Þjóðviljinn - 04.06.1980, Síða 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 4. júni 1980,
WOWIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýds-
hreyfingar og þjóðfrelsis
Ctgefandi: Ltgáfufélag ÞjóBviljans
Framkvæmdastjóri: EiBur Bergmann
Hitstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson. Kjartan ölafsson
Fréttastjóri: Vilborg Haröardóttir.
Auglýsingastjóri: Þorgeir Olafsson.
Umsjónarmaftur Sunnudagsblaós: Þórunn Siguröardóttir
Rekstrarstjóri: Olfar Þormóösson
Afgrelöslustjóri: Valþór Hlööversson
Blaöamenn: ÁlfheiBur Ingadóttir, Einar örn Stefánsson, Guöjón Friöriks-
son.Ingibjörg Haraldsdóttir, Magnús H. Gíslason, Sigurdór Sigurdórsson.
Þingfréttir: Þorsteinn Magnússon.
tþróttafréttamaöur: Ingólfur Hannesson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Ellsson
C'tlit og hönnun: GuBjón Sveinbjörnsson, Sævar Guöbjörnsson,
liandrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Safnvöröur:Eyjólfur Arnason.
Auglýsingar: Sigríöur Hanna Sigurbjörnsdóttir.
Skrifstofa :Guörún GuövarBardóttir.
Afgreiösla: Kristín Pétursdóttir, Bára Halldórsdóttir, Bára SigurÖardóttir.
Simavarsla: ölöf Halldórsdóttir, Sigríöur Kristjánsdóttir.
Bílstjóri: Sigrún Báröardóttir.
Húsmóöir : Jóna Siguröardóttir.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir.
Ctkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn Guömundsson.
Ritstjórn, afgreiösla og auglýsingar: Slöumúla 6, Reykjavfk, slmi 8 13 33.
Prentun: Blaöaþrent hf.
Böl eða blessun
• Það er ömurlegt dæmi um íslenska blaðamennsku á
lægsta stigi, sem birtist í forystugrein Morgunblaðsins í
gær, en þar er því blákalt haldið f ram að það séu íslensk-
ir herstöðvaandstæðingar sem hér vilji endilega hafa
kjarnorkuvopn, svo menn haf i nú einhverju að mótmæla.
Þvílík rökræða um alvarlegustu mál.
• Af þessu tilefni verður reyndar ekki hjá því komist
að rif ja upp hér, að fyrir tæpum tuttugu árum birtist í
Morgunblaðinu frásögn af ræðu, sem annar af núver-
andi ritstjórum Morgunblaðsins hafði þá flutt á fundi í
Heimdalli en þar komst hann svo að orði samkvæmt f rá-
sögn Morgunblaðsins:
• „ Ég er því þeirrar skoðunar, að varnarliðið á Kef la-
víkurf lugvelli verði alltaf að vera útbúið fullkomnustu
vopnum sem völ er á, og nú til dags eru það eldf laugar og
vetnissprengjur, hvortsem okkur líkar betur eða verr."
• Þau sjónarmið hafa því sannarlega verið til í innsta
hring Sjálfstæðisflokksins og Morgunblaðsins, og eru
það máskeenn, að vetnissprengjur a Kef lavíkurf lugvelli
séu ekki böl heldur blessun.
• En hvað sem þessu líður þá hef ur Morgunblaðið ekki
komist hjá því nú síðustu daga að birta umsagnir hinnar
bandarísku upplýsingamiðstöðvar og eiga tal við flota-
foringjann bandaríska sem henni stjórnar.
• í yfirlýsingu rannsóknarstofnunarinnar, sem birtist
i Morgunblaðinu á laugardaginn var, segir að (sland sé
eina NATO-landið, þar sem ekki sé fyrir hendi nein stað-
festing bandaríska varnarmálaráðherrans fyrir því,
hvort hér séu kjarnorkuvopn eða ekki.
• Hér er um mjög athyglisverða yfirlýsingu að ræða
því hér á landi hefur því hvað eftir annað verið haldið
fram að bandarísk hermálayfirvöld gæfu aldrei og
hvergi um það upplýsingar hvort kjarnorkuvopn væru
fyrir hendi á þessum stað eða hinum.
• Fullyrðing rannsóknarstöðvar bandaríska flotafor-
ingjans er hins vegar sú að haf a í þessum ef num.
• Þá segir La Rocque f iotaforingi í viðtali við Morgun-
blaðið þann 24. maí. s.l. að ekki væri ávallt unnt að taka
trúanlegar munnlegar yfirlýsingar bandaríska utanrík-
isráðuneytisins í þessum efnum og vísaði hann m.a. til
reynslu f rá Japan hvað þetta varðar. Fyrir okkur íslend
inga er enn nærtækara dæmis að minnast, þegar
bandarísk flugvél hlaðin kjarnorkusprengjum varð að
nauðlenda á Thule-flugvelli á Grænlandi fyrir nokkrum
árum, en dönsk yfirvöld höfðu alveg eins og okkar
stjó’-nvöld marglýst því yfir að samkomulag væri um
það, að ekki mætti fljúga með kjarnorkusprengjur yfir
lofthelgi Grænlands.
• Hér er spurningin ekki f yrst og f remst um það hvort
menn trúi yfirlýsingum íslenskra ráðherra, heldur um
hitt— hafa þessir ráðherrar fengið réttar upplýsingar?
Gera verður þá lágmarkskröfu að íslenska utanríkis-
ráðuneytiðsvari undanbragðslaust þessum spurningum:
1. Hvaða bandarisk stjórnvöld hafa gefið yfirlýsingu um
engin kjarnorkuvopn á Kef lavíkurf lugvelli? —
Hvernig hljóðar þessi yf irlýsing, hvenær var hún gefin
út og í hvaða formi, munnleg eða skrifleg?
2. Hafi yfirlýsing verið gefin þegar F-102 A orrustuþot-
urnar komu hingað 1962, hefur hún þá verið endur-
nýjuð við komu Orion P3T flugvélanna og Phantom
F4E vélanna?
• Svör við þessum spurningum þurf a að f ást svo rann-
sókn málsins geti haldið áfram með eðlilegum hætti.
# Hér þarf að liggja skýlaust fyrir hvort sú yfirlýsing
frá bandarískum stjórnvöldum, sem menn tala um, taki
af öll tvímæli ekki aðeins hvað varðar varanlega
geymslu kjarnorkuvopna á Keflavíkurflugvelli, heldur
líka tímabundna geymslu eða f lug með kjarnorkuvopn í
islenskri lofthelgi. Síðast en ekki síst þurfa að fást svör
við því hvaða hlutverki herstöðin hér e.t.v. gegnir sem
hugsanleg stjórnstöð í kjarnorkuvopnakerfi Bandarikj-
amanna. Enn sem komið er hefur enginn sett fram
nokkur rökstudd andmæli með þeim alvarlegu upplýs-
ingum, sem Olafur Ragnar Grímsson, fulltrúi Alþýðu-
bandalagsins í utanríkismálanef nd greindi frá á Alþihgi
fyrir stuttu, um þau mál.
— k.
hugun á möguleikum smá-
iðnaðar og meöalstórra fyrir-
tækja og opinberum stuðningi
við þau. Skipuleg úttekt og hag-
ræðing fer nú fram eða er i
undirbúningi I ýmsum greinum
iðnaðar á tslandi með það að
markmiði að hagnýta vannýtta
framleiðslugetu og styrkja stöð-
una á heimamarkaði og I út-
flutningsgreinum. í þessu sam-
bandi sagöi iðnaöarráöherra:
„Jafnhliða eru i athugun og á
undirbúningsstigi margháttuð
nýiðnaðarverkefni m.a.
þróunarátak i rafiönaði, og
miðlungsstór framleiðslufyrir-
tæki er nýta innlend hráefni og
orku. Viðtæk athugun á hag-
nýtingu orkulinda landsins i
þágu atvinnulifs og iðnaðar er
aö hefjast á vegum iðnaðar-
ráðuneytisins sem liöur i mótun
iðnaðar- og orkustefnu til langs
tima. Þar, eins og á öðrum
sviðum atvinnuuppbyggingar,
þarf að taka mið af fjölþættum
viðhorfum, umhverfisvernd og
félagslegum aöstæðum I okkar
stóra en strjálbýla landi, og þvi
atvinnulifi sem fyrir er og á sér
góða vaxtarmöguleika.
SU stefna,sem lýtur að eflingu
smárra og miðlungsstórra iðn-
fyrirtækja og mjög er nú rætt
um á Norðurlöndum og viðar,
hlýtur að vekja sérstakan áhuga
okkar Islendinga og i þvi sam-
bandi reynir á gott skipulag og
samstarf milli fyrirtækja, er
fást viö skylda framleiöslu.
Bættar samgöngur og greiöari
boðleiðir milli fyrirtækja, sjóða
og opinberra þjónustustofnana
skipta miklu máli til að ná megi
árangri og æskilegri dreifingu
fyrirtækja og vega upp á móti
óhaeræði smæöarinnar.”
klrippt
! Smátt betra
en stórt
Kenningar koma og fara i
Ihinum hagrænu fræöum eins og
öðrum. SU kenning sem nefna
mætti safnheitinu hagkvæmni
, stærðarinnar hefur tröllriðið
Iheiminum siöustu áratugi og
verið studd slikri býsn af rökum
að viðast hefur hUn veriö fram-
, kvæmd i einni eða annarri mynd
Iog með offorsi misjafnlega
miklu. óhagræði smæðarinnar
hefur svo veriö hin hliðin á
. tUkallinum og enginn maöur
Imeð mönnum nema hann
hugsaði stórt.
tslendingar eru svo lUs-
Iheppnir að hafa ekki haft burði i
sér til þess að koma kenn-
ingunum um hagkvæmni stærð-
arinnar i framkvæmd nema að
Ióverulegu leyti. Sveitarfélögin
eru enn í smáum einingum,
byggt er Ut um holt og móa, og
. fyrirtækin eru flest smá. Það er
Isælt að vera fátækur, því nU er
aö koma upp Ur dUrnum aö
smátt er farsælt og fallegt eins
, og S.F. Schumacher kallinn
Isagði — lika Ut frá hagrænum
sjónarhól séð. I siðustu viku
sögðum viö frá breskum og
. sænskum hugmyndum um þann
Iófamað sem stórrekstur á
sjúkrahUsum hefði i för með
sér. Og æ fleiri skipuleggjendur
, og hagfræöingar leggja nú orð i
Ibelg um hagkvæmni
smæöarinnar og óhagræði
fyrirtæki eru hér litil á norræna
vfsu hefur umræðan hér ekki
beint snúist um stjórnvaldsað-
gerðir á sviði smáfyrirtækja.
Afstaðan endurspeglast þó að
nokkru leyti þegar rætt er um
stóriðju og smáiðju. Aðeins uþb.
30 af 2500 iðnfyrirtækjum hafa
fleiri en 59 ársmenn hér á
landi.”
Aðlögunarhœfir
vaxtarbroddar
,,Þá er og athyglisvert að
athugun á nokkrum fyrir-
tækjum fyrir tilstuölan Norræna
iðnþróunarsjóðsins sýndi að
stækkun fyrirtækja skilaði sér
ekki alltaf I aukinni arösemi,
sem bendir m.a. til þess aö við
stjórnunarörðugleika sé að etja.
Astæður vaxandi áhuga á
smáfyrirtækjum eru af marg-
vfslegum toga spunnar. Það
virðist Utbreidd skoðun að
byggðastefna veröi trauöla virk
nema með ívafi smárra og
miðlungsstórra eininga. Þá
þykir sumum nóg um sam-
þjöppun valds á fáar hendur
iðnjöfra. Einnig verði andinn á
vinnustað manneskjulegri i
litlum fyrirtækjum og samhjálp
meiri. Auk þess er lögð á það
áhersla, sérflagi i Sviþjóð og að
vissu marki f Danmörku.að litil
og miðlungi stór fyrirtæki séu
vaxtarbroddar og hafi betri
aðlögunarhæfni en risarnir. Viö
þekkjum þetta af eigin raun, t.d.
i saltfiskverkun og málm- og
skipasmfði.
Astæöa er til aö ætla að fram-
boö áhættufjár sé sérstakt
vandamál smáfyrirtækja, þvf
Istæröarinnar. Meira að segja i
landbUnaöinum er þegar farið
■ að pina menn með kvótakerfi til
Iþess aö hugsa smærra.
Þar verður
j vinnan til
I Hér skal aðeins boriö niður á
■ þremur stöðum til að sýna fram
Iá að Utleggingin hér að framan
er ekki út I hött. Fyrst verður
fyrir Newsweek, 26. mai, þar
■ sem sagt er frá þingmanninum
IJack Kemp, miklum trúar-
frömuði i skattalækk-
unarmálum. A hann hefur
■ runnið mikiö skattalækkunar-
Iæði sem er utan þessarar sögu,
en er sagt undirspil við framboð
Reagans. Um leið er Kemp
> áhugamaður um atvinnusköpun
Iog vill sérstaklega lækka skatta
á gróöa smáfyrirtækja, þvi eins
og þar segir þá sýnir MIT-
■ skýrsla (Massachusettes In-
Istitute for Technology) að tveir
þriðju hlutar nýrra atvinnu-
tækifæra verða til I fyrirtækjum
» sem hafa innan við 20 manns I
Ivinnu.
Smátt
j en samrœmt
I ræðu Hjörleifs Guttorms-
, sonar iðnaöarráðherra á aðal-
Ifundi Iðnþróunarsjóðs vék hann
m.a. að nýjum viðhorfum i
iðnaðaruppbyggingu og kom
, smáreksturinn þar við sögu, en
nýlega hefur Norðurlandaráð
beitt sér sérstaklega fyrir at-
Uppreisn
smárekstursins
Guðmundur Magnússon
háskólarektor dvaldi einnig
nokkuð við þá uppreisn sem
smáreksturinn hefur fengiö i
hinum hagrænu fræðum á aðal-
fundi Iðnþróunarsjóðs. Hann
sagði m.a.:
„Nýlega kom út skýrsla frá
Norræna ráöinu um stefnu I
málefnum smáfyrirtækja á
Noröurlöndum. Eitt af þvf, sem
ekki var jafnfersk reynsla af
fyrir 10 árum,er aðlögunarhæfni
smáfyrirtækja þegar á móti
blæs. Sömuleiðis hefur tækni-
þróun orðið minni fyrirtækjum I
hag og má þar nefna örtölvu-
byltinguna. Ætti þetta ekki hvað
sist að vera uppörvun fyrir
Islendinga. Þá hefur það sýnt
sig að ýmsir samstarfsmögu-
leikar eru heppilegri en beinn
samruni. Sannast þetta ekki sist
hér á landi, þar sem hindranir
fyrir samruna voru taldar stórt
vandamál fyrir 10 árum en er
ekki rætt i dag.
Hver man lika ekki eftir hrak-
spám í þá veru að tæknin væri
að taka völdin af manninum og
hann yrði óþarfur á mörgum
sviðum. Þvert á móti hefur hlut-
deild launa i þjóðarframleiðslu
fariö vaxandi, sem helgast að
nokkru af þvi að hugbúnaður er
snar þáttur tækninnar. Þar sem
að þau eiga annaöhvort ekki
eins greiðan aögang aö lánsfé
eða þá fá það ekki með eins hag-
stæðum kjörum og hin stærri
fyrirtæki. Sömuleiðis eiga þau
óhægara um vik f allri fram-
leiðslu- og rannsóknarstarf-
semi. Þaö er einmitt á þessum
sviðum sem stjórnvöld geta
ótvfrætt lagt hönd á plóginn og
jafnað aðstöðumun.”
Getum
hoppað yfir
Einhversstaðar segir að allar
hagfræðikenningar séu undan-
renna af stéttarhagsmunum.
Ekki treystir klippari sér til aö
kveða uppúr með það hvaða
vélabrögð eru aö baki þvi að
segja mönnum að hugsa fremur
smátt en stórt i skipulagsmál-
um atvinnurekstrar. I fljótu
bragði hugnast þó slikar kenn-
ingar betur en „gigant-
omanian”, og þær eru ef til vill
fyrst og fremst raunsæ aðlögun
að reynslunni og pólitiskum
kröfum er ganga i sömu átt. En
miðað við þá áherslu sem á
þessar kenningar er lögð nú er
ekki að efa að þær eiga eftir að
raungerast í okkar atvinnuum-
hverfi. Og eins og áður sagði eru
íslendinga svo heppnir að geta
hoppað yfir eitt miður heppnað
þróunarskeiðef þeim svo sýnist.
— ekh
A9 sRcorriðLÍ