að gefnu tilefni og senda hana
Vigdisi til Bessastaða.
Hákon Jónsson,
Narfastöðum, S-Þing.
Kona nokkur átti mann sem
Bjarni hét: hann var litilfjör-
lega banghagur. Eitt sinn
heyrði hún menn ræða um
hvort hann mundi geta smiöaö
eitthvað er þeir ákváðu og
ætluöu hann mundi ekki geta
það. „Geta það,” mælti konan,
„hann hefur gjört þaö sem
meira er hann Bjarni minn, aö
skapa sjálfur börnin sin.”
Bhowani-stöðin
Sjónvarp
CF kl. 22.15
Föstudagsmynd sjónvarp-
sins gerist I Indlandi skömmu
eftir lok siðari heimstyr-
jaldar. Hún heitir Bhowani-
stöðin (Bohwani Junction) og
var gerð af Bretum árið 1955.
Leikstjóri er George
Cukor, sem frægastur er fyr-
ir glæsilegar myndir á borð
við My Fair Lady, A Star is
Born, The Philadelphia
Story, Blue Bird osfrv. Hann
er I hópi elstu Hollywood-
leikstjóra, kominn yfir átt-
rætt, og hefur stjórnaö kvik-
myndum i 50 ár, en áöur var
hann leikstjóri á Broadway.
Ava Gardner og Stewart
Granger leika aöalhhlutverkin
I Bhowani-stöðinni.
Myndin fjallar um bresk-
indverska konu, ástir hennar
og erfiöleika. Þýöandi er
Kristmann Eiðsson.
—Ih
F ermingardagur
(Jtvarp
kl. 10.25
Skeggi Asbjarnarson
stjórnar þættinum „Ég man
það enn” I morgunútvarpinu I
dag. Aðalefni þáttarins er
kafli úr minningum Hannesar
J. Magnússonar, „Ferming-
ardagur”.
— Hannes J. Magnússon
skólastjóri á Akureyri fæddist
1899 I Blönduhliö i Skagafirði,
og lést I Reykjavik 1972, —
sagði Skeggi. — Hann skrifaði
allmargar bækur, aðailega
minningar frá fyrri árum.
Kaflinn sem fluttur verður I
dag er úr bókinni „A hörðu
vori”, sem lýsir tiimabilinu
laust eftir aldamót.
Fermingar þá voru vissu-
lega tilbreytingarminni en nú
er, t.d. var engin veisla haldin
þegar Hannes fermdist. En
hann segir þarna nokkuö frá
prestinum sem fermdi hann,
séra Birni Jónssyni i Miklabæ.
Inn i lesturinn koma „eff-
eklar”: sálmasöngur og
klukknahringing þegar hann
lýsir athöfninni I kirkjunni,
osfrv.
Þá vérður nokkur tónlist I
þættinum. Marla Markan
syngur lagið „Nótt” og Ingi-
björg Þorbergs syngur gamalt
dægurlag sem var „óskalag
sjúklinga” I Danmörku fyrir
nokkrum áratugum. Það
heitir „Fjólur handa
mömmu” og Lilja Kristjáns-
dóttir þýddi textann. Þetta er
grátlag, en vekur til meö-
aumkunar með þeim sem eru
blindir og eiga bágt, — sagði
Skeggi að lokum.
—ih
HÚSNÆÐISMÁL
OG STÓRIÐJA
Tvöstórmái verða i Kastljósi I
kvöid. 1 fyrsta lagi veröur rætt
um húsnæðismáiin og þann
ágreining sem upp er kominn
á aiþingi vegna húsnæðis-
málafrumvarpsins. 1 frum-
varpinu er fjallað um löggjöf
varðandi lánveitingar og
skipuiag húsnæðismála og
húsbygginga.
Þeir Svavar Gestsson
félagsmálaráðherra og Þor-
valdur Garðar Kristjánsson
alþingismaður munu skiptast
á skoðunum um þetta mál, og
einnig veröur rætt viö Magnús
H. Magnússon alþingismann.
I siðari hluta þáttarins
verður leitast við að svara
stórri spurningu: er aukin
stóriðja eina svarið gegn verð-
bólgu, siauknum fólksflótta
frá landinu og minnkandi
þjóðarframleiðslu, eöa getum
viö „stækkað kökuna” meö
öðrum úrræðum? Rætt veröur
við Jóhannes Nordal Seðla-
bankastjóra um viðhorf og
tækifæri til aukinnar stóriðju
hér á landi og leitað álits
Kristjáns Ragnarsonar for-
manns LttJ og Vals Valssonar
framkvæmdastjóra Félags isl.
iðnrekenda.
Einnig munu ritstjórarnir
Jón Baldvin Hannibalsson og
Kjartan Olafsson skiptast á
skoðunum um úrræði 1 at-
vinnumálum.
£Ji. Sjónvarp
TT kl. 21.10
Stjórnandi Kastljóss I kvöld
er Helgi E. Helgason frétta-
maöur og honum til aðstoðar
Sæmundur Guövinsson blaða-
maöur.
—ih
Kastljósi verður beint að hús-
næðismálunum i kvöld.