Þjóðviljinn - 04.06.1980, Síða 16

Þjóðviljinn - 04.06.1980, Síða 16
Xóalslmi Þjóftviljans er 81333 kl. 9-20 mánudaga til föstudaga. 1 tan þess tima er hægt aö ná I blaöamenn og aöra starfsmenn blaösins í þessum simum : Ritstjórn 81382. 81482 og 81527, umbrot Aðalsími Kvöldsími Helgarsími 81285. Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 og 17-19 er hægt aö ná I afgreiöslu blaösins islma 81663. Blaöaprent hefur slma 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 afgreiðslu 81663 Rangárvallasýsla í sumar: 35 Arnarflugsmenn til Mið-Austurlands Há verölaun á mótum Skákar og sveitarfélaganna: Fimm helgarskákmót í sumar Flestir bestu skákmennirnir tefla í Keflavík um helgina Tímaritið Skák hefur ákveðið að gangast fyrir a.m.k. 5 helgarskákmót- um víðsvegar um landið í sumar í samvinnu við bæjar- og sveitarfélögin um landið. Fyrsta mótið fer fram í Fjölbrautar- skóla Suðurnesja um næstu helgi og verða flestir bestu skákmenn landsins meðal þátttak- enda, svo sem Friðrik, Guðmundur, Jón L., Helgi öl., Margeir, Ingi R., fslandsmeistarinn Jóh. Hjartarson og gamla kempan Benóný. Tefldar verða sjö umferöir eftir Monrad-kerfi, ein og hálf kiukkustund á fyrstu þrjátiu leikina og hálftimi til að ljúka skákinni. Mótiö er opið öllum en þátttökugjald er 10 þúsund kr. Há verðlaun eru i boði. Fyrstu verðlaun eru 300 þús., 3. verð. 200 þús., 3. veröl. 100 þús. Ef 3 konur eða fleiri verða meö mun veröa keppt um sérstök 50 þúsund kr. kvennaverklaun, 3g sá unglingur sem hlýtur besta útkomu fær ókeypis dvöl i skák- skólanum að Kirkjubæjar- klaustri næsta sumar. Bóka- verðlaun verða veitt fyrir óvæntustu úrslit, besta útkomu miðaö við stig og jafntefliskóng- ur mótsins fær einnig bókaverö- laun. Mótiö i Keflavik er haldið I samvinnu viö samtök sveitar- félaga á Suðurnesjum sem leggja til þrenn efstu verölaun- in. Fyrsta umferðin hefst kl. 14 föstudaginn 6. júni. Þann dag verða tefldar tvær umferðir, laugardag 7. júni hefst keppni. kl. 9 f.h. og verða tefldar þrjár umferðir. Á sunnudag verða tefldar tvær siðustu umferðirn- ar og hefst sú fyrri kl. 9 f.h. I ráöi er aö ljúka mótinu meö hraðskákkeppni um kvöldiö. Tiu efstu skákmennirnir á mótunum fimm sem ráögerð eru I sumar fá stig til aukaverð- launa. Sá sem flest hefur stigin eftir sumarið hreppir eina miljón króna. Skákstjóri á mótunum veröur Jóhann Þórir Jónsson. — ekh. Jórdaníu- flugiö á þotu frá Western Arnarflug mun hefja flug fyrir Jórdanska flug- félagið Alia, eða öðru naf ni The Royal Jordan Airlines þann 6. júní nk. samkvæmt samningi sem gerður var milli félaganna nú fyrir stuttu. Aðallega verður f logið frá Amman til staða innan Miá-austurlanda og verða að jafnaði um 35 starfsmenn Arnarflugs með aðsetur sitt þar meðan á leigutímanum stendur. Til þess að sinna þessu verkefni hefur Arnarflug tekið i notkun þotu af gerðinni Boeing 707-320C með 187 sætum og er hún fengin frá bandariska flugfélaginu Western Airlines svo sem fyrri þotur félagsins. Þessi flugvél hef- ur þegar fengið Islenska skrán- ingu með einkennisstöfunum TF- VLG, sem vélin heldur svo lengi sem hún verður I vörslu Arnar- flugs. Undanfarnar vikur hafa áhafnir Arnarflugs verið i undir- búningsþjálfun hér heima og I Bandarikjunum fyrir þennan nýja farkost félagsins og er nú áhöfn i Los Angeles, tilbúin til aö fljúga vélinni til Keflavikur á næstu dögum. Enn engin ákVörð- un um fiskverð Fundur var haldinn i gær annan daginn i röð i verðlagsráöi sjávarútvegsins vegna ákvörð- unar umnýtt fiskverð sem átti að liggja fyrir um mánaðamótin. Engin niöurstaöa fékkst á fundinum, og hefur fiskverös- nefndin verið boöuð á ný til fund- ar kl. 15 i dag. — lg VOÐVIUINN Miðvikudagur 4. júni L980. Fílar og ljón á beit Heyrst hefur aö samninga- umræður hafi staðið yfir undanfarið við bændur austur i Rangárvallasýslu um að þeir leyfi Ijónum og filum afnot af bithafa hjá sér vegna töku fornaldarkvikmyndar sem á að fara fram eystra I sumar. Páll A. Pálsson yfirdýralæknir sagöi i samtali við Þjóðviljann i gær að sótt hefði verið um að flytja inn nokkur sirkusljón og fila en leyfi hefði ekki enn verið veitt. Kröfur eru gerðar um full- komiö heilbrigðisvottorö frá Bretlandi og öfluga gæslu um dýrin áöur en svo verður. Kvikmynda á dýrin i forgrunni skriðjökultungu og á að færa filana i loðfeldi og láta þá leika mammúta. Páll sagöist hafa heyrt að tilraunir hefðu verið gerðar á Bretlandi með aö færa einn filinn I sllkan loðfeld en þá brá svo við að hin dýrin trylltust af hræöslu en nánari fréttir hafa ekki borist. Hætt er við að einhverjum bóndanum eystra þyki undarlegt að sjá fila og ljón á beit i haga sin- um og liklega er vissara aö hafa blessuð lömbin viðs fjarri. — GFr. Kindakjötið skattlagt Króna á kílóið til kynningar- starfsemi Framleiðsluráð landbúnaöar- arins hefur ákveðið að innheimta 1 krónu af hverju kg. af kindakjöti i haust til að standa undir kostn- aði af auglýsingum á þvi. Hugmyndin er að hefja hliðstætt samstarf innan kjötiðn- aðarins og veriö hefur I nokkur ár innan mjólkuriðnaðarins, þ.e. koma á fót samstarfsnefnd hags- munaaðila sem skipuleggur j kynningar og auglýsingarstarf- i semi á kindakjöti. Nú þegar mun hefjast kynning I á réttum úr kindakjöti i verslun- um á höfuðborgarsvæðinu. Matar kynningin fer fram I 4 verslunum samtimis, á fimmtudögum og föstudögum og stendur út allan júnimánuð. Kynntir verða tveir pottréttir og tveir griilréttir. j Ahugasamir neytendur fá bragö- j prufur á staðnum, og uppskriftir j með sér heim. Arbæjarsafnið var opnað i gær með sögusýningu er nefnist „Kvensöðull með öllum búnaði” og eru þar sýnd alls konar gömu! reiötygi. Um starfsemi Arbæjarsafns og sögusýninguna er fjallað á bls. 2 I dag. — Mynd: — gel. Finska socker óskar eftir eignaraöild Sykurverksmiðja í Hveragerði Starfshópur kannar áttektarskýrslu Finnana Ahugafélag um sykuriönað h/f sem stofnað var I fyrrahaust, I beinu framhaldi af hugmyndum um stofnun sykurverksmiðju I Hveragerði, hefur nýlega fengið I hendur úttekt á rekstri slikrar verksmiðju. Það er finnska fyrir- tækið Finska socker a/b sem vann úttektina en þaö fyrirtæki rekur stórar sykurverksmiðjur i Finnlandi, og hefur mikinn áhuga á eignaaðild að sykurverksmiöju i Hveragerði, ef að framkvæmd- um veröur. Skýrsla finnska fyrirtækisins hefur verið lögð fyrir iðnaöarráö- herVa sem skipaði fyrir skömmu þriggja manna starfshóp til að kanna betur innihald skýrslunnar en i hópnum eru þeir Hörður Jónsson efnaverkfræðingur, Ragnar önundarson viðskipta- fræðingur og Sigurður Sigfússon verkfræðingur. I úttekt Finnana er gert ráö fyrir að flutt verði hingað til lands með tankskipum 30 þús. tonn af melassa, sem er úrgangsefni frá sykurverksmiðjum, en unnt er aö vinna allt aö 10 þús. tonn af hrein- um sykri úr þeim farmi. Til þess þarf þó mikla orku og hita, og er Hveragerði þvi mjög heppilegur staður fyrir slika orkufreka vinnslu. Stofnkostnaður við verksmiðj- una er áætlaður 12 miljarðar isl. kr., en norræni fjárfestinga- sjóöurinn leggur til 50% af stofn- kostnaöi ef samkomulag næst um þátttöku Finna eða annara Noröurlandaþjóða I verksmiðju- rekstrinum. Slik verksmiðja sem Finska socker mælir meö, myndi veita um 70 manns atvinnu. Fyrir utan þau 10 þús. tonn af sykri sem verksmiöjan næði að framleiða úr 30 þús. tonnum af melassa, myndast við vinnsluna um 12 þús. tonn af svokölluöum lokamelassa sem er úrgangsefni, sem hægt er að þurrka, og blanda i fóöurbæti. Engar frekari ákvarðanir um sykurverksmiðju i Hveragerði verða teknar fyrr en niðurstaða starfshóps iðnaöarráðherra um hagkvæmni slikrar verksmiðju liggur fyrir, sem mun ekki verða fyrr en i haust. —Ig.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.