Þjóðviljinn - 04.06.1980, Síða 7

Þjóðviljinn - 04.06.1980, Síða 7
Miðvikudagur 4. júni 1980. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7 hennar ekki af hinum pólitfska heimi; sá áttaviti sem réð stefnu hennar var i rauninni ekki pólitiskur, að því er ég held. Heimar hennar voru margir, og áttaviti hennar var fólginn i leyndardómi persónuleika henn- ar. Enda var það oftast svo að þó henni gæti stundum fundizt aö sumir vinir hennar brygðust henni „pólitiskt”, þá hirti hún ekki að erfa þaö við þá, ef fleira kom ekki til. Rómantlk, sögðu sumir kunn- ingjar hennar, og að sönnu hefur Þóra I æsku sinni á tveim fyrstu áratugum aldarinnar kynnzt dýrð aldamótarómantikurinnar (þetta orð má helst ekki nota, svo mengaö er það orðið allskonar fordómum). En að öðru leyti verður aö gæta þess að rugla ekki saman menntun tilfinninga og greindar og flökti tizkunnar. Vinátta, tryggð, höföingslund, næmi — þá er nokkuö talið af gáf- um hennar. Enn er ónefnd sú gáfa sem var kóróna skapgerðar henn- ar, ef svo mætti til orða taka — gáfa gleðinnar. Fyrir fáeinum mánuðum lét hiín einhverju sinni talið berast að fornu vinafólki slnu, og rifjaöi upp fyrir sér minningar sinar um þau vinatengsl. Hún lýsti þessu fólki fyrir mér á sinn liflega hátt, hermdi frá nokkrum löngu liðn- um atvikum, og sagði að lokum að hdn hefðialdrei misst sjónar á þessu fólki, og ævinlega fagnaö endurfundum, og talið kynnin af þvi með dýrmætustu minningum slnum, dýrmætustu gersemum sinum, — af þvi aö það átti gleðina. Sigfús Daðason. Þegar andlátsfregn Þóru Vig- fúsdóttur barst mér, var sem brysti strengur ómfagurrar hörpu, sem lengi hafði hljómað. En um leið fylltist hugurinn óumræöilegu þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast henni og eiga að vini um áratugi. Þóra VigfUsdóttir var einstakur og ógleymanlegur persónuleiki. Hún var maður hins nýja tima. óþreytandi I starfi fyrir þeim hugsjónum, sem hún helgaði líf sitt. Verksvið hennar og áhuga- mál voru svo margþætt að eigi eru tök á aö geta þeirra allra i stuttri grein. Þóra var kommúnisti. Hún sat I miðstjórn Sameiningarflokks alþýðu — Sósialistaflokksins og mótaði þá kvenna mest stefnu þess flokks I réttindamálum kynj- anna. HUn var boðberi humanisma og alþjóðahyggju. Henni var tamt að lita á málin af viðari sjónarhóli en almennt gerðist og haföi brennandi áhuga fyrir því að hvetja konur til baráttu fyrir jafnrétti allra manna og fyrir friði I heiminum. Hún var eldsál, ótrúlega framsýn og næm fyrir því, sem hinn nýi timi hlaut að bera I skauti sér. Þóra gerðist snemma virkur félagi I Kvenréttindafélagi Islands. Hún sat i stjórn þess, var náinn samstarfsmaöur og vinur Laufeyjar Valdimarsdóttur og oftlega fulltrúi félagsins á alþjóðaþingum. Aö lokinni seinni heims- styrjöldinni var stofnaö I Parls Alþjóðasamband lýöræðissinn- aðra kvenna. Þóra var óþreytandi við að kynna þaö samband fyrir Islenskum konum og hvetja þær til þátttöku I starfi þess. Fyrir forgöngu hennar var stofnuð friðarnefnd kvenna 1949, og stóðu að nefndinni, auk einstaklinga, formenn sex kvenfélega i Reykjavlk. Þessi nefnd geröist strax aðili að Alþjóðasambandi lýðræöissinn- aðra kvenna og batt starf sitt aðallega við stefnumál Alþjóða- sambandsins, algjört jafnrétti karla og kvenna, vináttu og samvinnu kvenna I öllum löndum og baráttu fyrir friði á jöröu, og varð þar með hluti af hinni alþjóðlegu kvennahreyfingu. Friðarnefnd kvenna var stofn- uð sama ár og tsland hvarf frá hlutleysisstefnu sinni og gekk I hernaðarbandalagið NATO. Engum var betur ljós sú hætta sem Islenskri þjóð stafaöi af ásælni stórþjóðanna á landiö okk- ar, en Þóru Vigfúsdóttur. Skyggnum augum horfði hún til framtlöarinnar og sá nauðsyn þess að Islenskar konur snerust gegn hinni erlendu ásælni jafnt I ræðu sem riti, og aö þær hefðu meö sér skipulagöan félagsskap I þessu skyni. Hún varaði við hætt- unni á einangrun og vænti mikils af samstöðu við konur á alþjóða- vettvangi. Árið 1951 hinn 7. maí, gekk ameriskur her hér á land i skjóli NATO. Þegar svo var komið var það knýjandi nauðsyn að fylkja frjálslyndum konum gegn hersetunni og þeim voða sem sigla myndi I kjölfar hennar. I júnl það ár gekkst Þóra Vigfús- dóttir ásamt friðarnefnd Isl. kvenna fyrir stofnun Menningar- og friðarsamtaka islenskra kvenna, en þau yfirtóku störf nefndarinnar og gengu strax I Alþjóöasamband lýðræðissinn- aðra kvenna. Þessum samtökum helgaði Þóra krafta sína, var hollráð I stjórn og starfi og vakandi fyrir þvi, að rödd islenskra kvenna heyrðist á hinum alþjóðlega vett- vangi. Hún orðaði það svo: að Al- þjóðasambandið ætti að vera gluggi Islenskra kvenna út I heiminn. Auk starfa sinna I kvennahreyf- ingunni fór Þóra Vigfúsdóttir I fararbroddi i hinni flokkspólitísku hreyfingu. Hún beitti sér, við hlið eiginmanns slns, Kristins E. Andréssonar, fyrir nýjum straumum á hinum pólitlska og menningarlega vettvangi, ávallt sem sjálfstæöur einstaklingur með slferskar hugmyndir. Saman stóðu þau á hinum pólitlska vettvangi, saman stóðu þau I baráttu fyrir friði I heimin- um, saman stóðu þau I lifsstarfi beggja, ippbyggingu og rekstri bókmenntafélagsins Máls og menningar. Við hjónin Þóru Vigfúsdóttur og Kristin E. Andrésson áttu þessar ljóðlínur eftir Einar Benediktsson: „Maðurinn einn er ei nema hálfur, með öörum er hann meiri en hann sjálfur.” Samllf þeirra var alveg einstakt, ekki var unnt að nefna annaö án þess aö minnast hins. Bæði voru þau fagurkerar á bókmenntir og hverskyns listir. Þau virtust lifa I sérstaklega náinni snertingu við náttúru landsins og höfðu yndi af að ferðast um þaö. Þau voru bæöi alþjóðasinnar. ferðuöust viða um erlendis og áttu vini um allan heim. Heimili þeirra var opið öll- uip vinum og kunningjum, sem ávallt fóru rikari af þeirra fundi. Hjá Þóru og Kristni rlkti fegurö, viðsýni og umburöar- lyndi. Allt þetta ber að þakka við leiöarlok. Þegar Kristinn kvaddi fyrir tæpum sjö árum, tók Þóra þvi með sama jákvæða hugar- farinu og einkenndi hana allt hennar llf. Hún hélt fyrri reisn, tók á móti vinum slnum, sótti þá heim og veitti holl ráö og uppörv- un sem fyrr, fylgdist öörum betur með straumum samtimans og hélt vöku sinni til hinstu stundar. Ógleymanlegar eru samveru- stundirnar með Þóru, jafnt I gleði og sorg. Fyrst allra varð hún til aö gleðjast þegar vel gekk og fyrstallra til að hugga I sorg. Sér- staklega minnisstæöar eru ferðir I Heiðmörk þar sem legið var i grasigrónum hvömmum, ilmur jarðar teygaöur og farið með eitthvaðgottfyrirsálina Asllkum stundum varð hún eitt með náttúrunni. I huganum kveð ég Þóru, sé hana ganga út I vorið á Sumar- landinu til fundar við vininn sinn góða, þvl „Háa skilur hnetti himingeimur, blað skilur bakka og egg. En anda sem unnast fær aldreigi eilifð að skilið.” (Jónas Hallgrimsson) ^ Ása Ottesen Það var snemma á stríðs- árunum, eða einhverntima á árinu 1941, að ólafur Jóh. Sigurðsson fór með mig I heim- sókn til hjónanna Þóru Vigfús- dótturog Kristins E. Andréssonar sem þá bjuggu við Njálsgötu, rétt fyrir innan Barónsstlg, en ég átti þá heima innarlega við Grettis- götu og ólafur við Barónsstlg, svo ekki varlangt að fara. Hann hafði komið á framfæri viö Kristin smákvæði eftir mig og vildi nú sýna þeim hjónum þennan unga mann frá sjávarplássi sem ekki hafði hingaðtil oröiö frægt fyrir skáldmennt. Ég var þá kominn hátt á tvítugsaldur, en hafði ekki kynnst neinu bókmenntafólki nema ungum höfundum á mlnu reki sem flestir voru litt eða ekki þekktir, og þar sem ég var mjög óframfærinn að eölisfari, mun ég ekki hafa verið laus við kviða þegar við fórum að hitta ritstjóra Timarits Máls og menningar og konu hans á heimili þeirra. En þegar við vorum sestir inn i nota- lega stofu þeirra hjóna, þar sem öllu var smekklega fyrir komið og listaverk eftir nútltnamálara prýddu veggi, þá hvarf mér fljót- lega öll óframfærni aö mestu, og það hygg ég hafi ekki slst verið húsfreyju að þakka sem settist hjá okkur að spjalla við okkur ásamt manni sinum, glaðvær, hlýleg og hispurslaus. Þannig var það sem ég kynntist Þóru Vigfús- dóttur. Og æ siðan þótti mér sem hún væri mér einkar vinveitt, og seinna hugleiddi ég aö ef til vill ætti ég henni meira að þakka en ég gerði mér i fyrstu grein fyrir. Slðan átti ég oft eftir að koma á heimili þeirra hjóna aö skrafa um stjórnmálin, heimsástandið og bókmenntirnar og njóta góðgerða sem Þóra bar fram. Hún settist þá jafnan til borös með eigin- manni sinum og gestum og tók þátt i samræðunum af miklu fjöri. Þá geisaði heimsstríö og erlent herlið hafði sest að á þessari f jar- lægu eyju norðurhjarans, en verkalýöurinn byrjaður að ná sér á strik i vinnu fyrir erlenda her- liðið, svo það var nóg um að tala. En það sem gerði Þóru, þessa lágvöxnu, fjörlegu konu, ef til vill heillandi umfram flestar kyn- systur hennar, var einstakur lifs- áhugihennar, brosið, glaðværðin, hlýleikinn, ákefö hennar sem likt- ist ákefð ungrar stúlku aö ræða um allt það sem efst var á baugi, um byltinguna sem viö trúöum á i þá daga, skáldskapinn og skáldin. Þetta voru sannarlega timar mikilia hugsjóna, og þótt heims- styrjöld væri skollin á, höföu hug- sjónirnar ekki dofnað. Það voru hugsjónir aldamótanna um aukna hagsæld þjóðarinnar og vaxandi menningu og hugsjón verka- lýösins um aukinn jöfnuö, hug- sjón sósfalismans um réttlátari skiptingu auðæfanna, hugsjón alþjóðahyggjunnar um bræðralag og rétt hins vinnandi manns til að njóta arösins af vinnu sinni hvar sem var á jörðinni. A þetta trúði Þóra af bjartsýni og einlægni þeirrar kynslóðar sem haföi lifað það I æsku að sjá tsland fullvalda riki 1918 og sungið um „gróandi þjóðlíf með þverrandi tár” og menningu sem vaxa skyldi i „lundi nýrra skóga”. Og skáldin voru vökumenn, einskonar ljós- berar. Skáldin vöktu fólkið, glöddu það með fegurðinni, glæddu vonir þess, hvöttu til dáða i baráttunni við kúgunaröflin sem fyrr eða siðar hlytu að lúta 1 laegra haldifyrir þeim sem kúgaöir voru og hrjáðir. En um leiö og Þóra trúði á veraldlegar kenningar Karls Marx um hagfræöi og sögu- skoðun, kenningar sem reistar voru á efnishyggju, þá var hún tæpast nein efnishyggjumann- eskja i viðhorfum slnum til lifsins, enda mótuð i æsku af anda rómantisku skáldanna og bar þess greinileg merki i framkomu sinni oft og tlðum, ef þar var ekki ei'nmitt fundinn lykillinn að töfrum hennar. Ég minnist eins atviks sem gerðist eftir að þau hjónin voru flutt á efstu hæöina i nýju stórhýsi við Þingholtsstræti, þar sem þá var aðsetur Máls og menningar og Hólaprents sem prentaöi bækur félagsins. Timar voru breyttir, byltingin haföi ekki verið eins skammt undan og við höfðum haldið, en efnishyggja hafði mjög færst I aukana ásamt siharðnandi baráttu um peninga og veraldleg gæði, jafnframt þvi að bókmenntir höfðu oröiö að lúta I iægra haldi ásamt öðrum list- greinum fyrir reiknimeisturum stjórnmálanna, einnig sósialist- anna, skáldin voru undirorpin hrossaprangi þeirra, atómskáld sættu háösglósum og rómantik var fyrirlitin. Þaö þótti þvi ekki vel við hæfi i hópi sósialista á þeim tima (fremur en ef til vill nú) að láta brydda á rómantiskri hneigð. Þá var eitt sinn dálitill hópur saman kominn hjá Þóru og Kristni I fyrrgreindu húsi að gera sér glaöan dag I boöi þeirra af einhverju tilefni sem ég þori ekki aö fullyrða um hvert var. Og þegar flestir voru orönir örir af víni og Þóra sjálf ef til vill svolitið dreymandi, en samtalskliður mikill I stofunni, þar sem gáfað og menntað fólk ræddi um listir og bókmenntir, stjórnmál og visindi, þá var það aö Þóra kom að máli við mig og bað mig að leika nokkur létt lög á pianóið. Ekki vissi ég hve vel slikt mundi vera þegiö I þeim hópi gáfnaljósa sem þarna var saman kominn, settist þó við pianóiö og tók að glamra eitthvað. En þegar ég hafði leikiö nokkur lög við góðar undirtektir, kom Þóra til min og setti fyrir mig sálmasöngsbók, fór aö tala um það hve mjög hún saknaði þess að heyra aldrei lengur sungið eins og I gamla daga, þegar fólk gekk i hjónaband og sungiö var: Hve gott og fagurt og indælt er. Og hún sagöi við mig: Jón minn, spilaöu nú fyrir mig: Hve gott og fagurt og indælt er. En ég þekkti ekki lagið og haföi aldrei heyrt þaö sungið, og hugur minn hvarflaði að þvi hve einkennilegt væri að Þóra skyldi biðja mig um þetta lag innan um þá órómantisku og efnishyggjulega þenkjandi marx- ista sem þarna voru saman komnir. Auðvitaö neitaöi ég henni ekki um viðvikið. Ég lék fyrir hana lagið sem hún bað um upp úr Sálmasöngsbókinni eins vel og ég gat framast áttað mig á þvi við fyrstu sýn, og hún söng meö mér af miklum innileik: Hve gott og fagurt og indæit er með ástvin kærum á samleið vera! Þá gleði tvöfalda lánið lér og iéttbært veröur hvern harm að bera. Já, það, er kætir oss best og bætir hvert böl, sem mætir, er einlæg ást. Seinna á ævinni hugsaði ég oft um þetta atvik, og mér hefur einatt fundist, að það væri tákn- rænt fyrir Þóru, hvernig hún var innst inni og hversu eðlilegt henni var að koma fram eins og hún var, þó stundum gæti verið erfitt að týna ekki sjálfum sér i svipti- vindum stjórnmálanna og hug- sjónanna á miklum örlagatimum þessarar þjóðar. Um æviatriöi Þóru Vigfús- dóttur og ætterni ætla ég ekki aö fjalla I þessum fáu minninga- linum, þvi til þess eru aðrir færari en ég. A minu færi er einungis að minnasthennar af þakklæti, kalla fram I hugann leifturbrot frá liðnum tima, þegar hún setti svip sinn á umhverfið, hún sem talaði af meiri viröingu um skáld en ég hef heyrt flesta aðra tala, en kunni þó að sjá þau i skoplegu ljósi, jafnvel eins og kenjótt börn. Þessa finnst mér ævinlega gott aö minnast, þvi þarna var á ferðinni mikill lifsskilningur. Ef ég ætti að lýsa Þóru fyrir ungum höfundum nútimans, hlyti ég að segja: Þaö er ekki hægt. Sllkri konu kynnast ungir höf- undar varla nema einu sinni á öld, og henni verður ekki lýst. Mér finnst að það væri hægt að skrifa um hana langt mál, heila skáldsögu, en ég kann það ekki og þekki engan sem kynni það. Ég verð að láta nægja þessi fábreyttu orð. Jón Óskar Hún kvaddi I upphafi sumars á þeim tima sem henni var kærastur og sá fyrir sér það Island sem hún þekkti af langri viökynning. Þau Kristinn voru náttúrudýrkendur og nutu þess þegar færi gafst, þó ekki væri nema stuttan spöl út fyrir bæinn. Ég kynntist Þóru fyrst að marki i sambandi viðútgáfuna á timariti kvenna.Melkorku. Hún var I rit- stjórn undir forsæti Rannveigar Kristjánsdóttur fyrstu árin en eftir þaö ritstjóri með öörum meöan það tlmarit var við lýði eða frá 1944-1962. Ritið kom út i fyrsta sinn 1. mal 1944 á þvi bjart- sýnisári og Þóra ritaöi slna fyrstu grein i það, eldheita hvatn- ing til íslenskra kvenna og karla i tilefni lýðveldisstofnunar. Það var nú þá. En setið var á svik- ráðum við okkur. Hið vestur- heimska stórveldi seildist til áhrifa hér og i kjölfarið kom hinn óhjákvæmilegi fylgifiskur þess: ásælnin I auðlindir landsins. Þóru fór sem mörgum góð- um Islendingi, hún bjóst við hinu versta. Það reyndist ekki ástæðu- laust Hér er hvorki staður né stund til að fjalla um Melkorku nema vikja aöeins að hlut Þóru og þó aöeins almennt. Hún skrifaði mikið I ritið um margvisleg efni, en einkum skrifaöi hún um hin alþjóðlegu tengsl kvenna og nauðsyn Islenskra kvenna að taka þátt I alþjóðlegu starfi, sótti og sjálf nokkur slik þing. Þjóðfrelsismálin voru auðvitað hjartansmáliðog þó aö hún skrif- aði sjálf minna um þau, var henni kappsmál aö þau fengju umfjöll- un, enda sifelld tilefni til þess. Réttindamál kvenna skrifaði hún um aö sjálfsögðu, enda margur flöturinn á þeim vanda. Fjöldi kvenna og nokkrir karlar skrif- uðu I ritið fyrir hennar orð, henni var lagiö að laöa fólk til sam- starfs og hún var hugkvæm i besta lagi. Einlægni og eðlileg tigin framkoma greiddu henni leiöina að öðrum.Annarsvar góð þekking hennar á islenskum bókmenntum og sögu og norðurlandabókmenntum hin trausta stoö. Eins og margir af Framhald á bls. 8

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.