Þjóðviljinn - 25.06.1980, Qupperneq 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miftvikudagur 25. júni 1980.
Tilkyrming um viðskipta-
skilmála olíufélaganna
Vegna sívaxandi erfiðleika við útvegun reksturs-
f jár til þess að f jármagna stöðugt hækkandi verð á
olíuvörum, sjá olíufélögin sig knúin til þess að
herða allar útlánareglur.
Framvegis gilda því eftirgreindir skilmálar varð-
andi lánsviðskipti:
1. Olíur til fiskiskipa:
Togarar og önnur fiskiskip hafa heimild til að
skulda eina úttekt í senn, áður en til frekari út-
tektar kemur skal fyrri úttekt vera að fullu
greidd.
Ef fiskvinnslustöð greiðir fyrir fiskiskip skal
greiðsla fara fram strax og veðsetning hefur átt
sér stað. Greiðslufrestur á hverri úttekt skal
aldrei vera lengri en 15 dagar.
2. Olía til annarra nota:
Heimild til lánsviðskipta á olíu til húskyndinga er
takmörkuð við eina úttekt í senn og er lengsti
gjaldfrestur 15 dagar.
3. Um önnur reikningsviðskipti giida hliðstæðar
reglur.
4. Ef viðskiptaaðili greiðir ekki skuld sfna á réttum
gjalddaga reiknast vanskilavextir samkvæmt
auglýsingu Seðlabanka fslands, sem nema nú
3.83% fyrir hvern byrjaðan vanskilamánuð.
Vaxtaprósenta þessi breytist í samræmi við sfð-
ari ákvarðanir Seðlabanka (slands.
5. Að gefnu tilefni skal tekið fram að olíufélögin
veita hvorki viðskiptaaðilum sínum né öðrum
peningalán eða hafa milligöngu um útvegun
slíkra lána. Tilgangslauster því að leita eftir lán-
um hjá olíufélögunum.
Reykjavík, júní 1980.
Olíuverzlun Islands hf Olíufélagið Skeljungur hf
Olíufélagið hf
Aðalfundur
H. F. Skallagrims verður haldinn laugar-
daginn 26. júli 1980 kl. 14.00 að Heiðar-
braut 40 Akranesi (Bókasafn Akraness).
Dagskrá:
I. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreytingar
3. önnur mál.
j
Stjórnin
i
Ritarar
óskast til starfa við grunnskóla Reykja-
vikur. Laun skv. launakerfi borgarstarfs-
manna.
Umsóknum ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf skal skila til
Fræðsluskrifstofu Reykjavikur, Tjarnar-
götu 12, fyrir 4. júli n.k..
Fræðslustjóri
Lausar stöður
Við Armúlaskóla i Reykjavik, er starfar á framhalds-
skólastigi, eru lausar til umsóknar tvær kennarastöður i
náttúrufræðigreinum og efnafræði.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknir meö upplýsingum um námsferil og störf skulu
hafa borlot menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101
Reykjavik, fyrir 18. júli n.k. Umsóknareyðublöð fást i
ráðuneytinu og i Fræðsluskriístofu Reykjavikur.
Menntamálaráðuneytið, 20. júni 1980.
Votta innilega þakkir öllum þeim
sem hafa minnst
min á áttræöisafmælinu.
Skúli Þórdarson
Þessa dagana er hafrannsóknarskip franska flotans statt f Reykja-
vfkurhöfn. ÞaO var til sýnis i gær og veröur einnig almenningi til sýnis f
dag frá kl 14 til 17. Skipiöheitir L’Esperance (Vonin) og áhöfnin er 58
manna. Héöan heldur skipiö til hafrannsókna i noröaustur Atiantshafi
og Noregshafi. (Mynd—gel.)
Guðlaugur og
Vigdís efst
Skoðanakönnun Visis
TaÍiíT
gölluð
„Þetta er panel-könnun en ekki
tilviljanakennt úrval úr þjóö-
skránni” sagöi einn af viömæl-
endum Þjóöviljans i gær um
könnun Visis á fyigi forsetafram-
bjóöendanna. ,,Ég er þvi mjög ef-
ins um aö hún sýni þær sveiflur
sem oröiö hafa meö þjóöinni frá
þvi aö könnun sama blaös var
gerö fyrir þremur vikum. Þetta
er mjög miöur aö minu mati þvi
ákaflega vel var staöiö aö fram-
kvæmd fyrri könnunarinnar, og
sjálfsagt hinnar siöari lika, en
forskriftin nú er misvisandi.”
Fleiri tóku i sama streng og
bentu á að i seinni könnuninni
hefði Visir veriö aö tala viö fólk
sem var að taka tillit til fyrri
svara sinna og fyrri kynna af fyr-
irspyrjendum. Þá væru I seinni
könnuninni aöeins 73.6% af upp-
haflega úrtakinu sem var 1055
manns, og hefðu þvi 463 einstak-
lingar fallið burt úr þvi úrtaki
sem reikningslega gæti staðist
sem þversnið af þjóðinni. Ef ætl-
unin hefði verið að fá fram raun-
verulegar breytingar hefði verið
eölilegast að velja með sama
hætti nýtt þversnið af þjóöinni og
bera niðurstöður saman við fyrri
könnun.
„Panel-kannanir” standa yfir-
leitt yfir um lengri tlma til þess
að athuga viöhorfsbreytingar og
þróun innan ákveöins hóps. Þær
eru hinsvegar ekki taldar til þess
fallnar aö sýna sveiflur meðal
kjósenda á skömmum tima enda
ekki um skyndiviöbrögð aö ræöa i
svörum heldur samanburð við
fyrri svör og fyrri kynni af fyrir-
spyrjendum, auk þess sem ætla
má að fyrri könnun hafi i sjálfu
sér ýtt undir ákveðnari skoöana-
myndun hjá „panelnum” en vera
myndi hjá nýju þversniöi af kjós-
endum. -ekh.
Guðlaugur Þorvaldsson og
Vigdis Finnbogadóttir uröu efst
og nær jöfn f skoöanakönnun sem
Visir lét gera um helgina. Sama
fólkiö var spurt og I síöustu könn-
un blaösins. Guðlaugur fékk
23.95% (áöur 22.81), Vigdfs fékk
22.87% (áður 23.30), Albert fékk
15.56% (áöur 12.82) og Pétur
13.94% (áður 9.12).
Eins og sést standa þau Guö-
laugur og Vigdis nær þvl I staö en
Albert og þó einkum Pétur bæta
við sig fylgi. Öákveðnir voru nú
12.99% (áður 24.17%) en þeir sem
neituðu aö svara voru 10.69% (áö-
ur 7.77%).
I fyrri skoöanakönnun Visis
náðist til um 80% þeirra sem
lentu i úrtakinu en nú var aðeins
leitað til þeirra sem áöur náðist i
og tókst það i 91.12% tilfella.
Þó að ekki viröist hafa orðið
miklar breytingar á heildarfylgi
frambjóðenda eru miklar svipt-
ingar i einstökum kjördæmum.
Hlutföllin f einstökum kjördæm-
um er með eftirtöldum hætti:
Reykjavlk: Guðlaugur 25.69%,
Vigdis 17.36%, Albert 14.58% og
Pétur 14.58%
Reykjanes: Albert 23.84%,
Guðlaugur 21.85%, Vigdis 21.19%
og Pétur 11.92%.
Vesturland: Vigdfs 23.40%,
Pétur 23.14%, Albert 19.15% pg
Guðlaugur 14.89%
Vestfiröir: Pétur 35.29%,
Vigdfs 32.35%, Guölaugur 17.69%
og Albert 2.94%.
Noröurland vestra: Vigdfs
29.03%, Guölaugur 16.13%, Albert
16.13% og Pétur 12.90%.
Norðurland eystra: Guölaugur
29.41%, Vigdfs 28.24%, Pétur
9.41% og Albert 9.41%.
Austurland: Vigdis 33.33%,
Guðlaugur 23.81%, Pétur 9.52%
og Albert 7.14%.
Suöurland: Vigdis 29.51%, Guð-
laugur 27.87%, Albert 18.03% og
Pétur 6.56%. —GFr
Hœkkun á bensini og gasoliu frestaö til morguns:
Hækkunin stafar af
geymdum vanda
— segir Tómas Arnason viðskiptaráðherra
„Rikisstjórnin hefur enn ekki
tekiö endanlega ákvöröun um
hækkun á bensini og gasoliu en ég
á von á þvi, að rikisstjórnin muni
fallast á tillögur verölagsráðs á
fundi sfnum á morgun”, sagöi
Tómas Árnason viðskiptaráö-
herra er Þjóöviljinn spurði hann
hvort rfkisstjórnin heföi fallist á
tillögu verölagsráðs um að hækka
bensínlitrann úr 430 krónum i 470
krónur og gagoliulitrann úr 115.20
krónum i 196.40 krónur.
„Astæöa þess að máliö var ekki
afgreittá fundi rikisstjórnarinnar
I dag er sú að það vantaði ýmsar
upplýsingar.t.d. varöand veröút-
reikninga og áhrif hækkunarinn-
ar á visitöluna. Illu heilli tel ég þó
að ekki verði hægt aö komast hjá
Yfir-
lýsing
Blaðinu hefur borist eftir-
farandi yfirlýsing:
Þar eð nöfn undirritaöra
hafa I heimildarleysi veriö
notuð til stuðnings framboöi
Guðlaugs Þorvaldssonar
viljum við taka fram að við
erum stuöningsmenn
Vigdisar Finnbogadóttur til
forsetakjörs.
Jónas Helgason, Æöey,
Kristmundur Hannesson,
skólastj. Reykjanesi,
Olafur Þórðarson,
bóndi,
Rauðumýri.
þvi aö fallast á tillögur verölags-
ráðs. Allt annað þýöir bara að viö
erum að fresta vandanum til
framtiöarinnar og við munum þá
hlaða upp vanskilum á innkaupa-
jöfnunarreikningi f bönkunum.
Hækkun nú á bensini og gasoliu
stafar af þvi aö viö stöndum
frammi fyrir geymdum vanda er
byggist á þvi að verðið hefur ver-
ið hækkað of litiö áöur. Þá spilar
einnig inn I gengisbreyting á sfö-
ustu mánuðum, en lækkun gengís
kemur fram i hærra veröi á vör-
um eins og bensini og gasoliu”,
sagöi Tómas Árnason viöskipta-
ráðherra aö lokum.
Þvf má bæta við aö oliufélögin
fóru fram á aö bensfnlitrinn
hækkaði úr 430 krónum í 481
krónu, og að gasoliulitrinn
hækkaði úr 115.20 krónum i 201
— krónu.
—þm
Djass í Félagsstofnun
Kiúbbur F.S., I húsi Félags-
stofnunar Stúdenta við Hring-
braut, gengst fyrir djasshljóm-
leikum I kvöld. Þar veröur Guö-
mundur Ingólfsson pianóleikari
meö sitt trió, en meösveiflarar
veröa Pálmi Gunnarsson á bassa
og Guömundur „papa djass”
Steingrfmsson á slagverk.
Övist er hvort aörir góðir gestir
munu troða upp meö þeim köpp-
um.Má segja aö þetta veröi eins
konar kveðjutónleikar Guðmund-
ar þvf aö hann heldur af landi
brott á morgun. An efa verður
sveiflan i hámarki og stemmn-
ingin vonandi lika, þvl aö hér eru
góöir spilarar á ferðinni.
Má búast viö fleiri slikum upp-
ákomum IKlúbbi F.S. á næstunni
og eru tónlistarunnendur þvi
beðnir að hafa eyru og augu opin
þvi aö fjörið er ósvikiö i Félags-
stofnun.
Nemendur skora á Söby
Dönskunemendur viö Háskóla
islands hafa sent áskorun til Pet-
er Söby Kristensen um aö hann
sæki um lektorstöðu þá i dönsku
sem nýlega var auglýst.
Fyrir nokkrum vikum var
dönskukennslan ofarlega á baugi
er háskólaráð ákvað aö auglýsa
stööu þá sem Peter Söby hefur
gegnt um árabil. Nemendur
töldu að þarna væri verið að
reyna að koma kennara frá vegna
skoöana hans og vegna blaöa-
skrifa sem oröiö hafa um dönsku-
deildina.
1 áskorun nemendanna (nú-
verandi og fyrrverandi) segir:
,,A6 okkar mati væri það mikiö ó-
lán fyrir dönskukennslu á tslandi
ef Háskóli Islands bæri ekki gæfu
til aö tryggja sér áfram starfs-
krafta þessa fjölhæfa kennara”.
Nemendurnir harma aö staðan
skuli hafa verið auglýst og skora
á Peter Söby að sækja um.
—ká