Þjóðviljinn - 04.06.1980, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 04.06.1980, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 4. júni 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11 i Hugleiðing að afloknum landsleik íslands og Wales látiö Sævar og Trausta skipta um stöður. Landsliðsþjálfari veröur aö bregöast við, sé saumaö að hans mönnum. Sömu sögu er að segja um Guömund og Sævar. Hann greinilega fann sig ekki og hefði átt að vera skipt útaf. Þá er Atli greinilega i lltilli leikæfingu og erfitt fyrir hann að leika heilan landsleik. Nú er þaö skoðun undirritaös að réttlætanlegt sé aö sækja bakvörð út fyrir landsteinana. Erlendis eigum við tvo mjög frambærilega hægri bakveröi Olaf Sigurvinsson, margreynd- an landsliösmann i toppformi og örn Öskarsson, einn þeirra manna sem stóð uppúr i lands liöinu i fyrrasumar. Þaö er e.t.v. slæmt aö þurfa að fullyrða þetta, en staðreyndin er sú aö við höfum ekki átt virkilega góðan bakvörð i 10 til 15 ár. Reyndar hafa margir ágætir miðverðir og tengiliöir leikið i stöðu bakvaröar i landsliöinu á þessum tlima, en það breytir samt ekki fullyrðingunni. Við verðum að taka áhættu Eftir leikinn i fyrrakvöld sagöi Mike England, framkvæmda- stjóri og einvaldur welska liðs- ins, aö Islendingar ættu að leika mun ákveönari sóknarknatt- spyrnu á heimavelli, taka áhættu. Það er mikið til i þess- um orðum hans, þvi samkvæmt opinberum kokkabókum erum við mjög lágt skrifaöir I knatt- spyrnuheiminum, árangurslega séð, og slyöruoröiö getum viö einungis rekiö af okkur meö þvi að reyna aö knýgja fram óvænt úrslit, taka áhættu. Þessi orð mætti landsliðs- þjálfarinn okkar ihuga. Hann hefur aðstöðu til þess að breyta gangi mála og þá aöstöðu á hann að nýta út f ystu æsar. Viö skulum aö lokum vona aö Guðna og landsliðsstrákunum takist að hefja merkið á loft á nýjan leik. Það er kappsmál okkar allra. - IngH Þetta er alveg ferlegt. Maður er búinn að fara á völlinn í mörg ár og alltaf verður maður vitni að sömu mistökunum. Ég veit ekki hvað þessir karlar eru að pæla," Þetta sagði áhorfandi nokkur við undirritaðan að afloknum landsleik Is- lands og Wales í fyrra- kvöld og endurspegla orð hans vafalítið hug margra knattspyrnu- áhugamanna um þessar mundir. Vonbrigðin með úrslitin í leiknum á mánudags- kvöldið eru mjög sár, einkum vegna þess að menn bjuggust nú við góðri frammistöðu eftir nokkur mögur ár. Það sýndi sig að bjartsýnin var ríkjandi þegar áhorf- endur toku að streyma á völlinn og þegar yf ir lauk voru þeir á milli 10 og 11 þús. Sennilegt er að þátt- taka atvinnumannanna okkar, nýr landsliðs- þjálfari, góðir og þekktir mótherjar og gott veður hafi átt einna stærstan þátt í hinni miklu aðsókn. Jú, og einnig sigurvonin. Sævar náði ekki tökum á verkefni sínu Byrjunaruppstilling Guöna (Þorsteinn, Sævar, Trausti, Marteinn, Sigurður, Karl, Janus, Atli, Guðmundur, Arnór og Pétur) virðist ekki svo galin. Reyndar má segja að hann hafi tekiö mikla áhættu með þvi aö láta Sævar leika bakvörö, stöðu sem hann er litt vanur aö spila. Að visu hefur Sævari tekist vel i Valsliðinu að ,,taka menn úr umferö” en hann var samt settur i nýtt hlutverk. I fyrri hálfleiknum voru Is- lendingarnir sprækir og áttu mun hættulegri tækifæri en Walesbúar. Þrátt fyrir það komu i ljós þá þegar brotlamir I uppstillingunni eða öllu heldur i leik einstakra manna. 1 seinni hálfleiknum snerist dæmið við, Wales fór að sækja af miklum móð og okkar menn fengu nánast ekkert svigrúm til athafna. Veikleikarnir i liöi landans voru fólgnir i nokkrum samhangandi atriðum og ætla ég að reyma að tiunda þau hér á eftir: — Sævar náði aldrei tökum á verkefni sinu, þe.að taka Leigh- ton James úr umferð. Hann „skriðtaklaöi” hann úti á miöj- um velli hvað eftir annaö og sat eftir. — Þegar siðan bakvörðurinn var úr leik riðlaðis öll vörnin hvaö eftir annað. Það var auö- velt fyrir miðjumennina (eink- um Giles no 10) aö renna sér inn i eyðurnar sem mynduöust. — Ófáar sóknarloturnar end- uðu á rangri sendingu Guö- mundar, en hann virðist ekki ná sér nándar nærri eins vel á strik vel með landsliöinu og með Val, hvar hann er oft á tiðum yfir- burðaleikmaöur. — Miðjumennirnir voru of seinir fram og aðstoöuðu sóknarmennina tvo of litið. — Þegar Walesbúar höfðu boltann var völdunin of slæm, það vantaði aðstoð i varnar- leiknum. — Of mikill getumunur á ,,at- vinnumönnum og áhuga- mönnum” islenska liösins. Þetta orsakaöi það aö liðsheild- in varð veik. („engin keöja er sterkari en veikasti hlekkur- inn”). Viðbrögð landsliðsþ já If- arans vantaðí Þetta sem tiundað er hér aö framan er enginn Stóridómur, heldurhugleiöing áhugamanns i stúkunni. Upptalningin er alls ekki tæmandi. Hvaö um það, þá voru brotalamirnar fyrir hendi og næsta skrefiö er aö athuga hvort eitthvað hefi ekki verið eöa sé til úrbóta. 1 fyrsta lagi má fullyrða að Sævari hafi verið litill greiði gerður með þvi að láta hann leika stöðu sem hann auösjáan- lega réð ekki viö. Orsök þess er m.a. sú aö hann fékk aldrei þá bakvöldun og aðstoð sem hann átti að fá. Það var fáránlegt hjá landliösþjálfaranum aö halda honum inná nær allan leikinn. Til þess aö reyna að setja undir lekann heföi hann jafnvel getað Arnór Guðjohnsen og Sigurður Halldórsson I baráttu viö welsku varnarmennina I fyrrakvöld. Mynd: gel. r /O ' A 7 3 íþróttir íþróttír f^l íþróttir J ■ Umsjón: Ingólfur Hvað er tíl ráða? Valur og Fram leika í kvöld Stórleikur í Laugardalnum Topplið 1. deildarinnar i knatt- spyrnu, Valur og Fram, munu leiða saman hesta sina i kvöld. Viðureignin hefst kl. 220' á Laugardalsvellinum. Valur og Fram eru bæði með „fullt hús” út úr þeim þremur umferðum sem af eru Islands- Mikill hugur í FH-ingum Handknattleiksmenn úr FH hófu æfingar i fyrrakvöld og eru þcir staðráðnir I að koma vel und- irbúnir til leiks i haust. Að sögn eru menn staðráðnir i aö komast á toppinn og veröur ekkert til sparað til þess að svo verði. Gunnar Einarsson hefur hafið æfingar með sinum gömlu félög- um og einhverjir fleiri leikmenn munu bætast i raðir FH-inganna. Hverjir þaðeru mun koma i ljós á næstu vikum. — IngH mótinu. Valsmenn hafa unnið sina leiki mjög sannfærandi FH 4-0, UBK 3-2 og KR 3-0. Þeir hafa y'eikið bestu knattspyrnuna hing- ',b til og hljóta þvi að teljast mun sigurstranglegri i kvöld. Framar- arnir hafa hinsvegar verið i tölu- verðu basli i leikjum sinum. Þeir unny 1A sannfærandi 2-0, en Þrótt og IBV 1-0. Fram mun i kvöld treysta, sem fyrr, á hina sterku vörn sina og spurningin er hvort henni tekst að halda hinum mark- sælna Skagamanni Valsliðsins, Matthiasi Hallgrimssyni, i skefj- um. Þá er einnig liklegt að þátttaka Framara og Valsara i landsleikn- um i fyrrakvöld komi til með að hafa áhrif á gang leiksins i kvöld. 1 Vestmannaeyjum leika kl. 20 i kvöld lið Islandsmeistara IBV og Þróttur. Eyjamenn verða að sigra til þess að vera með í topp- baráttunni, Þróttararnir eru harðir i horn að taka og ætla sér vafalitið uppúr lægðinni sem þeir hafa verið i undanfarið. — IngH Matthias Hallgrimsson veröur með Valsmönnum i slagnum i kvöld. Körfuknattleiks- landsliðið æfir af fullum krafti Landsliðsmenn I körfuknattleik fá litið fri i sumar. Liðið er að æfa sig fyrir Evrópumeistaramót á næsta ári og er ekki slegiö slöku við. Strákarnir hafa undanfarið veriði lyftingum i iþróttahúsi MR undir stjórn Jóhannesar Sæmundssonar. Þá hafa þeir einnig hlaupið langhlaup. Ætlunin er siðan að þeir verði i strangri kraftþjálfun á næstunni. — IngH Rúnar sigraði f opnum flokki Siðastliðinn sunnudag, Sjó- mannadag, var haldin siglinga- keppni á Fossvoginum I bliöskap- arveðri. Urslit i einstökum flokkum siglingakeppninnar urðu þessi: Fireball-flokkur: 1. Páll Hreinsson Olafur Bjarnason 2. Gunnlaugur Jónasson Gunnar Guðmundsson. Mirror-flokkur: 1. Baldvin Björgvinsson Öttar Hrafnkelsson Optimist-flokkur: 1. Úlfar Ormsson 2. Sævar Már. Opinn-flokkur: 1. Rúnar Steinsen (Laser) 2. Ari Bergmann og Baldvin Einarsson (Wayfaren).

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.