Þjóðviljinn - 06.06.1980, Page 9
8 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 6. júnl 1980.
Föstudagur 6. júnl 1980. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9
100 ára afmæli íþöku:
144 ný-
stúdentar
frá MR
Menntaskólanum í
Reykjavík var slitið ? Há-
skólabíói 29. maí sl. I ræðu
sinni minntist rektor þess,
að þetta væri í tiunda
skipti, sem hann braut-
skráði stúdenta og væru
þeir orðnir 1887 á þessum
árum, en til marks um
f jölgun stúdenta væri það,
að Pálmi Hannesson hefði
brautskráð 1909 stúdenta á
27 árum, en hannvariengst
allra rektora.
Þá minntist rektor þess, a6 100
ár hefðu verið liöin á þessu sköla-
ári frá stofnun lestrarfélagsins
Iþöku, sem var stofnað á út-
mánuöum 1880 vegna bókagjafar
ameriska norrænufræðingsins
Willards Fiskes. Gaf Fiske bækur
til safnsins allt til ársins 1904, er
hann lést.
Nemendur skólans voru i upp-
hafi skólaárs 782 talsins, 144 i 6.
bekk og 638 i neðri bekkjum. Af'
neðri bekkingum hurfu 8.5% frá
námi á skólaárinu, en undir próf i
vor gengu 584 nemendur. 520
nemendur stóðust próf. Hæstu
einkunn remanenta hlaut Har-
aldur Sigþórsson, 5.X, ág. 9,50.
144 nemendur gengu undir
stúdentspróf og stóðust allir.
Hæstu einkunn á stúdentsprófi
hlaut Guðrún Þórhallsdóttir, 6.D.
ág. 9,54, og er hún jafnframt dux
scholae, eins og hún hefur verið
tvisvar áður. Næst hæst á
stúdentsprófi varð Ragnhildur
Hjartardóttir, 6.X, ág. 9,46, og
þriðja varö Gyða Bjarnadóttir
6.M, ág. 9,20.
Margir afmælisárgangar
stúdenta áttu fulltrúa við skólaslit
og færði rektor góðar þakkir skól-
ans fyrir hlýhug þeirra og
ræktarsemi I garð skólans. Fyrir
hönd 50 ára stúdenta flutti ræðu
dr. Sverrir Magnússon, lyfsali, og
færði skólanum þrivlddarsmásjá
frá árgangnum. Fyrir hönd 25 ára
stúdenta flutti ræðu Kristján
Baldvinsson læknir og færði skól-
anum veglega upphæð I Sögusjóð
og einnig frá 20 og 30 ára stúdent-
um. Þá tilkynntu 10 ára
stúdentar, að þeir mundu næstu
daga færa skólanum gjöf I Sögu-
sjóð.
Vigdísarmenn
í Eyjum:
Nefnd
og skrif-
stofa
Stuðningsmenn Vigdisar Finn-
bogadóttur hafa opnað skrifstofu i
Miðstræti 11 i Vestmannaeyjum.
Er hún opin virka daga klukkan
17—21, en laugardaga og sunnu-
daga klukkan 14—18. — 1 fram-
kvæmdanefnd stuðningsmanna
eru þessir menn: Eirikur Guðna-
son, Hrafnhildur Ástþórsdóttir,
Jóhanna Andersen, Sigriður
Angantýsdóttir, Vilborg Gisla-
dóttir og Olöf Bárðardóttir.
Korpúlfsstaðir
A sunnudaginn hefst skúlptúr-
sýning á hlöðulofti aö Korpúlfs-
stöðum og stendur hún I 3 vikur.
Þar sýna 15 félagar I Mynd-
höggvarafélaginu og 11 gestir.
Sýningin er I tengslum viö lista-
hátlð 1980.
Félagsmennirnir sem þar sýna
eru: Þorbjörg Pálsdóttir, Jón
Gunnar Arnason, Ragnar Kjart-
ansson, Bjarni H. Þórarinsson,
Sigurður Steinsson, Sverrir
Ólafsson, Ölafur Lárusson, Þór
Vigfússon, Sigrún Guðmunds-
dóttir, Steinunn Þórarinsdóttir,
Magnús Pálsson, Ivar Valgarðs-
son, Niels Hafstein, Rúri og
Sigfús Thorarensen.
Gestir eru Asta ólafsdóttir,
Grimur M. Steindórsson, Ingi-
björg Sigurðardóttir, Guðjón
Ketilsson, Kristin Jónsdóttir,
Grétar Reynisson, Solveig Aðal-
steinsdóttir og nemendahópur úr
Myndlistaskólanum i Reykjavik.
t húsagaröinum að Korpúifsstöðum ætla myndhöggvarar aö hafa úti-
veitingar þegar vel viðrar og mun Kvenfélag Arbæjarkirkjusóknar sjá
um þær i sumar. (Ljósm.: gel).
Skáld eftir Bjarna H. Þóarinsson
Við opnunina mun Horna-
flokkur Kópavogs leika undir
stjórn Björns Guðjónssonar og
Sigurjón Pétursson, forseti
borgarstjórnar, mun flytja
ávarp.
En hvað er Myndhöggvara-
félagiö I Reykjavik? I fréttatil-
kynningu frá félaginu segir svo
um það og aöstöðuna á Korpúlfs-
stöðum:
„Myndhöggvarafélagið i
Reykjavik er vaxið upp úr þeim
hræringum sem útisýningarnar á
Skólavörðuholti vöktu, mynd-
höggvarar sáu fram á nauðsyn
þess að efla samstöðu sina og
tryggja félagsleg réttindi til jafns
við aðra listamenn.
Stuttu eftir stofnun félagsins,
1972, var I alvöru farið að ræða
þann möguleika að fá sameigin-
lega vinnustofu fyrir félagsmenn,
þar sem, hægt væri aö útbúa full-
komin verkstæöi, s.s. fyrir járn-
vinnu, smiöar, leirbrennslu,
plast, o.fl. 1 framhaldi af þessu
ritaði stjórnin bréf til Borgaryfir-
valda og fór þess á leit að þau
veittu félaginu aðstöðu að
Korpúlfsstööum, — var visað til
sambærilegrar aðstöðu mynd-
höggvara I Osló. Þá var reifuð sú
hugmynd, að koma upp gestaibúö
fyrir norræna myndhöggvara, er
gætu dvalið hér og unnið að list
sinni, en þar á móti færu islenskir
myndhöggvarar til dvalar I
menningarmiðstöðvum ytra.
Borgarstjórn Reykjavikur brást
vel við þessum óskum og útvegaöi
félaginu aðstöðu i súrheysgryfj-
um og tveim ibúöum á hlööulofti
Korpúlfsstaða, hljóðaði samn-
ingurinn upp á leigu til 20 ára.
Þar sem fjárhagur Mynd-
höggvarafélagsins var bágborinn
og styrkir engir, þá liöu fáein ár
við loftkastalasmiðar. Siðan
gerðist það um haustið 1976 að
leigusamningi var breytt, fengust
skipti á gryfjunum og 230 fer-
metra plássi á hlöðulofti við hlið
Ibúðanna. A þeim árum sem liöin
eru hafa félagsmenn unniö við
framkvæmdir þar efra, og notið
styrkja frá Reykjavikurborg,
Menntamálaráðherrum og Al-
þingi.
Nú, þegar komin er sæmileg
mynd á húsnæöi félagsins og það
opnað til notkunar lita mynd-
höggvarar björtum augum til
framtiöarinnar, bætt aöstaöa
þeirra gerir þeim kleyft að sinna
hugmyndum sem aðstöðuleysið
hamlaði áöur. En þrátt fyrir
þennan árangur er margt ógert,
mikil vinna er við lokafrágang,
s.s. einangrun salarveggja og
vinnustofa, og eru ókomnir hita-
blásarar i vinnusalinn. Þá vantar
marga félagsmenn vinnustofur.
Borgarverkfræðingur hefur nú til
athugunar hvort ekki sé unnt að
auka við húsnæöi félagsins, og ef
niöurstaða verður jákvæð mun
stjórn félagsins rita Borgaryfir-
völdum bréf um endurskoðun
leigusamningsins. En hvaö sem
öllum vangaveltum liöur, þá eru
myndhöggvarar i sæluhimni yfir
þeim áfanga sem nú er náð, og
þakklátir öllum þeim sem lagt
hafa hönd á plóginn”.
— GFr
Ragnar Kjartansson, formaður sýningarnefndar. 1 baksýn er hiuti af verki hans,
Vonin, en afsteypa af þvl var afhjúpuð I Grindavik á sunnudaginn var. Þess skal
getið að hægt er að aka bilum inn I salinn þótt hann sé á hlöðulofti og flytja þangað og
þaðan myndir sem eru mörg tonn aðþyngd. (Ljósm.: gel).
Steinunn Þórarinsdóttir, ung listakona sem er nýkomin frá námi á Italfu, er einn af
gestum á sýningunni. Hér er hún við eith verka sinna. (Ljósm.: gel)
Stefán Jóhann
Stefánsson# For-1
maður Stúdentaráðs
Háskóla íslands.
á dagskrá
Hvers vegna rektor tekur svo gróflega
fram fyrir hendur deildarráðs heim-
spekideildar verður aðeins skilið út frá
þeim opinberu (og leyndu) umræðum,
sem átt hafa sér stað um deildina
undanfarið
Meðferð rektors og háskólaráös á beiöni heimspekideildan
Adför ad lýörædislegu starfi
1 Morgunblaðinu þ. 28. mai s.l.
og i Þjóðviljanum og Dagblaðinu
þ. 29. mái s.l. er birt leiðrétting
frá Háskóla tslands, undirrituð af
Guðmundi Magnússyni rektor,
vegna fréttaflutnings Þjóðviljans
og Dagblaðsins varðandi dönsku-
kennslu I skólanum. Auk þess
sem rektor kemur þar með órök-
studdar ásakanir á hendur mér,
telur hann upp 7 ástæður fyrir
auglýsingu umræddrar lektors-
stöðu i dönsku. Seinna mun verða
fjallað um þessar ástæður lið
fyrir lið, en hér nægir að nefna að
rektor tvitekur eina ástæðuna til
þess eins að fjölga þeim að þvi er
best verður séð. A hinn bóginn
kýs hann að nefna ekki eina
ástæðu sem hann nefndi á um-
ræddum háskólaráðsfundi 23.
april s.l. Hvers vegna hann slepp-
ir henni er augljóst. Hún sýnir
ljóslega hvaða pólitisku afstöðu
rektor hefur i þessu máli.
Astæðan sem hann sleppir er
þessi: Málið er i hugum margra
óneitanlega tengt umræðum um
heimspekideild og dönsku-
kennslu, þ.e. kærumálinu á hend-
ur ákveðnum kennara. Auglýsa
ber stöðuna til þess að hreinsa af
skólanum þann orðróm að hann
haldi hlífiskildí yfir kennurum
sem sakaöir eru um að stunda
innrætingu á nemendum.Með þvi
aðgefa þetta upp sem ástæðu læt-
ur rektor augljóslega undan
þrýstingi ákveðinna afla, afla
sem mest hafa haft sig frammi
opinberlega á siðum Morgun-
blaðsins. Þarna er verið að beita
reglu sem ekki er til. Væri „regl-
unni” almennt fylgt gæti hver
sem er fengið stöðu kennara
auglýsta lausa til umsóknar með
þvi einu að koma með ásakanir á
hendur viðkomandi kennara um
að hann sé að troða einhverjum
skoðunum inn i nemendur. Það
ætti öllum að vera ljóst að slik
„regla” er ekki eingöngu aðför að
skoðana- og málfrelsi, heldur
hefði hún i för með sér algjört
öryggisleysi fyrir kennara i
starfi. Þessi meðferð rektors og
meirihluta háskólaráðs á málinu
gefur alls kyns órökstuddum
ásökunum og dylgjum á hendur
kennurum byr undir báöa vængi
Hver fer með rangfærsl-
ur?
Rektor sakar mig um að fara
rangt með afgreiðslu háskólaráðs
á beiðni heimspekideildar um
framlengingu á setningu lektors i
dönsku. Út frá „leiðréttingum”
rektors er ekki auðvelt að sjá
hvað hann á við með þessari
ásökun. Hvergi segir hann að ég
hafi haft rangt eftir honum. En
séu ástæður rektors fyrir auglýs-
ingu lektorsstöðunnar athugaðar
nánar og það haft i huga hvaða
ástæðu rektor sleppir, sést
hvernig hann reynir að slá ryki i
augu lesenda. Hann sleppir þeirri
ástæðu sem undirstrikar pólitiska
afstöðu hans og reynir þannig að
fá lesendur til að trúa þvi að engin
pólitik sé með i spilinu. Siðan
klykkir hann út með þvi að segja
að ég fari með staðlausa stafi I
þeim viðtölum sem Dagblaðið og
Þjóðviljinn áttu við mig. Þetta
kalla ég óvandaðan málflutning.
Skv. lögum eða reglugerðum
þurfti ekki að auglýsa umrædda
lektorsstööu. Leitað var til lög-
fræðings Háskóla tslands gagn-
gert til að fá úr þvi skorið. Niður-
staða hans var sú að ekki væri
nauðsynlegt að auglýsa stöðuna.
Hefði mátt ætla að það dygði. Það
virðist þvi sem rektor hafi verið
það mikið kappsmál að fá stöðuna
auglýsta.
Háskólaráð — sérstaða
stúdenta.
Hvað þá skoðun rektors varðar
að frásögn okkar i Stúdentablað -
inu af háskólaráðsfundi sé
trúnaðarbrot, þá er rétt að nefna
að ekki tóku margir kennarar
undir það með honum á fundi sem
haldinn var i ráðinu gagngert til
að fjalla um þetta „trúnaðar-
brot’’. Sumir vildu meina að þetta
hafi verið ofur eðlilegt af okkur.
Háskólaráð er jú engin leynisam-
kunda.
Það er e.t.v. rétt á þessu stigi
að skýra frá starfssviði og sam-
setningu háskólaráðs. I 2. grein
reglugerðar fyrir Háskóla Islands
segir m.a.: „Háskólaráð hefur,
svo sem lög mæla og nánar segir i
reglugerðum, úrskurðarvald i
málefnum háskólans og háskóla-
stofnana og vinnur aö þróun og
eflingu þeirra. (Undirstrikun
min, SJS) Ekki geta vinnubrögð
rektors beinlinis talist vinna að
þróun og eflingu dönskukennslu i
skólanum. Þvert á móti.
Háskólaráð er æðsta stjórn
innan skólans. I þvi eiga 17 sæti.
Fjórir stúdentar eru kosnir i alls-
herjar atkvæðagreiðslu meöal
stúdenta. Tveir fulltrúar eru
kosnir af Félagi háskólakennara.
Atta deildarforsetar eru kosnir úr
hópi prófessora i hverri deild.
Rektor sem kosinn er meðal
fastra kennara, starfsmanna og
stúdenta, þannig aö atkvæði stúd-
enta gilda sem einn þriöji hluti
greiddra atkvæða en atkvæði
fastra kennara og starfsmanna
gilda sem tveir þriðju hlutar
greiddra atkvæða. Þetta er ójöfn
skipting þar sem stúdentar eru
langstærsti hópurinn i skólanum.
Þess má geta hér að rektor fékk
minnihluta atkvæða stúdenta. 1
ráðinu sitja svo tveir til viðbótar
án atkvæðisréttar. Það eru há-
skólaritari og kennslustjóri.
Aðgengilegasti og fljótvirkasti
miðill fyrir fulltrúa stúdenta i há-
skólaráði til að koma á framfæri
upplýsingum til annarra stúdenta
er einmitt Stúdentablaðið. Við,
fulltrúar Félags vinstri manna i
háskólaráði, kusum að skýra frá
umræddu máli þar, þvi við töld-
um alla stúdenta hafa skýlausan
rétt á að fá vitneskju um meðferð
þessa máls. Við höfum ennfremur
lýst þvi yfir að við munum skýra
frá umræöum i ráðinu hvenær
sem við teljum að það þjóni
heildarhagsmunum stúdenta og
skólans.
Málið á sér hliðstæðu
anuars staðar.
Ef litið er á þetta mál I heild
sinni er auðséð að það er aðeins
einn angi af aðför ákveðins hóps
manna að lýðræðislegu starfi
innan opinberra stofnana. Þessir
menn vilja stifa miðstýringu og
stjórnun ofan frá. Nægir að nefna
dæmi eins og afskipti tiltekinna
útvarpsráðsmanna af starfi
fréttamanna Rikisútvarpsins.
Þessir menn vilja færa völdin frá
þeim sem verkin vinna i hendur
fjarlægra stofnana, sem oftast
hafa takmarkaða þekkingu á við-
komandi málaflokkum.
I þessu máli taldi rektor að
ráðuneyti, eða öllu heldur ráð-
herra, tæki aðra ákvörðun en
deildarráö heimspekideildar. 1
stað þess að styðja afstöðu
deildarráðs og nemenda i dönsku,
brýtur rektor þær leikreglur sem
gilt hafa i svona málum, þ.e. að
visa málinu beint til ráðherra.
Það þurfti engan að undra sem
þekkti til verka hans, að hann
skyldi ekki styðja afstöðu nem-
enda. Hann er jú þekktur fyrir að
vilja ekki auka áhrif nemenda frá
þvi sem nú er. Nemendur i
dönsku hafa veriö I fararbroddi
hvað áhrif á val kennsluefnis
snertir. 1 dönsku hefur upp-
bygging kennslunnar verið hvað
lýðræðislegust. Mætti ætla að
rektor hafi fundist áhrif nemenda
þar full mikil.
Hvers vegna rektor tekur svo
gróflega fram fyrir hendur
deildarráðs heimspekideildar
verður aðeins skilið út frá þeim
opinberu (og leyndu) umræðum
sem átt hafa sér stað um deildina
undanfarið. Þær fordómafullu
umræður hafa fengið rektor og
meirihluta háskólaráðs til
þessara vinnubragða.
Til að mótmæla þessum vinnu-
brögðum efndu Félag dönsku -
nema og stjórnir Samtaka
stundakennara, Félags stúdenta i
heimspekideild, Samband is-
lenskra námsmanna erlendis og
Stúdentaráðs Háskóla Islands til
fundar föstudaginn 23. mai i
Félagsstofnun Stúdenta. Þetta
var vel sóttur fundur, sérstaklega
ef tekið er tillit til þess að stúd-
endar voru almennt I prófum. A
þeim fundi rituðu 124 kennarar og
nemendur nöfn sin undir mót-
mælayfirlýsingu gegn vinnu-
brögðum rektors og meirihluta
háskólaráös, vinnubrögðum sem
fela i sér augljósar pólitiskar of-
sóknir á hendur einum kennara
og sem fela i sér aðför að
skoðanafrelsi og málfrelsi i skól-
anum.
Rektor sakar okkur úm
trúnaðarbrot þegar við skýrum
frá meðferð hans á málinu I Stúd-
entablaðinu. Hann og hans menn
vilja eðlilega ao málið sé ekki
nefnt á opinberum vettvangi.
Þeir hafa vafalaust óskað þess
heitast að málið yrði þagað i hel.
erlendar
bækur
Remains Of Elmet.
A Pennine Sequence. Poems by
Ted Hughes. Potographs by Fay
Godwin. Faber and Faber 1979.
Calder dalurinn nokkru fyrir
vestan Halifax er svið kvæðanna.
Þarna var eitt af siðustu vigum
Breta, i baráttu þeirra við Engla
á sinum tima. Þetta svæði var um
aldir álitið lítt byggilegt og þarna
var oft friðland brotamanna og
strokumanna. Siðan urðu mikil
umskipti upp úr aldamótunum
1800, það má segja að einmitt
þarna hafi iðnbyltingin hafist,
vefnaðariðjan blömstraði og við
Calderána spruttu upp verk-
smiðjur, þéttar en viöast hvar
annars staðar.
Ted Hughes segir i’ formála, að
hann hafi sjálfur horft á þetta
svæði fara i eyði. A siðustu
fimmtán árum hefur vefnaðariðj-
an lagst niður og fólkið sem bjó
þarna hefur flutt sig burt. Fay
Godwin fór þarna um til þess að
festa svip hnignandi og eyddra
byggða á filmu, og það voru
myndir hennar „sem urðu mér
kveikja til þessara kvæða”.
1 þessum kvæðum Hughes er
sterkur seiður yfirgefinna og
eyddra byggða þar sem hrörlegar
mannvistarleyfar og rústir biöa i
þrúgandi þögninni. Myndir og
kvæði falla hvert að öðru,
Fiction and the Reading
Public.
Q.D. Leavis. Penguin Books 1979.
Q.D. Leavis var gift Dr. F.R.
Leavis, hinum kunna bókmennta-
fræðingi og gagnrýnanda. Þau
hjónin gáfu út timaritiö Scrutiny
ásamt fleirum, en það var mjög
áhrifamikið um tima. 1 þessum
skrifum er höfuð áherslan lögð á
áhrif skáldsögunnar og bók-
menntanna sem mótunarafl
mennskrar vitundar á timaskeiði
sem nær frá 17. öld og fram undir
1930. Bókin kom fyrst út 1932 og
vakti þá mikla athygli og um-
ræður. Bókin er fjörlega skrifuð
og skemmtileg aflestrar.
The Poems of Stanley
Kunitz 1928-1978.
Secker & Warburg 1979.
Stanley Kunitz fæddist 1905,
hlaut menntun sina i Harvaed,
tók þátt I siðari heimsstyrjöldinni
og gaf út fyrstu ljóð sin 1930. Það
varð ekki fyrr en á siðari árum,
að hann hlaut viöurkenningu sem
eitt meðal merkustu skálda
Bandarikjanna. Persónuleg
reynsla, átök innra með skáldinu
og milli manns og umhverfis eru
inntak ljóða Kunitz. Bandariskir
gagnrýnendur sáu snemma aö
hér fór efnilegt skáld: Roethke
sagði að imyndunarafl hans gæti
unnið og séð tilgang i grá-
móskulegasta umhverfi og Ric-
hard Wilbur taldi að fyrri verk
hans stæðu á þröskuldi hins stór-
fenglega.
1 þessu safni eru prentuð 150
kvæði, raðað eftir öfugri timaröð
frá 1928-1978. 1 safninu eru um
tuttugu ný ljóð.
Anthony Burgess: Shake-
speare.
Penguin Books 1972.
Burgess segir í formála, að
bókin sé ekki um leikrit og kvæði
Shakespeares, heldur tilraun til
þess að raða upp þeim staðreynd-
um sem kunnar eru um samtið
og kjör manna á timum Shake-
speares, og lýsa þvi umhverfi
sem leikritin og kvæðin eiga að
uppsprettu. Mikill grúi bóka hef-
ur komið út um Shakespeare;
staðreyndirnar um hann sjálfan
eru fábreyttar, sálnaregistur, eitt
eða tvö skjöl, nokkrar arfsagnir
og umgetningar í samtima heim-
ildum öðrum. Þetta efni notar
Burgess ásamt þekkingu sinni á
samtimanum og þeim átökum og
atburðum sem snertu menn þá og
leitast siðan við að lýsa hvernig
þessi áhrif samtimans gerjuðust I
starfi Shakespeares sem leikrita-
höfundar. Höfundurinn lýsir
mönnum og atburðum af snilli og
bókin er mjög skemmtileg af-
lestrar. Litmyndir eru sérprent-
aðar og fjöldi mynda prentaðar I
texta.