Þjóðviljinn - 31.05.1980, Side 10

Þjóðviljinn - 31.05.1980, Side 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 31. maí 1980. Utankj örfundar- atkvæöagreiðsla vegna forsetakosninga 29. júni 1980 hefst i Hafnarfirði, Garðakaupstað á Seltjarnar- nesi og i Kjósarsýslu, sunnudaginn 1. júni 1980 og verður kosið á eftirtöldum stöðum: HAFNARFJÖRÐUR OG GARÐ AK AUPSTAÐUR: Á bæjarfógetaskrifstofunni, Strandgötu 31, Hafnarfirði, kl. 9.00—18.00. Á laugar- dögum, sunnudögum og 17. júni kl. 13.00—18.00. SELTJARNARNES: Á skrifstofu bæjarfógeta i gamla Mýrar- húsakóla kl. 13.00—18.00. Á laugardögum, sunnudögum og 17. júni kl. 17.00—18.00 KJÓSARSÝSLA: Kosið verður hjá hreppsstjórum, Sveini Erlendssyni, Bessastaðahreppi, Sigsteini Pálssyni, Mosfellshreppi, Páli ólafssyni, Kjalarneshreppi og Gisla Andréssyni, Kjósarhreppi. Bæjarfógetinn i Hafnarfirði, Garðakaupstað og á Seltjarnarnesi. Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu, 29. mai 1980. IffFrá Ármúlaskóla (Fjölbrautaskólanum við Ármúla) Næsta vetur munu nemendur geta valið milli þriggja námssviða og nokkurra námsbrauta á hverju sviði eins og hér seg- ir: 1. HEILBRIGÐISSVH) 2ja ára heilsugæslubraut til sjúkraliða- náms og framhaldsbraut að stúdentsprófi. 2. UPPELDISSVIÐ 3 brautir : Tvær 2ja ára grunnnámsbraut- ir, fóstur- og þroskaþjálfabraut og félags- og iþróttabraut, og 4 ára menntabraut að stúdentsprófi. 3. VIÐSKIPTASVIÐ Tvær 2ja ára brautir að almennu verslun- arprófi og tvær 3ja ára brautir að sér- hæfðu verslunarprófi. Af öllum brautum viðskiptasviðs er nem- endum tryggð framhaldsmenntun að stúdentsprófi. Innritun fer fram I Miðbæjarskólanum 3. og 4. júni kl. 9—18 og I skrifstofu Ármúla- skóla vikuna 2.-6. júni kl. 9—16 Skólastjórn. OPID HÚS I LINDARBÆ verður á sjómannadaginn, sunnudaginn 1. júní kl. 3—6 síðdegis. Fréttir úr kosningabaráttunni Sjálfboðaliðar komið og skráið ykkur til starfa! Kaffiveitingar Allir velkomnir! Stuðningsmenn Vigdísar Finnbogadóttur —VELJUM VIGDÍSI!- Sumarbridge Sumarbridge i Reykjavik. Næsta fimmtudag hefst á veg- um félaganna f Reykjavik (Bridgesambands Reykjavfk- ur) hin árlega sumarkeppni. SpilaB veröur I Domus Medica, aB þessu sinni. Fyrirkomulag verBur meB hefBbundnu sniBi, riBlafyrir- komulag og frjáls mæting. Keppni hefst reglulega kl. 19.30. VerBlaun verBa veitt fyrir flest stig samanlögB i lok sumar- keppni (3 stig fyrir 1. sæti, 2. stig fyrir 2. sætiB o.s.frv.) Sil breyting varBur á, aB veitt verBa peningaverBlaun. 1. verB- laun verBa kr. 150.000 og 2. verö- laun verBa kr. 100.000. Keppnisstjórar verBa þeir bræBur Lárussynir, ólafur og Hermann. GuBmundur Kr. baBst eindregiB undan þvi aö taka aB sér stjórnun þetta áriB. Eru honum færöar bestu þakkir fyrir frábæra þjónustu siöustu árin. Sumarbridge i Kópavogi: Asarnir eru meö sumarbridge á mánudögum, svo lengi sem einhverjir hafa áhuga á aö vera meö. SpilaB er I Fél. heim. Kópavogs, efri sal. Spila- mennska hefst kl. 19.30. Allir velkomnir. Keppnisferð til Júgóslaviu: Sl. mánudag lögöu 4 bridge- menn af staB til Portoroz, Jú- góslaviu, I bridgekeppnisferöa- lag. Mót þetta mun standa yfir i um viku og skipulagt af hóteli þar ytra. Til fararinnar völdust: Sverrir Armannsson, GuB- mundur Páll Arnarson, Jón Baldursson og GuBmundur Sv. Hermannsson. Ekki er ljóst hvernig staöiö var aö vali eöa boöi spilaranna, hvort Bridgesambandinu bauöst þetta, eöa einhverjum stjórnarmeölimi persónulega. KostnaBur á hvern mann mun vera um 100.000- kr., sem er svipaö og EgilsstaBaför fyrir okkur Reykvikinga (og öfugt). Feröalangarnir munu koma heim nk. þriBjudag. Nokkur orð til Bridge- sambands íslands, að loknu íslandsmóti i tvimenningi. Islandsmótinu I Bridge er nær lokiö, meB heljarstökki aftur á bak og er þá átt viö þátt Bridge- sambands Islands, undirbúning, fyrirkomulag og framkvæmd mótsins. Skal nú reynt aö tina til helstu vankantana og kannske þá helst sem snerta okkur utanbæjar- menn mest, en fyrir okkur er þaö tcfluvert mál aö taka þátt i svona móti. Um þaö bil viku fyrir mótiö, reyndum viöaB fá uppgefna ná- kvæma dagskrá mótsins, en þá lá hún ekki fyrir og sýnir þaö aö eitthvaB hefur undirbúningur- inn veriö losaralegur. betta uppiystist þó um sffiir, en þá virtist sem stjórn B.l. heföi al- veg gleymt aö reikna meö öör- um keppendum en frá Reykja- vik og næsta nágrenni. Mótiö átti semsé aö hefjast á fimmtudegi 15. mai (uppstign- ingardag) kl. 13. önnur umferö sama dag kl. 20 og þriBja um- ferö föstudag kl. 20. tJrslita- keppnin átti aö byrja á laugar- dag kl. 13 og vera lokiö kl. 19 á sunnudag. Þessi dagskrá er e.t.v. ekki svo slæm fyrir keppendur sem búa á Stór Reykjavikursvæöinu, en lftum á þetta frá sjónarhóli okkar utanbæjarmanna og þá helst þeirra sem lengst þurfa aö sækja og þá meö flugvélum eöa len gri bilferöum. Flestir þurfa aö leggja af staB á miövikudegi 14. mai og margir fyrir hádegi þann dag, til aö vera öruggir um aö komast I tæka tiB. Þeir þurfa semsagt aö taka fri frá vinnu þann dag. A föstudegi hófst spilamennskan kl. 20. Þann dag máttum viö liggja á hótel- herbergjum eöa hjá venslafólki á meBan keppendur sem bjuggu á réttum staö á landinu voru I vinnunni. Undankeppninni var lokiöum miönætti á föstudag og þá var tilkynnt aB hringja mætti i ákveöiö simanúmer eftir 10-12 klst. til aö fá uppgefna stöBuna, en þaö er 1-3 klst. áöur en úr- slitakeppnin átti aö hefjast. Lik- legt er aö u.þ.b. 30 pör hafi ekki veriö viss um hvort þau kæmust I úrslit eBa ekki. Landsbyggöa- menn I þeim hópi hafa þvi ekki getaö lagt snemma af staö heim þann morgun. Nú ef þeir spila i úrslitakeppninn), geta þeir ekki lagt af staö fyrr en á mánudag og þá þarf aö fá fri i vinnunni þann dag. Umsjón: Ólafur Lárusson Þessir menn þurfa þvi aö taka fri I vinnu 3 daga, auk þess aö greiöa dýr feröalög og búa á hóteli i 5 daga á meöan kepp- endur úr Reykjavlk og nágrenni stunda sina vinnu, búa heima hjá sér og spila i fristundunum. Ef hugsaB heföi veriB til okkar utanbæjarmanna, hefBi dag- skráin litiB ööru visi út t.d.: 1. umf. undanúrslit miövikudag k). 20, 2. umf. fimmtudag kl. 13 og 3. umf. sama dag kl. 20, úr- slitin siöan aö liggja fyrir i sim- svara um nóttina, strax aö út- reikningi loknum. Þá heföu þeir sem vildu getaö lagt af staö heim til sln á föstudagsmorgni og átt helgina meö fjölskyldum sinum. Úrslitakeppnin heföi þá hafist á föstudegi kl. 13 og veriB lokiö um kvöldveröarleytiö á laugardegi. Þá hefBu keppendur getaB fariB aB tygja sig heim á leiö, eöa lyft sér upp i borginni á laugardagskvöldinu, en fyrst og fremst, veriö mættir til vinnu á mánudagsmorgni. Þá er þaö mótsstaöurinn: Þaö er nánast furöulegt aö láta 128 keppendur spila I svo litlum húsakynnum. Þaö er kannske vegna húsnæBisins aö mótiö var svo illa auglýst aö fréttamenn útvarps, sjónvarps og blaöa virtust ekkert vita af þvl (skákmenn heföu fariö ööru- vlsi aö). Ahorfendur hafa senni- lega aldrei veriö fleiri en 20 I einu nema þá e.t.v. siöustu mlnútumar. Stjórn B.I. viröist hafa gert sér grein fyrir þvi aö mótinu yröi aö halda sem mest leyndu, þvl ekki væri pláss fyrir áhorfendur. Veitingaaöstaöan var ekki sæmandi. Kaffihlé er u.þ.b. 20 minúturog á þeim tima eiga 128 keppendur og 10-20 áhorfendur aö kaupa sér kaffi og meölæti um lúgu sem er c.a. 2 metrar á breidd. 1 mótsbyr jun las keppnisstjóri upp úr reglugerö um Islands- mót, en ekki uröum viB varir viö aö nokkur af forystumönnum B.I. setti mótiö. Menn veröa aB athuga aö þetta er Islandsmót og þaö i þeirri grein iþrótta sem flestir Islendingar stunda, aö knattspyrnu e.t.v. undanskil- inni. Þaö ætti aö vera svolltiö viröulegri blær yfir keppninni en eins og um venjulegt spila- kvöld hjá einhverju félagi væri aö ræöa, jafnvel þó sumir kepp- enda viröist ekki bera viröingu fyrir iþrótt sinni, ef dæma á eftir klæöaburöi þeirra. Samkvæmt reglugerö um Islandsmót sem gilt hefur I nokkur ár skulu keppendur út- fylla kerfiskort og láta þaö vera á spilaboröinu, andstæöingun- um til glöggvunar. Form þess- ara kerfiskorta haföi þróast upp I þaö aö vera allgott. Á íslands- mótinu i sveitakeppni i april s.l. brá hins vegar svo viö aö tekiö var upp áöur aflagt form. ÞaB var spor aftur á bak. A þessu tvimenningsmóti var kerfis- kortiB svo lélegt aö fáir útfylltu þaö og engum þótti taka þvi aö hafa þaB uppi viö. Þá komum viB aö keppnis- fyrirkomulaginu. Undanrásir voru spilaöar meB svonefndu Mitchell kerfi, en þaB kom nokkuB flatt upp á keppendur, sem héldu aö ætti aö spila baro- meter allt fram til þeirrar stundar aö keppnisstjóri bauö til sætis. Þessu kerfi getum viB ekki mælt meö, af ýmsum ástæöum svo sem: 64 pör keppa, en hvert par spilar aöeins viö 42 pör eöa aöeins 2/3 þeirra. Þarna geturskapast misrétti. Útreikn- ingur liggur ekki fyrir fyrr en 5- 6 klst, eftir hverja umferB og þar af leiöandi dettur niöur spenna hjá keppendum og verB- ur aldrei nein meöal áhorfenda. Einn áhorfandi sem kom til leiks, vegna þess aö hann átti kunningja meöal keppenda haföi orB á þvi aB hann hef&i séö spilara gera góöa hluti viö spila- boröiB. Galli væri hinsvegar á aö hann vissi ekki hver eöa hverjir ættu i hlut. Hann stakk upp á aö spilarar skyldu bera merki meö nafni sinu og svæöa- sambandi á. Komum viB þessu hér meö á framfæri. Ekki þótti áhorfanda þessum mikil reisn yfir B.l. meö yfir 1200 meBlimi innanborBs aö þurfa aö fá lánuö borBspjöld og skorblööhjá félagsskap sem tel- ur innan viö 60 meBlimi. I úrslitakeppninni var spilaB- ur barometer. HingaB til eBa a.m.k. oftast áöur hafa veriö fengnir unglingar til aö dreifa spilum milli keppenda. I þessu móti þurftu keppendur sjálfir eöa keppnisstjóri aB sjá um þetta. Svona á þetta ekki aö vera, jafnvel þó yfirferö Agnars keppnisstjóra sé mikil, á hann sjálfsagt erfitt meö aö vera á mörgum stööum samtimis (þó þaö hafi reyndar hvarflaö aö mönnum). Aö lokum óskum viB þeim Gu&laugi og Erni til hamingju meö sigurinn, sem þeir eru mjög vel aö komnir svo og þökk- um viö keppnisstjóranum Agn- ari Jörgensen fyrir aldeilis frá- bæra stjórn, hans er ekki sökin. Reyöarfiröi 23.05.80 Asgeir Metúsalemsson Hallgrlmur Hallgrimsson Kristján Kristjánsson Þorsteinn ólafsson Lítið einbýlishús óskast keypt, gjarnan gamalt timburhús Æskilegur staður; Skerjafjörður, Seltjarnarnes eða Kópavogur, en fleira kemur til greina. Vinsamlegast hringið i sima 66623 eftir kl. 6 á kvöldin.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.