Þjóðviljinn - 31.05.1980, Blaðsíða 5
Laugardagur 31. mal 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Menningar
dagar
á Akureyri
Eins og frá var skýrt í
blaðinu fyrir skömmu voru
dagarnir 8.-11. maf sér-
stakir menningardagar á
Akureyri. Þeir voru liður í
samnorrænu starfi MFA-
samtakanna á Norðurlönd-
um. Tvo þessara daga, 9.
og 10. maí, var haldin ráð-
stefna sem bar heitið
Vinnustaðurinn og heimilið
og var hún þungamiðja
menningardaganna.
Stefán ögmundsson, formaður MFA, setur ráðstefnuna á Akureyri.
hlaupa fram hjá lífinu”
Merk og ýtarleg ályktun var
samþykkt i lok ráðstefnunnar um
vinnuumhverfi fólks, hollustu-
hætti og öryggi á vinnustöðum,
óeðlilega langan vinnutima al-
mennings og lágt kaup, fáar og
strjálar fristundir og litinn tima
verkafólks til að sinna heimilum
sinum og börnum.
I ályktuninni segir m.a.: „Þaö
hlýtur aö vera hræöilegt að upp-
götva að leiðarlokum, að maður
hafi hlaupið framhjá lifinu án
þess að taka eftir þvi og of seint er
að snúa til baka. Og standa þá
frammi fyrir þeirri staðreynd, að
til litils hafi verið barist.”
Astæðan er vitaskuld sú, segir
Þarf að afnema
nætur- og
helgidagavinnu
ennfremur I ályktuninni, að
vinnutimi langflestra er alltof
langur, vinna verði tvöfaldan
vinnutima eigi að fást tekjur til
nauðsynlegrar framfærslu og af-
leiðingar þessarar vinnu-
þrælkunar bitna á börnunum.
Timi til að sinna þeim verður allt-
of naumur, hvað þá heldur að
unnt sé að rækta áhugamál sin og
hvilast.
Til að bæta hér um verði að
koma á 40 stunda vinnuviku og
telur ráöstefnan að verkalýðs-
hreyfingin eigi að freista þess að
ná samstöðu um að nætur- og
helgidagavinna verði afnumin og
dagvinnukaup hækki að sama
skapi.
I lok ályktunarinnar er fjallaö
um húsnæðismál og segir þar orð-
rétt:
„I framhaldi af þvi sem hér aö
framan greinir um styttingu
vinnutima og auknar fristundir,
leggur ráöstefnan áherslu á, að
húsnæöismálin eru hér mikil-
vægur þáttur. Hér skal sérstak-
lega bent á félagslegar fbúða-
byggingar sem lausn, þar sem
greiðslukjör eru viðráöanleg,
hvort heldur um er aö ræða kaup
á eigin húsnæði eða leiguhúsnæöi,
sem einnig er brýn þörf á. Nú
liggur fyrir Alþingi frumvarp til
laga um verulegt átak i félags-
legum ibúöabyggingum og
treystir ráðstefnan þvi, aö frum-
varp þetta verði samþykkt á
þessu þingi og vonar aö nú verði
við þessi fyrirheit staðiö og þar
meö stigið árangursrlkt skref i
húsnæðismálum okkar og jafn-
framt lagt lóö á vogarskálina i
baráttunni fyrir styttri vinnu-
tima.”
27 nýir
leiðsögu-
menn
Nýlega lauk leiðsögunámskeiði
þvi, sem Ferðamálaráð tslands
hélt sl. vetur fyrir verðandi leiö-
sögumenn ferðamanna. Er þetta
þriðja ieiðsögunámskeiðið, sem
Ferðamálaráð heldur samkvæmt
lögum um ferðamál frá 1976.
Námskeiöin standa yfir allan
veturinn, frá hausti til vors. Fyrir
áramót voru fyrirlestrar haldnir
um ýmsa almenna málaflokka
s.s. jarðfræöi Islands, dýralif,
gróður, náttúruvernd, sögu, at-
vinnuvegi, listir og ýmsa þætti
félagsmála. Voru fengnir til þess
viðurkenndir fyrirlesarar, sem
eru sérfræðingar, hver á slnu
sviöi. Eftir áramót var haldiö
námskeið i skyndihjálp I sam-
________Framhald á bls. 13
SAGNIR
sagnfrædinema
tJt er komið nýtt blað sagn-
fræðinema viö Háskóla íslands,
Sagnir.Það er 88 bls. að stærð og
meöal efnis má nefna greinar
eftir Helga Skúla Kjartansson:
„Sagnfræði, af hverju og til
hvers”, Loft Guttormsson:
„Fóiksfjöldasaga og söguleg lýð-
fræði”, Ólaf Friðriksson: „Smá-
flokkaframboð á Islandi 1942-
1974” og Brodda Broddason:
„Vigoröið var: „Verndum So-
vétrikin”.” Einnig eru I blaöinu
viötöl við Björn Th. Björnsson
listfræðing^Vilmund Gylfason
sagnfræðing og alþingismann og
Inga Sigurðsson sagnfræðing. Þá
eru fróðlegar hringborðsum-
ræður um stöðu islenskrar sagn-
fræði og ýmislegt fleira er i blaö -
inu.
Sagnir verða til sölu hjá Sögu-
félaginu í Gárðastræti 13 B (opiö
2-6) og f Bóksölu stúdenta. Það
kostar 1500 kr.
snillingar
Háskólabíó 3. júní
ALICIA DE LARROCHA
Frægasti pianóleikari Spánar leikur verk
eftir Beethoven, Bach, De Falla og
Ravel. I stórblaðinu New York Times 4.
maí eru tónleikar Alicia de Larrocha,
sunnudaginn á Listahátið i Reykjavík,
taldir einn af f jórum helstu viðburðum
ársins á sviði pianóleiks I Evrópu.
Midasala í Gimli
opin daglega
kl. 14-19.30,
sfmi 28088
Háskólabíó 1. júní
RAFAELFRUBECK DE
BURGOS
frægasti hljómsveitarstjóri Spánar,
stjórnar Sinfónluhljómsveit Islands á
opnunartónleikum i Háskólablói. A ef nis-
skránni eru „Ræða nautabanans" eftir
Turina, „Concierto de Aranjuez" eftir
Rodrio. Frægasti gltarkonsert veraldar
f luttur I fyrsta sinn á Islandi. Einleikari
er Göran Söllscher, sem vann siðustu
heimskeppni gitarleikara i Parls og er nú
jafnað við fremstu gltarsnillinga nú-
tlmans. Eftir hlé leikur hljómsveitin
sinfóniu Dvoráks „Úr nýja heiminum."
I ■cyfrnli^'HA
K&mBI*2p ICXUV
Háskólabíó 5. júní
GÖRAN SÖLLSCHER
frá Sviþjóð, nýjasta stórstjarnan I gitar-
leik, aðeins 24 ára gamall. Hann leikur
verk eftir Dowland, Barrios, Yocoh og
Ponce.