Þjóðviljinn - 25.06.1980, Blaðsíða 7
AUGLYSING
Miðvikudagur 25. júni 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
Náms- og starfs-
ferill Péturs J.
Thorsteinssonar
Lauk viðskiptaprófi 1941 og lögfræðiprófi 1944.
Starfaði i utanrikisráðuneytinu i Reykjavlk
júnf—júli 1944.
Starfaði i sendiráði Islands i Moskvu
1944—1947.
Starfaði f viðskiptadeild utanrikisráðu-
neytisins 1947—1953. Yfirmaður viðskipta-
deildar 1950—1953. Jafnframt formaöur Milli-
bankanefndar 1952—1953.
Sendiherra i Sovétrikjunum 1953—1961. Jafn-
framt sendiherra i Ungverjalandi 1955—1961.
Jafnframt sendiherra i Rúmeniu 1956—1961.
Sendiherra i Bonn 1961—1962. Jafnframt sendi-
herra i Grikklandi, Júgóslaviu og Sviss.
Sendiherra i Paris 1962—1965 og jafnframt i
Belgiu, Júgóslaviuog Luxembourg. Jafnframt
fastafulltrúi hjá ráði Atlantshafsbandalagsins
og Efnahags- og framfarastofnuninni (OECD)
og hjá Menningarmálastofnun S.Þ. (UNESCO)
og sendiherra hjá Efnahagsbandalagi Evrópu
(1963—1965)
Sendiherra I Washington (1965—1969 og jafn-
framt i Argentinu, Brasiliu, Kanada, Mexikó
og á Kúbu.
Ráðuneytisstjóri utanrikisráðuneytisins
1969—1976 og jafnframt ritari utanrikismála-
nefndar.
Sérstakur ráðunautur utanrikisþjónustunnar
frá 1976 og jafnframt sendiherra i Indlandi,
íran, Japan, Kinaog Pakistanfrá 1976, I Thai-
landifrá 1977, i írak og Bangladesh frá 1978.
Til umhugsunar
fyrir kjördag:
Til hvers
yröi leitað?
Kjósendur, sem eru í einhverjum
vafa um, hvernig þeir eigi að
ráðstafa atkvæði sínu á sunnudag-
inn, ættu að velta eftirfarandi
spurningu fyrir sér:
Ef íslensk rikisstjórn þyrfti
að leita ráða vegna alvarlegs
vanda í alþjóðamálum og hún
ætti um f jóra ráðgjafa að velja
— núverandi frambjóðendur
til forseta — til hvers þeirra
telja menn þá líklegast, að hún
mundi leita?
Ætli svarið geti vafist fyrir
nokkrum hugsandi, óvilhöllum
manni?
H.P.
Jón Hafsteinn Jónsson,
menntaskólakennari, Akureyri
...án þess að kikna
eða gerast
handbendi annarra
Ég er þeirrar skoöunar, að
mikill fjöldi Islendinga myndi
geta setiö Bessastaöi með heiðri
og sóma, ef aðeins væri um það
að ræöa að vera sléttmáll og
hæverskur gestgjafi og geta
samið skynsamlega ræðustúfa
fyrir áramót og opinberar utan-
landsferðir. Það er þvi meir en
vafasamt aö reyna að gera upp
á milli forsetaframbjóöendanna
út frá þvi hvernig menn hugsa
sér, að þau myndu taka sig út I
ofangreindum hlutverkum.
Ekki er lang't slðan að helst
leit út fyrir að Alþingi heyktist á
þeim vanda að veita þjóðinni þá
forsjá, sem það er kjörið til. Þá
áttu menn fyllilega von á þvi, að
núverandi forseti þyrfti að
mæta vanda sem ekki hefir enn
komið upp I sögu lýöveldisins.
Þó sjaldan reyni á það, þá er
það mikilvægt engu aö siður, aö
forseti lýðveldisins sé fær um að
axla þær byrðar, sem á hann
leggjast, ef Alþingi reynist
ófært til starfa.
Vonandi mun slikur vandi
ekki leggjast á þann forseta,
sem við tekur,en þó finnst mér
annað óverjandi en að láta það
ráöa mestu úm valið, hvaða
frambjóðanda maður telur hæf-
astan til að leysa vandasömustu
verkefnin, sem forseti getur
staðið frammi fyrir, af rögg-
semi, festu og sanngirni i senn.
Ég hygg, að það sé ekki stór
hópur manna sem myndi ráða
viö þau verkefni, án þess aö
kikna eða gerast handbendi
annarra.
Forseti lýöveldisins getur átt
allmikil samskipti við erlenda-
valdamenn og þjóðhöfðingja.
Þessi tengsl geta verið nokkurs
virði, ef forsetinn er ekki algjör-
Jón Hafsteinn Jónsson.
lega ókunnugur erlendum
áhrifamönnum og hefir góða
diplómatiska reynslu ásamt
skapstyrk og lagni. Höfum við
efni á aö hafna forsetaefni með
þessum eiginleikum?
Akureyri,
Jón Hafsteinn Jónsson.
Tryggvi Emilsson verkamaður:
Hefur aflað virðingar
„landi, þjóð og tungu”
Pétur Thorsteinsson hefir um
átatuga skeið borið hróður ís-
lands um heiminn hálfan og haft
til þess aðstöðu aö kynna land
sitt og lýðveldi þar sem haldin
eru málþing mikilla þjóðlanda
og unnið að þvi af alhug að afla
Islandi vina og viöurkenningar
meðal annarra þjóða. Hann hef-
ir á öllum stundum borið fána
Islands hátt, fána þjóðar þar
sem fólkið er fátt en starfið
stórt, veriö fulltrúi þjóðar, sem
byggir mátt sinn og megin á
menningararfi aldanna og tekur
sér I fang tilurð tæknimenning-
ar af hagsýni og gagnsemi til
lands og hafs. Pétur Thorsteins-
son hefir borið til þess gæfu sem
jafnframt er gæfa Islands að
kynnast mörgum þjóðum jafnt
hið innra sem ytra i daglegu lifi
fólksins og á menningarsetrum
þjóöanna, sem er þjóö vorri
ómetanlegur ávinningur, þjóð
sem miðar manndóm sinn og
mennt við það, sem mest er
metið og hæst ber meðal menn-
ingarþjóða.
Pétur Thorsteinsson hefir
varið mestum hluta sinnar
starfsævi, afburðahæfileikum
og orku i þágu þjóðar sinnar,
þannig að hlutur tslands verði
sem mestur og stærstur á tafl-
borði þjóðanna, þvi er það landi
voru og þjóð ómetanlegur
ávinningur að hann hefir gefið
kost á sér við forsetakjör, svo
þekkt er hans nafn jafnt heima
sem með öðrum þjóöum þar
sem hann hefir aflað „landi,
þjóð og tungu” þeirrar viröing-
ar, sem honum sem forsetaefni
eru dæmi mikilla mannkosta.
011 vitum vér, að Island hefir
stækkað og fjöllin hækkað i tið
forseta lýðveldisins, hr. Krist-
jáns Eldjárns, sem er sómi vors
lands. Ég sem leyfi mér að
skrifa þessar fáu linur til stuðn-
ings Pétri Thorsteinssyni við
Tryggvi Emilsson.
forsetakjör 29. júni nk. treysti
Pétri fyililega til að veita þvi
fjöreggi móttökur úr hendi
Kristjáns og varðveita á sama
hátt virðingu og þroska þjóöar-
innar og tign landsins.
Af heilum hug er ég einn af
stuðningsmönnum Péturs og
skora á allan almenning að
veita honum brautargengi á
kjördegi meö þeim ágætum, að
Pétur Thorsteinsson verði næsti
forseti tslands.
r
Askorun á
kjósendur
Við undirritaðir kjósendur leggjum áherzlu á, að
forsetaembættið er yfir stjórnmálaágreining hafið.
Miklu skiptir fyrir þjóðina að til þess verði kjörinn
sá frambjóðandi sem hæfastur er. Við skorum því á
aðra kjósendur að fylkja sér um Pétur J. Thor-
steinsson.
Einar Olgeirsson,fv. alþingismaður
Elías Mar, rithöfundur
Salóme Kristinsdóttir, starfstúlka
Olafur H. Torfason, kennari
Egill Olafsson, tónlistarmaður
Ingibjörg Tómasdóttir, húsmóðir
Baldvin Halldórsson, leikari
Sigurður ísfeld, bakari
Sævar Geirdal, sjómaður
Jórunn Viðar, tónskáld
Pjetur Hafstein Lárusson, rithöfundur
Karl V. Matthíasson, kennari
Tryggvi Harðarson, nemi
Sigmar Pétursson, veitingamaður
Geir Rögnvaldsson, leiklistarfræðingur
Hallgrímur Steingrímsson, fisksali
Svanfríður Gísladóttir, þroskaþjálfi
Bjarni Bernharður, rithöfundur
Hrefna Pjetursdóttir, húsmóðir
Sigurborg Kristinsdóttir, Ijósmóðir
Sigurður Thoroddsen, verkf ræðingur
Magnús Karel Hannesson, kennari
Leifur Jóelsson, rithöfundur
Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir, gjaldkeri
Eyjólfur Andrésson, bóndi
Eiríkur Pálsson, forstjóri
Skúli Halldórsson, tónskáld
Dr. Guðrún P. Helgadóttir, skólastjóri
Hannibal Valdimarsson, fv. forseti ASI
Guðrún Egilson, blaðamaður
Borghildur Símonardóttir, skrifstofumaður
Ingibjörg Elíasdóttir, fulltrúi
Halldór Laxness, rithöfundur
Fundir með Pétri
Midvikudagskvöld í Sigtúni:
Létt dagskrá
Fimmtudagskvöld í Háskólabíói:
Kynningarfundur
AUGLYSING