Þjóðviljinn - 03.07.1980, Side 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 3. júll 1980.
| Aðalfundur Skógrœktarfélags íslands
„Þurfum alltaf aö stefna eilítið hærra
en viö gerum okkur vonir um aö ná”
r
i Fyrir 50 árum komu nokkrir
f bjartsýnismenn saman til fundar
i austur I Almannagjá. Upp af
r þeim fundi spratt merkur og mik-
i ilvirkur félagsskapur: Skógrækt-
f arfélag Islands. Þessum ágætu
f mönnum i Almannagjá rann til
f rifja hvað landið okkar var bert
I og blásiö. Þeir vildu gjarnan eiga
f þátt I að klæða þaö þvi svipmóti,
| sem það bar i öndveröu, sam-
[ kvæmt vitnisburði Ara karlsins
[ fróða. En til þess að fá einhverju
| umtalsverðu áorkaö varð að
f bindast samtökum þvi „hvað má
I höndin ein og ein?”. Óg Skóg-
f ræktarfélag Islands varð að veru-
f leika.
lands höföu lokið leik sinum. For-
seti íslands, herra Kristján
Eldjárn, var I ræöustóli.
— Hér renna saman I eitt frelsi,
menning og.skógur, sagði forset-
inn. Uppgræðsla landsins og
skógrækt eru menningarmál. En
hefurdraumur frumherjanna um
fslenskan skóg ræst? Þvi getum
viö hiklaust svarað: Hann er að
rætast. Það blasir hvarvetna við
augum. Viö þökkum Skógræktar-
félagi Islands ötult og árangurs-
rikt starf I 50 ár og vonum aö fé-
lagið megi sjá sivaxandi árangur
verka sinna.
Að loknu ávarpi forsetans
sungu 8 ungmenni nokkur lög viö
„Hér uppi I hamraþröng” hóf Skógræktarfélag tslands sinn morg-
unsöng fyrir 50 árum. Nú komu skógræktarmenn þar saman til
fundar á ný. Forseti tslands, Kristján Eldjárn.I ræðustól.
— Mynd: — gel.
Upphaf fund-
ar í Al-
mannagjá
Föstudaginn 27. júni sl. hélt
Skógræktarfélag Islands aöal-
fund sinn, sem jafnframt var
afmælisfundur. Þótti hliða að
halda hann á Þingvöllúm, á þeim
stað, þar sem félagið var stofnaö
og hófst hann i Almannagjá, sem i
raun var vagga félagsins.
Þegar við Gunnar ljósmyndari
komum á vettvang var fundurinn
nýbyrjaöur, en honum stjórnaði
Jónas Jónsson, formaður Skóg-
ræktarfélags lslands. Fjórir blás-
arar tir Sinfóniuhljómsveit ís-
undirleik Ragnheiðar Þórarins-
dóttur.
Þessu næst las Gunnar Eyjólfs-
son leikari upp stofnfundargerð
Skógræktarfélags lslands frá 27.
júní 1930.
Athöfninni I Almannagjá lauk
svo með almennum söng undir
stjórn Þórarins Þórarinssonar,
fyrrverandi skólastjóra, og við
undirleik hljóðfæraleikaranna.
Ur Almannagjá var gengið
niður I furulundinn, þar sem
fyrstu plönturnar voru gróður-
settar 1899. Var það i raun og veru
fyrsta tilraunin sem gerð var til
skógræktar á Islandi. Er upphaf
hennar að rekja til dansks skip-
stjóra, Carls Hartvig Ryders, en
1899 fékk hann 700 kr. styrk frá
Landbúnaðarfélaginu danska til
þess að hefja tilraun i skógrækt á
Islandi. Þama tylltu menn sér
Afmælis-
niöur en Hákon Bjarnason, fyrr-
verandi skógræktarstjóri, rakti
sögu furulundarins og afhenti Skóg- -«
raáctarfélaginu að gjöf bækling, hOT'Oníl Ifl
sem hann hefur ritað um lundinn L/vyl '-'i-iU.iVJ.
en Jónas Jónsson þakkaöi.
Valhállarvist
Að lokinni kaffidrykkju i Val-
höll var fundinum fram haldið
undir stjóm Odds Andréssonar.
Fundargerö rituðu þau Guörún
Lára Asgeirsdóttir á Mælifelli og
Alfur Ketilsson, Sauöárkróki.
Jónas Jónsson, formaöur Skóg-
ræktarfélags Islands, flutti
skýrslu stjórnarinnar og minntist
I upphafi máls sins þriggja fé-
laga, er látist höfðu frá þvi að sið-
asti aöalfundur var haldinn,
þeirra Hákonar Guðmundssonar,
Guðmundar Marteinssonar og
Sveinbjarnar Jónssonar, er allir
áttu að baki langt starf og merkt
innan Skógræktarfélagsins.
Jónas Jónsson rakti afgreiðslu
þeirra mála, er siðasti aðalfundur
hafði visaö til stjórnarinnar, en
kvað starfið að öðru leyti mest-
megnis hafa veriö tengt „Ari
trésins”.
Snorri Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Skógræktarfélags-
ins, ræddi um framkvæmdir þess
að ööru leyti. I Skógræktarfélagi
íslands eru nú 30 félagsdeildir og
félagsmenn rúmlega sex þús.
Taldi Snorri nauðsyn á að félög-
um fjölgaöi enn og einkum væri
þörf á að bæta fjárhagsaðstöðu
deildanna.
Sigurður Blöndal skógræktar-
stjóri flutti ávarp. Kvað vetá þvi
fara aö saman félli „Ar trésins”
og fimmtugsafmæli Skógræktar-
félagsins. Viðbrögð fólks við „Ari
trésins heföu verið með ólik-
indum góð og aldrei hefði verið
plantaö fleiri trjám en nú. Sig-
urður kvað skilnig sveitastjórna á
störfum skógræktarmanna fara
mjög vaxandi og gæfi það ástæðu
til aukinnar bjartsýni. Máli sinu
lauk skógræktarstjóri meö þess-
um oröum: Ég öfunda þá, sem
lifa eftir 50 ár og hafa landið þá
fyrir augum.
Jón Birgir Jónsson lagöi fram
tillögu frá Skógræktarfélagi
Reykjavikur um aukna friöun og
gróöurvernd á Reykjanesskaga.
Pálmi Jónsson landbúnaðar-
ráðherra vék I ávarpi sinu að
þeim ágreiningi, sem stundum
þykir hafa orðiö milli skógrækt--
armanna og bænda (beitin). Sá
ágreiningur er á misskilningi
byggður, sagði ráöherrann.
Fljótsdalsáætlunin er skýr vottur
um það, að báðir þessir aöilar
vinna að sama marki. Skógrækt-
armenn ynnu að þvi að auka arð-
semi landsins og fyrir það bæri
þeim fyllstu þakkir.
Leiö nú að matmálstima og þar
með frestun fundar til morguns.
En áöur en sest væri að veislu-
borði þágu fundarmenn veitingar
landbúnaöarráðherra.
Borðhaldið bar merki afmælis-
ins. Var því meira um ræðuhöld
en venja er til við slík tækifæri en
minna um almennan söng.
Jónas Jónsson rakti aödrag-
andann aö stofnun Skógræktarfé-
lagsins og sögu þess I stórum
dráttum, sem vel væri þess viröi
að skráð væri og gefin út. Ræddi
árangur af starfi Islenskra skóg-
ræktarmanna I 50 ár og sagði að
hér þyrfti aðeins vilja til að koma
þvl aö fullu I framkvæmd, sem
starf brautryöjendanna hefði sýnt
að væri unnt.
Sigurður Blöndal: Til þess aö
bera hugsjónir fram til sigurs
þarf eldmóð, sem ekki spyr um
laun I peningum heldur árangur I
þá átt, að gera landið betra fyrir
samtlðog framtlð. Kannski þykja
skógræktarmenn stundum berj-
ast meira af kappi en forsjá. En
við þurfum alltaf að stefna eilitiö
hærra en viö gerum okkur vonir
um að ná.
Sigurður Ingi Sigurðsson,
Selfossi, færði Skógræktarfélagi
Islands þakkir og óskir frá skóg-
ræktarfélögunum. Þvl næst töl-
uðu fulltrúar frá skógræktarfé-
lögum Norðurlandanna: Noregi,
Svlþjóð, Danmörku, Finnlandi,
Færeyjum og Grænlandi, óskuöu
afmælisbarninu heilla og færðu
þvl góöar gjafir.
Og svo má ekki gleyma söngn-
um hans Guðmpndar Jónssonar
óperusöngvara, við undirleik
Agnesar Löve.
Ályktanir
Lauk þar með góðum og
skemmtilegum degi.
A fundinum daginn eftir voru
samþykktar nokkrar tillögur,
m.a. um aö auknar yrðu tilraunir
I skógrækt meö tilliti til jarðrækt-
ar og notkunar áburðar. Hér er
átt viö það, að ef um er aö ræða
land, sem ekki er vel fallið til
skógræktar, þá má ætla, að vinna
þurfi landið áður en I það er
plantað, plægja það eða tæta, til
þess að I þvl myndist lífrænn
gróður.og svo að bera á það.
Þá var samþykkt tillaga um að
gerö yröi ýtarleg athugun á leiö-
um til þess, að auövelda bændum
ræktun skjólbelta. Var henni vls-
að til Skógræktar rlkisins, Land-
búnaðarráöuneytisins og Búnað-
arfélagsins.
Kosin var nefnd til þess að
athuga leiðir til plönturæktar á
vegum félagsins. Skal álit nefnd-
árinnar leggjast fyrir næsta aðal-
fund Skógræktarfélagsins.
1 aöalstjórn félagsins sitja
áfram þeir Jónas Jónsson, búnað-
armálastjóri, formaður, Bjarni
Helgason ritari, Kristinn
Skæringsson, gjaldkeri, Oddur
Andrésson á Hálsi varaformaöur
og ólafur Vilhjálmsson með-
stjórnandi. Varamenn eru:
Bjarni Kr. Bjarnason, Kjartan
Ólafsson Selfossi, Hulda Valtýs-
dóttir, Alfur Ketilsson Sauðár-
króki og Andrés Kristjánsson.
-mhg
Ekki veit ég hver er I ræðustólnum en það er hlustað af athygli. Fremst á myndinni eru Hákon
Bjarnason, fyrrverandi skógræktarstjóri, og frú, Siguröur Blöndal, skógræktarstjórLog frú
Pálmi Jónsson, landbúnaðarráðherra,og frú. Mynd: —g
Nokkrir fundarmanna hafa dregið slg út úr þrönginni.
— Mynd:—-gel.