Þjóðviljinn - 24.06.1980, Síða 15
Þriöjudagur 24. júnl 1980. ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 15
Hringið í síma 8-13-33 kl. 9-5 alla virka
daga eða skrifið Þjóðviljanum
Markús
hinn
draum-
spaki
Markús Þorgeirsson
skipstjóri hringdi:
Draumspeki Markúsar
skipstjóra enn á feröinni.
Hver vill ráöa draum?
Mér virtist ég koma inn i her-
bergi þar sem Vigdis Finnboga-
dóttir var stödd, sat á stól og
meö dóttur sína á hné sér. ÞaB
var mjög bjart I kringum stól-
inn,út frá henni ljósblár himinn
og dökkir skýjabólstrar hér og
hvar. Mér virtist Vigdis þarna
roskin kona, en brosiB hiB sama
og I dag. Hver vill ráBa draum-
inn?
frá
Vigdísi til
Bessastaða
Nú er sumar.
— Ljósm. — gel —
Viö erum sjálf fyllilega fær
um aö velja okkur forseta, aö
vel athuguöu máli, bera flestir
svo mikla viröingu fyrir fram-
lagi formóður okkar til menn-
ingar og sjálfstæöisbaráttu
þjóðarinnar, að sá dagur sé
runninn upp að forsetaembættið
verði fullt eins vel sett i höndum
konu og það eins gáfaðri og
glæsilegri sem Vigdis Finn-
bogadóttir hefur sýnt og sannað,
að hún er.
— Það verður til sóma fyrir
alþýðu þessa lands, ef Vigdis
Finnbogadóttir verður forseti
íslands — .
Sigríður L. Einarsdóttir
frá Mýnesi.
m--------------------*■
..... Það verður til sóma fyrir
alþýöu þessa lands, ef Vigdis
verður forseti fslands...” segir
bréfritari meðal annars.
Sú sögulega staðreynd, að
kona býöur sig fram til forseta-
kjörs hlýtur að vekja stolt og
gleði hjá öllum þeim sem að-
hyllast frelsi, jafnrétti og
bræðralag, og allar þær ómerki-
legu dylgjur i garð Vigdisar
Finnbogadóttur, sem komið
hafa á prenti að undanförnu,
munu afla henni fylgis og falla
þar með dauð um sjálf sig.
Sem betur fer er það i höndum
hins almenna kjósanda hver sit-
ur Bessastaði um sinn, en ekki I
höndum flokksvélar einhvers
stjórnmálaflokks, ekki heldur i
höndum menningarvita. sem
telja það heilaga skyldu sina, að
hugsa og framkvæma fyrir okk-
ur óbreytta alþýðuna.
lesendum
Reykjarslæða
við Esjuna
liilmar skrifar:
Höfuðborgarbúar fagna nú
einhverju besta sumri um
margra ára skeiö, Sólin hrein-
lega vill ekki burt öllum til mik-
illar ánægju. Þetta hefur vita-
skuld þau áhrif á mannlifiö aö
sólskinsbros má sjá á hverju
horni. Ég sem þessar linur
skrifa átti eitt sinn leið um bæ-
inn um klukkan 2 eftir miðnætti.
Veður var kyrrt og himinn
heiðblár. Varð mér þá sem
snöggvast litiö til Esjunnar og
brá i brún. Viðbjóðslegur
reykur lá eftir henni allri gulur
á lit, greinilega uppfullur af
vondum efnum. Þessi reykur
hygg ég aö komi frá Áburöar-
verksmiðju rikisins, og svo
spillti hann minu fegurðarskyni
aö ég skundaði heim á leiö.
Spurningin er hvort hægt sé að
koma i veg fyrir þennan litt
huggulega útblástur.
Lokaatriðið i „Modern Times”. Chaplin og Paulette Godd-
ard ganga út i óvissuna. Þessi mynd átti drýgstan þátt I
þvi að Chaplin var rekin frá Bandarfkjunum.
Formr gamanleikir
Saga kvikmyndarinnar er
ung saga og viöburðarik.
Þessi stórkostlegi tjáningar-
möguleiki kom fram snemma
á þessari öld og er i stöðugri
framþróun. A skjánum I kvöld
veröur enn fjallað um sögu
kvikmyndarinnar eða réttara
sagt dýrðardaga hennar þá er
Hollywood var og hét. Gaman-
leikurinn var vinsælasta
viðfangsefnið og i þessum
þætti sem er sá fimmti i röö-
inni verður brugöið upp svip-
myndum frá þeim tima þegar
Sjönvarp
kl. 20.40
Chaplin, Gög og Gokke og
margir fleiri heilluðu heims-
byggðina. íh- tækninni hafi
fleygt fram og allir mögu-
leikar kvikmyndarinnar tekið
stórstigum framförum þá
fyrirfinnst ekki enn i dag sá
leikstjóri sem velt getur
Chaplin úr sessi sem meistara
allra tima i þessum efnum.
Blómarósir að spjalli. Alþýðuleikhúsið flytur þátt úr
leiknum I þættinum „Nú er hann enn á norðan”.
Fjölbreytt norðanátt
Það verður hálfgildings
blandað noröangjóstur i
Útvarpinu i kvöld, þegar Her-
mann Sveinbjörnsson og
Guöbrandur Magnússon sjá
um þátt meö blönduðu efni.
Þeir félagar koma viöa viö
norðan lands, t.a.m. veröur
rætt um starfsemi Goöakvart-
ettsins og staönæmst viö
Hraundranga, þar sem háir
hólar hálfan dalinn fylla...
Sjónvarp
kl. 22
eins og skáldið kvað. Ýmislegt
annaö verður á dagskrá en
undir lokin flytur hópur úr
Alþýöuleikhúsinu þátt úr
„Blómarósum” eftir Ólaf
Hauk Simonarson.
Dauði prinsessu
enn á dagskrá
I þættinum „Umheimurinn”
sem Ogmundur Jónasson
fréttamaöur hefur umsjón
meö og hefst kl. 22 i kvöld
veröa tekin fyrir mál sem
ofarlega hafa verið á baugi i
islensku þjóölifi að undan-
förnu, nefnilega öll umræöan
sem spannst útfrá sjónvarps-
þættinum „Dauði prinsessu”.
Aö sögn ögmundar Jónas-
sonar, mun hann fá til liðs viö
sig ritstjórana Arna Berg-
mann og Jón Sigurðsson og
svo Baldur Mariusson starfs-
mann Flugleiða og Tómas
Þorvaldsson útgerðarmann.
Þeir munu ræöa hvort i fram-
tiöinni eigi aö taka tillit til
skiptahagsmuna Islendinga
eins og gert var I sambandi viö
sýninguna á „Dauöi prins-
essu”, og þá einnig hvort
4 \ Sjónvarp
Ty kl. 22.35
fréttastofnanir og fjölmiðlar
af ýmsu tagi sýni siöum ann-
arra fjarskyldra þjóða nægi-
lega sanngirni. Þátturinn er
tæplega 1 klst. langur.
ögmundur Jónasson
umsjónarmaður þáttarins
„Umheimurinn”.