Þjóðviljinn - 02.08.1980, Side 7

Þjóðviljinn - 02.08.1980, Side 7
Helgin 2.-3. ágúst 1980 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7 J--------------------- STJÓRNMÁL Á SUNNUDEGI KJARTAN ÓLAFSSON SKRIFAR: 1 Viðskiptakjör nú eins og 1975 — en| kaupmáttur heimilistekna 19% hæni j Biður nokkur um Geir Hallgrimsson í stjórnarráðið? Þegar þessar linur eru skrifað- ar liggur enn ekki fyrir hvort kjarasamningar takast nú þessa daga milli Alþýðusambandsins og Vinnumálasambands samvinnu- félaganna annars vegar og svo rikisins og Bandalags starfs- manna rikis og bæja hins vegar. Ný andlitslyfting hjá Sjálf- stæðisf lokknum Ljóst er, aö ekki vantar nema herslumun til þess aö samningar takist, þótt alltaf geti komiö upp á lokastigi smáar eöa stærri hindranir, sem töfum valda. Leiftursóknarpostular Sjálf- stæöisf lokksins i stjórn Vinnuveitendasambands tslands halda hins vegar aö sér höndum og neita aö ræöa viö fulltrúa verkalýösfélaganna, nema gengiö veröi aö afarkostum um hrikalega kaupskeröingu og rétt- indamissi alls almennings. Máske hin pólitisku gáfnaljós á kontórum Vinnuveitendasam- bandsins og á flokksskrifstofum Sjálfstæöisflokksins telji þaö nú vænlegast til andlitslyftingar flokksins á eyöimerkurgöngu hans, að skipa kapitalistunum i Vinnuveitendasambandinu aö borga þvi fólki, sem hjá þeim vinnur, áfram lægri laun heldur en opinberir aöilar. og þeir hjá Vinnumálasambandi samvinnu- félaganna eru tilbúnir að greiða. Þaö er öllum kunnugt, aö und- anfarna daga hafa samningamál- in snúist um tiltölulega fá og af- mörkuö málasviö. 5% fyrir þá lægstu í fyrsta iagi hefur veriö á dag- skrá krafan um þaö, aö kaup- mætti lægst launaöa fólksins i verkalýðshreyfingunni verði með samningum iyft á nýjan leik upp á það stig, sem samsvarar með- alkaupmætti áranna 1974, 1978 og 1979, en til þess þarf t.d. kaup- máttur timakaups verkamanna að hækka um 5—6%. Astæða er til að minna á það enn einu sinni að einmitt þessi þrjú ár, sem hér eru tekin til viðmiðunar, 1974, 1978 og 1979,hefur kaupmáttur dagvinnu- timakaups verkamanna orðið hæstur i allri sögunni. Sé kaup- máttur timakaups verkamanna talinn 100 stig árið 1971, þá var hann samkvæmt upplýsingum Kjararannsóknarnefndar 129 stig áriö 1974, 128 stig áriö 1978 og 126,3 stig áriö 1979. Þaö er þessi kaupmáttur sem lágt launaö verkafólk getur náö nú meö 5—6% raunhæfum kjarabótum, og um þaö snúast samningamálin ekki hvað sist. Hvernig á að greiða verð- bætur? t öðru lagihefur viö samninga- boröiö veriö fjallaö um kröfu verkalýösfélaganna innan Alþýöusambandsins um þaö, aö visitölukerfinu veröi beitt til launajöfnunar, þannig aö þeir sem lægst hafa launin fái veru- íega miklu hærri hlutfallslegar veröbætur greiddar á sin laun heldur en hinir sem ofar standa i launastiganum. Þótt verkalýös- félögin hafi lagt mikinn þunga á þessa kröfu og auðvelt sé aö færa fyrir henni sterk jafnréttisrök út frá réttlætissjónarmiði, þá mætir þessi krafa engu aö siður mjög þungri andspyrnu bæöi frá Vinnu- 43 manna samninganefnd Alþýðusambandsins á fundi veitendasambandinu og Vinnu- málasambandinu. Auk þess eru BSRB-menn sem kunnugt er and- vigir þvi, að þessi leiö veröi farin til launajöfnunar. Þeirra stefna er að draga úr launamun með þvi aö semja beint um meiri launa- hækkanir til láglaunafólks held- ur en til annarra, en láta svo visi- tölukerfið mæla öllum sama hlut- fall i veröbótum. Réttindamál 1 þriðja Iagi hefur við samn- ingaboröiö, bæöi hjá Alþýöusam- bandinu og BSRB, veriö fjallaö siöustu daga um margvisleg réttindamái. Kröfur um skerö- ingu réttinda verkafólks hafa þó ekki verið á dagskrá siöan leiftur- sóknarmenn Vinnuveitendasam- bandsins úr innsta hring Sjálf- stæöisflokksins hlupu á dyr. Þvert á móti hefur veriö rætt um leiöir tii aö auka félagsleg réttindi af ýmsum toga sem miklu varöa fyrir vinnandi fólk. Sem dæmi má nefna eftirlauna- og lifeyrismál aldraöra. Er hægt aö finna leiöir til að auövelda fólki aö hverfa frá erfiöum störfum þegar aldur fær- istyfir og tryggja mönnum rétt til eftirlauna fyrr en veriö hefur? — Er hægt að treysta verulega stööu atvinnuleysistryggingasjóösins, sem nú hefur sáralitiö fé til ráö- stöfunar i reynd, vegna þess aö meö lögum er á undanförnum ár- um búiö aö ráöstafa megninu af fé þessa sjóös i ailt aörar þarfir en þær sem sjóönum var upphaf- lega ætlaö aö sinna og hann dreg- ur nafn sitt af? — Er hægt aö draga verulega úr misræmi i launagreiöslum fyrir samskonar störf, sem nú viðgengst, misræmi sem fer aöeins eftir þvi hvort við- komandi er I þessu verkalýös- félagi eöa hinu, þótt störfin séu nákvæmlega þau sömu? — Er hægt aö bæta þann rétt sem nú er fyrir hendi til fæðingarorlofs? — Hvaö um átak i dagvistunarmál- um? — Hvaö um hjúkrunar- og dvalarheimili fyrir aldraða og öryrkja og margvisleg réttinda- mál þess fjölmenna hóps? — Hvaö um farandverkafólkiö? Sannleikurinn er sá aö þannig mætti lengi telja og öll hafa þessi mál meö einum eöa öörum hætti komiö á borð samningamanna og verið til umfjöllunar. Það er nefnilega mikill misskilningur aö kjarasamningar snúist aöeins um krónur og aura Ekki „allt fyrir alla"/ En geta þá ekki allir fengiö eitt- hvaö? Nei, það geta ekki allir fengiö eitthvaö. — Til eru þeir, sem nú þegar búa viö þannig kjör, aö ekkert réttlæti fælist i frekari kjarabótum þeim til handa nú. Slikir hópar eru jafnvel til meöal þeirra sem kallast launamenn. En hverjar eru aöstæöur nú til að tryggja almennu launafólki, og láglaunafólki sérstaklega, kjara- bætur? Til þess eru ytri aöstæður sannarlega mjög erfiðar. Kjarabæturnar verður hins vegar aö tryggja þvi fólki, sem viö erfiöust kjör býr, þrátt fyrirstór áföll i utanrikisviðskiptum þjóöarbúsins. Það er skylda hinnar faglegu verkalýöshreyf- ingar, og það er skylda rikis- stjórnar, sem eiga vill vinsamleg samskipti við verkalýðshreyfing- una og ganga fram undir merkjum jafnaðarstefnu,eins og Alþýöubandalagið gerir kröfu um. Viöskiptakjör eins og 1975. En viö skulum skoöa öll þessi mál á fullkomlega raunsæjan máta, og ekki láta eins og ekkert viöskiptakjaraáfalla hafi átt sér staö. Hvaö hefur gerst i sambandi viö viðskiptakjörin? — Þaö, aö nú um mitt þetta ár haföi kaup- máttur hverrar einingar i okkar útflutningsvörum rýrnað að jafnaði um 18.5% gagnvart inn- fluttu vörunum sem við kaupum erlendis. Sérhvert fyrirtæki, sér- hvert heimili hlyti að sjálfsögðu aö finna rækilega fyrir slikri skeröingu á verðgildi aflafengs- ins jafnvel þótt eitthvaö af skerö- ingunni vinnist upp meö aukinni vinnu, aukinni framleiöslu. Og eins er þetta meö okkar þjóöarbú. Þess vegna m.a. er ekki hægt aö gera „allt fyrir alla” þótt þeir sem minnst hafa boriö úr býtum haldi samt sem áöur sinum fulla : rétti til kjarabóta. Litum á þróun viöskiptakjar- anna undanfarin ár. Skoöum töflu á blaösiöu 43 i nýútkominni skýrslu Þjóöhagsstofnunar. Þar eru viðskiptakjörin árið 1972 kölluð 100 og siöan hefur þróunin oröiö sem hér greinir: Visitala viðskiptakjara: 1972 100,0 1973 115.3 1974 104.0 1975 88.8 1976 100.1 1977 108.5 1978 108.5 1979 gy g 1. júní 1980 88.4 Hvaö sýna þessar tölur? Þær sýna m.a., að viðskiptakjörin nú um mitt þetta ár eru lakari en þau voru að jafnaði árið 1975, þegar þau fóru áöur lægst á síöasta ára- tug. 88.8 stig árið 1975, en 88.4 stig nú. Þetta er ákaflega alvarleg staöreynd. Lífskjör 1979. I kosningabaráttunni á s.l. vetri boðaði Sjálfstæöisflokkurinn „leiftursókn” gegn lifskjörum almennings á furðulega ódul- búinn hátt, en jafnframt leyföu taismenn Sjálfstæðisflokksins sér að láta eins og allt væri að farast vegna ógnvænlegrar kjaraskerð- ingar sem „vinstri stjórnin” átti aö hafa staöið fyrir á árinu 1979! Nú liggur fyrir i skýrsiu Þjóö- hagsstofnunar, aö á árinu 1979 hélst óbreyttur kaupmáttur þeirra ráðstöfunartekna, sem heimilin halda eftir, þegar búiö er aö borga skatta og skyldur, og kaupmáttur atvinnutekna hækkaði meira að segja um 2% á mann þaö ár, en kaupmáttur kauptaxta launafólks lækkaöi um 1%. Þessar upplýsingar Þjóðhags- stofnunar eru ákaflega auöskild- ar hverju barni, nema máske áróöursstjórum og pólitiskum ráögjöfum Geirs Hallgrimssonar, sem hæst góluðu um skert kjör, en boöuöu þó sjálfir margfalda kjaraskeröingu. Samanburður við sældar- ár. En hér er annaö ákaflega at- hyglisvert. Samkvæmt upplýs- ingum.'sem birtar eru á kápusiöu aprilheftis Fréttabréfs Kjara- rannsóknarnefndar, þá er kaup- máttur ráöstöfunartekna heimil anna, þegar skattar hafa veriö greiddir, talinn vera 141 stig bæöi 1978 og 1979 og er þá miöaö viö aö þessi kaupmáttur hafi veriö 100 stig árið 1971, — hafi sem sagt vaxið um 41% siöan þá. Nú spáir Þjóöhagsstofnun þvi, að nú i ár muni kaupmáttur ráð- stöfunartekna rýrna um 4% hjá þeim, sem engar kjarabætur fá I væntanlegum kjarasamningum. Það þýðlr, að kaupmáttur ráðstöfunartekna heimilanna yrði þá 135.4 stig árið 1980, ef kjarasamningar hafa þar engin áhrif, og er þá kaupmáttur ársins 1971 enn kallaður 100 stig. En eigum við að bera þetta saman við árið 1975, sældarárið hans Gcirs Hallgrimssonar og þeirra hjá Vinnuveitendasam- bandinu? — Jú, skal gert. Viðskiptakjörin voru þá öriitið skárri en nú, eins og áður sagöi, það er 88,8 stig á móti 88,4 stigum nú þann 1. júni s.I. En segjum bara að þau hafi verið jöfn. En voru þá lifskjörin hjá almenningi þau hin sömu fyrir fimm árum og nú, fyrst viðskiptakjör þjóöar- búsins út á viö eru hin sömu? Nei, ekki aldeilis. Þjóðhagsstofnun segir, að kaupmáttur ráöstöfunartekna > verði á árinu 1980 135,4 stig (miðað við 100 árið 1971), og það þótt engar kjarabætur fáist í yfir- standandi samningum. En hvernig var þessi kaupmáttur ráðstöfunarteknanna árið 1975, þegar Geir Hallgrimsson skammtaði kjörin af sinu réttlæti? Þá var kaupmáttur ráðstöfunar- teknanna á mann mældur á ná- kvæmlega sarna kvarða ekki 135,4 stig heldur 113,8 stig. Flettið J upp á kápusiðu i aprilhefti Fréttabréfs Kjararannsóknar- nefndar, þá sjáið þið þetta og verður vist ekki véfengt. En hvað þýða þessar tölur? —Einfaldlega það, að þótt viðskiptakjörin nú 1980 séu hin sömu og 1975, þá er kaupmáttur, ráðstöfunartekna heimilanna nú hvorki meira né minna en 19% hærri en áriö hans Geirs, áriö 1975, og þaö þótt kaupmátturinn, hafi rýrnað litið eitt undanfarnal mánuði meðan beðið er eftirl kjarasamningum. Það var von, aö Vinnuveitenda-. sambandið væri ánægt meö rikis-1 stjórnina hans Geirs Hallgrims- J sonar um miöjan áratuginn,| rikisstjórn, sem skerti lífskjör ■ alls almennings langtum meira I en áfall i viðskiptakjörum þá gaf | tilefni til. Ef einhver heyrir talsmenn ■ Sjálfstæðisflokksins — sem flestir I iæöast nú reyndar meö veggjum, | minnast á þaö nú, aö „kommar-| nir” i núverandi rikisstjórn séu- svo vondir viö verkalýöinn, — þá J væri rétt aö spyrja þessa sömu j talsmenn, hvernig á þvi standi, aö | kaupmátturinn, raungildi tekn-> anna, skuli þó vera nær 20% hærri j nú en meðan Sjálfstæöisflokkur- inn réöi, þótt viöskiptakjörin séu I nú sist betri' en þá? ■ Erient verö á innfluttuml vörum hefur nú hækkaö4‘ sinnum örar en á árunum 1974-1978 Og mættum viö benda á annað: — Samkvæmt töflu sem birtist á blaösiðu 43 i hinni nýju skýrslu Þjóöhagsstofnunar um efnahagsmál, þá kemur fram að á stjórnarárum Geirs Hailgrims-' sonar, árunum 1974-1978, hækkaðij erlent verö á okkar innfluttu vör- um samtals um aðeins 20% á fjór-' um árum, eða innan viö 5% á ári aö jafnaöi. Nú telur Þjóöhags-j stofnun hins vegar, aö erlent verð; hækki á tveimur árum 1978-1980 um 38% alls, eöa 17.5% til jafnað- ar á ári. Með öðrum orðum;siðustu tvö! ár hefur sú veröbólgualda, sem á okkur skcllur utanlandsfrátveriö nær fjórfalt öflugri en á árunum 1974-1978. Er nokkur svo fátækur i anda, aö hann skilji ekki, aö slikt hefur áhrfi. Samt skilaði Geir Hallgrimsson af sér verðbólgu upp á 40-50%, þegar hann lét af stjórnartaum- um 1978. Þarf þá nokkur að ærast, þótt verðlag hér innanlands hækki um 50-55% frá upphafi til loka þessa árs, eins og Þjóöhags- stofnun spáir nú?

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.