Þjóðviljinn - 02.08.1980, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 02.08.1980, Qupperneq 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 2.-3. ágúst 1980 Minnkar mj ólkin um 7 % í ár Fyrstu 6 mánuði þessa árs var innvegin mjólk hjá mjólkursam- lögunum 1,8% minni en fyrstu 6 mánuðina árið 1979. Ef ekki verður breyting á og mjólkin heldur áfram að minnka má gera ráð fyrir að mjólkurframleiðslan i ár gæti orðið um 7% minni en á sl. ári eða um 110 milj. ltr. sem er 10 milj. ltr. minna en árið 1978. Fyrstu 6 mánuði ársins tóku mjólkursamlögin á móti 54.06 milj. ltr. en það var tæplega 1 milj. ltr. minna en i fyrra. Hjá Mjólkurbúi Flóamanna var litils- háttar aukning eða um 0,7% og i Borgarnesi varð aukningin 3,3%. Hjá öðrum stærri mjólkursam- lögum varð samdrátturinn veru- legur. A Akureyri varð hann um 4,8%, á Sauðarkróki 10,7%, á Blönduósi 5,0% og á Húsavik 5,4%. t júni tóku mjólkursamlögin á móti 11,8 milj. ltr. sem er 3,0% minna en i júni i fyrra. Mjólkin minnkaði mikið i júli. Fyrstu 10 daga mánaðarins var samdrátt- urinn 14% hjá Mjólkurbúi Flóa- manna og um 12% hjá Mjólkur- samlagi Kaupfélags Eyfirðinga á Akureyri. —mhg KRON Starfsnefndir Að undanförnu hafa tvær nefndir starfað á vegum stjórnar KRON: Holtagarðanefnd og íjármálanefnd. Hlut- verk Holtagarðanefndar er að taka þátt i viðræð- um við SÍS og kaupfélög i næstu byggðarlögum um rekstur sameigin- legs markaðar i Holta- görðum, svo sem frá hefur verið skýrt hér i blaðinu. Fjármálanefnd fjallar um fjár- festingarmál og framtiðarverk- efni félagsins. Báðar starta þessar nefndir með kaupfélags- stjóra og skila áliti til félags- stjórnar. I Holtagarðanelnd eiga sæti Adda Bára Sigfúsdóttir, Ólafur Jónsson og auk þeirra var Frið- finnur heitinn Ölafsson i nei'nd- inni. 1 fjármálanefnd eru Ólaíur Jónsson, Björn Kristjánsson og Jón Þór Jóhannesson. Að þvi er félagstiðindi KRON skýra frá hafa nú enn tvær starfs- nefndir verið stofnaðar: lélags- málanefnd og þróunarneínd. t fé- lagsmálanefnd voru kosin þau Adda Bára Sigfúsdóttir, Páll Bergþórsson og Böðvar Péturs- son en i þróunarnefnd Guðmund- ur Ágústsson, Þórunn Klemens- dóttir og Gylfi Kristinsson. —mhg Séðyfir hluta stórverslunarinnar að Miðvangi 41 f Hafnarfirði. Ljósm. eila. Kaupfélag Hafnflröinga fœrir út kviarnar Stórverslun aö Midvangi 41 Kaupfélag Hafnfirðinga hef ur opnað verslunarmið- stöðina Miðvang í Norður- bænurh. Þetta er stórversl- un með nútímasniði sem kaupfélagið væntir sér mikils af. Miðvangur er eign sam- eignarfélags Kaupfélags Hafnf irðinga, Sambands- ins og nokkurra annarra samvinnufyrirtækja. Þessi leið sem farin var er nokk- ur nýjung hjá íslensku samvinnuhreyfingunni en samvinnumenn annars staðar á Norðurlöndum hafa farið svipaðar leiðir. Þannig var t.d. Domus- keðjan byggð upp í Sviþjóð og áform eru uppi um slíka samvinnu um stórmarkað í Holtagörðum í Reykjavík. Teiknistofa Sambandsins ann- aðist teikningar hins nýja versl- unarhúsnæðis. Skipulag á innrétt- ingum og vöruröðun önnuðust Birgir tsleifsson verslunarráðu- nautur á vegum Skipulagsdeildar Sambandsins og Villiy Petersen, arkitekt, danskur verslunarráðu- nautur hjá Fællesforeningen for panmarks Brugsforeninger. ■Guðbjartur Vilhelmsson er verslunarstjóri i nýju verslunar- miðstöðinni. Kaupfélagsstjóri er örn Ingólfsson. Stjórnarformað- ur Kaupfélags Hafnfirðinga er Hörður Zóphoniasson. Stærð verslunarhúsnæöisins er 1415 fermetrar og rúmmál þess 7216 rúmmetrar. Innréttingar eru frá Danmörku. Innréttingar og skipulag eru i samræmi við það sem best þekkist á Noröurlönd- um. Sérstök aðstaða er fyrir hreyfihamlaða og allir gangvegir um verslunina þaö breiöir að þeir eiga að hafa auðvelda leið þar um. Hjólastóll verður i verslun- inni og almenningssnyrting er hönnuð meö tilliti til þarfa hreyfi- hamlaðra. t versluninni verða á boðstólum nýlenduvörur, kjötvörur, mjólk, búsáhöld, leikföng, ferðavörur, fatnaður og heimilistæki. Kjara- kaup verða boðin á sérstökum til- boðstorgum. Þegar verslunin var opnuð voru þar vörur aö verö- mæti 150 milljónir króna. Gamla kaupfélagsverslunin flyst nú í nýja húsnæðið en þar sem hún var áður munu koma ýmis þjónustu- og verslunarfyrir- tæki. ekh. Frá v. Guðbjartur Vilhelmsson verslunarstjóri, Hörður Zophoniasson formaður stjórnar KH, og örn Ingólfsson kaupfélagsstjóri. Ljósm. ella. Reykjavik 6.-8. N orræn ráðstefna um almanna- tryggingar Norræn ráöstefna um almanna- tryggingar verður haldin i Reykjavik i næstu viku, dagana 6.-8. ágúst. Ráöstefnuna sækja um 240 manns frá öllum Noröur- landanna og þar af veröa islensku fulltrúarnir um 40. Umræöurnar á ráöstefnunni fara ýmist fram sameiginlega fyrir alla þátttakendur eða veröur skipt i deildir. Ein deildin fjallar um efni sem þýöingu hafa fyrir margar tryggingagreinar en fjórar deildir, hver um sig, fjalla um málefni, sem sérstaklega varða fjórar höfuögreinar trygg- inga sem eru lifeyristryggingar, slysatryggingar, sjúkratrygg- ingarog atvinnuleysistryggingar. Ráðstefna þessi verður sett i Háskólabiói kl. 9 árdegis hinn 6. ágúst. Starfsmenn Slysadeildar Volvo við nákvæma rannsókn á slysstað. Slysadeild Volvo: Rannsóknir á slysstað Slysadeild Volvo hefur nú starf- að I 10 ár. Hlutverk hennar er að rannsaka nákvæmlega þau um- ferðaróhöpp, sem Volvo-bifreiöar eiga hlut aö. Hefur deildin rann- sakað 11 þús. slik slys á þessu timabili. t Gautaborg reynir deildin að rannsaka aðstæður á slysstaö og aödraganda slyss. Er slysstaöur- inn kortlagöur nákvæmlega, viö- töl höfö viö lögregluþjóna, lækna og vitni ef einhver eru. Bifreiöar þær, sem hlut eiga að máli, eru rannsakaöar, ef hugsanlegir gall- ar kæmu i ljós. Slysadeildin kort- leggur öll slys á fólki og flokkar þau i mismunandi flokka eftir tegund. Rannsóknir á slysum annars- staðar i Sviþjóð eru fyrst og fremst byggðar á upplýsingum frá sænska vegaöryggiseftirlit- inu. Einnig gerir Slysadeild Volvo samanburð á rannsóknum ákveöinna timabila. 1 skýrslum vegaöryggiseftir- litsins komu i ljós þau áhrif, sem notkun bilbelta hefur hatt 1 þá átt, að lækka tölu látinna og draga úr alvarlegum slysum á fólki. Slysadeildin getur auöveld- lega komist að þvi hvort eitthvert smáatriði i farþegarýminu, t.d. i innréttingu.geti valdið slysi. Ef Framhald af bls. 17 Tveir nýir stór- riddarar Forseti tslands hefir sæmt þá Skúla Skúlason ritstjóra, Nesby- en, Noregi stórriddarakrossi fyrir störf að blaðamennsku og Snorra Pál Snorrason lækni stór- riddarakrossi fyrir læknisstörf. Skúli Skúlasonvarð niræður um siöustu helgi, en hann var elstur manna i blaðamannastétt á ts- landi, og heiðursfélagi Blaöa- mannafélagsins. Skúli hefur áður verið sæmdur af Hákonisjöunda Noregskonungi heiðursmerki fyrir „ágæta þjón- ustu við málstað Noregs á striðs- árunum”. Snorri Páll Snorrason lauk Cand. med. prófi frá Háskóla ts- lands árið 1949 og stundaöi siöan framhaldsnám i lyflækningum og hjartasjúkdómum i Bandarikjun- um og Bretlandi. Hann hefur verið ritstjóri Hjartaverndar frá upphafi, sinnt kennslu við læknadeild Háskóla tslands og starfar nú sem yfirlæknir á lyflækningadeild Landspitalans. —lg-

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.