Þjóðviljinn - 26.06.1980, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 26.06.1980, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 26. júnl 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15 / Hringið í síma 8-13-33 kl. 9-5 alla virka daga eða skrifið Þjóðviljanum Dagsbrúnarmaður svarar Indriða G. Ekki eyrarkallar Þaö var alveg stórmerkilegt aö heyra Indriöa G. Þorsteins- son, kosningastjóra Alberts Guömundssonar, lýsa þvi yfir i útvarpinu hér á dögunum að Albert myndi ekki greiða eyri af kostnaöi viö forsetaframboð sitt úr eigin vasa — hann sagði jafn- framt aö ekki eitt einasta fyrir- tæki legöi fram fé i kosninga- sjóö Alberts. „Aftur á móti eru föstudagarnir eins og hverjir aörir útborgunardagar hérna hjá okkur, þeir koma bara beint af eyrinni með launaumslögin sin á föstudögum, Dagsbrúnar- kallarnir.” Ollum andskotanum má nú ljúga i striðinu. Þaö heföi þó verið lágmarks kurteisi af Indriða aö kynna sér það, að eyrarkallarnir fá útborgaö á fimmtudögum en ekki föstudög- um. Jæja blessaðir, eru þeir orðnir svo óstéttvisir að þeir gefi sin naumt skömmtuöu laun til aö hlaöa undir Albert Guömundsson, eina thalds- manninn, sem hefur dirfst að fara fram á þaö viö Alþingi tslendinga aö verkfallsrétturinn yröi afnuminn meö lögum? Þaö er algjör dónaskapur viö launþega i landinu og þá sér- staklega Dagsbrúnarmenn að bera það uppá þá aö þeir séu aö borga farseðil Alberts Guðmundssonar til Bessastaöa. tslenskt launafólk veit fullkom- lega hvaöa vald i þjóðfélaginu Albert Guömundsson er fulltrúi fyrir. Þaö er gert mikið úr þvi aö Albert sé af fátæku verkafólki kominn og hann hafi aldrei gleymt uppruna sinum. Það er hverjum manni frjálst að stæra sig af sliku ef hann hefur þörf fyrir það. Flestir landsmenn á liku reki og Albert hafa vaxiö upp viö svipuö skilyröi og hann á kreppu- og atvinnuleysisárun- um; langtum flest af þvi fólki gerir sér grein fyrir þvi aö góögeröarstarfsemi peninga- manna er einungis dúsa, sem þjónar þeim tilgangi einum aö slæva verkalýöinn i baráttunni fyrir mannsæmandi lifskjör- um. En,hvað sem áróðursmeistari Alberts Guömundssonar segir, er þaö klárt mál aö þaö veröa hvorki eyrarkallarnir eöa annaö láglaunafólk, sem ber Albert á bakinu til Bessastaöa, eða hvert það, sem hann óskar aö feröast i mannviröingastiganum. Sigurjón Glslason, verkamaöur. Dagsbrúnarfélagi nr. 1465. Kosningavísa Þó allt sé hér i óöa önn og engum hinum frávisi þá væri okkar þjóöarskömm aö þræöa fram hjá Vigdlsi. Finnbogi Hallsson Áskorun á borgarstjórn Verndum lækinn Undanfarna daga hefur lækurinn viö Nauthólsvikina veriö til umræöu vegna hörmulegra slysa sem þar hafa orðiö. Siödegispressan veltir sér upp úr þessum málum eins og hennar er venja og notar sem æsifréttir. Máliö er hins vegar þaö aö nú veröur aö gera ein- hverjar ráöstafanir til aö koma upp viöunandi aöstööu viö læk- inn. Þeir sem stunda lækinn vita aö þaö er einkar hressandi og skemmtilegt aö koma þangaö og fá sér baö, og þaö er óþolandi aö staöurinn sé stimplaöur sem einhvers konar Sódóma og Gómorra Reykjavikur vegna þeirra sem þangaö koma drukknir. Ég sem kjósandi Alþýöu- bandalagsins i Reykjavik beini þeim eindregnu tilmælum til minna manna I borgarstjórninni aö þeir beiti sér fyrir þvi aö bún- ingsklefum veröi komiö upp viö lækinn og gæslu daga sem nætur. Þaö kostar áreiðanlega ekki meira en þau mannslif og slys sem þarna hafa orðiö. Þaö veröur aö koma I veg fyrir fleiri slys. Lækurinn er eitt af sér- kennum Reykjavikur og ég veit af reynslu aö feröamenn sem hingaö koma eru æstir I lækjar- feröir. Verndum lækinn meö viöeigandi ráöstöfunum. Björn Lúöviksson Kveðiö I góöa veöriö Ljósm. gel ffra lesendum Frá Grænlandi. Leikrit vikunnar: „Land mannanna” *Útvarp kl. 20.50 Leikrit vikunnar aö þessu sinni fjallar um granna okkar i vestri Grænlendinga. Þaö heitir „Land mannanna” og er eftir þá Jens Geisler, Malik Höegh, og Arqaluk Lynge. Þýöandi er Einar Bragi og leikstjóri Arnar Jónsson. Leikritiö fjallar um græn- lenska fjölskyldu sem flytur frá litlum námabæ til Egedesminde og þau vandamál sem upp koma i fjölskyldunni. Börnin koma heim úr námi I Danmörku meö ólikar hugmyndir um Danskinn og brátt dregur til tiöinda. Þaö var danskur leikhópur sem vann þetta verk ásamt höf- undunum, en hin félagslegu vandamál á Grænalandi hafa veriö mjög til umræöu. 1 þessu rótgróna samfélagi hafa oröiö gifurlegar breytingar á siðustu þremur áratugum eftir aö Danir tóku þá stefnu aö tæknivæöa landið og gera Grænlendinga að „nútimafólki”. Sú stefna hefur sætt mikilli gagnrýni, enda eru vandræöin gifurleg, sem af henni hafa leitt. Fólki hefur nánast veriö smalaö til bæj- anna, sett i vinnu i verksmiðj- um, og fenginn bústaöur i biokk- um, lifnaöarhættir sem eru gjörólíkir þeim sem þróuöust meöal veiöimannanna sem um aldir byggöu landiö. Afleiöingin er upplausn, mikill drykkju- skapur og flótti unga fólksins til Danmerkur, þar sem það lendir út á hálum brautum, enda litt velkomið. A undanförnum árum hefur oröiö sú breyting á að Grænlend- ingar hafa tekiö stjórn landsins i sinar hendur meö heimastjórn- inni og allt viröist heldur á réttri braut, en vandamálin eru enn til staðar. Einu dæmi fáum viö aö kynnast I kvöld. Þeir sem leika eru: Þráinn Karlsson, Guörún Asmunds- dóttir, Gunnar R. Guömunds- son, Ragnheiöur Arnardóttir, Randver Þorláksson, Edda Hólm, Kristin Kristjánsdóttir, allt leikarar úr Alþýöuleikhús- inu. — ká Til forna söfnuöust menn saman á þingvöllum til þinghalds spjalis og ráöageröa, en á vorri öld hafa samkomur þar einkum tengst feðranna frægö. 1930 þegar h'aldiö var upp á 1000 ára af- mæli alþingis komu þangaö um 20.000 manns Myndin er frá þjóö- hátlðinni 1974 sem er siöasta stórhátiö sem haldin var á völlun- um viö öxará. 50 ár frá hátíðinni 1 dag eru 50 ár frá þvi aö Alþingishátiöin á Þingvöllum var sett, en hún stóö dagana 26,- 28. júni 1930. Þaö var margt um manninn á völlunum og margir þeirra sem þarna voru rituöu seinna endurminningar sinar frá hátiöinni. A sumarvökunni sem er á dagskrá útvarpsins kl. 19.40 i kvöld les Baldur Pálmason kafla úr bók Magnúsar Jónsson- ar prófessors „Alþingishátiöin 1930”, en sú bók lýsir I máli og myndum þvi sem fram fór þessa daga. Seinna um kvöldið les Þórunn Elfa Magnúsdóttir frumsaminn bókarkafla og minnist Alþingishátiöarinnar. Sá lestur hefst kl. 22.35. Menn hafa greinilega sett sig i hátiölegar stellingar i ræöu og riti þessa daga. Þvi til sönnunar kemur hér tilvitnun i ræöu Alþingis- Asgeirs Ásgeirssonar sem þá var forseti sameinaös alþingis. Hann sagöi: „Tiu alda þing- saga talar til vor i þessu heilaga musteri undir bláum himni. Þaö hitar um hjartaræturnar. Tign fjallanna, niöur ánna, grænka jaröarinnar og blámi himinsins rennur saman viö minning Ingólfs og Úlfljóts, drengskap, manndóm löggjöf og bókmenntir, — allt rennur þaö saman I eina mynd, mynd hinn- ar ættgöfgu Fjallkonu, dóttur is- lenzkrar náttúru og norræns eölis. Varöveitum þá mynd I brjóstum vorum og vinnum lslandi meöan ævin endist.” Hátiöin var eins og stund milli striða, þvi kreppan var skollin á og stéttabaráttan var aö komast I algleyming. —ká Útvarp llp? kl. 19.40

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.