Þjóðviljinn - 29.07.1980, Page 11
Þriöjudagur 29. júli 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
P'
iþróttir [2 íþróttirg)
iþróttir
■ Umsjón: Ingólfur Hannesson.
<Jff, argh, æ! Þessa klassfsku baráttumynd tók Ijósmyndari okkar Þjóöviljamanna eik., á ieik Þróttar og Blika.
Blikarnir halda áfram
að hala inn
Skemmtileg þróun á sér nú staö
i knattspyrnumálum Kópavogs-
búa. Svo viröist sem liö Breiða-
bliks veröi eftir nokkur ár I hópi
okkar allra bestu knattspyrnuliöa
og er af sem áöur var þegar
Breiöablik var i hópi þeirra liöa
sem skröpuöu botninn ár eftir ár.
Nú er kominn upp góöurkjarni af
snjöllum knattspymumönnum og
ef Kópavogsmenn missa þá ekki
úr landi getur Islands-
meistaratitiiinn alveg eins fariö
aö þokast inni Kópavogs-
kaupstaö.
Blikar unnu sinn þriöja sigur i
röð I deildarkeppninni og eru þvi I
4. sæti ef leikur Vikings og 1A er
ekki talinn meö. Aö visu var
knattspyrna þeirra Kópavogs-
stigin
manna ekki upp á marga fiska en
haröir stuöningsmenn Blika voru
altént meö skýringar á þvi. ,,Þaö
er nefnilega svo,” sagöi einn
þeirra, „aö gegn Þrótti er ekki
hægt aö spila knattspyrnu.
Miklu frekar ættu menn
aö mæta meö boxhanska”.
Ekki veröur meö neinu
móti fallist á slikt en leik
menn beggja liða voru greini-
le^a minnugir leiksins i bikar-
keppninni þegar hnefar og spörk
hér og þar töluöu skýrustu máli.
Leikurinn á laugardaginn var
ekki nándar nærri eins harður.
en engu aö slður höfðu flestir
leikmenn gleymt hugarfarí leik-
gleðinnar heima. Eina mark
leiksins skoraöi Ólafur Björnsson
eftir aö Hinrik Þórhallsson haföi
skotiö I hann, m.ö.o. batti og inn!
Þröttarar komustnálægt því að
jafna er Gunnlaugur Helgason
bjargaöi naumlega á linu eftir
snarpa sóknarlotu Þróttara.
Framhald á bls. 13
Nú skal mann-
inn reyna!
r
Hreinn og Oskar í úrslitum
Von tslands á Olympiuleikun-
um i Moskvu, félagarnir óskar
Jakobsson og Hreinn Halldórsson
stóöu báðir fyllilega fyrir sinu I
undankeppninni I kúluvarpi sem
fram fór i gærkvöldi. Þeir komust
báöir í hóp þeirra 12 keppenda
sem keppa um gullið.
Þaö var fyrirfram gefiö upp aö
það þyrfti 19,60 metra til aö kom-
ast i úrslitin og þaö er kast sem
bæöi óskar og Hreinn eiga aö
ráöa auðveldlega viö. Keppnin fór
fram snemma morguns og þegar
Hreinn kastaöi 19,7 metra i sinu
ööru kasti var ljóst aö hann þyrfti
ekki aö taka meira á. Óskar
komst svo i hópinn þegar hann
varpaöi 19.66 metra. Til þess aö
ná settu marki fengu kúluvarpar-
arnir alls sex köst. Lengsta kastiö
mældist 20,72 sem er talsvert
undir Islandsmeti Hreins. Má
ætla aö flestir keppenda hafi
reynt að spara kraftana fyrir úr-
slitin, sem fram fara á miðviku-
daginn.
— hól.
Þaö er oröiö ljóst mál aö annar hvor þeirra Hreins og óskars eiga
mikla möguleika á verölaunum á OL i Moskvu. Slikt hefur ekki gerst
siöan Vilhjálmur Einarsson vann silfriö i Meibourne 1956.
Valsliöiö sýndi siöastliöiö
sunnudagskvöld takta sem marg-
ir aðdáendur þess hafa lengi
oröið aö bíöa eftir. Þeir sigruöu
heillum horfna KR-inga meö
fimm mörkum gegn engu. Mönn-
um er til efs aö Valur hafi áöur
unnið KR i tslandsmóti meö slik-
um yfirburöum. Þó Valsmenn
hafi leikiö vel og fyllilega verð-
skuldað þennan stóra sigur má þó
finna ýmsar ástæöur fyrir lélegri
frammistööu KR-inga. Þjálfari
þeirra, Magnús Jónatansson, var
fyrir leikinn látinn taka pokann
sinn og slikt getur haft hin verstu
stööulaust i netiö, 2:0. Fleiri uröu
mörkin ekki i hálfleiknum enda
fátt um marktækifæri og leikur-
inn i járnum.
Siöari hálfl. var afbragösvel
leikinn af hálfu Vals, boltinn var
látinn ganga manna á milli svo
oft á tiðum var unun á aö horfa.
Þriöja markiö kom þegar u.þ.b.
stundarfjóröungur var af hálf-
leiknum. Guömundur Þor-
björnsson var potturinn og pann-
an i þessu marki. Hann náði úr
þröngri stööu aö þvælast upp að
endamörkum, gaf vel fyrir og
Magnús Bergs var á réttum staö
KR-ingum
rúllað upp
áhrif á leikmenn. Ekki bætti úr
skák aö Valsmenn skoruöu tvö
mörk þegar i upphafi leiksins og
þaö varö KR-ingum algjörlega
um megn aö komast yfir.
Fyrsta mark léiksins kom á 10.
minútu. „Girafinn” i liöi Vals,
Dýri Guömundsson skallaöi
þrumuskalla I netiö eftir auka-
spyrnu Guðmundar Þor-
björnssonar. Stuttu siöar var
markakóngurinn mikli, Matthias
Hallgrimsson á feröinni. Boltinn
barst til hans frá Magna
Péturssyni og Matti var ekki
seinn á sér og sendi botlann viö-
og skallaði inn, 3:0. 6 m'inútum
siöar skoraði • Guömundur svo
sjálfur fjóröa mark Vals. Albert
gaf langan bolta inni vitateig KR
en markvöröurinn virtist eiga
allskostar við knöttinn.Guðmund-
ur var á vakki viö vitateiginn, tók
á rás, náöi til knattarins á undan
markveröinum og tókst aö
sneiö’ann framhjá og i netiö, 4:0.
Matti bætti siðan 5ta markinu viö
þegar stutt var til leiksloka. Jón
Einarsson sem aftur var kominn i
Valsliöib hreinlega þaut i gegnum
vörn KR, komst alveg upp ab
markinu og gaf á Matthias sem
Framhald á bls. 13
Loks
vann
Fram
Framarar fóru aftur i
gang I tslandsmótinu þegar
þeim tókst loks, eftir þrjá
tapleiki I deildinni i röö, að
siera tslandsmeistara tBV
með einu marki gegn engu,
en leikur liöanna fór fram i
Eyjum siöastliöinn laugar-
dag. Þetta eina mark skoraöi
fyrrum Eyjapeyi,
Guðmundur Torfason
Bryngeirssonar stangar-
stökkvara með meiru. Mark-
ið var skorað á 25. minútu
leiksins. Guðmundur komst
af miklu haröfylgi i gegnum
vörn Eyjamanna og skoraði
framhjá Páli Pálmasyni i
markinu. Eyjamenn sóttu
nær látlaust eftir markiö, þó
án þess aö skapa sér hættu-
leg tækifæri. Tap Eyja-
manna gerir vonir um að
halda titlinum nánast aö
engu. Þó má benda á aö þeir
eru þekktir fyrir allt annaö
en aö leggja árar i bát!
— hól.
Sviplaust
100 m W.
Fjarvera bestu
spretthlaupara Banda-
rikjanna setti svo sann-
arlega svip sinn á úrslit 100
metra hlaupsins á Olympiu-
leikunum. Þeir fremstu þar
vestan frá hlaupa nefnilega
iöulega i kringum 10
sekúndur sléttar en aö þessu
sinni var slikri frammistööu
ekki að heilsa. Sigur-
vegarinn varö aö þessu sinni
breskur, Alan Wells en hann
hljóp á 10,25 sek. Ljósmynd
færöi Wells sigurinn þvi jafn
honum varö Silvino Leonard
frá Kúbu, vitaskuld einnig
með 10,25 sek. t 3. sæti varö
Petrv frá Búlgariu með
timann 10,25 sek og i 4. sæti
varö Alexander Aksinin á
10.42. Þaö er mál manna að
þessi grein hafi spillst hvað
mest af fjarveru Banda-
rikjanna. Heimsmet James
Hines 9,95 frá Mexikó 1968
talar skýru máli um þaö
atriði.
— hól.
Coe varð
að lúta
í lægra
haldi
Uppgjöriö sem svo margir
höföu beöiö eftir, 800 metra
hlaup Bretans Sebastian
Coe, heimsmethafa i grein-
inni og landa hans, Steve
Ovett,varö ekki nándar nærri
eins spennandi og ráö var
fyrir gert. Coe hefur engan
veginn náöi slnum fyrri
styrk og keppnisskap Ovetts
fleytti honum langt aö þessu
sinni.
Hlaupið sem fram fór á
laugardaginn var i raun allt
hiö furöulegasta einkum
vegna „hegöunar” Coe.
Hann tók nefnilega uppá þvi
aö hlaupa eins og hann væri I
1500 metrunum, var siðastur
lengst af, en Ovett fremstur,
langt á undan Coe. En glfur-
legur endasprettur Coe
reyndi á þolrifin I Ovett sem
eftir mikiö hark náði aö
komast fyrstur i mark. Coe
komst framúr Kirov frá
Framhald á bls. 13