Þjóðviljinn - 29.07.1980, Page 15
Þriöjudagur 29. júll 1880 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15
Hringið í síma 8-13-33 kl. 9-5 alla virka
daga eða skrifið Þjóðviljanum
úff.þetta er nú meiri hitinn. Þeir hafa það gott sem geta fækkað fötum.
Hlutleysisþankar um forsetakjör
Þótt brátt sé mánuöur liðinn
frá forsetakosningum, er enn að
berast kveðskapur, sem fæddist
dagana fyrir kjördag. Viö birt-
um hér fjórar visur eftir Svan-
berg Sveinsson á fsafiröi:
Gróður falinn og grænn
er balinn,
giampar ofan í Selárdalinn
— alla tið þar einhver falinn.
Enn stendur Bessastaður.
Pétur er prúður maður.
Hann er reynslurikur
— raunar samt ég bið.
Allt er þetta indælt strið.
Fyrrum heyrði ég fótboltmann
fór i kapp um forsetann.
Allar götur áfram rann,
Plakat meö Vigdísi
Árni Jóhannsson hringdi:
— Ég var að fá hugmynd sem
mig langar til að koma á fram-
færi. Skömmu fyrir forseta-
kosningarnar þurfti gamall
skipsfélagi minn, sem er öryrki,
að fara á sjúkrahús. Hann þver-
neitaði þó að fara þangað fyrren
hann væri búinn að kjósa Vig-
disi.
Af þessu tilefni datt mér i hug
að stuöningsmenn Vigdisar ættu
að gefa út piakat með mynd af
Vigdisi. Þetta plakat mætti svo
selja, og láta hagnaðinn renna
til fatlaðra og lamaðra.
Alþing sat með prýði.
Agann þekkir Alberti.
Heiðum undir himni
hleypur ’ann ár og sið.
Allt er þetta indælt strið.
En fengju þau nú
frægan sjans
„Forsetinn og kona hans”,
og gengjum við til hins
góða manns
þá gæfist okkur drykkur.
Glettinn er hann Guðlaugur,
hægt um höfuð strýkur
hófsömum með lýð.
Allt er þetta indælt strið.
„Afram veginn” einn ég renn.
Akvöröun verður tekin senn.
Óðfúsir spyrja ýmsir menn:
Elskarðu Thalfu?
Vigdis hefur viskuna.
Óska ég henni gengi, gleöi
og gæfurika tlð.
Allt er þetta indælt strið.
Svanberg Sveinsson
fra
lesendunt
Ólafsvökukvöld
1 dag er ólafsvaka og I til-
efni af þvf verður á dagskrá
útvarps i kvöld þátturinn
„ólafsvökukvöld”. Nú er nor-
rænt málaár, og þótti þvl fara
vel á að helga ólafsvökudag-
skrána að þessu sinni fær-
eysku máli og menningu.
Stefán Karlsson handrita-
fræöingur talar um þjóötungu
Færeyinga og rekur nokkra
þætti úr sögu hennar. M.a. les
hann á færeysku eftirfarandi
texta, sem er eftir Christian
Matras og fjallar um færeyska
stafsetningu, sem V.U.
Hammershaimb lagði grund-
völl að 1846 meö aöstoð Jóns
Sigurðssonar:
„Uppruni orðanna, fornnor-
röna snið teirra, er her alt.
Munurin Imillum skriftmynd
og ljóðsögn verður viö hetta
lag heldur stórur, men tað
góða er, at vit hava fingið eitt
skriftmál, sum fört er fyri at
hýsa öllum teimum — ljóðliga
— óliku bygdamálum, sum er
föroysk tala i dag. Ein fyri-
munur er tað eisini, at ein för-
oyskur tekstur er eyölisin hjá
öllum teimum, sum hylling
hava á at lesa norrönt forn-
mál ella islendskt. Slikur
tekstur skilst, hóast maður
ikki dugir at siga orðini sum
ein föroyingur.”
Vésteinn ólason dósent
spjallar um færeyskan dans
og danskvæði og fremstu
skáld og rithöfunda Færey-
inga á þessari öld og verk
þeirra. Þeir Stefán og Vé-
steinn eru þeir fræðimenn is-
lenskir sem einna best eru að
sér um þessi efni.
í þættinum kveöa Sumbing-
ar færeyskt danskvæði, „Grim
á Miðalnesi”, Annika Hoydal
syngur lag J. Waagsteins við
ljóð Djurhuus, „1 búri”, við
undirleik Harkaliðsins, og
færeyska skáldiö og fræði-
maöurinn Christian Matras
les ljóö sitt „Móðurmálið” á
færeysku. __
Útvarp
ll!? kl. 20.25
Fyrir gárungana
Tom Lehrer verður á hljóð-
bergi hjá Birni Th. Björnssyni
i kvöld, og skal gárungutn
bent á að láta hann ekki fram-
hjá eyrum sinum fara.
Tom Lehrer var upphaflega
stærðfræöingur og hátt settur
sem slfkur, en sagan segir að
hann hafi drukkið sig út úr öll-
um finum embættum og gerst
skemmtikraftur i staðinn.
Hann er lika frægur fyrir að
stela lögum frá hinum og
þessum, semja við þá texta
sem eru uppfullir af skepnu-
skap og gálgahúmor og svo
fyndnir að áheyrendur veltast
um af hlátri. Þetta er beitt
fyndni, og Tom Lehrer hefur
sannað það betur en margir
aðrir að skop og háö geta veriö
hin skæðustu vopn.
—ih
Björn Th. Björnsson.
Útvarp
kl. 23 .OO
barnahornid
Smíðaðu þér kassabíl!
í dag ætlum við að kenna
ykkur að smiða kassabil. Best
væri auðvitað aö fá einhvern
fullorðinn i lið með sér, en
stálpaðir krakkar ættu svo-
sem ekki að verða i vand-
ræðum með aö smiöa bilinn
sjálfir.
Það fyrsta sem þið þurfið að
útvega ykkur eru fjögur hjól.
Kannski þekkið þiö einhvern
sem á eldgamlan barnavagn
eöa barnabil sem hætt er aö
nota — ef ekki veröiö þið aö
nota hugmyndaflugið og finna
eitthvaö upp! Fremri öxulinn
smiðið þiö úr spýtu sem er 60-
70 sm löng. Aftari öxullinn er
úr svolitið styttri spýtu.
Þegar þiö smiðið sætið og
neglið það fast skuluð þið
máta lengdina á ykkur
sjálfum —- þið eigiö aö sitja i
sætinu og stýra með fótunum.
öxullinn á fremri hjólunum
er sagaður sundur i miðjunni
meö járnsög, og skrúfaður
neðan á spýtuna, einsog þið
sjáið á myndinni. Spýtan er
fest á miðspýtuna með
skrúfum og róm, og munið að
setja málmþynnur á milli, til
þess að fremri öxullinn verði
hreyfanlegur. Svo notiö þið
þvottasnúru fyrir stýris-
tauma, og festið hana á einsog
myndin sýnir.
Munið svo aö gatan er eng-
inn leikvöllur, og leikiö ykkur
með kassabilinn þar sem
ykkur er óhætt — úti á róló t.d.
Góða skemmtun!