Þjóðviljinn - 04.06.1980, Blaðsíða 2
V VI . I .' ' 4 » 4
.*'-f ri 4 ...I *. ‘r 4, J ji*4 .1 4 4r.
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 4. júni 1980.
Pétur J. Thorsteinsson var á
Akranesi (og Grundartanga)
á þriðjudag og miðvikudag, og
þar kom hann viða við. Hann
heimsótti þar fjölmarga
vinnustaði og ræddi við fjölda
fólks.
Það var einkennandi fyrir
þessar heimsóknir Péturs, að
alls staðar var honum mjög
vel tekið og alls staðar var
mikill áhugi starfsfólksins
fyrir heimsókninni, og vildu
menn gjarnan hlýða á mál
frambjóðandans.
Pétur var spurður margra
spurninga um forsetaem-
bættið, og sjálfan sig og sinn
feril o.fl.
Hann rakti i stórum dráttum
i ræðum sinum starfsvettvang
og starfssvið forseta, og sagði
frá sinum eigin starfsferli. Oft
var spurt um valdsvið forseta.
Spurt var um hlutverk forseta
i sambandi við stjórnarmynd-
andir og ýmsar aðrar
stjórnarathafnir, og gerði
Pétur grein fyrir þeim þáttum
starfsins, og jafnframt sinum
eigin skoðunum i þessu sam-
bandi.
Innan fárra daga tekur til
starfa sérstök framkvæmda-
nefnd á Akranesi, og þar
verður einnig opnuð skrifstofa
stuðningsmanna Péturs J.
Thorsteinssonar.
Fundir Péturs jyrir norðan
Pétur Thorsteinsson var
með framboðsfundi á Akur-
eyri og Húsavik á fimmtudag
og föstudag. í fréttatilkynn-
ingu frá stuðningsmönnum
Péturs segir að báðir hafi
verið fjölsóttir.
Á Akureyri fluttu Pétur og
Oddný kona hans ávörp. Ingi-
mar Eydal lék létt lög á pianó,
Herdis Elin Steingrimsdóttir
hélt ræðu, Halldóra Ingimars-
dóttir og Heiðdis Norðfjörð
fluttu ljóðaþátt um vorið og
Orn Gústafsson flutti ávarp.
Fundirinn var haldinn á Hótel
KEA og var Vilhelm Þor-
steinsson fundarstjóri.
A Húsavik fluttu auk Péturs
og Oddnýjar Katrin Ey-
mundsdóttir, forseti bæjar-
stjórnar, og Hákon Aðal-
steinsson ávörp. Fundarstjóri
var Arnar Björnsson ritstjóri.
Keflavikurskrifstofa Alberts
Nýskipaður sendiherra Grikk-
lands, hr. Eustace P. Lagacos
sést hér á milli forseta Islands
sem hann afhenti trúnaðar-
bréf sl. mánudag og ólafs Jó-
hannessonar utanrikisráð-
herra við athöfnina á Bessa-
stöðum.
Kynning á búvörum og ullartisku
t sumar mun verða efnt til
kynningar á landbúnaöar-
afurðum og tiskufatnaði úr is-
lenskri ull ásamt ýmsum
skartgripum á Hótel Sögu.
Þessi kynningarkvöld verða á
hverjum föstudegi og fyrsta
kynningin verður 12. júni og
endar svo 26. september.
Boðiö veröur upp á stórt
borö, hlaöið ýmsum gómsæt-
um réttum, heitum og köldum
úr lambakjöti, þá verða
mjólkurréttir á boöstólunum
og mikið úrval af ostum,
ásamt fjölda annarra rétta.
Hljómsveit hússins leikur
létt, vinsæl lög, meðan gestir
sitja að snæðingi, en siðan
mun verða stiginn dans. Sér-
stakur kynnir mun útskýra
fyrir gestum, innlendum sem
erlendum, það sem þarna
verður að sjá og neyta. Asamt
Hótel Sögu standa að kynning-
unni: Álafoss, Samband isl.
Samvinnufélaga, Mjólkur-
samsalan, Osta- og smjör-
salan, Sláturfélag Suðurlands
og Stéttarsamband bænda.
Pétur hélt 14 ræður
Nýr sendiherra Grikklands
Stuðningsmenn Alberts
Guðmundssonar hafa opnað
kosningaskrifstofu i Keflavfk
að Hafnargötu 26, simi
92—3000. Verður skrifstofan
opin daglega frá 8—10 virka
daga, eða 2—6 á laugardögum
og sunnudögum, en þegar nær
dregur kosningum veröur nýr
afgreiðsiutimi auglýstur.
Eftirtaidir menn eiga sæti i
baráttu og kosninganefnd:Arni
Samúelsson, Bjarni Alberts-
son. Ólafur Júliusson, Helgi
Hólm, Huxley ólafsson,
Sesselja Magnúsdóttir, Erika
Árnadóttir, Svana Jónsdóttir,
Guðný Asberg, Helga Guð-
mundsdóttir, Hafsteinn Guð-
mundsson, Guðlaugur ólafs-
son, Björgvin Lútersson, Ingi-
björg Gisladóttir, Vilborg
Amundadóttir, Zakarias
Hjartarson, Ólafur B. Ólafs-
son Sandgerði, Ólafur
Thordarson, öll i Keflavik og
Njarðvik, og Jósep Borgars-
son, Höfnum.
Þessir hnakkar eru meðai sýningarmuna á sögusýningu Arbæjarsafns sem opnuö var i gær. Báðir eru
söðlarnir fornir og i brúkun fyrir tilkomu hinna „nýmóðins sööla” sem komust I tfsku uppúr 1830. Eru
það söðlar með ensku lagi og hefur söðlatiska á tslandi litt eða ekki breyst siðan.
r
Sögusýning i Arbœjarsafiii
Kvensöðull með
öllum búnaði
i gær, þriðjudaginn 3. júni, hófst
starfsemi Arbæjarsafns með opn-
un sögusýningar sem nefnist
Kvensöðuli með öllum búnaði.
Þar verða sýnd gömul reiðtygi
alis konar, en meginuppistaða
sýningarinnar eru söðuiáklæði og
söðlar sem eru i eigu safnsins.
i sumar verður safnið opið frá
kl. 13.30-18.00 alla daga nema
Fundir i Sameinuðu Alþingi og
deiidum á þvi þingi sem nú var að
ljúka störfum (1979—1980) stóðu
samtals i 330 klukkustundir og 25
minútur. Þar af stóðu fundir i
Sameinuðu Alþingi og neðri deild
(eru haldnir í sama sal) I 257
klukkustundir, en fundir I efri
deild i 73 klukkustundir og 25
minútur.
Rétt er að taka fram að ekki er
innifalinn i þessum tölum sá timi
sem farið hefur i fundi nefnda i
báðum deildum og Sameinuðu
Alþingi.
Borið saman við þingið þar á
undan, 1978—79, þá hefur mál-
Minkur viröist hafa aukist mik-
ið sl. ár og er nú talinn kominn i
aiia landshluta. Aðalfundur
Fuglaverndarfélags tslands, sem
haldinn var nýlega, benti á, að
með slikri þróun gæti orðið auðn i
héruðuin sem áður voru auðug af
fuglaiifi.
Fugiaverndarmenn telja
ástandið mjög alvarlegt og að
nauðynlegt sé að gera róttækar
ráðstafanir til útrýmingar
minka i landinu.
A fundinum kom fram, að um
sl. áramót voru um 100 ernir á
landinu, þaraf 74 fullorðnir
fuglar, 20 ungir og 6 ungar. 13
arnarhjón gerðu tilraun til varps i
fyrra, en misfórst af ýmsum or-
sökum.
mánudaga og að venju verða
seldar veitingar i Dillonshúsi.
Undanfarna vetur hefur verið
unnið á vegum Arbæjarsafns að
könnun á sögu gömlu borgar-
hverfanna og verður þvi haldið á
áfram á vetri komanda. Þá var i
vetur unnið við gerð saman-
burðarskrár yfir byggðar lóðir i
Reykjavik og einnig haldið áfram
gleði þingmanna verið með
minna móti s.l. vetur, en þingið
1978—1979 var algjört metár, þvi
þá stóðu fundir samtals i 516
klukkustundir og 3 minútur. Sið-
ustu ár hafa fundir Sameinaðs
Alþingis og deilda yfirleitt staðið
á hverju ári i um 400 klukku-
stundir, t.d. stóð þingið 1977—78 i
445 klukkustundir og 45 minútur.
Skýringuna á þvi hvers vegna
minna hefur verið talað á Alþingi
I vetur má m.a. rekja til þess að
þetta þing stóð styttra en þingin
undanfarin ár vegna haustkosn-
inganna.
— þm
Þá var rætt um fækkun veiði-
bjöllu og var álit fundarmanna að
eina leiðin væri að hætta að henda
slori og úrgangi i sjó. Ef skip
henda úrgangi ætti hann að vera
settur i umbúðir, sem sökkva en
fljóta ekki sem æti. Útrýming
með skotvopnum töldu þeir
gagnslausa til minnkunar stofns-
ins, slikt gæti jafnvel óbeint
stuðlað að aukinni stofnstærð.
Fuglaverndunarfélagið hefur
nú gefið út endurprentun af rit-
gerð dr. Finns Guðmundssonar,
um haförninn sem prentuð var i
bók Birgis Kjaran. Formaður
félagsins er Magnús Magnússon
prófessor, ritari Reynir
Armannsson póstfulltrúi.
vinnu við viðgerð á Prófessors
bústaðnum á Klepplen húsið var
flutt i safnið I hitteðfyrra.
Hingð til hefur takmarkað
geymslurými háð mjög starfsemi
safnsinsen nú stendur það til bóta
þvi að nýlokið er við aó reisa
nýjar geymslur á safnsvæöinu og
verða munir fluttir þangað eftir
hentugleikum. — hs
Erró fékk orðu Svíakonungs
Erró
sæmdur
Prins
Eugen
orðunni
Sviakonungur hefur sæmt
myndlistarmanninn Guð-
mund Guðmundsson, Erro,
Prins Eugen-orðunni. Var
honum afhent heiðursmerkið
af sendiherra Svia i Paris 12.
mai s.l.
Heiðursmerki þetta er
ætlað sænskum eða öðrum
norrænum myndlistarmönn-
um, sem fram úr skara á
Norðurlöndum eða i heimin-
um og er talið fágæt viður-
kenning. Það hefur áður
verið veitt tveim Islending-
um, þeim Einari Jónssyni og
Jóhannesi Kjarval.
Talað í 330
klukkutíma
Minkurinn kominn
í alla landshluta