Þjóðviljinn - 31.05.1980, Síða 8

Þjóðviljinn - 31.05.1980, Síða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 31. mal 1980. Laugardagur 31. mal 1980. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9 f é 1 fc44#l / f; f' WWm ■ Þröstur og Karl eru hinir ánægöustu ab sjá I lélagsskap Súsönnu Jón- mundsdóttur hjúkrunarkonu, þótt erfitt sé aö vera sjúklingur og ekki nema eins árs aö aldri. Myndir frá Barnadeild Landspítalans: —gel— Magnús Pálmi var aö jafna sig eftir uppskurö og amma hans, Kristjana Þóröardóttir, stytti honum stundir meö aö iesa fyrir hann. Lelkmeðferðín er fyrir alla fjölskylduna Á síðari árum hefur þvi verið æ meiri gaumur gef- inn að umönnun fólks sem liggur á sjúkrahúsum þurfi að vera önnur og meiri en venjan hefur verið, ekki nægi að sinna svo til ein- göngu hinum læknisfræði- legu þörfum. Sérstaklega á þetta við um börn þvi að skilningur þeirra og til- Finningalíf er með öðrum hætti en hinna fullorðnu. Til aö koma til móts viö þessar þarfir barna hefur viöa um lönd veriö komiö á skipulögöu starfi sem á Islensku mun hafa hlotiö nafniö leikmeöferö. Sigrlöur Björnsdóttir myndlistarkennari er einn aöalhvatamaöurinn hér á landi aö sliku starfi meö börnum og vann um árabil á Barnaspitala Hringsins. Fleiri áhugamenn vinna aö framgangi þessa máls s.s. læknar, hjukrunarfræöingar og aörir sem hafa meö veik börn aö gera. A þriöjudaginn var var haldin I Hjúkrunarskólanum viö Eiriksgötu ráöstefna um þarfir barna á sjúkrahúsum. Til hennar var boöiö þremur erlendum fyrir- lesurum sem mikiö hafa unniö aö málinu i sinum heimalöndum. Þjóöviljinn ræddi viö tvo þeirra daginn áöur en þeir héldu af landi brott, þau Ivonny Lindquist sem er fóstra og sérkennari aö mennt og nú deildarstjóri I heilbrigöis- málaráöuneytinu sænska og John Lind fyrrverandi prófessor í barnalækningum viö Karolinska sjúkrahúsiö I_Stokkhólmi. Hann er nú hættur störfum sakir aldurs en vinnur enn aö rannsóknum á börnum en fyrir þær er hann mjög þekktur. Leikur og sköpun er nauðsyn Leikmeöferö er ekki mjög þekkt hugtak hér á islandi. getiö þiö útskýrt hvaö I þvi felst? Ivonny: Leikur er öllum börn- um nauösyn, börn tjá sig mikiö meö leik og þegar um veik börn er aö ræöa er nauösyn leiksins enn meiri en endranær og aö fá tæki- færi til sköpunar. Veik börn eru oft hrædd og óröugg; þau eru allt i einu komin I ókunnugt og aö þeim finnst fjandsamlegt umhverfi. Oft fást þessi börn ekki til eöa geta ekki tjáö tilfinningar sinar meö oröum, en i leik geta þau þaö miklu frekar. John: Leikmeöferö beinist ekki bara aö barninu heldur allri fjöl- skyldunni, hún er fjölskyldumeö- ferö. Þegar sjúkrahús eru skipu- lögö þarf ekki aöeins aö gera ráö fyrir börnum þar heldur einnig foreldrum. Þeir þurfa aö geta komiö og heimsótt barniö hvenær sem er og líka veriö hjá þvi um nætur ef þörf krefur. Ivonny: Viö sem vinnum viö þetta þurfum lika aö hjálpa starfsfólki sjúkrahúsanna. Margt af þvi hefur ekkert lært sérstak- lega um börn og þarfir þeirra. Börn hugsa ekki eins og fullorönir og þaö þýöir ekki aö ætlast til sama skilnings af barni á sjúk- dómi slnum og meöferö hans og af fullorönum. Þaö er ekkert gamanmál fyrir barn aö fara á sjúkrahús. Þvi finnst þaö eitt og yfirgefiö og telur gjarnan aö móö- irin hafi brugöist þvl. John: Ég held aö hæstum allir fullorönir hafi vott af spitala- hræöslu. Þetta stafar eflaust af þvl aö viökomandi hefur reynt eitthvaö óþægilegt I bernsku á sjúkrahúsi eöa ótti annarra viö þær stofnanir hefur yfirfærst á hann. Ivonny: Markmiöiö meö starfi okkar er aö barniö skynji sjúkra- John Lind. hús sem eitthvaö skemmtilegt, aö þaö vilji gjarnan koma þangaö aftur — en þess þurfa börn mjög oft — og aö þroski barnsins stööv- ist ekki meöan á sjúkrahúsvist- inni stendur. Johm: Oft finnst llka börnum þau auömýkt þegar þau eru á sjúkrahúsi. Leikurinn getur þá hjálpaö þeim tíl aö losna viö þá tilfinningu. Af hverju varð barnið umskiptingur? Hafiö þiö oröiö vör sýnilegs árangurs af starfi ykkar meö veikum börnum? John: Já, ég sé alveg stórkost- legan árangur. Aöur fyrr komu foreldrar oft til min alveg niöur- brotnir eftir aö barniö þeirra haföi veriö til meöferöar á spltala, barniö sem áöur var spakt og rólegt var nú oröiö eins og umskiptingur og foreldrarnir sögöu viö okkur: „Hvaö hafiö þiö eiginlega gert barninu mlnu?” Þetta var eölilegt; áöur en leik- meöferöin kom til sögunnar voru langflest börn lengi aö ná sér and- lega eftir spitalavist. Nú er þetta gjörbreytt þar sem leikmeöferö er beitt. Nú koma foreldrar glaöir meö barniö til okkar aftur og tala um hvaö þaö sé í góöu andlega jafnvægi og hvaö því hafi liöiö vel á spitalanum. — Mörg börn þurfa aö koma aftur og aftur til meöferöar og rannsóknar á spltala og stundum þurfa þau aö undirgangast sárs- aukafullar aögeröir. Allt veröur þetta léttara fyrir barniö núoröiö þar sem umhverfiö er mannúö- legra en áöur var, foreldrarnir fá aö vera meö og hjálpa til og þaö er útskýrt fyrir barninu hvaö eigi aö gera og hvers vegna. Þar sem hjartarúm er En þarf ekki mikiö pláss á spltölunum til aö geta haft for- eldra og jafnvel systkini svona mikiö meö börnunum? Ivonny: Vissulega þarf talsvert pláss en þaö sem mestu máli skiptir er skilningurinn á þörfinni og þá er oftast hægt aö leysa mál- in. T.d. er ekkert auöveldara en hafa inni I skáp samanbrotinn bedda sem pabbinn eöa mamman geta sofiö á inni hjá barninu á spltalanum. Þaö þarf ekki endi- lega aö vera allan timann, kannski bara eina nótt. Þaö getur nægt til aö barniö veröi rólegt og öruggt allan tlmann sem þaö þarf aö vera á spltalanum. John: Mér finnst alveg sérstak- lega mikilvægt aö feöur taki llka þátt I starfinu meö börnum sinum á spltalanum — og systkinin. Stundum kemur I ljós aö feöur og jafnvel mæöur llka kunna litiö aö leika viö börnin, þau hafa kannski aldrei gert mikiö af þvl heima og læra fyrst aö meta gildi leiksins þegar barniö þeirra veikist og leggst á sjúkrahús. Ivonny: Foreldrar veröa llka stundum mjög uppteknir af veik- indum barns slns, þeim finnst þetta allt svo voöalegt og óttast aö Árangur alveg stór- kostlegur, segja John Lind og Ivonny Lindquist barniö blöi varanlegan skaöa. Þaö gerir þaö llka stundum, en viö aö sjá og kynnast öörum veik- Ivonny Lindquist um börnum, jafnvel dauövona börnum, veröa viöhorfin önnur. Þá geta foreldrarnir einbeitt sér meira aö þvl hvaö barniö þeirra getur og hætt aö hugsa eins mikiö um þaö sem barniö þeirra getur ekki. Sálræn vandamál síðar Er vitaö til þess aö börn hafi beöiö sálarlegt tjón viö sjúkra- húsdvöl? John: Þaö er margt sem bendir til aö svo sé. Ensk rannsókn sýnir t.d. aö börn sem höföu I bernsku legiö á spitala lengur en eina viku áttu viö meiri erfiöleika aö etja á unglingsárunum en hin sem aldrei eöa I mjög stuttan tlma höföu veriö á sjúkrahúsi. Annars eru nú I gangi langtima kannanir á þessu viöa m.a. I Svlþjóö, Bret- landi og Bandarlkjunum. Er leikmeöferö á sjúkrahúsum fyrirskipuö meö lögum i Svlþjóö? Ivonny: I reglugerö meö barna- lögunum sænsku sem tóku gildi 1. janúar 1977 segir m.a.: „Gert er ráö fyrir aö á næstu árum þróist leikmeöferö á sjúkrahúsum þannig aö öll börn sem þurfi aö leggjast á sjúkrahús fái þannig meöferö.” Hvaö er langt slöan þessi meö- ferö varö algeng I Svlþjóö? Ivonny: Allt frá árinu 1912 hef- ur umræöan um leikþörf sjúkra barna og gildi hennar komiö upp af og til og hjúkrunarfólk áttaö sig á henni aö vissu marki, en allt þannig starf varö óskipulagt og happa- og glappakennt þar til 1956. John: Þá byrjaöi Ivonny aö vinna mikiö brautryöjandastarf i heimabæ slnum Umeð og siöan hefur veriö byggt á reynslu henn- ar alls staöar I Svlþjóö. Hún hefur veriö gerö aö heiöursdoktor viö háskólann I Ume& vegna sins ágæta starfs. Ráðuneytið á að hafa forgöngu Nú hafiö þiö litillega kynnst Is- lenskum sjúkrahúsum og heilbrigöisþjónustu, teljiö þiö aö viö rikjandi aöstæöur hér, fjár- kost og þrengsli, sé hægt aö bæta aö einhverju marki aöstööu barna sem dveljast á spltölum? Ivonny: Ég þekki of lítiö til mála hér til aö geta svaraö þess- ari spurningu en ég held samt aö hægt sé aö gera heilmikiö. Ég myndi byrja á þvl aö koma á samvinnu milli fðstra og sérkenn- ara annars vegar og hjúkrunar- fólks og lækna hins vegar og byrja aö skipuleggja starf fyrir allt landiö. John: Ég tel mjög mikilvægt aö heilbrigöisráöuneytiö taki máliö upp á sina arma og hafi forgöngu um aö koma þessu samstarfi á. Múslk og aftur múslk Bæöi Ivonny og John lögöu mikla áherslu á gildi tónlistar fyrir veik börn, músikin hefur svo mikiö tjáningargildi sögöu þau, þar er ekki fyrir aö fara málerfiö- leikum, og ekki er óalgengt aö börn sem ógerlegt hefur reynst aö komast I samband viö, komist út úr skelinni og nái aö tjá sig meö múslk og þá er lika Isinn broginn. Þau sögöu mér llka aö stundum uppgötvist þá fyrst múslkhæfi- leikar barna þegar þau veikjast og veröa aö leggjast á spltala. — Þaö segir ekki svo lltiö um skóla- kerfiö sagöi John. Ég segi llka alltaf, bætti hann viö, meiri múslk á dagheimilin, meiri músfk I skólanan. — Þiö hérna á Islandi hafiö llka svo ágætan fagmann á þessu sviöi, hélt John áfram, hana Sig - rlöi. Ég sagöi þaö I fyrirlestri mlnum I gær aö kennarar minir I leikmeöferö væru þrjár konur: Sigrlöur Björnsdóttir, Ivonny Lindquist og Emma Plank. (Emma Plank er bandarlskur uppeldisfræöingur og prófessor viö háskólann I Cleveland I Bandarlkjunum og hún var þriöji erlendifyrirlesarinn á ráöstefn- unni) — Barnamálverkin sem Sigrlöur hefur haldiö sýningar á hafa vakiö athygli vlöa um lönd og ég tel aö listasöfn á tslandi eigi aö eignast sýnishorn af þessum barnamyndum. — Aö lokum tóku þau Ivonny og John þaö fram a? dvölin hérna heföi veriö mjög ánægjuleg, þau væru hrifin af þvl hvaö margt fólk væri áhugasamt um málefni barna og sérstaklega fögnuöu þau þvi aö hafa haft tækifæri til aö kynnast Emmu Plank, sem þau sögöu aö heföi skrifaö margar bækur um þessi mál og væri frá- bær vlsindamaöur. —hs Ragnar llafsteinsson heitir þessi ungl maöur sem biöur eftir aö gips veröi fjarlægt af fæti hans. Hugaö aö ungum sjúkiingi á barnadeiidinni. á dagskrá Hvað dugir Trabant-ökumanninum jafnrétti i kapp við Range-Roverinn, hvort sem er á Rúntinum eða á Stóra Hringnum, ég tala nú ekki um ef saman lýstur fararskjótum þessum, stáldrekanum og platdósinni? Bréf úr sveitinni Jafnrétti þykir gott. Ein af meginreglum okkar réttarfars er sú aö allir hafi jafnan rétt og jafna ábyrgö. Lögspekingar kalla þetta jafnræöisreglu. Þessi jafnræöisregla er ekki ýkja gömul á okkar menningar- svæöi. t lénsþjóöfélögum miöalda höföu menn misjafnan rétt eftir þjóöfélagsstööu. Sumir máttu meira en aörir, viöurlög voru misjöfn eftir þvf hver I hlut átti. Jafnræöisreglan komst á meö þeim byltingum sem brutu niöur lénsþjóöfélagiö og þótti geysileg 'framför almenningi til handa. En jafnrétti er eitt, jöfnuöur annaö. Menn eru svo skrambi misjafnir. Sumir eru misjafnari en aörir og aörir þvi jafnari en sumir. Sumir viröast þvl þurfa meira jafnrétti en aörir. Stundum viröist ekkert duga nema mis- rétti. Undarlega farast sveitamann- inum orö, nema síöur sé. Tökum okkur fyrir hugskotssjónir ljúf- linginn lýöa, bllinn bllöa. Þar er um auöugan garö aö gresja, eins og allir vita. Berum saman Range Rover Superstar, 16-gata, 4-drifa, 25 lltra, annars vegar og Trabant Mini, 7 lltra, hins vegar, sem kunnugir efast um aö hafi drif nema á einu hjóli. Eru ekki ökumenn þessara bifreiöa ákaf- lega misjafnir, hvaö sem mann- kostum llöur? Ég hygg aö þaö sé flestum augljóst. Hvaö dugir Trabant-ökumanninum jafnrétti I kapp viö Range-Roverinn, hvort sem er á Rúntinum eöa á Stóra Hringnum, ég tala nú ekki um ef saman lýstur fararskjótum þessum, stáldrekanum og plast- dósinni? Ekki par, þvl aö öku- mennirnir eru svo misjafnlega varöir. Nú er mælt fyrir um umferöar' hegöan meö margvlslegum fyrirmælum laga og reglugeröa. Akveöinn hámarkshraöi ökutækis er tilskilinn, kveöiö er á um forgangsrétt á gatnamótum, fyrirmæli eru nánast til um alla umferöariiegöan. 011 þessi fyrir- mæli eru svo grundvöllur þess mats yfirvalda sem lagt er á um- feröaróhöpp, á grundvelli þeirra er metin og dæmd sú ábyrgö sem sá vegfarandi veröur aö sæta sem reglurnar brýtur og óhappi veldur eöa slysi. Ef ekiö er á þann sem I órétti er skv. gildandi reglum, er sá sem á hann ók laus undan ábyrgö og viöur- lögum, þar eöhann „átti réttinn”, eins og komist er aö oröi. t um- feröarlögum (68. grein) er talaö um aö tjón skiptist aö tiltölu viö sök. Nú velta menn þvl fyrir sér I Olfusinu hvort mögulegt sé eöa æskilegt aö breyta réttarfari um- feröarmála I þá átt aö tekiö yröi tillit til mismunandi aöstööu veg- farenda. Meö mismunandi aöstööu á ég viö þaö, eins og ég var aö lýsa meö dæminu hér aö ofan, aö ökumaöur á 300 hestafla bll upp á mörg tonn stendur betur aö vlgi, er óhultari, I minni llfs, hættu, en ökumaöur litla bilsins létta, svo aö ég tali nú ekki um fótgengla. Eins og nú er háttaö er óvitabamiö, sem hleypur á göt- unni, jafnrétthár umferöaraöili og ökumaöur Range Roversins. Hversu langt dugar barninu sá jafni réttur ef þessir tveir „aöilar” rekast saman? Skyldi ökumaöurinn vera I mikilli meiöslahættu I sllkum árekstri? Hví þá ekki aö miöa ábyrgö veg- farenda viö þunga, afl, eldsneytisneyslu og flatarmál þeirra ökutækja, sem þeir fara meö, en sleppa skirskotun til um- feröarreglna? Ég á ekki viö aö umferöar- reglir yröu afnumdar, heldur þaö, aö þær fælu eingöngu I sér meömæli um hegöan en heföu engin áhrif á mat ábyrgöar eöa uppgjör tjóna. Viö sllkt uppgjör þyrfti lögreglan ekkert aö mæla eöa meta, aödragandi óhappsins eöa slyssins skipti engu máli. Einasta þyrfti aö ltta á skoöunar- vottorö bifreiöanna til aö sjá hest- aflatölu (svo aö ég einfaldi dæmiö) og skipta sföan fjárhags- ábyrgö I samræmi viö þaö. Sé annar bilinn 300 hestafla en hinn , 50 hestafla, skal sá sterkari ábyrgur fyrir 6/7 heildartjóns, sá •litli ábyrgur fyrir 1/7. Meta þyrfti fótgengla til ákveöins hlutfalls af hestafli. Reiöhestar hljóta aö metast á eitt hestafl. Þetta myndi þýöa aö enginn væri nokkurs staöar öruggur um rétt sinn, hvorki á aöalbraut né nokkurs annarstaöar, þvl aö rétt- urinnværi hvergi, aöeins ábyrgö- in. Aö öllum llkindum myndu menn aka hægar og llta betur I kringum sig, og þaö myndi fækka umferöarslysum. Til þess er leik- urinn auövitaö geröur. Vissulega koma upp fjölmargar spurningar I þessu sambandi, sem ég hvorki sé allar né get svaraö, til dæmis hvort sérstakt mat skuli lagt á almennings- vagna, sjúkrablla, farartæki fyrirmanna og margt fleira. En ljóst sýnist mér aö þessi hug- mynd, meö öllum slnum óteljandi möguleikum á skipan mála, gæti oröiö grundvöllur hins fjörugasta löggjafarstarfs þegar um hægist. Verkfrædingar funda Verkfræðingafélag tsiands hélt aðalfund sinn seint I mars og var þá kosin ný stjórn eins og lög gera ráö fyrir. Nýja stjórnin er þannig skipuö: Formaður er Ragnar S. Halldórsson, varaformaður, Sigurður Þórðarson og fram- kvæmdastjóri Hinrik Guðmunds- - son. Aðrir I stjórn eru: Dr. Oddur B. Björnsson, Jónas Matthiasson, Óskar Mariusson og Jón Birgir Pétursson. Úr fyrri stjórn gengu Egill Skúli Ingibergsson, Pétur K. Maak og Páimi R. Pálmason. I fréttatilkynningu frá Verk- fræöingafélaginu er skýrt frá starfi félagsins milli aöalfunda og var þaö allblómlegt. Sex félagsfundir voru haldnir þar sem flutt voru fræösluerindi margskonar og eins störfuöu hin- ar fjórar fastaefndir félagsins svo sem venja er til. Nefndir þessar eru gjaldskrárnefnd, kynningar- og ritnefnd, menntamálanefnd og geröardómur VFI. Formaöur geröardómsins er Gaukur Jörundsson prófessor. Verkfræöingafélag íslands á aöild aö ýmsum alþjóölegum samtökum og hefur auk þess fast samstarf viö norrænu verkfræö- ingafélögin. Stjórn Verkfræðingafélags tslands. Talið frá vinstri: Dr. Oddur B. Björnsson, Jónas Matthiasson, Sigurður Þórðarson, varaform., Ragn- ar S. Halldórsson, form., Hinrik Guðmundsson, framkvæmdastjóri, Óskar Marlusson og Jón Birgir Jónsson. Nýtt innrömmunarfyrirtæki Nýlega hóf starfsemi sína aö Njálsgötu 86 Reykjavlk fyrir- tækiö Myndramminn. Tilgangur fyrirtækisins er inn- römmun og rammagerö og er boöiö upp á úrval rammalista bæöi innflútta og íslenska. Einnig fást tilbúnir rammar af ýmsum stæröum og geröum, m.a. Antik rammar og hringlaga og spor- öskjulaga rammar sem henta vel fyrir t.d. ljósmyndir og útsaum. Eigendur Myndrammans eru Haflina Breiöfjörö og Olafur ólafsson.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.